Morgunblaðið - 22.01.2018, Side 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2018
Skál fyrır hollustu
Við hjónin erum núna í afslöppunarferð í Barcelona,“ segirÞórarinn Sigþórsson tannlæknir, en hann á 80 ára afmæli ídag. „Ég hef ekki komið hingað um áratugaskeið, eða síðan ég
spilaði brids hér í denn. Í dag ætlum við í kirkju, en þó ekki í messu
því hún er ekki fullbyggð.“ Þar á Þórarinn að sjálfsögðu við Sagrada
Família, kirkju Gaudi, en þau hjónin skoðuðu safn Gaudi um helgina.
Eiginkona Þórarins er Ragnheiður Jónsdóttir danskennari og sér
um bókhaldið á tannlækningastofu Þórarins en hann vinnur fulla
vinnu ennþá. Börn Þórarins eru Sólveig tannlæknir, Rannveig við-
skiptafræðingur og Kristín markaðsfræðingur, og fósturbörn Þórar-
ins og börn Ragnheiðar eru Jón Ragnar Örlygsson skógarverkfræð-
ingur og Björg Örlygsdóttir nemi.
Þórarinn er bæði landskunnur bridsari og laxveiðimaður. Hann var
fyrsti íslenski stórmeistarinn í brids og var stigahæstur íslenskra
bridsspilara þegar hann hætti að spila keppnisbrids fyrir 30 árum.
„Nú spila ég mér til ánægju við vini mína og á netinu og ég er líka far-
inn að tefla aftur til að halda hausnum við, ekki veitir af. Ég hafði teflt
í gamla daga, en steinhætti því þegar ég tók ástfóstri við brids.
Þórarinn hefur veitt um 20.000 laxa á ævinni, sem hann segir vera
heimsmet. „Ég held laxveiðinni áfram meðan ég get og hef farið þó-
nokkrum sinnum til útlanda að veiða, m.a. á Kólaskaga, þar sem ég
veiddi annan af mínum stærstu löxum, 44 punda. Hinn 44 punda lax-
inn veiddi ég í Alta í Noregi sem er frægasta laxá í heimi, ætli það hafi
ekki verið toppurinn, að veiða þar. Svo má ekki gleyma rjúpna-
veiðinni en ég reyni að fara eins marga daga og ég kemst í hana.“
Morgunblaðið/Einar Falur
Kjarrá Þórarinn við uppáhaldsána sína, en hinar árnar sem komast á
topp þrjú listann yfir íslenskar ár hjá honum eru Selá og Miðfjarðará.
Slær hvergi af í vinnu
eða áhugamálum
Þórarinn Sigþórsson er áttræður í dag
E
rla Þorsteinsdóttir fædd-
ist á Sauðárkróki 22.1.
1933 og ólst þar upp:
„Ég söng stanslaust frá
því ég man eftir mér og
var fljót að læra söngtexta, hvort held-
ur dægurlög eða ættjarðarlög. Pabba
og mömmu þótti því sjálfsagt að gefa
mér gítar í fermingargjöf.“
Erla gekk í Barnaskóla Sauðár-
króks, kenndi sér sjálf á gítar og kom
fram á skemmtunum á Sauðárkróki
og síðar á Akureyri, er hún starfaði
þar við Fjórðungssjúkrahúsið. Hún
fór til Danmerkur 1951 til að ná tökum
á dönskunni og í leit að ævintýrum.
Hún lærði dönskuna, fann eiginmann
sinn og ævintýrin.
Erla vann á barnaheimili í Klinte-
bjerg í eitt ár en snéri síðan aftur
heim. Hún hélt aftur utan 1953, á fund
unnusta síns, Pauls E. Danchell, sem
þá gegndi herþjónustu í Kerteminde á
Fjóni. Þar kom hún fram í útvarps-
þætti 1954 og í kjölfarið fylgdu ótal at-
vinnutilboð og danska útgáfufyrir-
tækið Odeon bauð henni að taka upp
tveggja laga hljómplötu á dönsku.
Haraldur Ólafsson í Fálkanum gerði
síðan samning við Odeon um upptökur
með Erlu fyrir íslenskan markað.
Fyrsta plata Erlu hefur að geyma
lögin Hvordan og Gud ved, hvem der
kysser dig nu. Skömmu síðar komu út
tvær litlar plötur með lögunum Er ást-
in andartaks draumur, Bergmáls-
harpan, Tvö leitandi hjörtu og Litla
stúlkan við hliðið eftir Freymóð Jó-
hannsson. Þá kom hún til Íslands og
söng á skemmtistaðnum Jaðri og á
miðnæturskemmtun í Austurbæjar-
bíói, sló í gegn og plöturnar hennar
seldust upp fyrir jólin.
Erla og Paul gengu í hjónaband árið
1955 og um sumarið fæddist fyrsta
barn þeirra en hún dvaldi þá hjá for-
eldrum sínum á Sauðárkróki.
Árið 1956 gaf Fálkinn út þrjár plötur
með Erlu með lögunum Sól signdu mín
spor, Sof þú, París, Hugsa ég til þín, og
tveimur nýjum lögum eftir 12. sept-
ember Hljóðaklettur og Heimþrá, en
sú plata varð söluhæst hér á landi það
árið.
Fálkinn gaf einnig út þrjár plötur
Erla Þorsteins söngkona – 85 ára
Stúlkan með lævirkjaröddina Myndin var tekin fyrir 17 árum er ítarlegt viðtal birtist við Erlu í Morgunblaðinu.
Var kölluð „Stúlkan
með lævirkjaröddina“
Afmælisbarnið Erla á yngri árum.
Morgunblaðið/Golli
Akureyri Birgir Már
Hjaltason fæddist 24.
janúar 2017 kl. 3.46.
Hann vó 3.532 g og var
49 cm langur. Foreldrar
hans eru Ásdís Hanna
Bergvinsdóttir og Hjalti
Már Guðmundsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is