Morgunblaðið - 26.01.2018, Side 15

Morgunblaðið - 26.01.2018, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2018 FÆREYJAR 2 fullorðnir með fólksbíl. verð á mann frá ISK14.700 DANMÖRK 2 fullorðnir með fólksbíl. verð á mann frá ISK27.400 Vikulegar siglingar allt árið til Færeyja og Danmerkur. Stangarhyl 1 | 110 Reykjavík | Sími: 570-8600 Smyril Line Seyðisfjörður 4702808 | info@smyril-line.is | www.smyrilline.is Taktu bílinn með til Færeyja eða Danmerkur Bæklingurinn okkar fyrir 2018 er kominn út. Í honum finnur þú fullt af tilboðum og verðdæmum. Hægt er að nálgast hann á www.smyrilline.is Bókaðu núna og tryggðu þér pláss Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Stephany Mayor, leikmaður Ís- landsmeistaraliðs Þórs/KA í knatt- spyrnu, og Tryggvi Snær Hlinason, landsliðsmaður í körfubolta úr Þór, voru útnefnd íþróttakona og íþrótta- karl Akureyrar 2017. Kjörinu var lýst í hófi í menningarhúsinu Hofi á miðvikudaginn.    Viktor Samúelsson kraftlyft- ingamaður úr KFA og sundkonan Bryndís Rún Hansen í Óðni urðu í öðru sæti. Þetta var í 39. skipti sem íþróttamaður Akureyrar er kjörinn.    Mexíkóska landsliðskonan Stephany Mayor var lykilmaður í akureyrska Íslandsmeistaraliðinu, var bæði markahæst og átti flestar stoðsendingar á Íslandsmótinu og var kjörin besti leikmaður Íslands- mótsins af leikmönnum.    Tryggvi var burðarás í Þórsliðinu á síðasta keppnistímabili, var í landsliðshópnum sem lék á EM en hæst bar frammistöðu hans á Evr- ópumóti 20 ára og yngri: Ísland lék þar í A-deild með öllum bestu liðum álfunnar, tölfræði leiddi í ljós að framlag Tryggva var meira en nokk- urs annars á mótinu og hann var val- inn í fimm manna úrvalslið keppn- innar. Í haust hófst ferill Tryggva sem atvinnumanns þegar hann gekk til liðs við Spánarmeistara Valencia. Bryndís Hansen, sem stundar nú nám við háskólann á Hawaii og keppir í bandarísku háskóladeild- inni, varð fjórfaldur Íslandsmeistari á árinu og vann til sex verðlauna á smáþjóðaleikunum.    Viktor Samúelsson var ósigraður innanlands og varð Íslandsmeistari fjórða árið í röð. Nýliðið ár var hans fyrsta í alþjóðlegum flokki fullorð- inna og vann hann silfurverðlaun í bekkpressu á EM auk þess að ná fjórða sæti í samanlögðu.    Í þriðja sæti í kjörinu varð júdó- fólkið Anna Soffía Víkingsdóttir og Alexander Heiðarsson úr Draupni. Hófið var á vegum Íþróttabanda- lags Akureyrar og Frístundaráðs. Félög sem áttu landsliðsfólk og Ís- landsmeistara fengu viðurkenningu og heiðursviðurkenningar Frístundaráðs hlutu Ágúst H. Guðmundsson fyrir mikið og óeigingjart starf fyrir körfu- boltadeild Þórs og Hrefna Hjálmars- dóttir fyrir ötult starf í þágu skáta- hreyfingarinnar. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Sú besta Stephany Mayor, Íslandsmeistari og leikmaður Íslandsmótsins. Mayor og Tryggvi best á Akureyri Hrefna Hjálmarsdóttir Sá besti Tryggvi Snær Hlinason, landsliðsmaður í körfubolta úr Þór. Ágúst Herbert Guðmundsson Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fækkað hefur um 147 fjós hér á landi á síðustu tíu árum eða um liðlega fimmtung. Framleiðslan hefur aukist á sama tíma þannig að þau bú sem eftir standa bæta stöðugt við sig og meðalbústærðin eykst. Á sama tíma og fjósum fækkar hefur fjósum sem útbúin eru með mjaltaþjóni eða -þjón- um fjölgað. Nú eru 180 fjós með mjaltaþjóna. Snorri Sigurðsson hefur tekið sam- an skýrslu um þróun fjósgerða og mjaltatækni síðustu tvö árin. Er hún gerð fyrir Landssamband kúabænda og hafa sams konar upplýsingar verið teknar saman á tveggja ára fresti í mörg ár. Básafjós í minnihluta Nú eru 573 fjós í landinu og hefur þeim fækkað um 45 á tveimur árum. Fram kemur að nú eru lausa- göngufjós í fyrsta skipti orðin fleiri en básafjós. Mikill meirihluti kúastofns- ins er hýstur í lausagöngufjósum, eða um 69%. Fyrir sex árum voru um 100 fjós með mjaltaþjónum. Þau eru nú 180 talsins eða liðlega 30% allra fjósa í landinu. Það segir þó ekki alla söguna um framleiðsluna því fram kemur í skýrslunni að meðalnyt úr lausagön- gufjósum með mjaltaþjóna er talsvert meiri en úr fjósum með aðra mjalta- tækni. Meðalafurðirnar eru 6.537 kg á móti 5.500 til liðlega 6.000 kg úr öðr- um fjósum. Þá eru flest stærstu bú landsins með mjaltaþjóna. Eftir eru fjögur bú í landinu þar sem mjólkað er með vélfötutækni, fyrirrennara rörmjaltakerfisins. Kerfið skilar mjólkinni í fötur sem bera þarf í mjólkurhús. Ekki eru mörg ár síðan síðasti bóndinn sem handmjólkaði hætti framleiðslu. 180 fjós komin með mjaltaþjóna  Fjósum fækkað um 20% á áratug Morgunblaðið/Ómar Mjaltaþjónn Miklar breytingar hafa orðið á fjósum og mjaltatækni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.