Morgunblaðið - 22.01.2018, Page 11

Morgunblaðið - 22.01.2018, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2018 Súr hvalur og harðfiskur Opið virka daga 10.00 - 18.15 | laugardaga 11.00 - 15.00 Gnoðarvogi 44 | 104 Reykjavík | sími: 588 8686 Glæný lúða Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði fyrir þig til að taka með heim Ný línuýsa Klaustur- bleikja Verumgáfuð ogborðum fisk Plokkfiskur - Hollur kostur tilbúinn á 5mín. Kveðja Grímur kokkur • www.grimurkokkur.is Hollt og fljótlegt[ ] ÁNMSG P R E N T U N .IS ICQC 2018-20 Atvinna Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Brim hf. mun byggja upp nýtt vöru- merki undir nafninu „Say Iceland“ og selja með því fullunninn ufsa á austurströnd Bandaríkjanna, verði farið eftir tillögum sigurliðsins í hnakkaþoni Háskólans í Reykjavík og Samtaka fyrirtækja í sjávar- útvegi. hnakkaþonið er árleg sam- keppni upprennandi sérfræðinga í markaðsmálum, hugbúnaði, tækni og vörustjórnun og snýst um að þróa nýjar lausnir fyrir sjávarútvegsfyr- irtæki. Í áskorun hnakkaþonsins í ár var nemendum falið að finna leiðir til að auka sölu á sjófrystum ufsa til hótela og veitingahúsa í Bandaríkj- unum. Sigurliðið í ár skipa Tinna Brá Sigurðardóttir meistaranemi í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði, Sóley Sævarsdóttir Meyer laga- nemi, Serge Nengali Kumakamba og Yvonne Homoncik, skiptinemar í lagadeild, og Julia Robin de Niet, skiptinemi í tækni- og verk- fræðideild. Aukin áhersla á íslensk gæði Vinningstillagan gerir ráð fyrir aukinni áherslu á íslensk gæði, sjálf- bærni og jafnt framboð allt árið um kring í markaðssetningu á ufsa á Bandaríkjamarkaði. Byggð verði upp ný aðstaða til fullvinnslu á ufsa undir „Say Iceland“-vörumerkinu í Portland í Maine í Bandaríkjunum. Jafnframt eigi að leggja áherslu á minni einingum fyrir kantínur há- skóla, hjúkrunarheimila og vinnu- staða og á markaðssetningu beint til neytenda. „Say Iceland“ vinnur hnakkaþon  Hvatt til jafns framboðs allt árið Morgunblaðið/Eggert Hnakkaþon Vinningshafar hnakkaþonsins tóku við verðlaunum fyrir mark- aðstillöguna „Say Iceland“ í Háskólanum í Reykjavík. Vegna fréttar í Morgunblaðinu 17. janúar sl. um erfðamengi Hans Jónatans hafði einn afkomenda hans samband og vildi leiðrétta mynda- texta. Þar hafði ættbókarfærsla tveggja barnabarna Hans Jónatans víxlast. Hið rétta er að Lúðvík Lúðvíksson var sonarsonur Hans og Björn Ei- ríksson var dóttursonur, en þetta víxlaðist í myndatextunum. Beðist er velvirðingar á þessu. Þá vildi afkomandinn árétta að Hans Jónatan hefði verið faktor, eða umboðsmaður við verslunina á Djúpavogi, ekki kaupmaður. LEIÐRÉTT Afkomendur ekki rétt ættbókarfærðir Allt um sjávarútveg Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Við höfum verið að sjá símtölum og fyrirspurnum fjölga mikið líkt og alltaf þegar fréttir berast af inn- brotafaraldri,“ segir Kristinn Oddur Einarsson, sérfræðingur hjá Örygg- ismiðstöðinni, um fjölgun innbrota í heimahúsum á höfuðborgarsvæðinu undanfarnar vikur. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sagði frá því fyrir helgi að töluvert hefði borið á því að þjófar brytust inn í hús að degi til og stela skart- gripum og peningum. Í mörgum þessara tilvika hefði verið brotist inn að degi til, oft í gegnum svefn- herbergisglugga. Kristinn segir að fjölgun fyrirspurna hjá Öryggis- miðstöðinni í kjölfar innbrotahrin- unnar sé að mestu leyti bundin við ákveðin hverfi, þá einna helst í Garðabæ. „Það hefur verið einhver aukning í Kópavogi og Grafarvogi, en við höfum verið að fá langflestar fyrirspurnir úr Garðabæ þar sem innbrotahrinan virðist vera hvað verst,“ segir Kristinn. Öryggiskerfi fælir frá Spurður um ráðleggingar til fólks segir Kristinn að öryggiskerfi hafi alltaf mesta forvarnargildið, en mik- ilvægt sé þó að loka öllum gluggum vel og vandlega. „Við hvetjum fólk alltaf til þess að passa upp á að læsa öllu, hafa glugga lokaða og láta síðan líta út fyrir að einhver sé heima. Staðreyndin er samt auðvitað sú að það eru talsvert meiri líkur á að brotist sé inn í hús þar sem ekki er öryggiskerfi, því kerfið hefur gríðar- legan fælingarmátt,“ segir Kristinn og bætir við að Öryggismiðstöðinni berist afar sjaldan tilkynningar um innbrot. „Við sjáum það hjá okkur að það er nánast aldrei brotist inn hjá fólki sem er með öryggiskerfi, ég held að það eigi bæði við um okkur og Se- curitas,“ segir Kristinn. Helst brotist inn í Garðabæ  Fjölgun fyrirspurna í innbrotahrinu Innbrot Innbrotahrina gengur nú yfir höfuðborgarsvæðið. Innbrotahrina » Fjölgun fyrirspurna virðist vera bundin við ákveðin hverfi á höfuðborgarsvæðinu, einna helst í Garðabæ. » Undantekningartilvik ef brotist er inn í hús með örygg- iskerfi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.