Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.12.2017, Síða 38
Hverju ætlar þú að klæðast um jólin? Ég er á leiðinni til Taílandsmeð fjölskyldunni svo ég verð bara í bikiníi og sandölum meðbumbuna út í loftið og sólarvörn á kantinum um jólin.
Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum? Stíllinn minn er frekar afslapp-
aður og ómeðvitaður. Mér finnst ég ennþá vera stelpa en er samt kona og
líður vel þarna mitt á milli. Ég klæði mig eins og mér finnst þægilegt en
dubba mig stundum upp og fer í fína gírinn.
Hvað heillar þig við tísku? Hvað fólk getur virst vera alls
konar týpur eftir því hvernig það klæðir sig.
Áttu þér uppáhaldsflík eða fylgihlut? Burberry-kápuna
hennar mömmu sem mamma hennar gaf henni. Jú, og
ullarsokkar og föðurland. Ég er hryllileg kuldaskræfa og
geng alveg frá vinkonum mínum (og
stundum kærasta líka) með ósmart of-
notkun á þessum ómissandi flíkum
mínum.
Ertu með eitthvert tískuráð
til óléttra kvenna? Svo sann-
arlega, að kaupa sér óléttuflíkur
sem ná yfir bumbuna og
þrengja ekki að maganum. Ég
fann æðislegt pils í Tvö líf sem
ég fer varla úr. Mér finnst alveg
smart að vera í smá víðum skyrtum
eða kjólum, annað en þegar ég tók
þriggja barna törn 2005-10 og var yf-
irleitt í þröngu til að viðra kúluna.
Hvaða þekkta andlit finnst þér
með flottan stíl? Mér hefur alltaf
þótt Audrey Hepburn glæsileg.
Mamma, í Sveitabúðinni Sóley, er
samt smartasta kona sem ég þekki
og karlmaðurinn sem ég er heilluð
af í stíl er Þorleifur Kamban, svo
áreynslulaust svalur.
Áttu þér eitthvert gott stef, ráð
eða mottó þegar kemur að
fatakaupum? Kauptu þér það
sem þig raunverulega vant-
ar. Ég fer ekkert endilega
eftir því samt, sem sést
kannski best á yf-
irhafnasafninu mínu …
Áttu þér einhvern uppáhalds-
fatahönnuð? Er Janus í ullar-
fatabúðinni fatahönnuður?
Hvar kaupir þú helst föt? Ég
versla aðallega í Uniqlo og Monki
og stundum finn ég fallegar flíkur í
Rauða kross búðinni. Ég væri samt til í að eiga fyrir
vönduðum konufötum í Stefánsbúð og Geysi, verðandi
bráðum kona.
Hvað er í snyrtitöskunni? Sensai Luminous sheer fo-
undation, jedúddamía hvað það getur bjargað óléttum
andlitum, og Bobby Brown sólarpúður og maskari.
Clarins glossinn dagsdaglega og Mac varalit fyrir
spari, litur fer eftir skapi. Annars fylgir kókosolía
mér allt í lífinu.
Hver hafa verið bestu kaupin þín? Líklega Hunter-
stígvélin mín, mér finnst ég skemmtilega smart í þeim í slabbinu við gulu
regnkápuna frá 66 sem kærastinn gaf mér. Mér líður eins og Línu Lang-
sokk í þessari samsetningu.
Hvaða tískutímaritum/bloggum fylgistu með? Er áskrifandi að tímarit-
inu Glamour. Reyndar var það til þess að fá hettupeysu sem mér fannst
smart en stóru dæturnar, 12 og 13 ára, eignuðu sér síðan.
Andrea Eyland hefur
gaman að því að
klæða sig upp.
Morgunblaðið/Hari
Bikiní í stað
jólakjóls
Hunter-stígvélin
eru alltaf svöl.
Andrea verslar
mikið í Monki.
Andrea Eyland Sóleyjar- og Björgvinsdóttir, höf-
undur bókarinnar Kviknar sem kom út fyrir jólin,
er með persónulegan og afslappaðan stíl. Andrea
klæðist þægilegum og hlýjum flíkum en hefur þó
gaman að því að dubba sig upp við tækifæri.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Audrey Hepburn
var alltaf flott.
Andrea segir Sensai
Luminous sheer-
farðann ómissandi
fyrir óléttar konur.
Leikkonurnar Meryl Streep, Jessica Chastain og Emma Stone eru
meðal þeirra sem tilnefndar eru til Golden Globe-verðlaunana og munu klæðast
svörtu á hátíðinni hinn 7. janúar næstkomandi. Leikkonunar tjá þannig samstöðu og mótmæla
kynferðislegri áreitni sem hefur verið mjög áberandi í Hollywood að undanförnu og auðvitað víðar.
Sýna samstöðu í svörtu
TÍSKA
38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.12. 2017