Morgunblaðið - 22.01.2018, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2018
12. febrúar í 10 nætur
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
Bókaðu sól
FUERTEVENTURA
Allt að
25.000kr.
afsláttur á mann
Frá kr.
81.835
Jörð skalf rétt norðaustan við
Grindavík í gærkvöldi og fylgdu
nokkrir minni skjálftar í kjölfarið.
Um kl. 21.15 kom skjálfti upp á 3,5
stig og skömmu síðar 2,5 stig. Tæp-
um hálftíma síðar kom þriðji
skjálftinn, upp á 1,5 stig. Íbúar
Grindavíkur fundu vel fyrir skjálft-
unum og bárust Veðurstofunni
nokkrar tilkynningar.
Að sögn Huldu Rósar Helgadótt-
ur, náttúruvársérfræðings á Veður-
stofunni, var staðsetning skjálft-
anna ekki óvenjuleg. Fylgst var
með skjálftum í nótt og senda átti
út tilkynningu ef eitthvað markvert
gerðist.
Grindvíkingar fundu
fyrir sterkum kipp
Grindavík Jörð skalf í bænum í gærkvöldi.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Þing kemur saman í fyrsta skipti á
nýju ári í dag. Ákveðið var um
helgina að hefja þingstörf á leiðto-
gaumræðum og fá allir flokkar sem
eiga fulltrúa á þingi tíma til að ræða
mál að eigin vali. „Það var allt mjög
aðþrengt í tíma yfir jól og áramót og
lítill tími til almennrar umræðu,“
segir Steingrímur J. Sigfússon, for-
seti Alþingis. „Það var samkomulag
um að hleypa smá pólitískri umræðu
að. Flokkarnir ráða því sjálfir hvað
verður tekið fyrir. Ekkert sérstakt
gefið upp annað en bara staða stjórn-
málanna í byrjun árs og verkefni
vorþingsins.“
Áætlað er að hver flokkur fái 10
mínútna ræðutíma.
Á morgun mun Bjarni Benedikts-
son fjármálaráðherra mæla fyrir
fjármálastefnu næstu fimm ára.
Þingmannamál verða síðan á dag-
skrá á miðvikudaginn og fimmtudag-
inn þar sem allir flokkarnir fá að
koma forgangsmálum sínum að.
„Við erum að taka mál sem þing-
flokkarnir hafa valið að setja í for-
gang og leggjum af stað í umferð
númer tvö sem verður þá forgangs-
mál þingflokka. Það er þá skipulagt
að hver flokkur kemur einu for-
gangsmáli frá sér að í slíkri umferð.
Það kemur bara í ljós hvaða mál það
verða þegar við förum að raða inn á
dagskrána. Það eru þrjár vikur
framundan þangað til kemur að kjör-
dæmaviku,“ segir Steingrímur.
Lækkun kosningaaldurs
Fyrsta þingmannamál Vinstri
grænna verður að sögn Bjarkeyjar
Olsen Gunnarsdóttur, þingflokksfor-
manns VG, frumvarp um lækkun
kosningaaldurs, sem var mælt fyrir á
síðasta ári. Flokkurinn mun síðan
leggja til frumvarp um endur-
greiðslu vegna gleraugnakaupa
barna. „Við erum í rauninni að sjá til
þess að börn undir 10 ára fái gler-
augu allt að tvisvar á ári og annað
hvert skipti eftir það, til 18 ára ald-
urs. Börn sem eru í sérstakri áhættu
og metin er læknisfræðileg nauðsyn
á, fái svo alfarið endurgreitt, meðan
þau eru að þroskast,“ segir Bjarkey
og bætir við að einnig þurfi að upp-
færa gjaldskrána, sem ekki hefur
verið uppfærð lengi. Þá mun frum-
varp Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur,
þingmanns VG, um málefni fylgdar-
lausra barna sem sækja um alþjóð-
lega vernd einnig verða lagt fram á
vorþingi.
Þórunn Egilsdóttir, þingflokks-
formaður Framsóknar, segir að
þingflokkurinn muni funda í dag og
ákveða hvaða frumvörp verða sett í
forgang. Sjálfstæðisflokkurinn mun
einnig taka ákvörðun í dag um hvaða
þingmannamál verða tekin fyrir, að
sögn Birgis Ármannssonar, þing-
flokksformanns Sjálfstæðisflokks-
ins. Samfylkingin mun leggja fram
frumvarp í vikunni sem snýr að leng-
ingu fæðingarorlofs í 12 mánuði.
„Við ætlum að leggja fram frumvarp
um lengra fæðingarorlof. Það verður
okkar forgangsmál sem við mælum
fyrir á miðvikudaginn. Síðan erum
við með nokkur mál, sem einstaka
þingmenn hafa lagt fram og síðan er-
um við með mál í vinnslu sem tengj-
ast velferðarmálum, menntamálum
og auðlindum þjóðarinnar,“ segir
Oddný G. Harðardóttir, þing-
flokksformaður Samfylkingarinnar.
Spurð um hvaða málum flokkurinn
sé að vinna að í þeim málaflokkum
segir Oddný að það muni skýrast.
Þetta séu málefnin sem Samfylking-
in muni leggja áherslu á á vorþingi.
Alþingi hefur störf á nýju
ári með leiðtogaumræðum
Þingmannamál um lengra fæðingarorlof og lækkun kosningaaldurs lögð fram
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Alþingi Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Vinstri grænna, er flutningsmaður
frumvarps um lækkun kosningaaldurs til sveitarstjórnarkosninga.
Úrslit í for-
mannskjöri Fé-
lags grunnskóla-
kennara verða
kunngerð í dag
klukkan 14, en
rafræn kosning
hefur staðið yfir
á vef félagsins
síðan 18 janúar
sl. Kjörsókn hef-
ur verið afar
dræm, en einungis 8% félagsmanna
höfðu kosið nú fyrir helgi. Nýr for-
maður mun taka við embætti af frá-
farandi formanni, Ólafi Loftssyni, á
aðalfundi Félags grunnskólakenn-
ara í maí. Fimm aðilar hafa gefið
kost í sér í embætti formanns: Hjör-
dís Albertsdóttir, Kjartan Ólafsson,
Kristján Arnar Ingason, Rósa Ingv-
arsdóttir og Þorgerður Laufey Dið-
riksdóttir. aronthordur@mbl.is
Úrslit í formanns-
kjöri kunngerð í dag
Ólafur
Loftsson
Þingfundur um stöðuna í stjórnmálum og verkefnin fram-
undan hefst kl. 15 í dag. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd,
fjárlaganefnd og velferðarnefnd funda allar fyrir hádegi.
Auk fjármálastefnunnar, sem fjármálaráðherra mælir fyr-
ir, fer fram óundirbúinn fyrirspurnatími á morgun.
Forsætisráðherra, heilbrigðisráðherra, sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra, umhverfis- og auðlinda-
ráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og
dómsmálaráðherra verða viðstaddir. Hefst fyrirspurna-
tíminn klukkan 13.30. Á fimmtudaginn verður einnig
óundirbúinn fyrirspurnatími þar sem fjármála- og efna-
hagsráðherra, mennta- og menningarmálaráðherra og ferðamála-, iðnaðar-
og nýsköpunarráðherra verða viðstaddir og hefst þingfundur kl. 10.30.
Þingmannamál verða tekin fyrir á miðvikudegi og fimmtudegi.
Dagskrá þingsins í vikunni
UMRÆÐUR UM STÖÐUNA Í STJÓRNMÁLUM HEFJAST KL. 15 Í DAG
Fjármálaráðherra í
pontu Alþingis.
RIE foreldrafélagið, Meðvitaðir foreldrar, settu upp
svonefndan Pop-Up ævintýraleikvöll á Kjarvalsstöðum
um helgina, í anda uppeldisstefnunnar RIE (Respectful
Parenting). Þar gátu börn komið og leikið sér með
frjálsri aðferð.
Á Kjarvalsstöðum var búið að koma fyrir alls konar
efnivið sem börnin gátu leikið sér með, eins og pappa-
kössum, efnisbútum, vatnskerum, pottum, pönnum, reip-
um og límbandi. Þetta var í þriðja sinn sem foreldra-
félagið stóð að viðburði sem þessum. Markmiðið var að
börnin fengju tíma og tækifæri til að leika sér og kanna
umhverfi sitt á eigin forsendum. Einnig var foreldrum
boðið að taka skref til baka, fylgjast með og njóta þess
sem börnin tóku upp á að gera sér til dundurs.
Meðvitaðir foreldrar settu upp leikvöll á Kjarvalsstöðum
Morgunblaðið/Eggert
Börn léku sér með frjálsri aðferð
Þyrla Landhelgisgæslunnar var í
gærkvöldi kölluð til aðstoðar er
Ford Econoline-jeppabifreið valt út
af veginum um Lyngdalsheiði. Einn
farþeganna kastaðist út úr bílnum
og var hann fluttur með þyrlu á
bráðamóttöku Landspítalans í
Fossvogi. Maðurinn er ekki talinn í
lífshættu. Lögreglan á Suðurlandi
hafði í nógu að snúast í gær og
nokkuð var um umferðaróhöpp, en
að sögn lögreglu var í flestum til-
vikum um minniháttar tjón að
ræða. Í tilkynningu frá lögreglu
segir að flest slysanna megi rekja
til þess að akstur sé ekki miðaður
við aðstæður, en þá spili reynslu-
leysi ökumanna stundum inn í. Í til-
kynningunni segir ennfremur að
lögreglan hvetji ökumenn til að
haga ökuhraða og akstri eftir að-
stæðum. alexander@mbl.is
Valt út af veginum um Lyngdalsheiði