Morgunblaðið - 26.01.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 26.01.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2018 SVIÐSLJÓS Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að fæstum okkar komi á óvart að foreldrar hafi áhrif á börnin sín. Íslensk erfðagrein- ing birti í gær rannsókn ÍE í vísinda- tímaritinu Science, þar sem leitað var svara við spurningunni um hvort erfðabreytingar í þeim helming erfðaefnis foreldranna, sem ekki fer til barnsins, hafi áhrif á örlög þess. Við getnað hlýtur barn helming erfðaefnis föður og helming erfða- efnis móður. „Í þessari rannsókn bjuggum við til aðferð, þar sem við getum metið áhrif uppeldisins og metið hversu mikil þau eru, miðað við erfð- irnar. Við erum í þeirri einstöku að- stöðu að við get- um skilið að þann hluta erfðameng- isins sem kemur frá föður og þann hluta sem kemur frá móður. Við það eitt að geta skilið að það sem kemur frá móður eða föður, er maður kominn með get- una til að skilja að þann hluta erfða- mengis móður sem fer til barnsins þegar það er getið frá þeim hluta sem fer ekki til barnsins og það sama á við um föður,“ sagði Kári í samtali við Morgunblaðið í gær. Hefur áhrif á hæð og þyngd Kári segir að þannig hafi ÍE getað svarað spurningunni: Hvaða áhrif, ef einhver, hafa breytileikar í þeim helmingi erfðamengis foreldris, sem fer ekki yfir til barnsins, á örlög barnsins? „Það sem við segjum frá í þessari grein í Science er að það hef- ur áhrif á allskonar eiginleika barns- ins. Til dæmis þegar kemur að menntun sem einstaklingurinn fær, þá hefur sá hluti erfðamengis for- eldra sem fer ekki yfir til barnsins, áhrif sem eru u.þ.b. 30% af þeim áhrifum sem sá helmingur hefur sem fer yfir til barnsins. Auk þess hefur þessi helmingur áhrif á hæð barnsins, þyngd, hjarta- og æðasjúkdóma, fíknisjúkdóma o.fl.,“ sagði Kári. Hann segir að foreldrar séu mikil- vægur hluti af uppvexti barnsins, a.m.k. fyrstu árin. ÍE sýni fram á það í rannsókn sinni að ekki bara sá helmingur erfðamengis foreldra, sem ekki fari yfir til barnsins, hafi áhrif, heldur hafi líka sá hluti erfðamengis systkina, sem þau deila ekki með einstaklingnum, áhrif á örlög barns- ins. „Við erum þannig að mörgu leyti eins og maurar í mauraþúfu – að hluta til einstaklingar og að hluta til erum við hluti af heild, hluti af um- hverfi sem markast af erðamengjum, sem eru bæði einstök og við deilum með öðrum, o.s.frv.,“ segir Kári. Hann segir það mjög áhugavert, þeg- ar áhrifin af erfðamengi foreldris sem fer ekki yfir til barnsins á menntun eru skoðuð, að menntun sé oft notuð sem mælikvarði á gáfur. Áhrif á gæfu og gjörvileika „Það eru nokkuð góð tengsl á milli gáfna og menntunar, en ekki full- komin. Rannsókn okkar sýnir að sá hluti erfðamengis foreldris, sem fer ekki yfir til barnsins, hefur áhrif. Með umhverfi, uppeldi og aðhlynningu er hægt að hafa töluvert mikil áhrif á gáfur, þ.e.a.s. að barnið fæðist ekki með einhverjar ákveðnar gáfur, sem ekki er hægt að hafa áhrif á. Með öðr- um orðum, við getum haft mikil áhrif, ekki bara á gæfu heldur gjörvileika barna með því að hlúa vel að þeim. Það sem er merkilegt við þetta er að þetta er enn eitt dæmið um það hversu erfitt það er og í sjálfu sér til- gangslaust að reyna að skilja að erfð- ir og umhverfi, vegna þess að þetta er svo samofið,“ sagði Kári. Annað dæmi um hversu samofið þetta er nefnir Kári úr grein sem ÍE hafi birt fyrir nokkrum árum, þar sem fjallað var um breytileika í erfða- mengjum sem hefðu áhrif á það hvort fólk reykti eða ekki. „Við fundum breytileika sem hafa áhrif. Ef þú hef- ur þennan breytileika, þá reykir þú meira og átt erfiðara með að hætta. Við tókum þennan breytileika og sýndum fram á að hann hefur tölu- verð áhrif á líkurnar á að þú fáir lungnakrabbamein. Ef einstaklingur er með þennan breytileika, þá er hann 30% til 40% líklegri til þess að fá lungnakrabbamein. Þetta er mjög athyglisvert, því á Íslandi er lungna- krabbamein næstum því einvörðungu umhverfissjúkdómur. 97,5% þeirra sem fá lungnakrabbamein hafa reykt í áratugi. En þú erfir tilhneiginguna til þess að leita í umhverfið, þannig að í þessu hverfur líka línan milli erfða og umhverfis. Við erum ekkert annað en afleiðingar DNA-sameinda sem við köllum erfðamengi og þess um- hverfis sem sameindin er í. Við erum þannig ekki til algjörlega aðskilin frá okkar umhverfi, heldur erum við að hluta til afleiðing af okkar umhverfi,“ segir Kári Stefánsson. Við erum að mörgu leyti eins og maurar Morgunblaðið/Júlíus Íslensk erfðagreining Ný rannsókn ÍE var birt í vísindatímaritinu Science í gær, um áhrif uppeldis á örlög barna. Kári Stefánsson Dagana 16.-23. janúar fóru að jafnaði 15.161 rúmmetrar á klukkustund í gegnum hitaveitu Veitna á höfuðborgarsvæðinu. Vikunotkunin hefur aldrei verið meiri og voru met í sólarhringsnotkun og notkun á klukku- stund einnig slegin á þessu tímabili. Í tilkynningu frá Veitum segir að frá því í nóvember hafi komið fjórir stórir notkunartoppar og með hverjum þeirra hafi meðalrennsli á klukku- stund, mælt yfir sjö daga tímabil, hækkað. Þar segir enn fremur að helsta ástæða þessarar miklu notkunar sé langvarandi kuldatíð en einnig hafi það áhrif að notkun á heitu vatni hafi aukist mikið á síðustu fimm árum eða um tæp 20%. Met í notkun á heitu vatni Í frétt ÍE um rannsóknina segir m.a.: „Stóran hluta ævinnar eru börn svo háð foreldrum sínum að umhverfi uppvaxtarins hefur djúpstæð áhrif. Og þessi um- heimur æskunnar mótast ein- mitt af erfðaefni foreldranna. Vísindamennirnir nefna þetta erfðauppeldi. Höfundur Njálu orðaði það svo að fjórðungi brygði til fósturs. Áður en Sig- mundur Lambason vó Þórð fóstra Njálssona að áeggjan Hallgerðar sagði hann: „En eigi er kynlegt að Skarphéðinn sé hraustur því að það er mælt að fjórðungi bregði til fósturs.“ Í rannsókninni var notað erfðaefni þúsunda Íslendinga sem fæddust milli 1940 og 1983, og þar sem erfðaupplýs- ingar a.m.k. annars foreldris lágu fyrir.“ Nefna þetta erfðauppeldi ATHUGUN AF ÞESSU TAGI ER EINSTÖK Í SINNI RÖÐ  Ný rannsókn Íslenskrar erfðagreiningar sýnir hvernig uppeldið gengur í arf  Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, segir að með því að hlúa að börnum höfum við áhrif á gáfur þeirra, gæfu og gjörvileika Ólöf Erla Bjarnadóttir Guðrún Borghildur Valdís Harrysdóttir Íslensk hönnun - Íslenskt handverk Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990 www.kirs.is, Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17 /////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.