Morgunblaðið - 26.01.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.01.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2018 LLA-308 PRO álsti 2,27-5,0 18. Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Tröppur og stigar i 3x rep 5 m 99 LLA-211 PRO álstigi/trappa 2x11 þrep 16.990 Áltrappa 4 þrep 4.940 5 þrep 6.390 Áltrappa 3 þrep 3.990 Í ÖLLUM STÆRÐUM OG GERÐUM A015-105 Áltrappa fyrir fagmaninn m/vinnuborði. 5 þrep. 16.790 6 þrepa 19.750,- 7 þrepa 21.730,- Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Aðflutningur fólks af höfuðborgar- svæðinu á þátt í vaxandi útsvars- tekjum Hveragerðis. Með sama áframhaldi verða íbúarnir senn 3.000 manns í fyrsta sinn í sögunni. Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðis, segir íbúum hafa fjölg- að um tæp 50% frá aldamótum. Íbúa- talan sé að nálgast 2.600. Önnur mesta aukningin Fram kom í Morgunblaðinu í síð- ustu viku að útsvarstekjur Hvera- gerðis jukust um 54,8% árin 2013 til 2017. Það var önnur mesta aukning- in hjá sveitar- félögum. Til sam- anburðar fjölgaði íbúum um ríflega 12% frá 2013 og til loka árs 2017, úr 2.271 í 2.554. Útsvarið hefur því aukist langt umfram fjölgun íbúa. „Íbúum hef- ur fjölgað mikið. Það skýrir að hluta auknar útsvars- tekjur. Síðan teljum við okkur finna fyrir því að hingað er að flytjast fólk með aðeins meiri tekjur en við höfum áður séð. Fyrir vikið eru tekjur Hvergerðinga í heild að aukast.“ Aldís segir íbúum fjölga sem starfa á höfuðborgarsvæðinu. Auðvelt að flytja austur „Það hefur aukist mikið að fólk búi hér fyrir austan fjall en starfi á höfuðborgarsvæðinu. Það er orðið svo miklu einfaldara að flytja austur og fólk setur aksturinn ekki fyrir sig. Bæði er að vegurinn er orðinn betri og vetrarþjónusta með allt öðrum hætti en áður var. Það tekur um 40 mínútur að aka í miðbæ Reykja- víkur. Svo má ekki gleyma þeirri byltingu sem varð þegar Strætó hóf akstur hingað austur en nú eru farn- ar um 12 ferðir á dag sem tengjast beint við leiðakerfið í Reykjavík. Þetta auðveldar námsmönnum og þeim sem sækja atvinnu að búa hér í Hveragerði. Svo er það auðvitað staðreynd að fólk horfir einnig til þess að húsnæðisverð er mun lægra hér en á höfuðborgarsvæðinu – hér má fá fínasta sérbýli fyrir verð blokkaríbúðar á höfuðborgarsvæð- inu. Það sem hefur breyst er að sveitarfélögin sem eru í um það bil 50 km radíus frá Reykjavík eru orðin hluti af höfuðborgarsvæðinu. Við finnum sífellt meira fyrir þessu. Þetta er orðið eitt atvinnusvæði.“ Deiliskipuleggja ný svæði Aldís segir marga vilja byggja í bænum. „Það er mikil ásókn í lóðir en öllum lóðum sem í boði voru hefur verið úthlutað þannig að lóðir hafa verið uppseldar megnið af árinu 2017. Við erum að bæta úr því og stefnt er að framtíðarskipulagi nokkurra svæða. Nú eru á teikni- borðinu, eða í byggingu, um 180 íbúðir sem geta hýst um 400 manns þegar þær verða fullbyggðar.“ Ákjósanleg stærð „Við erum að nálgast 3.000 manna bæ ef allt gengur upp og líklegt að það verði strax á næsta kjörtímabili. Við teljum þá stærð afar ákjósanlega fyrir sveitarfélagið en mikilvægt er að innviðir og uppbygging þeirra haldist í hendur við fjölgun íbúa.“ Aðfluttir íbúar með hærri laun  Bæjarstjóri Hveragerðis segir fólk sem flytur frá höfuðborgarsvæðinu í bæinn hækka meðaltal launa  Fyrir vikið séu útsvarstekjur bæjarins að aukast  Útsvarið hefur aukist langt umfram íbúafjölgun Aldís Hafsteinsdóttir Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Húsvíkingar voru fullvissaðir um það á fjölmennum fundi á Foss- hóteli á Húsavík í gær að allt yrði gert sem mögulegt væri til að um- hverfisáhrif kísilvers PCC á Bakka yrðu sem minnst. Sorgarsaga kísilvers United Silicon í Helguvík hefur ítrekað verið í fréttum en forstjóri PCC á Bakka sagði að verkefnunum væri ekki hægt að líkja saman. „Allir sem fylgjast með fréttum vita að eitthvað mikið fór úrskeiðis í Helguvík en það er ekki jafnaðar- merki á milli þessara verkefna. Við erum með bestu tækni sem er möguleg til að lágmarka um- hverfisáhrif og munum ekki setja í gang fyrr en við verðum sannfærð um að öll tækni og öll tæki séu farin að virka. Þess vegna getum við ekki gefið upp nákvæma dag- setningu, en stefnt er að því að gangsetja fyrri ofn verksmiðj- unnar seinni hluta febrúar,“ sagði Hafsteinn Viktorsson, forstjóri PCC BakkiSilicon, á fundinum. „Við höfum notið mikils trausts í nærsamfélaginu og viljum ekki bregðast því trausti. Aðalatriðið er að vanda sig og við ætlum okkur að gera það.“ Síðari ofninn verður væntanlega gangsettur í apríl. Framleiðslu- og gangsetningar- ferlið var kynnt, auk þess sem farið var yfir ýmislegt varðandi öryggis- og umhverfismál. Fram kom að fyrstu vikuna eftir að verksmiðjan yrði ræst yrði sýni- legur reykur en miðað við áætl- anir yrði allt komið í eðlilegt horf á áttunda degi. Lykt gæti borist til Húsavíkur í norðanátt en trún- aðarlæknir fyrirtækisins álítur að íbúar finni ekki fyrir óþægindum nema hugsanlega fólk með undir- liggjandi sjúkdóma. Ekki séu þó miklar líkur á því. Hafsteinn for- stjóri segir umverfismál vitaskuld skipta starfsfólkið jafn miklu máli og aðra: „Hér er starfsemin en hér er líka heimili okkar og barnanna okkar. Við erum ekki ónæmari fyrir því sem kemur frá verksmiðjunni en aðrir íbúar.“ „Aðalatriðið er að vanda sig“  Húsvíkingar fjöl- menntu á fund um kísilverið á Bakka Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Kísill Húsvíkingar fjölmenntu á kynningarfund PCC BakkiSilicon og virðast sáttir við framkvæmdirnar á Bakka. Laun starfs- manna í iðjuver- unum á Grund- artanga hafa hækkað umtals- vert frá og með síðustu áramót- um. Á vef Verka- lýðsfélags Akra- ness segir að nú liggi fyrir hverjar launabreytingar fyrir þetta ár verða hjá Elkem Ís- land og laun hækka einnig hjá Norðuráli. Skv. samningi verður iðnaðar- maður sem er byrjandi á vöktum í álveri Norðuráls með í heildarlaun fyrir 182 vinnustundir rétt um 780 þúsund kr. á mánuði en iðnaðar- maður með 10 ára starfsreynslu er með rétt tæpar 950 þúsund kr. með öllu. Algengt er að laun starfs- manns hækki um 40 til 60 þúsund á mánuði. Er það samkvæmt samn- ingum VLFA við fyrirtækið sem eru bundnir launavístölu. Þá hækka starfsmenn Elkem Ís- land um 5,51% í launum, þ.e. að jafnaði um 30 til 35 þúsund á mán- uði auk þess sem þeir fá 120 þúsund króna eingreiðslu vegna breytinga á launatímabili. Heildarlaun byrj- anda sem er ofngæslumaður hjá El- kem eru rúmar 500 þúsund kr. á mánuði og ofngæslumanns með 10 ára starfsreynslu um 600 þúsund. Launin hækka á Grundartanga Verksmiðja Norður- áls á Grundartanga. Dregið var í þriðja sinn af tíu í áskriftarleik Morgunblaðsins og WOW air í gær. Heppni var yfir karlkyns áskrifendum í þetta sinn sem og í fyrsta drætti og fengu þeir Bjarni Jóhanns- son, Bjarni Odds- son, Hallgrímur Eðvarð Árnason, Njáll Trausti Friðbertsson og Páll Theódórs- son hver og einn flugmiða fyrir tvo til Cleveland. Í næstu viku fá fimm áskrif- endur flug fyrir tvo til Barcelona. Alls verður dregið tíu sinnum í leiknum Einu sinni í hverri viku. Síðustu sex borgirnar verða Tel Aviv, Detroit, Cincinnati, St. Louis, Dublin og Dallas. Njáll Trausti Friðbertsson alþingismaður er einn af þeim heppnu. „Það er ekki á hverjum degi sem ég fæ vinning og það er gaman að þessu. Það er reyndar fágætt að ég fái vinning yfir höfuð en það helgast kannski af því að ég tek lítinn þátt,“ segir Njáll Trausti og bætir við að hann hafi fylgst með áskrifenda- leiknum. „Ég hef lesið Morgunblaðið upp til agna frá 10 ára aldri og bar það út þegar ég var í grunnskóla.“ Njáll hefur ferðast mikið um Bandaríkin en aldrei komið til Cleveland. Hann hlakkar til þess að fara þangað og segist að sjálfsögðu bjóða eiginkonunni með. „Ég reikna með að fara þegar haustar, áður en þing hefst.“ Njáll Trausti, sem er lærður flug- umferðarstjóri og viðskiptafræð- ingur, segist láta sig ferðaþjónustu og flugið varða í störfum sínum á Alþingi. Hann segir íslensku flug- félögin og ferðaþjónustufólk vera að gera góða hluti. ge@mbl.is Cleveland bíður eftir fimm heppnum áskrifendum  Þriðji útdráttur í áskrifendaleiknum  Barcelona næst Cleveland Í borginni er hægt að skoða Frægðarhöll rokksins. Njáll Trausti Friðbertsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.