Morgunblaðið - 22.01.2018, Page 19

Morgunblaðið - 22.01.2018, Page 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2018 bergið og kalla fram bros á hverju andliti. Við barnabörnin nutum góðs af heimili ykkar ömmu í Vest- urberginu. Það var frábært að vera þar á hlýlegu heimili ykkar og yndislega garði. Endalausar sundferðir í Breiðholtslaug og hvað þið voruð dugleg að fara með okkur á bókasafnið er okkur minnisstætt. Svo við tölum nú ekki um tilkomumikið bókasafn ykkar, sérstaklega sniðnar að ungviðinu. Eins og allar Tinna- bækurnar sem var oft gluggað í. Það var æðislegt að vera hjá ykkur á gamlárskvöld, sitja við langborðið og njóta kvöldstund- arinnar með mögnuðu útsýni yfir Reykjavík og flugeldasýningarn- ar. Sögurnar af þér eru ótrúlegar og þitt lífshlaup. Þú og þín kyn- slóð upplifðu miklar breytingar. Hvernig upplifunin var að fara úr sveit í borg, bygging Reykj- arvíkurflugvallar, sjómennskan, og áratugirnir sem þar komu á eftir með öllum heimsins tækni- nýjungum sem 20. öldin hafði upp á bjóða. Sögur þínar af þess- um atburðum sagðir þú listavel og eins og sannur kennari kenndir þú okkur margt um sög- una. Við kveðjum þig með miklum söknuði og þakklæti. Við erum þakklát fyrir að hafa átt svona frábæran afa sem kenndi okkur svo margt. Örlæti þitt og lífssýn er nokkuð sem við tökum til fyr- irmyndar og munum sjálf temja okkur. Við vitum nú að þú ert á betri stað, með þinni heittelsk- uðu Stellu, ömmu okkar. Minn- ing ykkar lifir í hugum okkar. Kristjana Björk, Garðar og Aðalsteinn. Nú þegar Garðar föðurbróðir minn er allur og litið er um öxl á ég bara góðar minningar um þennan öðling. Á þeim árum sem ég var ungur í námi í höfuðborg- inni fór ég eina kvöldstund til frænda að aðstoða hann í sjopp- unni sem þau Stella ráku á þeim tíma. Mér er minnisstætt frá þessu annasama kvöldi hversu vel fór á með Garðari og við- skiptavinunum, sambandið var slíkt að flestir vildu helst ekkert af mér vita, spurðu um kallinn. Ég skildi það svo sem vel, hann vigtaði vöruna sjaldnast rétt og hirti ekki um að gefa nákvæm- lega til baka, ævinlega hvoru- tveggja honum í óhag. Þá ræddi hann við andlitið í lúgunni eins og mildur skriftafaðir og leysti úr ýmsum vanda öðrum en skorti á sælgæti og gosi. Og þrátt fyrir það eða ef til vill þess vegna gekk reksturinn vel. Fyrir rúmum áratug fórum við Garðar svo saman snemma að vori til í bíltúr austur undir Eyjafjöll í tilefni af 80 ára afmæli hans. Þetta var hið skemmtileg- asta ferðalag, frændi lék á als oddi og sagði mér m.a. frá upp- vexti sínum á Ysta-Skála í stórum hópi systkina og hvernig skólaganga hans hefði verið. Það var mikill ljómi yfir þessu öllu og ekki verið að velta sér upp úr erfiðleikunum sem sjálfsagt hef- ur verið nóg af. Ég taldi mig hins vegar skynja að hann hefði vel getað hugsað sér að hafa skóla- gönguna lengri, en á þeim tíma var ekki auðhlaupið að því þrátt fyrir að ekki skorti námshæfi- leika eins og í hans tilviki. Garðar Sveinbjarnarson bar sig ævinlega vel, teinréttur og traustur og kom til dyranna eins og hann var klæddur. Hann var raddsterkur ef hann vildi svo við hafa og það var ævinlega bjart yfir honum og svo er jafnframt minningin um hann. Ég held það verði kátari vistin þar efra eftir komu hans þangað og enn einn af Skálafjölskyldunni hefur bæst í hópinn í Gósenlandinu eins og þeir sögðu kallarnir undir Fjöll- unum í þá tíð. Fjölskyldu Garðars færi ég mínar samúðarkveðjur. Sveinbjörn Sveinbjörnsson. ✝ Kristján Ólafs-son fæddist á Syðra-Velli í Gaul- verjabæjarhreppi 4. ágúst 1923. Hann lést á Land- spítala háskóla- sjúkrahúsi í Foss- vogi 8. janúar 2018. Foreldrar hans voru þau Margrét Steinsdóttir, f. 1890, d. 1970, og Ólafur Sveinn Sveinsson, f. 1889, d. 1976. Systkini Kristjáns eru Sig- ursteinn, f. 1914, d. 2010, Guð- rún, f. 1915, d. 2011, Svein- björn, f. 1916, d. 2012, Ólafur, f. 1917, d. 2005, Ingvar, f. 1919, d. 2007, Gísli, f. 1920, d. 1920, Ólöf, f. 1921, d. 2007, Guðfinna, f. 1922, d. 2008, Soffía, f. 1924, Margrét, f. 1925, d. 2012, Sig- urður, f. 1928, Gísli, f. 1929, d. 1991, Aðalheiður, f. 1930, Jón, f. 1931, og Ágúst Helgi, f. 1934. Kristján kvæntist árið 1946 Ósk Jóhönnu Kristjánsson, f. 8. apríl 1919, d. 2. apríl 2000. Börn þeirra eru: 1. Ólafur Tryggvi, f. 21. apríl 1944, d. 25. mars 2017. Kona Ólafs er Anne Kristjansson, f. 23. september 1950. Börn þeirra eru Jennifer, Jósef, f. 18. ágúst 1953. 7. Pét- ur Kristinn, f. 8. desember 1955. 8. Ólafur Grétar, f. 28. júní 1958. Kona hans er Íris Arnardóttir, f. 4. maí 1962. Börn þeirra eru Hildur og Gunnar. Kristján ólst upp á barn- mörgu sveitaheimili í Flóanum þar sem hann var settur til verka jafnskjótt og hann hafði aldur til. Ungur fór hann til sjós og vann við sjávarútveg allt þar til hann hóf störf í Stálsmiðjunni í Reykjavík árið 1948. Þar starfaði hann við járnsmíðar og kom m.a. að smíði Magna gamla og bygg- ingu Háskólabíós. Árið 1963 söðlaði hann um og hóf vinnu við lagningu hitaveitu víða um borgina, fyrst í eldri hverfum borgarinnar, en síðar í Breið- holti og Grafarvogi þegar þau hverfi voru í byggingu. Hann hætti störfum 1993 þegar hann þurfti að sinna konu sinni í veikindum hennar. Kristján var félagslyndur maður og tók þátt í starfi eldri borgara, söng m.a. með kór félagsmiðstöðvarinnar á Vesturgötu 7. Þau Ósk keyptu Unnarstíg 6 árið 1970 og þar bjó Kristján allt fram í andlátið. Útför Kristjáns fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 22. janúar 2018, klukkan 13. John og Julia. Fyrir átti Ólafur dótturina Barböru Ósk með Hrefnu Ragnarsdóttur, f. 11. október 1947, og Kristján með Judith Lewis, f. 1. janúar 1946, d. 2016. Ólafur Tryggvi átti tólf barnabörn. 2. Guðný Ólöf Krist- jánsdóttir, f. 28. desember 1946. Synir Guðnýjar eru Pét- ur Jökull, faðir Pétur Axel Pétursson, f. 18. desember 1945, og Kristian, faðir Lars- Åke Petterson, f. 1. janúar 1945. Guðný á þrjú barnabörn. 3. Gísli Sigurbjörn, f. 22. des- ember 1947. Þorvaldur Krist- inn, f. 27. febrúar 1949. Kona Þorvaldar er Jóna Ólafsdóttir, f. 12. september 1950. Börn þeirra eru Ásta Ósk, Kristín Huld og Haraldur. Þorvaldur og Jóna eiga fimm barnabörn. 5. Flosi Albert Helgi, f. 2. maí 1951. Kona hans er Ragna Þórhallsdóttir, f. 4. október 1950. Synir þeirra eru Þórhall- ur Örn, Kristján Haukur og Ásgeir Valur. Flosi og Ragna eiga níu barnabörn. 6. Sævar Þetta var hann Kristján Ólafsson. Hjá pabba var vinnu- semi dyggð. Það var viðhorf sem hann ólst upp við í föðurhúsum. Á barnmörgu sveitaheimili hafði hver sitt hlutverk og öllum voru falin einhver verk að vinna um leið og þeir höfðu aldur til. Sjálf- ur eignaðist hann sjö stráka sem allir voru settir til verka í fyr- irtæki hans og þeim fundin við- fangsefni sem þeir réðu við. Síð- astur naut Gunnar sonur minn verkstjórnar afa síns þegar hann var settur í að mála húsið fyrir hann. Þá var gamli mað- urinn í essinu sínu og raulaði lagstúf fyrir munni sér, Gunnar fullyrti að hann hefði jafnvel sungið. Harðger og ósérhlífinn var hann. Hann vílaði ekki fyrir sér að liggja á hvolfi ofan í hita- veituskurði í fimmtán stiga frosti og stórhríð og logsjóða upp fyrir sig, kominn á sjötugs- aldur. Með vinnusemi og dugn- aði tókst honum fyrir fimmtugs- aldur að kaupa gamalt einbýlishús með stórum bak- garði í gamla Vesturbænum. Þau voru ófá handtökin við að taka húsnæðið í gegn, oft að loknum löngum og ströngum vinnudegi. Húsið og garðurinn hefur verið afkomendum hans sannkölluð vin í gegnum áratug- ina og þar voru haldnar margar garðveislurnar. Á Unnarstígnum hafa barnabörnin átt margar ánægjustundir með afa og ömmu, þar var jafnan eitthvað á borðum, en umfram allt traust, hlýja og öryggi. Eftir að mamma veiktist og fór á Grundina heimsótti pabbi hana á hverjum degi og annaðist hana af natni og nærgætni. Hann hélt áfram að heimsækja Grund eftir fráfall mömmu og naut sín vel í æskulýðsstarfinu þar, las fyrir gamla fólkið, dans- aði við konurnar, var við messur og söng með kórnum. Hann söng líka með kórnum Kátir karlar sem kom saman á Vest- urgötu 7. Nú er löngum vinnudegi lokið og vinnulúnar hendur fá hvíld. Ég er þakklátur fyrir og stoltur af föður sem var ávallt ærlegur og öllum velviljaður, alltaf til staðar að styðja við bakið á manni á hverju sem gekk. Ég áttaði mig á því að lokum að hann var í raun alltaf besti vinur minn. Ólafur Grétar Kristjánsson. Elsku afi minn. Þrátt fyrir háan aldur þinn fannst mér þessi kveðjustund koma allt of skyndilega og allt of fljótt. Við höfum átt óteljandi dýrmætar stundir saman frá því ég fyrst man eftir mér. Allt frá því að hafa komið til þín á hverj- um degi eftir skóla til að borða, utanlandsferðirnar okkar sam- an, garðvinnan við Unnarstíg og óteljandi kaffibollar með tilheyr- andi spjalli inni í eldhúsi. Þú sýndir öllu sem ég gerði áhuga og hafðir margar spurningar og athugasemdir varðandi það sem ég sagði þér. Þér leist til dæmis ekkert á þegar ég sagði þér að ég væri að flytja úr miðbænum í Garðabæ, en ég lét það ekki hindra mig í að koma til þín nokkrum sinnum í viku. Þú spurðir mig einnig í hvert skipti hvernig gengi í vinnunni og gleymdir engu. Ég man aldrei eftir þér öðru- vísi en í góðu skapi. Ég minnist einstakrar og hlýrrar nærveru þinnar. Maður gat alltaf gengið út frá að vel yrði tekið á móti manni, hvenær sem var. Þú lést málstol eftir heilablóðfall ekki hafa mikil áhrif á samskipti okk- ar og varst hlýr þótt erfiðara væri fyrir þig að koma frá þér setningum. Fyrir mér sýndi það hversu einstakur þú varst og mun ég aldrei gleyma því. Í samtölum okkar kom stund- um fram að við eigum okkur nokkrar einstakar sögur þar sem við birtumst hvort öðru í draumi og spáðum fyrir um at- burði sem seinna gerðust og finnst mér það lygilegt eftir á að hyggja. Forspárnar bárum við hvort undir annað og reyndumst alltaf sannspá. Þegar ég hugsa um þig er það kærleikur, hógværð og gleði sem koma upp í hugann og mun ég heiðra þá minningu alla ævi. Hildur Ólafsdóttir. Kristján Ólafsson Ég verð ævinlega þakklátur fyrir að hafa kynnst honum Reyni og fengið að eiga dýrmætar samverustundir með honum. Nú þegar þessi ynd- islegi afi konu minnar og langafi barna minna er kvaddur vakna fjölmargar dýrmætar minningar sem hjálpa mér og fjölskyldunni í gegnum sársaukann sem fylgir þessari stund. Söknuðurinn er mikill en styrk- Björgvin Reynir Björnsson ✝ Björgvin Reyn-ir Björnsson fæddist 18. október 1940. Hann lést 8. janúar 2018. Útför hans fór fram 15. janúar 2018. ur Reynis allt fram á síðasta dag hug- hreystir. Sá styrkur á rót sína að rekja til staðfastrar trúar Reynis á Jesú sem breytti ekki ein- göngu lífi hans held- ur hafði einnig áhrif á líf þeirra sem kynntust Reyni og uppörvuðust fyrir tilstilli hans. Þegar ég hugsa til baka standa upp úr í minningunni einlæg sam- töl um trúna, um fjölskylduna og um lífið og tilveruna. Reynir bjó yfir mikilli þekkingu og djúpum vangaveltum sem gaman var að ræða. Hann var líka þeim gæðum gæddur að laða fólk að sér með auðmjúku fasi sínu og einlægum áhuga á að kynnast þeim sem á vegi hans urðu. Það var alltaf stutt í húmorinn og síðustu dagana tókst Reyni ávallt að töfra fram bros á andlitum fjölskyldunnar þrátt fyrir aðstæður og alla byrð- ina sem á líkama hans hvíldi. Missirinn er mikill og öll hefð- um við viljað fá meiri tíma með honum á þessari jörð. Ég hefði viljað að börn okkar Fjólu hefðu fengið að kynnast langafa sínum betur enda margt sem mátti læra af honum. En á sama tíma er ég þakklátur fyrir þann tíma sem þau þó fengu með honum og hann með þeim. Sá tími er dýrmætur. Ég veit að sögurnar um langafa Reyni og vísurnar hans munu lifa með okkur um ókomin ár og fyrir það er ég þakklátur því í gegnum þær lifa minningarnar áfram. Minningar sem ylja jafnvel á erf- iðum stundum sem nú. Ég þakka Jesú fyrir líf Reynis og þá blessun sem honum fylgdi. Fjölskyldunni allri votta ég mína dýpstu samúð. Davíð Örn. „Hafþór, hvað er þú að gera hér?“ spurði Pitti gáttað- ur þegar ég stóð framan við hann á Vogi í febrúar 1999. Ég svaraði: „Ef þú veist ekki hvað maður gerir hér frændi, þá er ekki skrýtið að þessar meðferðir þín- ar hafi gengið misvel.“ Við rifj- uðum þetta samtal stundum upp okkur til skemmtunar, enda ekki viðkvæmir fyrir þess- um málum. Hann átti efri ár sín alveg án áfengis og fékk góðan tíma með Elsu sinni. Hann var sönnun þess að það á aldrei að gefast upp og allt getur breyst. Í raun er eðlilegt að alkóhól- istar falli af og til, sjúkdóm- urinn er einmitt með þeim hætti. Það er lærdómsríkt að hlusta á þá sem reynt hafa föll á sjálfum sér og fyrir tilstilli manna eins og Péturs Bjarna- sonar er ég ennþá sprungulaus. Alkóhólismi er erfðatengdur og í mínum ættum eru meðferð- arstaðir SÁÁ gjarnan kallaðir ættaróðöl. Það er góður húmor um alvarleg mál. Pitti átti nóg af góðum húm- or og það var gaman að hlusta á hann rifja upp. En það var allt- af stutt í ljúfar minningar hans um þá sem reyndust honum vel. Hann dýrkaði móður mína, sem var gift elsta bróður hans, og lýsti henni sem engli í lífi sínu og mér þótti sérlega vænt um það. Hann talaði fallega um fleiri og það kom hlýr glampi í augun þegar góðar æskuminn- ingar bar á góma. En margt var honum líka mótdrægt, þannig er lífið. Pitti var tvítugur um borð í Helga Flóventssyni þeg- ar hann sökk í ágúst 1961 og þótt mannbjörg yrði sat sá at- burður í honum, áfallahjálp þekktist ekki á þeim tíma. Pitti var alveg einstaklega Pétur Bjarnason ✝ Pétur Bjarna-son fæddist 17. júlí 1941. Hann lést 31. desember 2017. Pétur var jarð- sunginn 15. janúar 2018. laginn við alla meðferð á fiski, erfði það líklega frá föður sínum, sem var afburða fiskverkandi á Húsavík. Frá barnsaldri var hann í íþróttum og spilaði fótbolta með Völsungi. Ein af mínum fyrstu æskuminningum um Pitta er mark sem hann skoraði gegn Austra á heima- velli á Húsavík, við vorum sammála um að það var rosa- lega flott, enda fór boltinn al- gerlega í bláhornið neðst. Skotið var gersamlega óverj- andi. Þetta mark var rætt margsinnis og vandlega á æskuheimilinu í Grafarbakka næstu daga á eftir. Ef Völ- sungur tapaði leik sagði Pitti gjarnan: „En við vorum miklu meira með boltann.“ Hann var gegnheill Völsungur. Vinátta okkar endurskapaðist á nýjum grunni í ársbyrjun 1999 og eft- ir það snerust samtöl okkar oft um hið nýja og góða líf. Við rifjuðum upp meðferðina okk- ar á Vík, ekki síst þegar hann týndi öðrum eyrnatappanum í svefni og um morguninn ótt- uðumst við að hann hefði farið inn í höfuðið á honum, enda gat vel passað að Pitti væri með allt of útstæð ættareyru fyrir venjulega eyrnatappa. En tappinn fannst loksins á bak við rúmið og mínum manni létti verulega. Þegar við Elsa ræddum um Pitta, fyrir 70 ára afmælið hans árið 2011, vorum við sammála um að þótt hann væri yfirleitt allt of viðkvæmur og sjálfhverfur væri hann al- veg sérstaklega indæl persóna. Það er svo sannarlega mín nið- urstaða um frænda minn. Um leið og ég þakka samveru- stundir og dýrmæt samtöl sendi ég öllum aðstandendum innilegar samúðarkveðjur. Ég á minningar um Pitta sem skipta verulega miklu máli í mínu lífi. Bjarni Hafþór Helgason. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, SONJA GUÐBJÖRG GUÐJÓNSDÓTTIR ljósmóðir, lést á heimili sínu 16. janúar. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju fimmtudaginn 25. janúar klukkan 11. Gísli V. Gonzales Auður Björg Jónsdóttir Guðbjörg Guðmundsdóttir Jón Gunnar Kristjánsson Bernharður Guðmundsson Eygló Ingadóttir og barnabörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HELGI ODDSSON, Karlagötu 6, Reykjavík, lést fimmtudaginn 11. janúar. Útförin fer fram í Dómkirkjunni þriðjudaginn 23. janúar klukkan 13. Haraldur Helgi Helgason Esther Halldórsdóttir Katrín Helgadóttir Bjarni K. Þorvarðarson barnabörn og barnabarnabarn Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.