Morgunblaðið - 26.01.2018, Side 28

Morgunblaðið - 26.01.2018, Side 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2018 ✝ SteingrímurSveinbjörn Ei- ríksson fæddist í Reykjavík 8. febr- úar 1951. Hann varð bráðkvaddur 14. janúar 2018. Foreldrar hans voru Eiríkur Magn- ússon rafvélavirki, f. 6.1. 1921, d. 5.8. 2006, og Sigríður Sveinbjörnsdóttir hjúkrunarkona, f. 10.10. 1915, d. 28.1. 2015. Alsystkini Steingríms eru: Lilja, f. 18.3. 1947, hennar eiginmaður er Bragi Líndal Ólafsson, f. 11.2. 1945, og stúlka, f. 20.2. 1953, d. 20.2. 1953. Systkini samfeðra eru: Eva Katrín, f. 30.11. 1972, henn- ar eiginmaður er Michael Wal- ter Ditto, f. 5.6. 1967, og Bragi Magnús, f. 22.10. 1974, d. 16.9. 2014. Steingrímur kvæntist Bjarn- heiði Magnúsdóttur, f. 31.1. Steingríms er Anna Dagný Halldórsdóttir, f. 22.12. 1959. Dóttir þeirra er 3) María Ellen, f. 16.10. 1995. Dætur Önnu Dag- nýjar eru Elín Viola og Elsa Annette Magnúsdætur, báðar f. 18.5. 1979. Steingrímur lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1971 og hóf síðan nám í lögfræði við Háskóla Ís- lands. Með námi starfaði hann í Landsbanka Íslands á sumrin. Hann lauk lögfræðiprófi 1977. Hann hlaut réttindi sem héraðs- dómslögmaður árið 1980 og réttindi sem hæstaréttarlög- maður 2000. Hann hóf störf hjá Iðnaðar- banka Íslands hf. í júlí 1977. Hann var forstöðumaður lög- fræðisviðs bankans frá 1983 til 1989 og síðar framkvæmda- stjóri eignarhaldsfélagsins Iðn- aðarbankinn hf. frá 1990 til 1992. Síðar á ferlinum átti hann sæti í stjórn margra félaga. Árið 1990 stofnaði hann lög- mannsstofu í Reykjavík og hef- ur rekið hana ásamt Árna Einarssyni til dauðadags. Útför Steingríms fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 26. janúar 2018, og hefst athöfnin klukkan 11. 1951, þann 10. ágúst 1974. Þau skildu. Börn þeirra eru: 1) Harpa Sig- ríður, f. 4.12. 1979. Hennar eiginmaður er Ólafur Karel Jónsson, f. 1.8. 1963. Synir Hörpu Sigríðar og Ingv- ars J. Snæbjörns- sonar, f. 16.7. 1975, eru: a) Arnar Óli, f. 6.6. 2005, b) Steinar Ingi, f. 8.4. 2008. Börn Ólafs Karels og Guð- rúnar Klöru Sigurbjörnsdóttur, f. 20.3. 1966, eru: c) Íris Ósk, f. 14.8. 1984, d) Unnur Lilja, f. 11.10. 1989, d. 12.4. 1990, e) Jón Karel, f. 12.9. 1991, f) Anton Örn, f. 17.6. 1993. 2) Helga Ína, f. 15.6. 1983. Hún er í sambandi með Bjarka Ólafssyni, f. 5.9. 1974. Sonur hennar og Geirs Guðjónssonar, f. 24.12. 1971, er Steingrímur Geir, f. 20.3. 2008. Fyrrverandi sambýliskona Í dag kveð ég pabba minn og besta vin minn. Ég get ekki lýst því með orð- um hvað ég á eftir að sakna hans mikið og hann skilur eftir sig stórt skarð í lífi mínu. Þegar ég lít til baka þá er efst í huga mér þakklæti fyrir allar minningarn- ar sem ég á með honum og hvað hann kenndi mér margt. Við systurnar fórum í ófáar veiðiferðirnar með honum upp í Skugga og áttum góða tíma sam- an þar sem hann kenndi okkur að veiða og svo síðar barnabörn- unum. Við töluðum saman í síma á hverjum degi og símtölin urðu oft ansi löng því pabbi hafði alltaf margt að segja. Pabbi vildi alltaf allt fyrir alla gera, var traustur og kenndi mér að koma vel fram við alla og að allir eru jafnir sama hvaða titla fólk ber. Ég er ótrúlega þakklát fyrir að hann leiddi mig upp að altar- inu þegar við Kalli giftum okkur og hvað hann var glaður þann dag og ánægður með manns- efnið mitt. Ég mun halda minningu um besta pabba í heimi og góðan mann á lofti og ég sé þig seinna, elsku pabbi minn. Þín Harpa. Elsku pabbi. Mig langar til að minnast þín í eftirfarandi orðum. Það sem er mér efst í huga er þakklæti fyrir alla þá væntumþykju og ást sem þú sýndir mér og lést mig alltaf finna að ég væri þér mikils virði. Frá því ég var lítil kallaðir þú mig oft „Gullið mitt“, það var svo fallegt. Þú varst góður og heiðarlegur maður og hef ég alltaf verið stolt að þú værir pabbi minn. Þú hafð- ir svo mikla trú á mér og sýndir þú mér alltaf að þú værir stoltur af mér, það er dýrmætt. Þú hef- ur alltaf verið besti pabbi í öllum heiminum, alltaf til staðar, ráða- góður og gott að tala við. Hafðir þú frá mörgu að segja, varst fróður um marga hluti og oft ef ég spurði þig spurninga þá voru svörin oft löng, mjög löng, þá þurfti ég að vera þolinmóð og hlusta til enda. Símtöl okkar á milli voru oftast í lengri kantin- um og það var enginn leið að hætta að tala við þig, þú hafðir bara svo mikið að segja. Ég á mjög góðar minningar þar sem við vorum að veiða í Skugga, dýrmæt augnablik þeg- ar annað okkar veiddi fisk, þá skiptumst við á kossum og ósk- uðum hvort öðru til hamingju. Það var alltaf svo gaman að veiða með þér. Ótal aðrar góðar minn- ingar á ég um þig sem ég geymi í mínu hjarta. Ég er svo ánægð að Stein- grímur Geir hafi fengið að kynn- ast þér og að hann muni líka eiga minningar um afa sinn. Minningin um góðan föður og afa mun lifa áfram í hjörtum okk- ar Þar til við hittumst á ný, elsku besti pabbi minn. Þú, Guð míns lífs, ég loka augum mínum í líknarmildum föðurörmum þínum og hvíli sætt, þótt hverfi sólin bjarta, ég halla mér að þínu föðurhjarta. (Matthías Jochumsson) Þín dóttir, Helga. Sá dagur er runninn upp að ég fylgi elsku pabba mínum síðustu sporin, miklu fyrr en ég nokkurn tímann átti von á. Pabbi minn var einstakur maður, með sterka réttlætiskennd og vildi öllum vel. Pabbi var stoð mín og stytta í svo mörgu sem ég tók mér fyrir hendur, þá sérstaklega í náminu en ég þakka honum fyrir ómet- anlegan stuðning og hvatningu, hann var alltaf svo stoltur af mér. Lögfræðin og heimspekin á bak- við hana var okkar sameiginlega áhugamál og hefur hann búið mér gott veganesti sem ég er svo þakklát fyrir. Elsku besti pabbi minn, ég kveð þig með miklum söknuði og með svo brotið hjarta. Þinn tími átti ekki að koma strax, ég átti svo margt eftir ólært af þér og svo ótal margt sem við áttum eft- ir að gera. Stundirnar og tíminn sem við áttum saman eru mér núna dýrmætar minningar, þú varst einstakur og góður maður og kenndir mér svo margt um líf- ið og tilveruna. Núna passar mamma uppá mig og ég passa uppá mömmu. Þín dóttir og litla gull, María Ellen. Það var reiðarslag í lítilli fjöl- skyldu þegar það var tilkynnt á sunnudeginum fyrir viku að Steingrímur, bróðir og mágur, hefði orðið bráðkvaddur þá um nóttina. Maður fer í stuttan göngutúr og kemur ekki heim aftur. Ýmis minningabrot rifjast upp í huganum. Foreldrar systk- inanna, Steingríms og Lilju, höfðu verið innlyksa í Danmörku á stríðsárunum og komu heim í stríðslok með tvær hendur tómar. Vera foreldranna á stríðs- tímum í Danmörku hafði áhrif á systkinin. Þau eru alin upp við að fara vel með og sýna útsjónar- semi. Fjölskyldan hóf að byggja hús að Skeiðarvogi 159 og flutti þangað 1954. Þar ólst Steingrím- ur upp til fullorðinsára. Hann var í sveit í nokkur sumur hjá ömmu sinni og afa í Lækjarbug á Mýr- um og fór seinna á unglingsárun- um að vinna ýmis störf sem gáf- ust í sumarfríum. Vinnusemi var honum því eiginleg sem endur- speglaðist í því að hann átti alltaf afar erfitt með að taka sér frí frá störfum. Steingrímur lærði á pí- anó í Barnamúsíkskólanum og fram á menntaskólaár. Hann hafði gríðarlegan áhuga á Íslend- ingasögunum og kunni til dæmis Njálu nánast utanbókar. Hann kynnti sér vel ýmsa þætti í sjálf- stæðisbaráttu Íslendinga og var vel að sér um margt sem gerðist í seinni heimsstyrjöldinni. Skömmu eftir bílpróf eignað- ist Steingrímur Willys-jeppa með blæju, sem hann hafði mikið yndi af. Voru ófáar skíðaferðir farnar á honum í Kerlingarfjöll. Einnig var hann ónískur að lána systur sinni hann þegar hún þurfti að skreppa auralítil á ball. Hún vakti því stundum athygli stuttpilsuð á stríðskerrunni. Steingrímur lýkur prófi í lög- fræði meðan við hjónin erum bú- sett 6 ár í Bandaríkjunum. Er við komum heim í lok árs 1980 vill svo til að við Steingrímur hófum báðir að byggja hús á sama tíma. Fjármunir voru af skornum skammti og varð því að nota allan frítíma, nætur og helgidaga í byggingarvinnu til að spara út- gjöld. Við hjálpuðumst að og ekki er langt síðan Steingrímur minntist þess þegar við vorum að rífa steypumót er þíðu gerði á páskum. Við unnum mjög vel saman og höfum alla tíð verið góðir vinir. Sigríður, móðir þeirra syst- kina, var miðpunktur kjarnafjöl- skyldunnar. Hún og Steingrímur voru alla tíð náin. Sigríði vantaði 8 mánuði í að ná hundrað ára aldri. Hún bjó að Skeiðarvogi 159 til ársins 2010 er hún flutti á hjúkrunarheimilið Eir. Gott samband var milli systkinanna, Steingríms og Lilju. Þau áttu oft löng símtöl á kvöldin, sérstak- lega í seinni tíð. Það var mjög gott að leita til Steingríms ef þurfti að ganga frá einhverjum málum lagalegs eðlis. Þau voru leyst fljótt og vel. Hann sagði það einhvern tíma að hann mundi seint líða einhverjum að hlunn- fara sína fjölskyldu. Steingrímur var réttsýnn maður, hjálpsamur og sanngjarn. Hann reyndi til hins ýtrasta að finna lausnir fyrir fólk og oft tók hann að sér mál þó að litlar líkur væru á því að hann fengi greiðslu fyrir. Hann sást kannski ekki alltaf fyrir og var því oft undir miklu vinnuálagi. Minningin lifir um góðan dreng sem við kveðjum af hrærð- um hug. Hvíldu í friði, elsku Steini. Lilja og Bragi. Eitt sinn verða allir menn að deyja, söng Vilhjálmur heitinn Vilhjálmsson svo fallega og lagið hefur hljómað í huga mér undan- farna daga. En þótt þetta viti allir erum við samt aldrei undir það búin þegar höggið kemur og alltaf er það jafn þungt. Í dag kveðjum við þig, Stein- grímur minn, allt of fljótt. Þú varst maður svo margra kosta og það vita þeir sem þig þekktu. Skarpgreindur, raungóður, mað- ur sátta og réttlætis og umfram allt drengur góður. Klettur fyrir svo marga en minnst fyrir þig sjálfan. Lífið reyndist þér oft erf- itt og bylturnar voru nokkrar en alltaf stóðstu upp aftur, sterkur en líka meyr og til þess þarf bæði kjark og þrek. Saman eignuðumst við yndis- lega dóttur, hana Maríu Ellen, sem þú varst svo stoltur af, Gullið mitt, eins og þú kallaðir hana. Og þrátt fyrir að við slitum samvist- um varst þú alla tíð hluti af mínu lífi og dætra minna og reyndist þeim vel og þar eru eldri systurn- ar Elsa og Elín ekki undan- skildar. María Ellen valdi að læra lögfræði og þú fylgdir henni af stað ykkur báðum til ánægju og byggðir með henni þann grunn sem hún verður nú sjálf að vinna úr. Til þess hefur hún hæfileikann og hann kom frá þér. Sporin hennar Maríu Ellenar verða þung í dag. Að fylgja þér til grafar er ekki það sem hún átti von á svo fljótt. Og jafnþung verða sporin fyrir systur hennar Hörpu og Helgu. Saman hafa þær undirbúið kveðjustundina í dag af mikilli umhyggju og ást til þín. Þær munu styrkja hver aðra í sorginni. Ég veit að þú vakir yfir þeim öllum. Far vel, minn kæri, Anna Dagný Halldórsdóttir. Við Steingrímur Eiríksson kynntumst fyrir mörgum árum. Sameiginlegur óvinur leiddi okk- ur saman og tengdi æ síðan órofa böndum. Baráttan við þennan fjandmann var oft fyrirgerðar- mikil í okkar vináttu. Í þeim slag skiptum við gjarnan um hlutverk reglulega. Hjálparhella gærdags- ins var skyndilega hjálparþurfi í dag og öfugt. Sagt er að fátt sameini menn betur en átök við sameiginlegan fjanda. Við Steingrímur kynnt- umst hvor öðrum vel í þessum slag, bæði veikleikum og styrk- leikum hvor annars. Á vandræða- tímabili eigin lífs bjó ég hjá Stein- grími og þá var mikið spjallað. Ævir okkar beggja höfðu verið keimlíkar. Við héldum út í lífið fullir af háleitum hugsjónum og draumum. Brotalamir og óvinur- inn slægi gerðu að verkum að okkur tókst að klúðra ýmsu sem betur hefði mátt fara. Við nauðaþekktum fjölmargar tilfinningar í fari hins, samvisku- bit, sektarkennd, gleði, þakklæti og sátt. Þetta sameinaði okkur og gerði okkur færari um að styðja hvor annan. Við vitnuðum oft í sr. Hallgrím Pétursson þegar hann segir: Þá blindur leiðir blindan hér, báðum þeim hætt við falli er. Steingrímur var gáfaður mað- ur, stálminnugur og raungóður. Hann var stoltur af skyldleika sínum við þjóðskáldið Matthías Jochumsson sem var langafi hans. Oft vitnaði hann í líf sr. Matthíasar og þá sérstaklega efa- semdir hans um eigin tilveru og innstu rök tilverunnar. Íslands- klukka Laxness var honum kær enda kunni hann bókina utanað og lifði sig inn í persónu Jóns Hreggviðssonar. Hann var raun- góður og hjálpsamur og alltaf mátti leita til hans bæði um lög- fræði og öll viðvik. Dæturnar þrjár, Harpa, Helga og María Ellen, voru honum sérlega hjart- fólgnar og hann vildi allt fyrir þær gera. Oft ræddum við um dauðann og sömdum um það að sá okkar sem lengur lifði mundi skrifa minningargrein um hinn og bera síðasta spölinn. Nú er komið að skilnaðarstundu. Steingrímur varð fyrri til og nú fellur það í minn hlut að kveðja þennan vin minn hinstu kveðju. Líf okkar Jó- hönnu er fátækara en áður og skarð hans verður ekki fyllt. Að leiðarlokum viljum við bæði færa fram þakklæti fyrir árin sem við áttum saman og senda aðstand- endum Steingríms innilegar sam- úðarkveðjur. Óttar Guðmundsson. Við urðum félagar og vinir í lagadeild Háskóla Íslands fyrir um 40 árum. Sú vinátta hélst þó að við færum í sitt hvora áttina. Líklega dró okkur saman gáski og gleðiþörf. Háskólaárin liðu við nám, djarfar framtíðarhugmyndir, daglegt fjölskyldustreð og þær lífsnautnir sem tíðkuðust á þeim tíma. Steingrímur kom mér fyrir sjónir á háskólaárunum sem glæsilegur ungur maður sem hafði allt sem einn maður þarf. Hann var vel menntaður píanó- leikari, víðlesinn, greindur og snyrtimenni til orðs og æðis. Ein- faldast er kannski að segja: Öll- um líkaði vel við Steingrím vegna mannkosta hans. Að námi loknu hóf hann störf sem lögfræðingur Iðnaðarbank- ans og mörgum árum seinna við rekstur sinnar eigin lögmanns- stofu í samstarfi við dr. Gunnlaug Þórðarson og Árna Einarsson. Ekki veit ég annað en að lög- fræðistörf hans hafi verið vamm- laus og nákvæm. Á tíðum samverustundum okk- ar hér áður fyrr var margt rætt, nánast allt milli himins og jarðar. Steingrímur var þannig samvist- um að af hans fundi fór maður fróðari um málefni, hugmyndir og samfélag. Ég minnist margra stunda okkar með sérstakri ánægju og fiðringi sem fylgir upprifjun skemmtilegra atvika. Steingrímur var fyrrihluta ævi sinnar lukkunnar pamfíll, en veikindi ollu því líklega að dró úr farsældinni þegar leið á. Hann var afkomandi Matthías- ar Jochumssonar þjóðskálds, og var hreykinn af því. Steingrími kippti í kynið því hann átti létt með að yrkja og var oft hnyttinn og skemmtilegur. Eins og góðir vinir gera þá lof- uðum við hvor öðrum að skrifa vinsamleg eftirmæli um hinn sem fyrr félli frá. Báðir höfðum við sterka vitund um að jarðlífið tek- ur enda og töldum okkur trú um það að við óttuðumst ekki um- breytinguna – og jafnvel hlökk- uðum til hennar. Nú hefur Steingrímur hafið sína nýju vegferð en eftir sit ég með dóm ellinnar sem er sá að horfa á eftir vinum, kunningjum og ættingjum yfir um. Því fylgir einkennileg kennd. Það er eins og allt hverfi í þögn og móðu minn- inganna og umhverfið líkist sífellt meir eyðimörk þar sem þú ert einn á ferð. Einhvern veginn held ég að Steingrímur vinur minn sé ánægður með vistaskiptin. Ég kveð hann með þessari fal- legu kveðju: Skemmtu þér vel, kæri gamli vinur, og njóttu þess sem býðst. Syrgjendum sendi ég sam- úðarkveðjur. Pétur Einarsson. „Kenn oss að telja daga vora, að vér megum öðlast viturt hjarta“ segir í Davíðssálmum, okkur til áminningar um „dauð- ans óvissan tíma“. Andlát Stein- gríms æskuvinar, skólabróður, samstarfsmanns, reglubróður og samferðamanns í lífinu bar brátt að. Það er forn skilningur að visk- an og fleiri góðir eiginleikar búi í hjartanu. Nútímafólk venst því að allt búi í blákaldri skynsemi hug- ans, en við vitum þó að án hins góða hjartalags getur hún, ásamt atorku mannsins, verið beinlínis hættuleg. Feður okkar voru samstarfs- menn og vinir og það leiddi til kynna okkar systkinanna við Steina. Við fundum að þar fór drengur góður sem lét góðgirni og hjálpsemi ráða för. Hann átti viðkvæma lund sem bjó yfir erf- iðri reynslu á ungum aldri, en kannski var það samt hún sem olli því að margir leituðu aðstoðar hans og leiðbeininga á lífsins leið. Við lékum okkur saman, unnum saman hjá Olís á sumrin og áttum frábærar stundir saman í MH. Hann var sem einn okkar bræðra alla tíð. Það atvikaðist svo þannig að við urðum samstarfsmenn í Iðnaðarbankanum. Ég var í hópi þeirra sem önnuðust rekstur og lánveitingar, hann var löglærður ráðgjafi og þurfti stundum að inn- heimta lán. Hann var laginn í samskiptum við þá sem áttu erf- itt, gaf sér góðan tíma til að skýra málin og var fæddur „kennari“. Skýringar hans voru oft mynd- rænar og festust vel í minni. „Afurðalán“ voru algeng í land- búnaði og sjávarútvegi og sett voru hliðstæð lög um veðsetningu iðnaðarvara. „Þú verður að muna að þau eru öðruvísi að því leyti að veðið heldur ekki gagnvart grandlausum þriðja manni,“ sagði hann við mig. Ég spurði: „Já, en hvað þýðir þetta?“ „Það þýðir það, að ef þú mætir manni á Lækjartorgi í buxum frá Dúk hf. með saltfisk undir hendinni, hvort tveggja veðsett bankanum en keypt í góðri trú, þá máttu taka saltfiskinn, ekki buxurnar.“ Um Steina gæti gilt það sem einhver sagði að „margur hefði orðið hamingjusamari ef hann hefði skemmt sér aðeins minna“. Hann háði langa glímu við Bakk- us og gekk á ýmsu í þeirra sam- skiptum. Ánægjulegt er að hugsa til þess að síðustu 14 árin eða svo hafði hann betur, með stuðningi jafningja innan AA. Sambúðin við þann „yfirmann“ tekur mikið til sín og önnur sambönd standa höllum fæti á meðan. Hann eign- aðist þó þrjár dætur, sem færði honum mikla lífsfyllingu. Leik- konan Zsa Zsa Gabor, sem reynslumikil átti ein átta hjóna- bönd að baki, mun hafa sagt við vinkonu sína: „Þú þekkir ekki mann í raun fyrr en þú hefur skil- ið við hann.“ Þetta kom í hugann af því að Steingrímur hefur alltaf verið hjálparhella sinna fyrrver- andi kvenna og reynst þeim „betri en enginn“, eins og oft er sagt. Laugardagskvöldið 13. janúar sl. töluðum við saman í hálftíma um heima og geima. Ekki bar á neinu óvenjulegu. Þetta var kvöldið sem hann brá sér í sína síðustu kvöldgöngu. Hans stóra og hlýja hjarta hætti skyndilega að slá. Fyrir hönd okkar Áslaug- ar, móður minnar og systkina, færi ég honum þakkir fyrir sam- fylgdina og hans nánustu okkar innilegustu samúðarkveðjur. Steingrímur Eiríksson HINSTA KVEÐJA Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Við söknum þín. Hvíldu í friði, elsku afi. Þínir afastrákar, Arnar Óli, Steingrímur Geir og Steinar Ingi. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæll á ljóssins friðarströnd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (G. Jóh.) Hjartans þakkir fyrir allt og allt. Bjarnheiður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.