Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.12.2017, Side 56

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.12.2017, Side 56
SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2017 Mathilda Maj, níu ára íslensk stúlka í Kaupmannahöfn, ákvað að grípa til sinna eigin ráða og skrifa bréf, ekki til jólasveinsins heldur símafyrirtækis, þar sem hún óskar þess að fá iPhone í gjöf. „Hún bað um iPhone 5S því hún átti iPhone 5S sem hún týndi fyrir tveimur árum og er ennþá mjög leið yfir því. Hún er búin að óska sér að fá iPhone í langan tíma en ekki fengið enn. Mamma mín stakk upp á því að hún skrifaði bréf til jólasveinsins og kannski myndi ósk hennar rætast,“ segir mamma Mat- hildu, Jóhanna Björg Christensen, en fjölskyldan hefur verið búsett í Danmörku í tvö og hálft ár. „Hún settist niður og byrjaði að skrifa og teikna,“ segir hún og bætir við að amman hafi furðað sig á því að bréfið hafi verið stílað á YouSee og þótt jólasveinninn vera kall- aður furðulegum nöfnum þarna í Danmörku. Það er hins- vegar aldeilis ekki svo því YouSee er stærsta síma- fyrirtækið þar í landi. „Hún ákvað bara að klippa út milliliðinn og fara beint í YouSee og var viss um að það myndi virka betur. Jólasveinninn þyrfti hvort eð er að fara þangað,“ segir Jó- hanna Björg. „Hún fór með bréfið í búð YouSee nálægt okkur og þeim fannst þetta svo krúttlegt að þetta fer alla leið í efstu stjórn hjá þeim. Þeir hringdu svo í okkur í byrjun vikunnar og sögðu að forstjórinn hjá YouSee hefði ákveðið að gefa henni síma og hann sendi verslunarstjórann í búðinni í jólasveinabúning hingað og forstjórinn kom líka og fleiri starfsmenn og gáfu henni síma,“ segir Jóhanna Björg, þannig að jólaóskir geta sannarlega ræst. Verslunarstjórinn í YouSee-búðinni á Amager kom uppáklæddur fær- andi hendi með símann. Heimsókn frá Símasplæsi Mathilda Maj, níu ára íslensk stúlka í Kaupmannahöfn, fékk síma í gjöf eft- ir að hafa klippt út milliliðinn og sent óskalistann beint á símafyrirtækið. Sigurður A. Magnússon ferðaðist í þrjá mánuði um Indland í kring- um áramótin 1960-1961 en viðtal hans við Dalai Lama birtist í Morgunblaðinu á aðfangadag 1960. Þar segir Sigurður frá því að Dalai Lama hafi snemma kunnað langa texta utanbókar en í Tíbet er algengt að ungbörn kunni heilar bækur utanbókar, jafnvel böm á öðru ári. Sigurður skrifar: „Hann kvaðst sjálfur þekkja mann í Lhasa, Pamana nokkurn Vatika, sem þuldi heilar bækur utanbókar tveggja ára gamall. Vestrænir vís- indamenn ættu að rannsaka þetta fyrirbæri. Fræðimenn í Tíbet hefðu komið fram með ýmsar skýringar, en með nútímavís- indum væri kannski hægt að finna fyllri skýringu. Vísindin mættu aldrei missa sambandið við trúarbrögðin og heimspekina, því sannleikurinn væri takmark allra þessara greina andlegrar viðleitni manns ins. Dalai Lama lyfti bollanum sem hann hélt á og bætti við: Hvað er þessi bolli? Vísindin geta gefið okkur ýtarlega skýringu, en ekki endanlega, því engir tveir bollar eru nákvæmlega eins, þó hugtakið sé eitt og óbreytilegt. Þetta er heimspekilegt hugtak, sagði hann og lagði frá sér boll- ann með barnslegu brosi. Annars langar mig til að nema nútíma- vísindi, hef mikinn áhuga á tækni- framförum síðustu ára. Þegar við hittumst næst get ég kannski gef- ið betri skýringu á ýmsu sem ég er að velta fyrir mér nú.“ GAMLA FRÉTTIN „Hvað er þessi bolli?“ M. K. Pannikar, fyrrverandi sendiherra Indlands í París og Peking, Humayun Kabir, menntamálaráðherra Indlands, Sigurður og Rajendra Prasad, forseti Indlands. ÞRÍFARAR VIKUNNAR David Letterman sjónvarpsmaður Dave Allen leikari Guðmundur Oddur Magnússon (Goddur) prófessor Mynd/Jóhanna Björg Christensen ////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.