Morgunblaðið - 02.02.2018, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 02.02.2018, Qupperneq 14
VIÐTAL Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Ástandið í Grikklandi er skelfilegt. Atvinnuleysi er í hæstu hæðum, unga fólkið er að flýja land án þess að stofna fjölskyldur eða búa sér til framtíð í landinu. Við erum að tala um land sem er að sökkva í eymd og volæði,“ segir gríski stjórnmálamað- urinn Zoe Konstantopoulou, en hún varð árið 2015 yngsta manneskjan til þess að verða forseti gríska þingsins. Konstantopoulou sat þar fyrir hönd vinstrisinnaða pópúlistaflokksins Sy- riza, en hún sagði sig úr flokknum vegna óánægju sinnar með það að Syriza og ríkisstjórnin samþykktu að gangast undir kröfur lánardrottna Grikklands. Konstantopoulou leiðir nú nýjan flokk í heimalandi sínu, Frelsisleiðina, og mun hún flytja er- indi um stöðu Grikklands á fundinum Grikkir gegn auðvaldi, sem haldinn verður í Safnahúsinu á morgun, laugardag, klukkan 12. Ísland gaf mikilvægt fordæmi En hvers vegna vildi hún koma til Íslands? „Ísland er mjög mikilvægt land fyrir Grikki, og mjög mikilvægt fyrir það fólk sem þjáist undir ólög- legri skuldabyrði. Ísland er þekkt fyrir að hafa hafnað ólöglegum og andstyggilegum skuldakröfum og fyrir að hafa varðveitt lýðræði sitt og þjóð. Þetta gerðist ekki í Grikklandi, en þetta þarf að gerast þar ef það á að koma aftur á lýðræði og mann- réttindum þjóðar minnar,“ segir Konstantopoulou. Hún bætir við að Íslendingar hafi gert nánast allt þveröfugt við Grikki, og því sé mik- ilvægt að geta sýnt Grikkjum að hér sé land sem hafi hlustað á þjóð sína og staðið sterkari eftir. Konstantopoulou minnir á þegar hún var forseti þingsins 2015 hafi verið efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort gríska þjóðin vildi halda áfram að borga af þeim kröfum sem gerðar höfðu verið á hana, og svarið var þvert nei. „Hins vegar ákvað ríkisstjórnin að fara gegn al- mannaviljanum og undirgekkst jafn- vel enn harðari skuldakröfur,“ segir Konstantopoulou og bætir við að sannleiksnefnd um skuldir Grikk- lands, sem hún hafi stýrt, hafi sýnt fram á að þær kröfur hafi verið byggðar á ólögmætum forsendum. Gat ekki unnið með Syriza Konstantopoulou segir um við- skilnaðinn við Syriza að það hafi ver- ið skýr afstaða flokksins að Grikk- land myndi standa við skuldbind- ingar sínar, en einnig að farið yrði rækilega í gegnum það hverjar þær væru, þannig að ekki yrði tekið undir ólögmætar kröfur. Síðasta hálmstrá- ið hafi verið þegar Alexis Tsipras forsætisráðherra hafi ákveðið að ganga þvert gegn þjóðaratkvæða- greiðslunni 2015 og undirritað sam- komulag við lánardrottna landsins. „Þetta var valdarán lánardrottn- anna, sem vildu neyða á þjóðina sam- komulagi sem hún hafði hafnað, en þetta var einnig valdarán ríkis- stjórnarinnar. Mér fannst það ljóst að ég gæti ekki haldið áfram að taka þátt í starfi flokks sem sveik grund- vallarsjónarmið sín og fólkið sem treysti honum.“ Hún segist ekki hafa skipt um skoðanir sínar, heldur hafi Syriza í raun svikið grundvallar- stefnu sína. Konstantopoulou segir að hinn nýi flokkur sinn sé stofnaður til þess að berjast fyrir frelsun grísku þjóðar- innar undan skuldaklafanum og und- an harðræði Evrópusambandsins, sem hafi komið á stjórnskipan í Grikklandi sem stangist á við hug- sjónir lýðræðisins, alþjóðalög og mannréttindi. „Ég veit til dæmis ekki hvort þú vissir það, en gríska þingið má ekki samþykkja lög, nema lánardrottnarnir hafi samþykkt þau fyrir fram, og þeir hafa jafnvel samið þau sjálfir.“ Hún segir lánardrottna landsins haga sér í raun eins og ein- ræðisherra. Samkomulagið við lánardrottnanna hafi þannig svipt Grikki löggjafarvaldi sínu. Konstant- opoulou segir að aðgerðir Evrópu- sambandsins og hinna lánardrottn- anna hafi fyrst og fremst beinst að því að bjarga fjármálastofnunum á kostnað fólksins, fyrst frönskum og þýskum bönkum og síðar þeim grísku. „Þeir björguðu bönkunum en gáfu fólkinu dauðadóm.“ Konstantopoulou segir einnig dæmi þess að lögreglunni hafi verið misbeitt í Grikklandi til þess að kveða niður óánægju. „Nú mega bankarnir til dæmis ganga að heim- ilum fólks, sem þeir máttu ekki áður. Fólk hefur þá mótmælt við heimilin og reynt að verja þau, en þá er lög- reglan send á vettvang til að lemja það í burtu.“ Vill að Grikkir yfirgefi ESB Konstantopoulou segist ekki sjá að Grikkir eigi mikla samleið með Evr- ópusambandinu lengur. Hún hafi eitt sinn verið á öðru máli, þar sem hún sé lögfræðingur með sérhæfingu í Evrópurétti sem hafi búið og starfað í þremur mismunandi ríkjum sam- bandsins. „Það sem hefur gerst í Grikklandi er á algjörri skjön við sáttmála sambandsins og reglu- gerðir þess. Við getum því ekki látið sem að sambandið sé á þessum tíma- punkti alþjóðasamtök jafnrétthárra ríkja. Nei, það hefur breytt sér í al- ræðisríki sem þröngvar sér upp á grísku þjóðina.“ Hún nefnir sem dæmi að sérfræðingar hliðhollir sambandinu hafi hótað þjóðinni alls kyns búsifjum ef Grikkir segðu nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni árið 2015. Þetta hafi verið gert til þess að hræða Grikki frá því að nota lýð- ræðislegan rétt sinn. Þá hafi fjár- málastofnunum verið misbeitt í að- draganda atkvæðagreiðslunnar. „Við getum því ekki lagt til neitt annað en að þessum yfirboðurum verði varpað af höndum okkar. Það verður að ger- ast án viðræðna, því menn semja ekki við kúgara af þessu tagi.“ „Þetta var valdarán lánardrottna“  Gríski stjórnmálamaðurinn Zoe Konstantopoulou flytur erindi í Safnahúsinu á morgun  Var forseti gríska þingsins 2015-2016 fyrir Syriza en sagði sig úr flokknum vegna skuldamála landsins AFP Þjóðaratkvæðagreiðsla Zoe Konstantopoulou er hér fyrir miðri mynd að láta taka ljósmynd af sér með fólki sem var að fagna niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar árið 2015, þar sem kosið var um skuldir Grikklands. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2018 Skútuvogur 1c, 104 Reykjavík | Sími 550 8500 | www.vv.is sjáu mst! Frískleg og hugvitsamleg hönnun, þau eru afar létt og þæginleg í notkun. Lýsing og rafhlöðuending er framúrskarandi. • Ljósstyrkur: 220 lm • Drægni: 130 m • Þyngd: 93 g • Endurhlaðanlegt • Vatnsvarið: IPX6 • Stillanlegur fókus og halli • Hvítt kraftmikið LED ljós og eitt rautt LED ljós sem hentar vel til að halda nætursjón Útsölustaðir: Ísleifur Jónson, Gangleri Outfitters, Hverfisgötu 82, Rvk. Afreksvörur, Glæsibæ, Rvk. Byko Granda, Rvk. KM Þjónustan, Vesturbraut 20, Búðardal. Eins og fætur toga, Bæjarlind 4, Kópavogi, Kaupfélagið Hvammstanga. Fjórir Ísfirðingar hafa keypt fjöl- miðlarekstur Bæjarins besta sem er blað og vefmiðill á Ísafirði. Útgáfan á sér áratuga langa sögu en síðustu misserin hefur Bryndís Sigurðar- dóttir, undir merkjum fyrirtækisins Athafnagleði ehf., haft þessa starf- semi með höndum og einbeitt sér að fréttaveitu á netinu. Útgáfa prent- miðilsins hefur aftur á móti verið stopul upp á síðkastið, en áður fyrr kom blaðið út vikulega. Vilja breidd í hópinn „Vestfirðir þurfa rödd í um- ræðunni og öðru fremur er þetta framtak hugsjónastarf af hálfu okk- ar kaupendanna, sem tökum yfir lausafé, veðskuldir og þá hefð sem reksturinn byggir á,“ segir Gunnar Þórðarson, stöðvarstjóri Matís á Ísa- firði. Hann er einn fjögurra kaup- enda en hinir eru Arnar Kristjáns- son, útgerðarmaður á Ísafirði, Shiran Þórisson, fjármálastjóri Arctic Fish, og Daníel Jakobsson, hótelstjóri og fyrrverandi bæjar- stjóri. Þeir hyggjast í næstu viku efna til fundar þar sem málefnið verður kynnt og fólki boðið að slást í kaupendahóp. Fyrir liggja loforð margra um hlutafé eða stuðning. „Ætlun okkar er að stofna sér- stakt útgáfuráð eða ritnefnd skipaða fólki víða af Vestfjörðum. Við viljum hafa ákveðna breidd í hópnum enda er þetta fjölmiðill þar sem öll vest- firsk sjónarmið – óháð stjórnmálum eða slíku – fá að njóta sín,“ útskýrir Gunnar Þórðarson – sem segir fram- undan að ráða ritstjóra eða blaða- mann til starfa. Líklegast sé að út- gáfan verði öflugust á netinu eins og verið hefur, en blöð komi svo út eftir efnum, ástæðum og tilefnum hverju sinni. Nú sem endranær brenni mörg mál á Vestfirðingum – svo sem samgöngurnar, orkumál og áherslur í sjávarútvegi, allt efni sem þurfi að vera í deiglu og umræðu og í því tilliti sé fjölmiðill í héraði nauðsynlegur. Kaupa útgáfu Bæjarins besta  Blað og vefmiðill  Rödd Vestfjarða Gunnar Þórðarson Daníel Jakobsson Zoe Konstantopoulou er fædd 8. desember 1976, en hún er dóttir gríska stjórnmálamanns- ins Nikos Konstantopoulos, sem var á sínum tíma formaður hins vinstrisinnaða Syna- spismos. Konstantopoulou er lögfræðingur að mennt og starfaði hún árið 2001 við al- þjóðastríðsglæpadómstólinn fyrir ríki Júgóslavíu fyrrverandi. Hún settist fyrst á gríska þingið árið 2012 og varð forseti þess í nokkra mánuði árið 2015. Með stjórn- mál í blóðinu ZOE KONSTANTOPOULOU

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.