Morgunblaðið - 22.01.2018, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 22. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Banaslys á Arnarnesvegi
2. Hagnast á kvölum annarra
3. Sektað vegna ofþrifinna …
4. Bruce notaði Birki sem sýnidæmi
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Nútímatónlistarhátíðin Myrkir
músíkdagar hefst á fimmtudag og
stendur til laugardags. Að vanda
verður mikið úrval viðburða í boði.
Sem dæmi má nefna að Kammer-
sveit Reykjavíkur og pólska kamm-
ersveitin Elblaska Orkiestra Kame-
ralna leika undir stjórn Bjarna
Frímanns Bjarnasonar í Norður-
ljósum Hörpu á laugardagskvöld,
glæný barnaópera eftir Hildigunni
Rúnarsdóttur sem byggð er á ævin-
týrinu um Gilitrutt verður flutt í
Iðnó á laugardag og Sinfóníu-
hljómsveit Íslands heldur þrenna
tónleika undir stjórn Daníels Bjarna-
sonar.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Myrkir músíkdagar
2018 hefjast senn
Hollenski tónlistarmaðurinn Tiësto
heldur tónleika í Silfurbergi í Hörpu í
kvöld en hann var valinn einn af bestu
plötusnúðum allra tíma af breska tón-
leika- og klúbbatímaritinu Mixmag auk
þess sem tímaritið Rolling Stone hef-
ur sett hann í fyrsta sæti yfir bestu
plötusnúða í heimi.
Tiësto hefur leikið á
mörgum fjölmenn-
ustu tónlistar-
hátíðum heims, unn-
ið til margra verð-
launa og gefur út
tónlist. Um upphitun
fyrir tónleika Tiësto
sjá meðlimir í íslenska
plötusnúðahópnum
ViBES, þeir KrBear,
KES og Máni.
Einn besti plötusnúð-
ur heims í Hörpu
Á þriðjudag Austan 10-20 m/s norðan til á landinu, hvassast við
ströndina, annars mun hægari. Hiti kringum frostmark.
Á miðvikudag Hvöss norðustanátt og snjókoma eða slydda, en
þurrt á Suður- og Suðvesturlandi. Hiti um frostmark.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan hvassviðri eða stormur á suðurhelm-
ingi landsins og rigning eða slydda, en snjókoma á heiðum.
VEÐUR
„Fyrir ekki nema 2-3 vikum
var ég mjög viss um að ég
myndi fara, og vildi hreinlega
fara, en nú er ég alveg hætt-
ur við það. Nú fer ég ekki
neitt,“ segir Birkir Bjarna-
son, landsliðsmaður í knatt-
spyrnu, sem gripið hefur nýtt
tækifæri sitt hjá Aston Villa
föstum tökum. Umboðs-
maður hans var fyrr í mán-
uðinum kominn í samband
við félög á Ítalíu vegna yfir-
vofandi vistaskipta. »1
Vildi fara en er nú
alveg hættur við
Sprettharðasta kona landsins um
þessar mundir, Tiana Ósk Whitworth
úr ÍR, byrjar árið vel en í gær setti
hún Íslandsmet í 60 metra hlaupi
innanhúss á Stórmóti ÍR í Laugar-
dalshöllinni. Tími hennar var 7,47
sekúndur en Tiana er aðeins á átj-
ánda aldursári. Tiana sigraði einnig í
200 metra hlaupi en rætt er við hana
í íþróttablaðinu í dag. » 4-5
Tiana byrjar árið vel
á hlaupabrautinni
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Í hverri einustu stórfjölskyldu á
Akranesi er sjálfsagt einhver sem
getur komið með reynslusögur af
Kjalarnesinu. Hefur orðið vitni að
háskalegum akstri þar, lent í um-
ferðaróhappi eða komið að slysi.
Sögurnar eru óteljandi og vegurinn
er mjög varhugaverður,“ segir
Bjarnheiður Hallsdóttir á Akranesi.
Hún er í forystu þess fólks á
Skaganum sem hefur hrundið af
stað undirskriftasöfnun og öðrum
aðgerðum sem mynda eiga þrýsting
á stjórnvöld að fara í úrbætur á
Vesturlandsvegi á Kjalarnesi.
Rennur ástand vegarins til rifja
Næstkomandi miðvikudag, 22.
janúar, klukkan 18 verður í Tón-
bergi á Akranesi, sal tónlistarskól-
ans þar í bæ, haldinn fundur þar sem
samgöngumál á Vesturlandi verða í
brennidepli, en klárlega er staða
mála á Kjalarnesinu tilefni fundar-
ins. Vestlendingum – þá ekki síst
Akurnesingum – rennur til rifja
hvert ástand vegarins er, það er
kaflans frá Kollafirði að munna
Hvalfjarðarganga. Þar á milli eru
um níu kílómetrar og haldið er til
haga að á þessum slóðum hefur orðið
fjöldi slysa á undanförnum árum. Er
í því sambandi skemmst að minnast
banaslyss sem varð á þessum slóð-
um 3. janúar sl. þegar ungur maður
frá Akranesi lést.
Akranes og nærliggjandi slóðir
eru sama atvinnusvæði og höfuð-
borgin. Á bilinu 800 til 1.000 manns
fara á hverjum degi ofan af Skaga til
starfa eða í skóla í borginni, hvaðan
margir koma og sækja til vinnu efra,
til dæmis í iðjuverunum á Grundar-
tanga. „Mér finnst ekkert mál að
sækja vinnu til Reykjavíkur og
keyra á milli daglega eins og ég hef
gert núna í ellefu ár. Oft er þetta
gæðastund í morgunsárið,“ segir
Bjarnheiður. „Í vetur hefur ástand
vegarins hins vegar verið þannig að
fólki stendur ekki á sama; í veginum
eru djúpar rásir og sé vatnsagi í
þeim geta bílarnir dansað til. Þá eru
vegstikurnar þessa dagana nánast
svartar af tjöru svo maður gæti
hreinlega tapað þræðinum og týnt
veginum ef maður þekkti leiðina
ekki vel.“
Farið verði strax
í bráðaaðgerðir
Að sögn Bjarnheiðar er ósk Vest-
lendinga sú að Vegagerðin fari strax
í bráðaaðgerðir á Kjalarnesi, það er
fylli í rásir á veginum og slíkt. Í
framhaldinu hljóti vegurinn svo að
verða tvöfaldaður með öllu sem því
fylgir, enda sé gert ráð fyrir slíku í
samgönguáætlun næstu ára þó svo
fjárframlög hafi ekki fylgt.
Fram til miðvikudags er uppi á
netinu undirskriftasöfnun þar sem
þess er krafist að farið verði í úrbæt-
ur á umræddum vegi. Undirskrifta-
listarnir verða afhentir samgöngu-
ráðherra á fundinum næstkomandi
miðvikudag og hafa þúsundir skrifað
undir nú þegar.
Þá hefur verið stofnaður Face-
book-hópurinn Til öryggis á Kjalar-
nesi og þar hafa á síðustu dögum
komið mörg fróðleg innlegg og at-
hugasemdir þessu máli viðvíkjandi.
Þá hefur á vettvangi sveitarfélag-
anna á Vesturlandi og Akraneskaup-
staðar verið ályktað um þetta mál –
og mætti þá fleiri tiltaka.
„Í gamla daga þurfti fólk hér alltaf
að spá í hvernig vegurinn fyrir Hval-
fjörð væri þá stundina og vissulega
var hann háskalegur, sérstaklega á
veturna. Núna er Kjalarnesvegurinn
mál málanna hér á Akranesi. Sam-
göngur í nútímasamfélagi þurfa að
vera í lagi og öruggar. Þetta verður
að lagfæra, eins og allir hljóta að
skilja. Núna er staðan sú að áður en
ég fer í bæinn á morgnana er mitt
fyrsta verk að athuga alltaf vefi Veð-
urstofunnar og Vegagerðarinnar til
að kanna stöðuna á Kjalarnesi,“ seg-
ir Bjarnheiður Hallsdóttir að end-
ingu.
Kjalarnesið er mál málanna
Bjarnheiður berst
með Skagafólki fyrir
vegabótum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kjalarnesið Ástand vegarins er þannig að fólki stendur ekki á sama, segir Bjarnheiður í viðtalinu.
Morgunblaðið/Eggert
Skilti Allra veðra er von á Kjalar-
nesi og undir Hafnarfjalli.
ÍBV er á góðri leið með að tryggja sér
sæti í úrslitakeppninni í Olís-deild
kvenna í handbolta eftir sigur á
Stjörnunni í Garðabænum um
helgina. ÍBV hefur unnið þrjá af síð-
ustu fjórum leikjum
sínum og liðið virð-
ist vera á góðu róli
á nýju ári undir
stjórn Hrafnhildar
Skúladóttur, fyrr-
verandi
landsliðs-
konu. »6
Þrír sigrar í síðustu fjór-
um leikjum hjá ÍBV