Morgunblaðið - 02.02.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2018
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
BMW520D XDRIVE
nýskr. 09/2016, ekinn 12 Þ.km, dísel, sjálfskiptur,
hlaðinn aukabúnaði! Verð 6.690.000 kr.
Raðnúmer 256774
RENAULT CAPTUR INTENS
nýskr. 07/2017, ekinn 2 Þ.km, bensín,
sjálfskiptur. Verð 3.190.000 kr.
Raðnúmer 257380
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is
HYUNDAI SANTA FE PREMIUM2.2 TDI
nýr bíll, dísel, sjálfskiptur, leður, glertoppur o.fl.
Verð 7.650.000 kr. Tilboðsverð 7.390.000 kr.
Raðnúmer 230680
MAZDA 6VISION
nýskr. 05/2017, ekinn 34 Þ.km, bensín,
sjálfskiptur. Verð 3.590.000 kr.
Raðnúmer 288881
SKODA OCTAVIA 2,0 TDI COMBI
nýskr. 02/2017, ekinn 49 Þ.km, 2,0l dísel,
sjálfskiptur. Verð 3.590.000 kr.
Raðnúmer 257239
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þ
etta er söguleg stund í
mínu lífi, því síðastlið-
inn mánudag voru liðin
fimm ár frá því ég
bjargaði manni frá
drukknun hér í lauginni, hann var
meðvitundarlaus á sundlaugar-
botninum og ég dró hann upp. Því
miður hitti ég manninn aldrei eftir
þetta, en tveimur árum seinna
kallaði maður á mig þar sem ég
var staddur í Kringlunni, og hann
þekkti mig sem manninn sem
bjargaði bróður hans. Mér þótti
vænt um það. En bróðirinn var þá
látinn,“ segir Trausti Sveinsson
sem býr í Bjarnargili í Fljótunum
fyrir norðan, en hann var staddur
í höfuðborginni í vikunni og mætti
í tilefni tímamótanna í Laugar-
dalslaugina með mynd sem tekin
var af honum fyrir fimm árum í
tilefni af björguninni.
„Ég lenti í bílslysi stuttu eftir
þessa björgun, ég velti bílnum á
Holtavörðuheiðinni og hef verið að
byggja mig upp síðan. Ég hef sett
mér það markmið að taka þátt í
Vasa-skíðagöngunni í Svíþjóð á
hverju ári næstu fimm árin að
minnsta kosti, það er ekki nema
90 kílómetra ganga. Eftir fimm ár
þegar ég verð áttræður verður
Vasa-gangan 100 ára. Það verður
skemmtilegt,“ segir Trausti og
bætir við að endurhæfingar-
læknirinn hans segi að það að
setja sér markmið sé það besta
sem hann geti gert, bæði fyrir
hausinn og skrokkinn.
„Ég vil heiðra hana“
Þegar Trausti er á ferðinni í
höfuðborginni skellir hann sér
gjarnan í sund á morgnana í
Laugardalslauginni og þar kynnt-
ist hann fyrir nokkrum árum
Jakobínu Jakobsdóttur og sund-
félögum hennar sem mæta þar
reglulega.
„Ég kom með blómvönd núna
til að færa Jakobínu. Ég vil heiðra
hana, af því mér finnst hún stór-
kostleg fyrirmynd og ég lít upp til
hennar. Hún heldur sinni góðu
heilsu með því að stunda hreyf-
ingu reglulega, sem skiptir miklu
máli þegar aldurinn færist yfir.
Hún er líka stórmerkileg kona,
hún varð fyrst íslenskra kvenna til
að keppa á Vetrarólympíuleikum,
hún keppti í alpagreinum á leik-
unum 1956 sem fóru fram í Cort-
ina d’Ampezzo á Ítalíu,“ segir
Trausti en Jakobína gerir grín að
fullyrðingunni um að hún sé stór-
merkileg. „Ég verð örugglega
stoppuð upp,“ segir hún og hlær,
og bætir við að Trausti sé nú líka
ólympíufari, hann hafi keppt á
skíðum fyrir Íslands hönd í Inns-
bruck 1976.
Ólst upp við skíðabrekkuna
Jakobína, sem fæddist á Ísa-
firði árið 1932, segir svo mikinn
snjó hafa verið á veturna þegar
hún var að alast þar upp, að skíðin
hafi nánast verið samgöngutæki
sumra bæjarbúa.
„Ég var alltaf á skíðum, enda
átti ég heima nánast alveg í skíða-
brekkunni, svo það voru hæg
heimatökin. Austurrískur þjálfari
kom vestur á Ísafjörð til að þjálfa
skíðaliðið og það breytti miklu, en
það var skíðaskóli á Ísafirði á mín-
um uppvaxtarárum, eini staðurinn
á landinu sem var með slíkan
skóla. Það var skemmtilegt og við
vorum allar helgar í útilegu fram á
dal, sem kallað var. Nú er það
bannað vegna snjóflóðahættu,“
Fyrrverandi ólymp-
íufarar synda saman
Þau Jakobína og Trausti synda saman í Laugardalslauginni þegar hann skreppur
til Reykjavíkur úr Fljótunum fyrir norðan. Þau eru bæði miklir íþróttagarpar, láta
aldurinn og slys ekki stoppa sig í því að stunda daglega hreyfingu. Þau eiga það sam-
eiginlegt að hafa keppt á Ólympíuleikum fyrir margt löngu, en Jakobína varð fyrst ís-
lenskra kvenna til að keppa á vetrarólympíuleikum, á Ítalíu árið 1956.
Úr bókinni Íslendingar á Ólympíuleikum.
Svig Jakobína einbeitt í svigkeppninni á vetrarólympíuleikunum 1956.
Úr bókinni Íslendingar á Ólympíuleikum.
Íslensku ólympíufararnir í Cortina 1956 Jakobína eina konan í hópnum.
F.v. Valdimar Örnólfsson, Eysteinn Þórðarson, Otto Rieder þjálfari, Stein-
þór Jakobsson, Jakobína Jakobsdóttir, Jens Guðbjörnsson og Bragi Krist-
jánsson fararstjórar, Oddur Pétursson, Jón Kristjánsson, Gísli B. Krist-
jánsson flokksstjóri, Stefán Kristjánsson og Einar V. Kristjánsson.
Allir aldurshópar ættu að finna
eitthvað við sitt hæfi á dagskrá
Safnanætur í Þjóðminjasafninu við
Suðurgötu og Safnahúsinu við
Hverfisgötu kl. 18-23 í kvöld, föstu-
daginn 2. febrúar. Safnahúsið verð-
ur til dæmis sýnt í allt öðru ljósi
þegar seyðfirska listahátíðin List í
ljósi í samstarfi við Vetrarhátíð
Reykjavíkur varpar verkinu Ekkó
(Echo) á Safnahúsið. Innandyra
hefst dansferðalag nemenda Klass-
íska listdansskólans um tíma og
rúm kl. 19 og kl. 21 flytja Sigríður
Thorlacius og Sigurður Guðmunds-
son hugljúf lög í lestrarsalnum.
Sævar Helgi Bragason mætir kl.
18 í Þjóðminjasafnið, skoðar
stjörnur með gestum, segir frá
rötun og býr til sextant til að
mæla breiddargráðu Íslands. Ef
veður leyfir verður kíkt á stjörnu-
himininn. Fleira mætti tína til, en
dagskráin í heild er á vef Þjóð-
minjasafnsins.
Vefsíðan www.thjodminjasafn.is
List í ljósi Ekkó eftir nýsjálensku listamennina Samuel Miro og Delainy Kennedy.
Stjörnur og hugljúfur söngur
Menningarhúsin í Kópavogi láta ekki
sitt eftir liggja í fagnaðarlátunum á
Safnanótt. Star Wars er þema Vetrar-
hátíðar þar í bæ. Kl. 18.30 í kvöld,
föstudag 2. febrúar, verður Kópa-
vogskirkja böðuð sprengistjörnum og
framandi plánetum með magnaðri
ljósvörpun í verki eftir Steinunni Eld-
flaug og innviðir kirkjunnar breytast í
geimskip. Stjörnustríðsratleikur
verður um allt í bókasafninu og í
Náttúrufræðistofu er sýning á ein-
stökum, stjörnulaga lífverum.
Af öðrum viðburðum þar sem
Störnustríð kemur við sögu má nefna
að nemendur Tónlistarskólans flytja
Star Wars-lagið kl. 18 í bókasafninu
og Gunni Helga leiðir ævintýra- og
stjörnuritsmiðju fyrir börn. Kl. 19 etja
skylmingakappar kappi í anda
Stjörnustríðs og á sama tíma gefst
gestum bókasafnsins kostur á að
leysa Stjörnustríðsþrautir og fara í
geislasverðsbardaga við Svarthöfða
og fá verðlaun.
Star Wars er þema Vetrarhátíðar í Kópavogi
Hægt að fara í geislasverðs-
bardaga við Svarthöfða
Reuters
Stjörnustríð Svarthöfði í öllu sínu
veldi, ásamt stormsveitarmönnum.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.