Morgunblaðið - 26.01.2018, Qupperneq 44
FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 26. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Heimilislíf: Ég skipti ekki um …
2. Innbrotið áfall fyrir alla …
3. Leita að manni vegna andláts …
4. Stórfellt gáleysi orsök dauða …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tónleikar utan dagskrár á Myrkum
músíkdögum verða haldnir í Mengi í
dag og það á heldur óvenjulegum
tíma, við sólarupprás kl. 10. Verkið
Still Life No. 1 eftir Bandaríkjamann-
inn Matt Evans, samið fyrir píanó og
kór, verður þá flutt og kl. 14 verður
annað verk eftir Evans flutt, For
Rauder Thradur. Evans mun leika á
tónleikunum og kór skipa nemendur
úr Listaháskóla Íslands. Kl. 21 heldur
svo Úlfur Eldjárn tónleika.
Tónleikar við sólar-
upprás í Mengi
Þorsteinn
Cameron varð
hlutskarpastur
þátttakenda í ljós-
myndarýni 2018
sem Ljósmynda-
safn Reykjavíkur
stóð fyrir 19.-20.
janúar sl. en hún
var hluti af dag-
skrá Ljósmyndahátíðar Íslands. Í
verðlaun hlaut hann styrk úr Minn-
ingarsjóði Magnúsar Ólafssonar ljós-
myndara að upphæð 500.000 kr.
Þorsteinn er með BA-gráðu í ljós-
myndun og í febrúar mun hann hefja
meistaranám í ljósmyndun í Ástralíu.
Varð hlutskarpastur
í ljósmyndarýni
Árlegir Mozart-
tónleikar verða haldnir
á Kjarvalsstöðum kl.
18 á morgun á fæðing-
ardegi tónskáldsins.
Nemendur Söngskól-
ans í Reykjavík koma
fram með Kristni Erni
Kristinssyni píanó-
leikara.
Tónleikar á fæðing-
ardegi Mozarts
Á laugardag Breytileg átt 3-8 m/s, skýjað og víða dálítil
úrkoma en austan 8-13 og samfelldari rigning á láglendi
norðaustan til. Hiti nálægt frostmarki.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í suðaustan 8-15 með slyddu
eða snjókomu en úrkomulítið norðanlands. Víða rigning
sunnan til síðdegis og hiti 1 til 5 stig en frost fyrir norðan.
VEÐUR
Ítalska körfuknattleiksliðið
Stella Azzura krefst þess að
fá jafnvirði rúmra átta millj-
óna króna frá körfuknatt-
leiksliði Njarðvíkur fyrir
Kristin Pálsson. Krafan er
sögð vera tilkomin vegna
þess að ítalska félagið seg-
ist hafa greitt skólagjöld
fyrir Kristin við bandarískan
háskóla sem hann stundaði
nám í eftir að ferlinum hjá
Stella Azzura lauk. Lausnar
er leitað. »1
Krefjast milljóna
fyrir Kristin
Ísland mætir Sviss og Belgíu í hinni
nýju Þjóðadeild knattspyrnusam-
bands Evrópu, næstkomandi haust,
eins og fram kom í gær. Ekki liggur
hins vegar ljóst fyrir í dag hver mun
stýra íslenska landsliðinu í þeim
leikjum, en
samningur
Heimis Hall-
grímssonar
rennur út að
loknu heims-
meistara-
mótinu í Rúss-
landi. „Það er
gagn-
kvæmur
áhugi á því
að halda
samstarfinu
áfram,“ sagði
Heimir við
Morgunblaðið
í gær. »1
Hver stýrir landsliðinu í
Þjóðadeildinni í haust?
Höttur á Egilsstöðum vann í gær-
kvöld fyrsta leik sinn í úrvalsdeild
karla í körfuknattleik, Dominos-
deildinni. Hattarmenn lögðu Þór frá
Akureyri, 86:75, í framlengingu á
heimavelli í 15. umferð deildarkeppn-
innar. Bikarmeistarar Tindastóls, KR
og Þór úr Þorlákshöfn unnu einnig
sína leiki. Síðarnefnda liðið sótti tvö
stig í greipar Stjörnumanna. »2
Loksins fögnuðu leik-
menn Hattar sigri
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Eftirmynd peysu sem myndhöggv-
arinn Ásmundur Sveinsson klæddist
gjarnan við störf sín er einn vinsæl-
asti söluvarningurinn í safnbúð Ás-
mundarsafns við Sigtún, sem hýsir
verk þessa frumkvöðuls í íslenskri
höggmyndagerð. Elísabet Bjarklind
Þórisdóttir, verkefnastjóri safnsins,
sem er eitt safnhúsa Listasafns
Reykjavíkur, segir að hugmyndin
hafi vaknað hjá starfsfólki Ásmund-
arsafns eftir að stór ljósmynd af Ás-
mundi í peysunni, sem líklega var
tekin í kringum 1960, var hengd upp
á vegg safnsins.
Í kjölfarið var leitað til Sigur-
laugar Helgu Emilsdóttur, áhuga-
konu um prjón, sem var fengin til
þess að taka upp mynstur peys-
unnar og síðan tók Birgir Einars-
son, prjónameistari hjá Prjónastof-
unni Glófa, við keflinu og hannaði
endanlegt útlit. Peysan er eingöngu
seld í Ásmundarsafni og fæst í
tvenns konar sniði; annað þeirra er
„unisex“, fyrir bæði kyn, og hitt er
karlasnið.
Einstök eins og Ásmundur
Nýja peysan er reyndar ekki ná-
kvæm eftirgerð peysu Ásmundar.
Sú upprunalega var að öllum lík-
indum úr gervi-
efni og var snið
hennar nokkuð
annað en er á
nýju peysunni.
„En okkur
fannst ekki ann-
að koma til
greina en að láta
prjóna hana úr ís-
lenskri ull,“ segir
Elísabet.
Hún segir að
fátt sé vitað um
uppruna peysu Ás-
mundar og ekki sé
vitað hvort hún hafi verið búin til
sérstaklega fyrir hann eða hvenær
hann eignaðist hana. „En hann
kunni augljóslega vel við sig í flík-
inni, þar sem nokkuð margar ljós-
myndir eru til af honum í henni,“
segir Elísabet. „Eins og Ásmundur
er hún einstök. Þetta er ekki peysa
sem hægt er að fá í hverri búð, því
hún fæst hvergi í heiminum nema í
Ásmundarsafni.“
Allir Ásmundar fá frítt í safnið
Í ár er öllum sem heita Ásmundur
boðið endurgjaldslaust á Ásmundar-
safn og starfsfólk safnsins hvetur
alla Ásmunda til að sækja safnið
heim. Samkvæmt þjóðskrá bera 219
manns nafnið sem fyrsta eiginnafn
og 13 Íslendingar bera það sem ann-
að eiginnafn. Allir þessir Ásmundar
mega taka með sér einn gest.
Peysa Ásmundar er eftirsótt
„Þetta er ekki
peysa sem hægt er
að fá í hverri búð“
Morgunblaðið/Eggert
Peysan góða Elísabet Bjarklind Þórisdóttir, verkefnastjóri Ásmundarsafns, með eftirgerð af peysu Ásmundar
Sveinssonar. Peysurnar seljast vel, enda eru þær einstakar eins og Ásmundur, eins og Elísabet kemst að orði.
Ásmundur Sveinsson fæddist á Kolstöðum í Dölum 20. maí
1893. Hann nam tréskurð hjá Ríkarði Jónssyni í Reykjavík, lauk
sveinsprófi í tréskurði frá Iðnskólanum í Reykjavík og fór að
því búnu í framhaldsnám í Kaupmannahöfn. Stokkhólmi og
París.
Hann var einn frumkvöðla íslenskrar höggmyndalistar og
sótti efnivið í verk sín jöfnum höndum í íslenska þjóðtrú og í
tækniframfarir 20. aldarinnar.
Verk Ásmundar eru víða um land, m.a. við Borg á Mýrum
og á mörgum stöðum í Reykjavík, enda var afstaða hans til
listarinnar sú að hún ætti að vera sem mest á meðal fólks og
hluti af daglegu lífi.
Ásmundur lést árið 1982 og ári síðar var Ásmundarsafn
við Sigtún, sem var heimili hans og vinnustofa, opnað.
FÉKK HUGMYNDIR SÍNAR ÚR ÞJÓÐSÖGUM OG TÆKNI
Frumkvöðullinn Ásmundur