Morgunblaðið - 26.01.2018, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 26.01.2018, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2018 HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is exton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum g auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu g fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu. Við hjálpum þér að bæta lífsgæðin R o o HVAÐ HENTAR ÞÍNU STARFSFÓLKI? Hjá okkur færðu ljúffengan mat úr fyrsta flokks hráefni. • Fjölbreytta rétti úr fiski, kjöti og grænmeti. • llmandi og nýbökuð brauð, rík af korni og fræjum. • Gómsætar súpur, lagaðar með hollustu að leiðarljósi. • Brakandi fersk salöt og ávexti. • Við komum til móts við ykkar óskir kryddogkaviar.is kryddogkaviar@kryddogkaviar.is Sími 515 0702 og 515 0701 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Verð á íbúðum í fjölbýli í Reykjavík lækkaði í fjórum póstnúmerum af sex á fjórða ársfjórðungi í fyrra. Þetta kemur fram í greiningu Þjóð- skrár Íslands sem unnin var fyrir Morgunblaðið. Sé verðið flokkað með og án ný- bygginga í póstnúmerunum sex er niðurstaðan sú að verðið lækkaði í níu tilvikum af tólf. Verðið lækkaði hlutfallslega mest í miðborg Reykjavíkur, 101 Reykja- vík, eða um 3,3%. Án nýbygginga lækkaði verðið um 2,5%. Í krónum talið lækkaði verðið um 18 og 13 þúsund á fermetra. Það samsvarar 1,8 og 1,3 milljónum á 100 fermetra. Verðið hækkaði um 0,1% í Hlíð- unum og Holtunum í Reykjavík, 105 Reykjavík, eða um rúmar 400 krónur á fermetra. Án nýbygginga lækkaði verðið hins vegar um 0,6%, eða um rúmar 2.600 krónur. Hækk- unin samsvarar 40.000 kr. en lækk- unin 260.000 kr. á 100 fermetra. Þá lækkaði verðið um 1,7% í Vesturbænum, 107 Reykjavík, og um 1,5% án nýbygginga. Þessar lækkanir samsvara 8.000 og 7.400 krónum á fermetra, eða 800 til 740 þúsund á hverja 100 fermetra. Seljahverfið sækir á Verðið hækkaði um 5,5% í Selja- hverfinu, 109 Reykjavík, eða um 19.000 krónur á fermetra. Sama hækkun var án nýbygginga. Þessi hækkun samsvarar 1,9 milljónum á hverja 100 fermetra. Verðið lækkaði hins vegar um 1,2% í Breiðholtinu, 111 Reykjavík, eða um 4.700 krónur á fermetra. Sama lækkun var án nýbygginga. Þessi lækkun samsvarar 470 þús- und krónum á hverja 100 fermetra. Loks lækkaði verðið um 1,6% í Grafarvogi, 112 Reykjavík, eða um 6.500 krónur á fermetra. Sama lækkun var án nýbygginga. Þessi lækkun samsvarar 650 þúsund krónum á hverja 100 fermetra. Veitir aðeins vísbendingu Tekið skal fram að mismargir kaupsamningar eru að baki meðal- tali hvers fjórðungs. Þá eru gæði húsnæðis mismunandi. Verktaki sem ræddi við Morgunblaðið í trausti nafnleyndar benti til dæmis á að sala á nýju fjölbýlishúsi í grónu hverfi gæti haft mikil áhrif á einum fjórðungi. Það megi ekki gera of mikið úr sveiflum milli fjórðunga. Sé meðalverðið borið saman milli fjórða fjórðungs 2016 og 2017 kem- ur í ljós að verðið í áðurnefndum sex póstnúmerum hefur hækkað um 7,7% til 18,5%. Það er mikil hækkun á raunverði. Tólf mánaða verðbólga mælist nú 1,9%. Fram kom í Morgunblaðinu í lok október að meðalverð seldra íbúða í fjölbýli í tveimur hverfum í Reykjavík lækkaði milli 2. og 3. fjórðungs 2017. Virtist það fyrsta vísbendingin um lækkanir eftir stöðuga hækkun fasteignaverðs síðustu ár. Þurfa að lækka verðið Samkvæmt öruggum heimildum Morgunblaðsins hafa fjárfestar gripið til þess ráðs að lækka verð í nýjum fjölbýlishúsum á höfuð- borgarsvæðinu. Var það gert til að örva eftirspurn. Dæmi um slíkt er fjölbýlishúsið Álalind 10. Samkvæmt tölvupósti frá fasteignasala var verð margra íbúða lækkað. Til dæmis lækkaði verð á einni úr 59 í 56 milljónir og á annarri úr 58,5 í 55,5 milljónir. Þá fór verð á íbúð úr 63,5 milljónum í 59,5 milljónir og á annarri úr 64,5 í 59 milljónir. Tvö síðarnefndu dæm- in samsvara 9,3% og 6,7% lækkun. Minni verðbólga en ella Jón Bjarki Bentsson, aðalhag- fræðingur Íslandsbanka, segir þessar tölur koma á óvart. Grein- ing Íslandsbanka hafi spáð 7% hækkun fasteignaverðs á landsvísu í ár. Það samsvari ríflega 0,5% hækkun á mánuði. Ef verðið hækki minna en Grein- ingin spáði muni draga úr verð- bólgu í ár. Húsnæðisliðurinn hafi enda drifið verðbólguna á síðustu misserum. Hann bendir á að hægt hafi á hækkunum á fjórða fjórð- ungi. Jafnframt dragi jafnan úr veltu í desember. Hann telur rétt að bíða eftir nýjum tölum um veltu og verð í janúar áður en frekari ályktanir eru dregnar af þróuninni. Má í þessu efni rifja upp að án húsnæðisliðarins hefði verið verð- hjöðnun á síðustu misserum. Verð innfluttra vara hefur enda lækkað. Verðið lækkar í nokkrum hverfum  Verð seldra íbúða í fjölbýli í Reykjavík lækkaði í fjórum póstnúmerum af sex á fjórða fjórðungi 2017  Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir þessa óvæntu þróun geta haldið aftur af verðbólgu í byrjun árs Verðþróun seldra fasteigna í fjölbýli í sex póstnúmerum í Reykjavík Frá fyrsta ársfjórðungi 2013 til fjórða ársfjórðungs 2017 Meðalkaupverð á fermetra: Allar fjölbýliseignir Án nýbygginga Allar fjölbýliseignir Án nýbygginga Allar fjölbýliseignir Án nýbygginga PÓSTNÚMER 101 PÓSTNÚMER 105 PÓSTNÚMER 107 2013, 1. ársfj. 322.855 307.187 282.399 282.348 296.904 296.904 2013, 4. ársfj. 340.493 329.095 289.335 289.188 320.347 320.347 2014, 1. ársfj. 369.513 350.156 300.058 300.058 321.159 321.159 2014, 4. ársfj. 381.953 368.065 341.410 331.217 350.509 350.509 2015, 1. ársfj. 397.432 375.052 344.972 332.582 351.419 351.419 2015, 4. ársfj. 411.175 406.334 363.621 365.365 396.280 396.280 2016, 1. ársfj. 460.152 454.071 371.082 370.784 375.231 375.231 2016, 4. ársfj. 466.881 467.003 426.932 428.013 438.161 442.418 2017, 1. ársfj. 508.796 509.204 457.910 460.254 452.071 458.135 2017, 2. ársfj. 524.890 519.997 472.403 475.093 496.373 488.188 2017, 3. ársfj. 535.641 528.629 474.056 476.025 487.842 483.854 2017, 4. ársfj. 517.914 515.377 474.493 473.397 479.705 476.417 Breyting frá 1. ársfj. 2013 60,4% 67,8% 68,0% 67,7% 61,6% 60,5% Breyting frá 4. ársfj. 2016 10,9% 10,4% 11,1% 10,6% 9,5% 7,7% Breyting frá 3. ársfj. 2017 -3,3% -2,5% 0,1% -0,6% -1,7% -1,5% PÓSTNÚMER 109 PÓSTNÚMER 111 PÓSTNÚMER 112 2013, 1. ársfj. 212.661 212.661 218.244 200.269 230.538 230.538 2013, 4. ársfj. 222.018 222.018 215.927 213.849 246.824 246.824 2014, 1. ársfj. 215.884 215.884 229.469 229.469 258.802 258.802 2014, 4. ársfj. 248.506 248.506 245.027 245.027 271.871 271.871 2015, 1. ársfj. 257.300 257.300 256.260 254.917 282.956 282.956 2015, 4. ársfj. 274.397 274.397 283.964 283.658 302.448 302.448 2016, 1. ársfj. 286.238 286.238 300.681 299.505 311.454 310.259 2016, 4. ársfj. 326.471 326.471 325.226 325.226 345.901 344.489 2017, 1. ársfj. 354.031 354.031 353.906 353.906 379.147 379.147 2017, 2. ársfj. 374.037 374.037 371.527 372.659 402.136 402.136 2017, 3. ársfj. 349.129 349.129 390.058 390.058 403.870 403.870 2017, 4. ársfj. 368.323 368.323 385.348 385.348 397.344 397.344 Breyting frá 1. ársfj. 2013 73,2% 73,2% 76,6% 92,4% 72,4% 72,4% Breyting frá 4. ársfj. 2016 12,8% 12,8% 18,5% 18,5% 14,9% 15,3% Breyting frá 3. ársfj. 2017 5,5% 5,5% -1,2% -1,2% -1,6% -1,6% Heimild: Þjóðskrá Íslands

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.