Morgunblaðið - 22.01.2018, Side 6

Morgunblaðið - 22.01.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2018 Kókosjógúrt Ástæða þess að þú átt að velja lífræna jógúrt: Lífrænar mjólkurvörur • Engin aukaefni • Meira af Omega-3 fitusýrum • Meira er af CLA fitusýrum sem byggja upp vöðva og bein • Ekkert undanrennuduft • Án manngerðra transfitusýra www.biobu.is Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Eftir fordæmalausa fjölgun ferðamanna í bráðum áratug er sá tími kominn að stjórnendur ís- lenskra ferðaþjónustufyrirtækja þurfa að endurmeta stöðuna. Vöxturinn er hægari en verið hef- ur og nýir aðilar hafa ekki sama svigrúm og áður. Með öðrum orð- um þýðir þetta að atvinnugreinin og starfsumhverfi hennar er að verða þróaðra og fagmennskan vonandi meiri,“ segir Skaphéðinn Berg Steinarsson, nýr ferða- málastjóri. Eftir að hafa starfað lengi sem stjórnandi ýmissa fyrirtækja í ferðaþjónustu og staðið í eigin rekstri hefur Skarphéðinn Berg ýmsar hugmyndir og skoðanir á ferðamálum. Fyrir vöxt og við- gang greinarinnar segir hann að há tíðni flugferða til og frá landinu sé lykilatriði. Í því efni sé mikil- vægt að efla Keflavíkurflugvöll og Leifsstöð enn frekar sem skipti- stöð í flugi yfir Atlantshafið. Fjölg- un farþega með því móti skapi tækifæri fyrir landið allt. Reykjavík sterkt vörumerki „Möguleikarnir felast í því að tengja landsbyggðina við Kefla- víkurflugvöll með góðum sam- göngum. Vissulega geta fyrirtæki í greininni og stjórnvöld reynt að hafa áhrif á hvert fólk fer, en ákvörðunin er alltaf ferðamanns- ins sjálfs. Langflestir koma til Ís- lands hingað af því að náttúra landsins er áhugaverð en þegar dvalartími fólks styttist, sem er al- þjóðleg þróun og er nú gjarnan þrír til fjórir dagar, segir sig sjálft að fólk fer ekki langt út á land nema samgöngur séu góðar. Og margir halda sig mest hér í Reykjavík, sem er sterkt vöru- merki og vinsæll ferðamanna- staður,“ segir ferðamálastjóri og heldur áfram: „Markaðurinn er annars mik- ið að breytast. Nú sækir til dæmis til Íslands í vaxandi mæli ungt fólk frá Asíu og því þarf að bregðast við með hugsanlega breyttu vöru- framboði. Hinn dæmigerði túristi sem hingað kemur er ekki lengur miðaldra Evrópubúi í náttúru- skoðun. Á síðasta ári fóru út úr landinu 2,2 milljónir manna og fjölgaði um 425 þúsund milli ára. Ferðamönnum frá Austurlöndum fjær á líka eftir að fjölga mikið og áhugi Icelandair á Asíumarkaði er í því efni skiljanlegur.“ Á síðustu árum hefur mikið verið rætt um möguleika á gjald- töku til þess að fjármagna upp- byggingu ýmissa þeirra innviða og þjónustu sem fjölgun ferðamanna kallar á. Engin niðurstaða er þó komin enn. Notendagjöld best kosta „Það er pólitísk spurning hvort ferðamenn eigi að leggja meira til samneyslunnar á Íslandi. Ef svo er, þá eru ýmsar leiðir fær- ar, svo sem hækkun á virðisauka- skatti, komugjöld eða þjónustu- og notendagjöld ýmiskonar. Sjálfur tel ég það síðastnefnda besta kost- inn í stöðunni. En það er sama hvaða leið er valin, álögurnar hafa alltaf áhrif á verðlagið og þar með eftirspurnina,“ nefnir Skarphéð- inn sem segir að þó ferðaþjónusta á Íslandi nálgist nú jafnvægi eftir langt vaxtarskeið séu tækifærin í greininni mörg. Alltaf öðru hvoru komi inn nýmæli sem slái í gegn eins og norðurljósaferðir t.d. „Í ferðaþjónustu liggur skylda opinberra aðila í því tryggja að búa greininni góðar að- stæður, setja reglur og sjá til þess að öryggismálin séu í lagi. Þar er mikilvægt að bæta upplýsingagjöf- ina því fólk frá fjarlægu landi þekkir ekkert í líkingu við hafrót í Reynisfjöru, svartabyl á Mosfells- heiði eða rok undir Hafnarfjalli. Því er til stórra bóta að nú er farið að loka vegum og stöðum þegar verst lætur. Annað í atvinnugrein- inni er þó alls ekki á valdi stjórn- valda, svo sem verðlagning. Hafa má mörg orð um hátt verð á til dæmis kökusneiðum og vatni á flöskum, en slíkt bítur auðvitað fyrst og fremst fyrirtækin sem fara offari í verðlagningu en ekki heildina. Hitt er samt ljóst að Ís- land er og verður aldrei ódýrt sem ferðamannastaður og á kannski heldur ekki að vera þannig.“ Ferðaþjónustan bregðist við mikilli fjölgun ferðamanna frá Asíu Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ferðamálastjóri Hinn dæmigerði túristi er ekki miðaldra Evrópubúi í náttúruskoðun, segir Skarphéðinn. Ísland er aldrei ódýrt  Skarphéðinn Berg er fæddur árið 1963, er viðskiptafræð- ingur frá HÍ og MBA frá Uni- versity of Minnesota. Hann hefur víðtæka stjórnunar- og rekstrarreynslu bæði úr at- vinnulífinu og úr stjórnsýsl- unni, m.a. sem skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu og deild- arstjóri í fjármálaráðuneytinu.  Í gegnum störf sín hefur Skarphéðinn góða þekkingu á ferðaþjónustu, en hann hefur m.a. verið forstjóri Iceland Ex- press, forstjóri Ferðaskrifstofu Íslands og framkvæmdastjóri Íshesta. Hver er hann? Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Bæjarstjórn Hafnarfjarðar lýsti ein- róma yfir á síðasta fundi sínum von- brigðum með að ekki sé tryggt fjár- magn á árinu 2018 til áframhaldandi framkvæmda við Reykjanesbraut innan Hafnarfjarðar. Um er að ræða tvöföldun Reykja- nesbrautar frá Kaldárselsvegi að mislægum gatnamótum við Krísu- víkurveg. Rósa Guðbjartsdóttir, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, segir að ástandið sé alvarlegt á þessum kafla vegarins og mjög alvarleg umferð- arslys hafi átt sér þar stað. „Samráðshóp- ur Hafnarfjarðar- bæjar og Vega- gerðarinnar telur þennan vegar- kafla forgangs- mál og er sam- mála um að það sé mjög brýnt að tvöfalda Reykja- nesbrautina þar sem alvarlegustu slysin hafa orðið. Það fara 40 til 50 þúsund bílar um veginn á dag sem er langt yfir spám um umferðarþunga.“ Auk hættulegasta kaflans á Reykjanesbrautinni er hið mikla um- ferðarálag farið að valda Hafnfirð- ingum vandræðum. „Næsta skref er að bæta gatna- mót og hringtorg á milli Lækjargötu og Kaplakrika. Það segir sig sjálft að þess þarf þegar meirihluti umferðar bílaleigubíla sem ferðamenn leigja og taka á Keflavíkurflugvelli fer þar um. Við erum að tala um þjóðveg með síaukinni umferð,“ segir Rósa og bætir við að umræddur vegar- spotti skipti ekki aðeins íbúa Hafn- arfjarðar máli heldur alla sem um veginn þurfa að aka. Rósa segir að þingmenn kjördæmisins séu mjög meðvitaðir um stöðuna og séu sam- mála því að bregðast þurfi við sem fyrst. „Þegar þing kemur saman á ný munum við óska eftir fundi með fjár- laganefnd til þess að þrýsta á þessi mál,“ segir Rósa og bendir á að þing- menn höfuðborgarsvæðisins verði að sýna ákveðni í baráttunni um fjár- magnið. „Það verða allir að leggja sitt af mörkum, kjörnir fulltrúar sveitarfé- laganna og þingmenn þessa svæðis- ins.“ Ekki fé í nauðsynlegar úrbætur  40 til 50 þúsund bílar fara um Reykjanesbrautina á dag  Akstur yfir spám Rósa Guðbjartsdóttir Flugfreyjufélag Íslands mun boða stjórn og trúnaðarráð fé- lagsins til fund- ar í vikunni. Þar verður tekin ákvörðun um næstu skref fé- lagsins í kjara- deilu þess við Primera Air. ,,Það dregur til tíðinda seinni part vikunnar þegar stjórn og trúnaðarráð hafa komið saman og þá munum við senda frá okkur til- kynningu,“ segir Berglind Haf- steinsdóttir, formaður Flugfreyju- félags Íslands. ge@mbl.is Dregur til tíðinda hjá flugfreyjum Berglind Hafsteinsdóttir Aron Þórður Albertsson Jóhann Ólafsson Heimild til greiðslustöðvunar Uni- ted Silicon rennur út í dag en for- svarsmenn fyrirtækisins yfirfara nú gögn og skoða hver næstu skref í málinu eru. Karen Kjartansdóttir, talsmaður fyrirtækisins, sagði að frekari fréttir væru væntanlegar í dag en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. United Silicon fékk í lok ágúst heimild til greiðslustöðvunar til 4. desember til að rétta af reksturinn, en sú heimild var framlengd til 22. janúar. Samkvæmt úttekt sem unn- in var af norskum sérfræðingum kostar 25 milljónir evra, 3,1 milljarð íslenskra króna, að klára verksmiðj- una og koma mengunarvörnum í lag. Skilyrði fyrir úrbótaáætlun Í bréfi frá Umhverfisstofnun dag- sett 19. janúar sl. kemur fram að fallist hafi verið á úrbótaáætlun United Silicon með skilyrðum, en United Silicon hafði tvívegis sent Umhverfisstofnun úrbótaáætlun, fyrst 14. desember 2017 og nú síðast 16. janúar. Umhverfisstofnun krefst þess að skorsteini verði bætt á verksmiðju í þágu íbúanna til að minnka lyktar- mengun á svæðinu, en stofnunin féllst ekki á ósk forsvarsmanna fyr- irtækisins að fresta þeirri aðgerð fram yfir endurræsingu. Í bréfinu segir ennfremur að for- dæmalaus fjöldi frávika frá starfs- leyfi hafi orðið í níu mánaða rekstr- arsögu fyrirtækisins, en umbætur hafi þó átt sér stað undanfarna mán- uði. Umhverfisstofnun telur að nýtt og betra reykhreinsivirki og afsog frá aftöppun og steypingu í ofnhúsi sé til bóta, en þörf sé á frekari úrbót- um. Áhugi frá fjölda aðila Alþjóðlegir aðilar í kísiliðnaði hafa sett sig í samband við Arion banka, stærsta hluthafa United Silicon, og lýst yfir áhuga á aðkomu að starf- semi verksmiðjunnar. Kostnaður Arion banka vegna reksturs United Silicon frá því félagið fékk heimild til greiðslustöðvunar nemur meira en 600 milljónum króna, eða um 200 milljónum á mánuði. Kröfuhafar hafa einnig lýst yfir áhuga en ekki er útilokað að fyrirtækið verði sett í þrot. Í skýrslu úttektaraðila kemur fram að grunnhönnun verksmiðj- unnar sé góð en augljóst sé að ódýr og óvandaður jaðarbúnaður hafi ver- ið örsök tíðra bilana sem hafa skap- að erfiðleika í framleiðsla. Það er mat sérfræðinga líkt og fyrr segir að 25 milljónir evra þurfti til að fyr- irtækið verði eins og best verði á kosið. Frekari fregnir væntanlegar í dag  Úrbótaáætlun samþykkt með skilyrðum Morgunblaðið/RAX United Silicon Heimild til greiðslu- stöðvunar rennur út í dag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.