Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.12.2017, Side 51

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.12.2017, Side 51
24.12. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51 jólum. Jólasveinarnir birtast sem þessi upp- runalegu skrímsli í Sólhvörfum, en ekkert hef- ur heyrst til þeirra í tvær aldir og talið var að þjóð þeirra væri útdauð. Þannig sæki ég í myrkari hliðar þjóðsagna, leita eftir því an- kannalega og sameina það við rökkurstemn- ingu glæpasögunnar.“ Yfirnáttúruleg jól „Sólhvörf gerist frá vetrarsólhvörfum til 7. janúar. Þar á milli er aðfangadagur, jóladagur, áramótin, nýársnótt – draumnóttin mikla – og þrettándinn. Allur þessi tími hefur mikla merkingu í íslenskri þjóðtrú hvað varðar hið yfirnáttúrulega. Vættir eru á flakki, draumar verða skýrari og allt er sveipað dulrænu í myrku skammdeginu. Ég leita aftur í tímann þegar jólin voru ekki aðeins hátíð ljóss og frið- ar, og þegar einkenni þess tíma eru færð inn í íslenskan samtíma verður úr dýnamík sem skapar ótta meðal almennings og togstreitu meðal persónanna. Innri tími Sólhvarfa; jólin og áramótin, hefur því talsverð áhrif á at- burðarásina og þróun persónanna.“ Einstakt efni á skjánum Það skortir hvorki verkefnin né hugmyndirnar hjá Emil. Hann vinnur nú að þriðju bókinni um þær mæðgur, er með gróf plön fyrir bók fjögur og fimm og sér jafnvel fyrir sér að þetta geti orðið löng sería. Nú er einnig formleg handritavinna að hefjast við gerð sjónvarpsþátta byggðra á Víghólum. „Handritshöfundarnir eru alveg frábærir, ég er í hlutverki ráðgjafa, og þau hafa verið að senda mér spurningar um ýmislegt varðandi söguheiminn. Það er alveg hreint magnað að íslenskt framleiðslufyrirtæki ráðist í þetta verkefni: norrænu glæpasöguna, íslenska þjóðtrú, fantasíu. Ég held að það sé óhætt að segja að þetta verði einstakt efni í íslenskri kvikmynda- og þáttagerð þegar það birtist á skjánum,“ segir rithöfundurinn Emil Hjörvar Petersen og horfir hress fram á veginn. Emil hefur skrifað bókina Sólhvörf þar sem jólin eru yfirnáttúruleg. Morgunblaðið/Árni Sæberg Brotamynd er fjórða skáldsaga ÁrmannsJakobssonar. „Þetta er sú fyrsta semgerist í samtíðinni,“ segir hann, en þrátt fyrir að lifa og hrærast í bókmenntum fyrri alda í vinnunni þekkir Ármann vitaskuld vel til bókmennta nútímans og hefur lesið mik- ið frá unglingsárum. „Ég fékk hins vegar ekki sjálfstraust til að vera útgefinn rithöfundur fyrr en seint. Líkist mörgum kvenrithöfundum að því leyti; karlar gefa oft út fyrstu bókina um 25 ára aldur en konur um fertugt,“ segir Ár- mann. Aðalpersóna bókarinnar er blaðakona af yngri kynslóðinni. „Hún fær verkefni sem kornungur ritstjóri hennar sér fyrir sér sem gott efni; að fjalla um konu sem er nýlátin, en síðar kemur reyndar í ljós að aðrar hvatir virð- ast liggja að baki hjá honum.“ Ármanni fannst spennandi að skrifa bók þar sem aðalpersónan er miklu yngri hann sjálfur. „Ég þurfti að huga að málnokun sem er frá- brugðin minni og það fannst mér spennandi. Mikil áskorun.“ Ármann segir áhugaverða spurningu hvort hægt sé að kynnast manneskju sem maður hefur aldrei hitt. „Konur eru minna áberandi á skjalasöfnum en karlar; til dæmis er mun óal- gengara að einhver hafi gefið bréfasafn frá konu en karli þannig að slíkum heimildum er ekki til að dreifa. Og sú aðferð að ræða við fólk sem þekkti konuna er sérkennileg að sumu leyti, því hver og einn segir sína sögu; það er engin samstaða um hvernig hún var og það verður því vandamál fyrir blaðakonuna að vita hverjum hún á að trúa.“ Hin látna var róttækur baráttumaður, hafði náð miklum árangri í sínu fagi og orðið mjög rík. „Ég held að blaðakonan unga líti á þá látnu sem æskilega fyrirmynd, þótt það komi ekki beinlínis fram í bókinni. Hún hefur ef til vill þörf fyrir slíka fyrirmynd og það held ég sé ástæðan fyrir því að hún fær áhuga á þessu máli. Kannski snýst sagan fyrst og fremst um fyrirmyndir kvenna. Það mál er hins vegar flóknara en fyrirmyndir karla því konurnar eru svo fáar. Ekki það að karlar geti ekki verið fyrirmyndir kvenna og öfugt en samt er það mál sem þarf að huga að. Ég held að félagsleg staða skipti líka máli, aðalsöguhetjan er greini- lega ekki komin af merkilegu fólki þannig að henni finnst spennandi að kynnast konu sem sat á Alþingi; hún dregst að konunni.“ Bókin er byggð upp sem ráðgáta að ein- hverju leyti, segir Ármann. „Blaðakonan leitar að svörum en ég held þau séu ekki klippt og skorin. Lesendur ættu að geta haldið áfram að velta fyrir sér að hverju hún komst. Ég mata lesendur ekki á því og það er margt sem þeir þurfa sjálfir að vega og meta.“ Ármann segir að sumu leyti skrýtið að vera höfundur í dag. „Bók er markaðsvara og mað- ur þarf að taka tillit til þess. Sífellt er talað meira um hvað bækur seljast en minna um innihald,“ segir hann og finnst ekki heppilegt. „Bókmenntir eru texti og ætti að fjalla um þær á þeim forsendum. Höfundar vilja vera metnir út frá handverki sínu fyrst og fremst en ekki einhverju öðru,“ segir Ármann Jakobsson. Hver er sannleikurinn? „Bókmenntir eru texti og ætti að fjalla um þær á þeim forsendum,“ segir Ármann Jakobsson. Morgunblaðið/Hari Ármann Jakobsson er prófess- or í bókmenntum fyrri alda. Fjórða skáldsaga hans gerist aftur á móti í samtímanum sem honum fannst spennandi áskorun því málnotkun per- sóna er frábrugðin hans eigin. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Kóngulær í sýningargluggum bbbbn Eftir Kristínu Ómarsdóttur. JPV útgáfa, 2017. Kilja, 95 bls. Ljóðin í þessari bók Krist- ínar eru á vissan hátt galopin í heillandi og áhugaverðu flæðinu, um leið og lesandinn getur farið allt í kringum þau en ekki komist inn í naglfest- an merkingarheim og verður að giska á hvað er verið að fara. En það er hluti af galdr- inum, absúrd eða súrrealískum, hvaða orð sem við notum, í ljóðheimi skáldsins. Og klístraðir kóngulóarvefir á vel hannaðri kápu kallast vel á við ljóðin. Einar Falur Ingólfsson Skuggarnir bbbbn Eftir Stefán Mána. 315 bls. Sögur útgáfa 2017. Skuggarnir virðist vera ósköp venjuleg saga venju- legs ungs fólks í Reykjavík, en hún er mikið meira. Teng- ingin við þjóðsögurnar gefur henni sérstakan blæ og við lestur sögunnar rifjast ým- islegt upp. „Héðan er engin leið til baka. Héðan er engin leið aftur heim,“ stendur á bókarkápu. Hætt er við að spennunni ljúki samt ekki þar. Steinþór Guðbjartsson Er ekki allt í lagi með þig? bbbmn Eftir Elísu Jóhannsdóttur. Vaka-Helgafell 2017. 315 blaðsíður Einelti er gríðarlega flókið fyrirbæri og á sér ótal birting- armyndir og Elísa fer býsna vel með þetta vandmeðfarna efni. [… ] Sagan rennur vel áfram og þó að viðfangsefnið sé vissu- lega alvarlegt er sagan bráð- skemmtileg og fyndin, skrifuð af innsæi og næmni og það er vissulega fengur í nýjum höfundi eins og Elísu sem skrifar af svona miklum metnaði fyrir unglinga. Anna Lilja Þórisdóttir Erlendur landshornalýður?  Eftir Snorra G. Bergsson. Almenna bóka- félagið 2017. Innbundin, 375 bls. Snorri segir heimildir ekki gefa „tilefni til að ætla að hér hafi verið almenn óvild í garð gyðinga“. Hér var stjórnsýslu hins vegar háttað á þann veg að það var í raun í höndum Hermanns Jónassonar að ráða „hverjir fengu að vera hér og hverjir ekki“. [...] Þetta er grundvallarrit um þátt í Íslandssögunni sem ekki má liggja í þagnargildi. Þarna er að finna efnivið sem vonandi verður nýttur til frekari rannsókna og skýringa á þróun sem gat að lok- um af sér helförina undir forystu nasista. Björn Bjarnason Millilending bbbbm Eftir Jónas Reyni Gunnarsson. Partus 2017. Kilja. 171 bls. Þrátt fyrir hinn mikla þunga og angist er bókin afar skemmtileg og fyndin. Hún er mjög þétt og vel stíluð, með beittum og dálítið hryssings- legum húmor. Strax við fyrstu setningar Millilendingar flaug í gegnum hugann: „Þetta verður skemmtilegt“, og það var það svo sannarlega allt til enda í einstaklega flottri lokasenu sem hnýtir alla bókina saman og gefur henni meiri dýpt; fallega og vel gert. Hildigunnur Þráinsdóttir Úr umsögnum

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.