Morgunblaðið - 26.01.2018, Page 35
„Að loknu verslunarprófi fórum við
nokkrar vinkonurnar til Svíþjóðar í
ævintýraleit. Þar vorum við að vinna
og leika okkur í heilt ár. Þá var ég 18
ára og þetta var auðvitað mikil upp-
lifun og áreiðanlega töluvert þrosk-
andi.“
Jóhanna sinnti ýmsum störfum og
var þá m.a. þjónustustjóri við Versl-
unarbankann og Íslandsbanka á ár-
unum 1981-88, var útibússtjóri við
Verslunarbankann og síðan við Ís-
landsbanka 1988-90, sveitarstjóri og
síðar bæjarstjóri í Vogum á Vatns-
leysuströnd 1990-2006, útibússtjóri
við Arion banka í Reykjanesbæ og
síðar í Hafnarfirði 2006-2013 og hefur
starfrækt eigið fyrirtæki frá 2015
sem sér um útleigu á nokkrum húsum
til erlendra ferðamanna.
„Mér fannst mér kastað út í djúpu
laugina er ég tók að mér að vera
sveitarstjóri í Vogum, 32 ára. En ég
áttaði mig fljótlega á því að þarna var
maður allt í öllu – allt frá því að
stugga við flökkukindum til þess að
gera stóra fasteigna- eða verktaka-
samninga. Það var alltaf nóg að sýsla
og þessi 16 ár liðu því hratt.“
Jóhanna sat í stjórn launanefndar
sveitarfélaga, í Hafnarsambandi
sveitarfélaga, í stjórn Hitaveitu
Suðurnesja, var stjórnarformaður í
Atvinnuþróun og sat í jafnréttisnefnd
Arion banka.
Jóhanna æfði og keppti í handbolta
með ÍBK á sínum yngri árum og síð-
an með Haukum og nældi þar í
nokkra titla. Allar götur síðan hefur
hún verið dugleg að stunda útivist og
hreyfingu, hefur farið mikið á skíði,
stundað golf og syndir nánast dag-
lega: „Þegar útivist og hreyfingu
sleppir nýt ég þess að eyða frítím-
anum í matreiðslu, bjóða góðum vin-
um og kunningjum í matarboð, hlusta
á klassíska tónlist og lesa spennandi
glæpasögur eftir íslenska og erlenda
höfunda.
Ég ætla einmitt að halda upp á af-
mælið með veglegri tónleikaveislu.
Þá verður byrjað á því að fara á óperu
í Stokkhólmi og síðan á nokkra tón-
leika í Vínarborg og endað síðan á
Mozart í Salzburg. Ég er auðvitað full
eftirvæntingar.“
Fjölskylda
Eiginmaður Jóhönnu er Ólafur Ey-
þór Ólason, f. 20.4. 1960, múrara-
meistari. Foreldrar hans: Óli Þór
Hjaltason, f. 25.4. 1935, d. 6.2. 1996,
múrarameistari í Keflavík, og Sigur-
veig Þorleifsdóttir, f. 14.2. 1933, d.
13.1. 2009, listamaður í Keflavík
„Við Ólafur Eyþór kynntumst á
bítlaballi í Keflavík 1978 og höfum því
verið saman í tæp 40 ár.“
Sonur Jóhönnu og Ólafs Eyþórs er
Eyþór Ólafsson, f. 8.7. 1997, náms-
maður, búsettur í Vogum.
Systkini Jóhönnu eru Sævar
Reynisson, f. 23.10. 1952, viðskipta-
fræðingur í Garðabæ; Guðmundur
Óli Reynisson, f. 17.7. 1954, krana-
maður í Keflavík; Gunnar Reynisson,
f. 5.2. 1962, d. 26.10. 1963, og Guðný
Reynisdóttir, f. 22.2. 1965, sálfræð-
ingur Reykjavík.
Foreldrar Jóhönnu voru Reynir
Jónsson, f. 26.8. 1925 d. 21.10. 2016,
eggjabóndi í Keflavík, og Hjálmfríður
Guðný Sigmundsdóttir, f. 16.9. 1922,
d. 23.9. 2004, húsfreyja í Keflavík.
Jóhanna
Reynisdóttir
Petólína Elíasdóttir
húsfreyja í Rekavík
Pétur Tryggvi Jóhannsson
b. í Rekavík á Hornströndum
Bjargey Halldóra Pétursdóttir
húsfreyja á Hælavík á Hornströndum
Hjálmfríður Guðný Sigmundsdóttir
húsfreyja í Keflavík
Sigmundur Guðnason
ljóðskáld og
bjargmaður á Hælavík
á Hornströndum og
vitavörður á Hornbjargi
Hjálmfríður Ísleifsdóttir
húsfreyja í Hælavík
Guðni Kjartansson
b. í Hælavík
Bergþóra Káradóttir
starfsm. í Reykjaneshöll
Kári Jónsson
vörubílstj. í
Keflavík
Jóna Sæmundsdóttir
bæjarfulltr. í Garðabæ
Sigurveig Sæmundsdóttir
fyrrv. skólastj. Flataskóla
Oddur Sæmundsson
skipstj. og útgerðarm.
í Keflavík
Sæmundur
Jónsson
framkvstj. í
Garðabæ
Þórleifur Bjarnason
ámsstjóri og rithöfundurnFriðrik Guðni skáld
Ingibjörg Guðnadóttir
húsfr. í Hlöðuvík
Margrét Pétursdóttir
húsfreyja á Kóngsstöðum
Sigurður Frímann Jónsson
b. á Kóngsstöðum í
Svarfaðardal
Júlíana Sigurveig Sigurðardóttir
húsfreyja á Dalvík
Jón Valdimarsson
sjóm. á Dalvík
Rósa Guðrún Sigurðardóttir
húsfr. á Syðri-Másstöðum
Valdimar Jónsson
b. á Syðri-Másstöðum í Eyjafirði
Úr frændgarði Jóhönnu Reynisdóttur
Reynir Jónsson
eggja- og fjárb. í Keflavík
Petólína
Sigmundsdóttir
húsfr. á Ísafirði
Tryggvi Guðmundsson
lögm. á Ísafirði
Erna Guðmundsdóttir
þroskaþjálfi í Hveragerði
Björgvin Guðmundsson
rafmagnsverkfr. í Rvík
Stefanía Halldóra Guðnadóttir
húsfr. í Hælavík og á Hesteyri
Guðni Kolbeinsson
kennari og
þýðandi
Jakobína Sigurðardóttir
rithöfundur í Garði í Mývatnssveit
Fríða Á. Sigurðardóttir rithöfundur í Rvík
Ásdís Sigurðardóttir
húsfr. í Hólabrekku í
Laugardal, síðar í Rvík
Kristján S. Sigurðsson yfirlæknir í Keflavík
Guðmundur Jóhann Sigurðsson
skipasmiður í Keflavík
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2018
ALLT FYRIR
HÁR & HÚÐ
harvorur.is
Modus Hár- og Snyrtistofa - Smáralind | Modus Hársnyrtistofa - Glerártorgi
Sími: 527 2829 harvorur.is
Árni Eiríksson, kaupmaður ogleikari, fæddist í Reykjavík26. janúar 1868. Hann var
sonur Eiríks Ásmundssonar í Grjóta
og k.h., Halldóru Árnadóttur, frá
Brautarholti á Kjalarnesi.
Árni var tvíkvæntur. Fyrri konu
sína, Þóru Sigurðardóttur, missti
hann 1904. Með henni átti hann tvö
börn sem náðu fullorðinsárum, Dag-
nýju og Ásmund, sem bæði fluttu til
Kanada um 1920. Hópur afkomenda
Ásmundar býr í Kanada.
Seinni kona Árna, Vilborg Run-
ólfsdóttir, var Vestur-Skaftfellingur.
Henni kvæntist Árni 1910, og bjuggu
þau á Vesturgötu 18 í Reykjavík.
Börn þeirra voru fjögur: Guðrún
Svava, Gunnar, Þóra og Laufey.
Barnabörn Árna og Vilborgar
urðu 12 talsins. Meðal þeirra eru
Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi
ritstjóri Morgunblaðsins, og Valur
Valsson, fyrrverandi bankastjóri Ís-
landsbanka.
Árni gerðist verslunarmaður og
vann lengi hjá Birni Kristjánssyni,
en stofnaði eigin verslun 1910.
Árni var mikill áhugamaður um
leiklist og einn af stofnendum og
burðarásum Leikfélags Reykjavík-
ur. Hann var formaður Leikfélags-
ins 1904-10 og aftur 1913-15. Hann
var einhver þekktasti og ötulasti
leikari hér á landi á sinni tíð og urðu
hlutverk hans um 100 talsins. Þá var
Árni einn af frammámönnum Góð-
templarareglunnar, en í hana gekk
hann ungur.
Í minningargrein í Landinu segir:
„Með andláti Árna Eiríkssonar er
horfinn mikilhæfur og einkennilegur
Reykvíkingur – örlyndur og skap-
mikill kappsmaður, sem veitti örðugt
að láta hlut sinn, en þó hinn sam-
vinnuþýðasti að öllum jafnaði, af-
burða hagsýnn kaupsýslumaður,
hugsjónamaður með mikilli siðferði-
legri alvöru og óvenjulega listelskur
maður, gæddur allmiklum lista-
mannshæfileikum.“
Árni lést úr lifrarkrabbameini 10.
desember 1917, aðeins 49 ára
gamall.
Merkir Íslendingar
Árni
Eiríksson
95 ára
Jón Benediktsson
85 ára
Jón Guðmundur Bergsson
Tómas Jónsson
80 ára
Gísli Kristinsson
Valdís S. Kristmundsdóttir
75 ára
Friðsemd Ingibjörg
Ólafsdóttir
Heidrun Charlotte Vogt
Kjartan Welding Ágústsson
Rannveig Gísladóttir
70 ára
Birgir Kristjánsson
Björn Björnsson
Björn H. Magnússon
Bryndís Kristjánsdóttir
Kristján Ásgeir Möller
Kristján Vídalín Óskarsson
Margrét L. Þórisdóttir
Rúnar Lárusson
Salbjörg Sigríður Nóadóttir
Thomas Kjartan Kaaber
60 ára
Davíð Davíðsson
Friðrik Ómar
Guðbrandsson
Guðbjörn Tryggvason
Hildur Einarsdóttir
Hilmar Halldórsson
Jóhanna Reynisdóttir
Karólína Grönvold
Guðnadóttir
Ragna Ragnars
Sigríður Magnúsdóttir
Valtýr Grétar Einarsson
Þórunn Eiríksdóttir
50 ára
Glenn A. Barkan
Helgi Kárason
Hulda Sjöfn Kristinsdóttir
Janina Grazyna
Burakowska
Knútur Hreinsson
Sigríður Bína Olgeirsdóttir
Sigurður Kaldal Sævarsson
Stefán Þór Lúðvíksson
Særún Lísa Birgisdóttir
Þóra Egilsdóttir
40 ára
Andrés Jakob Guðjónsson
Baldvin Gunnar Ringsted
Giedrius Moliusis
Guðlaug Þóra Kristinsdóttir
Hjálmdís Bergl.
Bergmannsdóttir
Jennifer Edda Harnisch
Justyna Krynska
Mihajlo Zivojinovic
Ólafur Ingi Guðjónsson
Sanita Hildarson
Vittorio Tenerini
30 ára
Atli Björn Gústavsson
Díana Gestsdóttir
Helena Benediktsdóttir
Jasmine Christine Knowles
Jón Auðunn Bogason
Maria-Cristina Stefanoaia
Óskar Rúnarsson
Pawel Woskresinski
Piotr Andrzej Freda
Sigurður Rúnar
Steinarsson
Snædís Kristmundsdóttir
Sofia Tames Garibaldi
Vigdís Margrétard.
Jónsdóttir
Vignir Jónsson
Þóra Björk Bjartmarz
Til hamingju með daginn
30 ára Sigurður ólst upp
í Reykjavík, býr þar, er
þyrluflugmaður að mennt
og hefur unnið við úrverk
að undanförnu.
Systkini: Ægir Þór, f.
1979; Kristrún, f. 1984;
Erna Guðrún, f. 1989; Ólöf
Rún, f. 1991, og Bjarki
Rúnar, f. 1996.
Foreldrar: Steinar Magn-
ússon, f. 1946, og Mar-
grét Aðalsteinsdóttir, f.
1964. Þau eru búsett í
Reykjavík.
Sigurður Rúnar
Steinarsson
30 ára Díana ólst upp á
Selfossi, býr þar, lauk
prófi í íþróttafræði og er
íþróttaþjálfari hjá UMFS
og skyndihjálparkennari.
Maki: Árni Páll Hafþórs-
son, f. 1989, verslunar-
stjóri hjá Nova á Selfossi.
Synir: Elmar Snær, f.
2013, Elimar Leví, f. 2016.
Foreldrar: Rannveig
Árnadóttir, f. 1967, og
Gestur Traustason, f.
1960. Stjúpfaðir: Brynjar
Jón Stefánsson, f. 1960.
Díana
Gestsdóttir
30 ára Atli Björn ólst upp
á Seltjarnarnesi, býr þar,
hefur stundaði nám í raf-
eindafræði og starfar hjá
Verkfærasölunni.
Systkini: Jóhanna Krist-
ín, f. 1972; Einar, f. 1975;
Sigríður Ósk, f. 1989, og
Kolbrún Helga, f. 1993.
Foreldrar: Sigríður Guð-
laugsdóttir, f. 1951, starf-
aði við Landakotsskóla,
og Gústav Magnús Ein-
arsson, f. 1951, starfs-
maður hjá Advania.
Atli Björn
Gústavsson