Morgunblaðið - 22.01.2018, Page 12

Morgunblaðið - 22.01.2018, Page 12
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Ífótboltanum fær fólk frábærtækifæri og úti á leikvellinumeru allir jafnir þótt geta hversog eins sé auðvitað misjöfn. Hreyfingin er góð fyrir batann og þegar kemur að til dæmis keppnis- ferðum til útlanda eru þær oft mikil en góð áskorun fyrir okkar fólk,“ seg- ir Bergþór Grétar Böðvarsson. Hann er þjálfari knattspyrnuliðsins FC Sækó. Á vettvangi þess æfa og leika notendur geðheilbrigðiskerfisins, starfsmenn og aðrir sem hafa áhuga á að styðja við verkefnið Heilmikill sigur unninn Félaginu FC Sækó var ýtt úr vör árið 2011 sem samstarfsverkefni velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, geðsviðs Landspítala og Hlutverka- seturs undir vinnuheitinu Geðveikur fótbolti. Leikmenn eru af báðum kynjum, frá tvítugu til sextugs. Er tilgangurinn með starfinu að efla og auka virkni notendahóps fólks með geðraskanir og gefa því tækifæri til að iðka knattspyrnu sem og að draga úr fordómum úti í samfélaginu. Allt ber þetta að sama brunni; að efla fólk andlega og líkamlega, að það sé sýni- legt og hafi gaman af lífinu. Allt á þetta að bæta andlega og líkamlega heilsu en alþekkt er að hreyfing og virkni geta átt sinn þátt í bata og viðhaldið honum. „Reynslan af þessu starfi ytra er góð en 2014 fórum við og heimsóttum vini okkar í Glasgow í Skotlandi þar sem við eigum systurfélag. Þar spil- uðum við nokkra leiki og gekk bara alveg ágætlega. Tilgangurinn með svona ferðum er þó ekki síst félags- legur því fólk sem glímir við geðrask- anir hefur oft verið einangrað og er hugsanlega kvíðið og með ýmsar raskanir. Fyrir það getur utanlands- ferð verið heilmikið mál en gangi allt upp er mikill sigur unninn,“ segir Bergþór sem lengi hefur verið fulltrúi notenda við geðsvið Land- spítalans. Sjálfur þurfti hann á þjón- ustu þar að halda sem sjúklingur á sínum tíma, en er nú í góðum málum. Sjálfur var hann einn af þeim sem áttu hugmyndina um „geðveikan fót- bolta“ sem valkost í meðferð og hefur verið í forsvari fyrir verkefnið. Hann hefur jafnframt lokið námskeiðum í knattspyrnuþjálfun. „Geðsviðið og borgin veittu okk- ur góðan stuðning í upphafi. Hins vegar þarf svona verkefni að byggj- ast á sjálfboðaliðastarfi og hugsjón, ef ekki, væri þetta löngu liðið undir lok,“ segir Bergþór sem stjórnar æf- ingum FC Sækó ásamt Andra Vil- bergssyni, starfsmanni Hlutverka- seturs. Andri er iðjuþjálfi og knattspyrnuþjálfari svo reynsla hans nýtist gríðarlega vel í þessu verkefni. Æfingarnar eru klukkan 13 á mánu- dögum í húsi Íþróttafélags fatlaðra við Hátún í Reykjavík. Þangað mæta gjarnan um þrjátíu manns, enda er staðurinn miðsvæðis fyrir flesta og tíminn hentar vel. Hin æfing hverrar viku er á sama tíma í Fífunni í Kópa- vogi á miðvikudögum, en verið er að reyna að finna annan tíma sem fleir- um en nú hentar. Lifandi dæmi um árangur Nú stendur fyrir dyrum æfinga- og keppnisferð félaga í FC Sækó til Bergen i Noregi um miðjan maí næstkomandi. Þar stendur til að Bolti fyrir batann Nokkrir notendur geðheilbrigðisþjónustunnar æfa fótbolta með FC Sækó og stefna nú á mót í Noregi. Knattspyrnan kætir og stuðlar að meiri virkni fólks sem þann- ig nær að yfirstíga hindranir hugarfarsins sem tafið geta fyrir bata. Fótbolti undir þessum formerkjum er valkostur í meðferð sem gefur góða raun, enda er þátt- takan á forsendum þátttakendanna sjálfra en ekki stífrar keppni. Ljósmynd/Úr einkasafni Útlönd Fótboltamenn úr FC Sækó í keppnisferð í Skotlandi fyrir tveimur árum, hvar þeir kepptu við heimalið og sýndu alveg frábæra takta. Morgunblaðið/Eggert Gleði Fátt sameinar fólk betur eða vekur sterkari tilfinningar en góður ár- angur í íþróttum eins og sást sumarið 2016 þegar Íslendingar kepptu á EM. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2018 Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is Norðurlönd í fókus standa fyrir um- ræðukvöldi í sal Norræna hússins kl. 19.30 - 21 annað kvöld, þriðjudag 23. janúar, með dönsku baráttukonunum og femínistunum Geeti Amiri og Na- tasha Al-Hariri. Þær hafa vakið mikla athygli að undanförnu í Danmörku með baráttu sinni fyrir auknum kvenrétt- indum meðal fólks af innflytjenda- ættum og breyttri sýn á konur af inn- flytjendaættum sem gerendur í eigin lífi. Báðar eru í hópi fjögurra kvenna sem komið hefur fram á umræðuviðburðum undir nafninu „Den Nydanske Kvinde- kamp“. Þær eru ósammála innbyrðis um hitt og þetta og sýna þannig fram á að fólk af innflytjendaættum í Dan- mörku er margbreytilegur hópur sem ekki talar einni röddu. Þó eru þær sam- mála um að „nýdanskur femínismi“ sé í grunninn barátta fyrir því að hver kona eigi að njóta frelsis til þess að lifa lífinu eftir eigin vilja. Umræðan fer fram á ensku. Allir eru velkomnir. Norðurlönd í fókus með umræðukvöld í Norræna húsinu Morgunblaðið/Ómar Mannlíf Innflytjendur eru margbreytilegur hópur sem ekki talar einni röddu. Nýdanskur femínismi í brennidepli Geeti AmiriNatasha Al-Harir „Torfhúsabærinn Reykja- vík. Híbýli tómthúsa- manna á 19. öldinni“ er yfirskrift fyrirlesturs Hjörleifs Stefánssonar arkitekts kl. 12.05 á morgun, þriðjudaginn 23. janúar, í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Þetta er fyrsti fyrirlestur vormisseris í röð fyrir- lestra sem Sagnfræð- ingafélag Íslands skipu- leggur í samvinnu við Þjóðminjasafnið. Meira en helmingur íbúa Reykjavíkur bjó í torfbæjum fram undir aldamótin 1900. Í fyrirlestrinum gerir Hjörleifur grein fyrir heimildum um torf- húsabyggð í Reykjavík frá upphafi fram til miðrar 18. aldar og skýrir mun á húsakosti leiguliða og bænda. Einnig fjallar hann um híbýlahætti tómthús- manna og hvernig þeir þróuðust á seinni hluta 19. aldar út torfhúsum í steinbæi. Sýndar verða ljósmyndir og teikningar af öllum húsagerðum eftir því sem heimildir gefa tilefni til. Hjörleifur Stefánsson hefur m.a. unnið að verkefnum sem tengjast varð- veislu byggingararfs, skrifað bækur um byggingarsögu auk bókar um staðar- anda Reykjavíkur og siðfræði byggingarlistar. Hádegisfyrirlestur Sagnfræðingafélagsins Meira en helmingur Reykvíkinga bjó í torfbæjum fram undir 1900 Morgunblaðið/Emilía B. Björnsdóttir Gamla Reykjavík Torfbær, sem stóð rétt hjá Há- skóla Íslands, var einn sá síðasti sem notaður var til íbúðar í Reykjavík. Bærinn var rifinn 1999. Í síðustu viku var frumsýnd í Garð- inum suður með sjó heimildamyndin Guðni á trukknum. Hún fjallar um lífshlaup Guðna Ingimundarsonar frá Garðstöðum í Garði, sem er þekktur maður á sínum heimaslóðum. Gerði lengi út trukk með lyftibúnaði og loftpressu, sá um fleygun og sprengdi jarðveg. Kom með trukkinn að fjölda verkefna í höfnum á Suður- nesjum og þegar þurfti að færa til báta. Þá tók hann að sér að ná málmi úr strönduðum skipum. Einnig hefur Guðni gert upp á annað hundrað mót- ora og vélar af ýmsum gerðum og komið í gang. Vélarnar eru varð- veittar í Byggðasafninu í Garðinum. „Guðni, sem er fæddur 1923, hefur alltaf vakið áhuga minn. Sögurnar sem maður hefur heyrt alla tíð um af- rekin hans eru goðsagnakenndar. Fyrir mér er hann tákn Garðsins,“ segir Guðmundur Magnússon sem gerir myndina. Hann er sjálfur úr Garðinum, menntaður í kvikmynda- Heimildamynd í Garðinum Guðni á trukknum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.