Morgunblaðið - 02.02.2018, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 02.02.2018, Qupperneq 16
VIÐTAL Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is „Lesendur eru orðnir vanir því að fá fréttir fyrir ekki neitt. Margir halda því fram að stóru mistökin – dauða- syndin – sem fjölmiðlar gerðu í ár- daga netsins hafi einmitt verið þau að hafa efnið/fréttirnar ókeypis. Því er erfitt að breyta og kannanir hafa sýnt að lesendur eru mjög tregir til að borga fyrir fréttir á netinu,“ seg- ir Valgerður Jóhannsdóttir aðjunkt, umsjónarmaður meistaranáms í blaða- og fréttamennsku við Há- skóla Íslands, þegar leitað er álits hennar á horfum um tekjur og rekstrargrundvöll íslenskra frétta- miðla á netinu. Valgerður segir að fleiri þættir hafi þó augljóslega áhrif. „Stundin er t.d. með fleiri lesendur en Press- an, þótt hún sé alveg opin. Miðlar sem bjóða upp á efni sem ekki er alls staðar, höfða til ákveðinna hópa eða hafa einhverja sérstöðu eiga al- mennt auðveldara með að rukka fyr- ir sitt efni en almennir fréttamiðlar. Hins vegar hefur þróunin víðast hvar verið í þá átt að sífellt fleiri miðlar setja upp gjaldvegg, eða eru með einhvers konar áskriftarfyrir- komulag. Einnig eru dæmi um fjöl- miðla sem eru með styrktarkerfi, t.d. Guardian í Bretlandi og Kjarn- inn hér á landi – en hjá báðum eru styrkir orðnir umtalsverð tekjulind. Í staðinn fá áskrifendur/styrkjendur meiri aðgang og stundum einnig ýmsa aðra þjónustu eða fríðindi af einhverju tagi.“ Valgerður telur að fréttamiðlar séu einfaldlega nauðbeygðir til að finna aðrar leiðir en að reiða sig ein- göngu á auglýsingar. „Netnotkun eykst og eykst og þeim fjölgar sífellt sem fyrst og fremst ná sér í fréttir á netinu. Alþjóðleg könnun sem gerð var í 36 löndum 2016 sýndi að meiri- hluti fólks undir 55 ára aldri notar aðallega netmiðla til að ná sér í fréttir – og vaxandi fjöldi notar sam- félagsmiðla til þess. Auglýsendur hafa fylgt á eftir en sá böggul fylgir skammrifi að tekjur af auglýsinga- sölu á netinu hafa hvergi nærri dug- að til að vega á móti tekjutapinu í t.d. prentmiðlum. Stórfyrirtæki eins og Google og Facebook hirða sífellt stærri sneið af auglýsingakökunni, eins og fram kemur í nýrri skýrslu menntamálaráðuneytis um fjöl- miðlamarkaðinn. Talið er að þessi tvö fyrirtæki séu með rétt rúman helming af netauglýsingamarkað- inum í heiminum. Í Noregi er þetta hlutfall 70% og í Svíþjóð 60%. Hér á landi eru ekki til nákvæmar upplýs- ingar um þetta, en ljóst að erlend fyrirtæki hafa mun minni hlutdeild í netauglýsingum en víðast annars staðar – og prentmiðlar hafa haldið sínum hlut betur. Kannski er tungu- málið einhver vörn og eins hefur mikil útbreiðsla fríblaða sjálfsagt sitt að segja. Það er hins vegar lítil ástæða til að efast um að þróunin sé á sömu lund hér og annars staðar. Sífellt fleiri nota snjallsíma til að ná sér í fréttir og á þeim markaði eru Google og Facebook enn stærri, þegar kemur að auglýsingum. Á móti kemur að stjórnvöld og út- gefendur, ekki síst í Evrópu, eru farin að andæfa kröftuglega þessu ægivaldi tæknifyrirtækjanna, sem hagnast gríðarlega á efni sem aðrir framleiða og hirða af því auglýsinga- tekjurnar.“ Valgerður segist ekki ætla sér þá dul að spá um framtíðina í þessum efnum. Breytingarnar séu svo örar. Það blasi hins vegar við að róðurinn sé ekki að léttast hjá fjölmiðlum í bráð að óbreyttu. Flestir lesendur óvirkir Á árdögum netsins voru miklar væntingar um aukna þátttöku al- mennings í fjölmiðlun. Auðveldara yrði fyrir fólk að koma að frétta- ábendingum, bregðast við fréttum, ræða um fréttir og senda fréttir. En hefur þetta ræst? „Óhætt er að full- yrða að þetta hafi ekki gengið eftir,“ segir Valgerður, „að minnsta kosti ekki í þeim mæli sem margir von- uðust til. Flestir eru óvirkir viðtak- endur þótt netið og stafræn tækni bjóði upp á annað. Það er t.d. minni- hluti sem kýs að nýta netið til að ræða um eða bregðast við fréttum á einhvern hátt. 20% sögðust hafa skrifað um frétt á samfélagsmiðli, samkvæmt alþjóðlegu könnuninni sem ég nefndi áðan, og 10% höfðu gert það á viðkomandi fréttamiðli. 38% sögðust hins vegar ræða fréttir augliti til auglitis við fjölskyldu og vini. Fleiri sögðust deila fréttum (39%), kannski af því það er svo ein- falt, bara spurning um einn smell. Þetta er hins vegar meðaltal þess- ara 36 landa og merkilegt nokk, þá virðast Norðurlandabúar einna tregastir í þessari þátttöku, þótt óvíða sé netaðgangur betri, netnotk- un meiri eða samfélagsmiðlar út- breiddari.“ Eru fréttirnar að breytast? En hafa netmiðlarnir breytt því hvað er í fréttum og hvernig og hvers fréttir eru sagðar? „Net- miðlar flytja okkur fréttirnar um leið og á meðan atburðir gerast. Hraðinn í blaða- og fréttamennsku er orðinn miklu meiri en hann var,“ segir Valgerður. „Hér áður var upp- lýsingum safnað eins og hægt var, tekin viðtöl við hlutaðeigendur og fréttin unnin eins ítarlega og hægt var áður en blaðið fór í prent. Á net- miðlunum fá lesendur stundum ein- faldlega að fylgjast með framvindu mála, upplýsingar koma í smá- skömmtum og fréttin tekur breyt- ingum eftir því sem málum vindur fram. Ljósvakamiðlar geta og gera Þörf á nýjum tekjustofnum  Valgerður Jóhannsdóttir aðjunkt segir fréttamiðla á netinu ekki geta reitt sig eingöngu á auglýsingar til fjármögnunar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fjölmiðlun Flestir miðlar á netinu glíma við erfiðleika í rekstri. Valgerður Jóhannsdóttir telur að róðurinn sé ekki að léttast í bráð að óbreyttu. Netið Fjölmiðlar verða að glíma við miklar og örar tæknibreytingar á netinu og laga sig að þeim. Nú notar þorri fólks snjallsíma til að vafra um netið. 16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2018 Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið virka daga kl. 10–18, laugard. kl. 11–16 Allir velkomnir Katrín Matthíasdóttir Boðskort Sýningaropnun 2. febrúar kl. 18 Hið augljósa Sýning í Gallerí Fold 2. – 17. febrúar Á þeim 20 árum sem liðin eru síð- an fréttavefurinn mbl.is hóf göngu sína hafa verið birtar þar um 980 þúsund fréttir. Í fyrra voru fréttir að meðaltali um 153 á dag. Í frétt um opnun vefsins 2. febrúar 1998 sagði að með honum gæfist „les- endum kostur á að fylgjast með því sem helst er á seyði hér heima eða erlendis þegar þeim sýnist svo, hvort sem er á nóttu eða degi alla daga vikunnar“. Fyrsta frétt á mbl.is aðfaranótt 2. febrúar 1998 var um að búið væri að opna fréttavefinn, en næsta frétt sagði frá úrslitum í prófkjöri R-listans sem haldið var 1. febrúar. Af öðr- um fréttum á forsíðunni má nefna frétt um að Kúveitar styddu Bandaríkjamenn í Íraksdeilunni, Titanic var vinsælasta mynd Bandaríkjanna 7. vikuna í röð og fyrstu samkynhneigðu karlmenn- irnir hófu störf fyrir MI6- leyniþjónustuna í Bretlandi. Stærsta fréttin var þó tilkynning um 15 milljarða króna samning Ís- lenskrar erfðagreiningar við sviss- neska lyfjarisann Hoffmann-La Roche. Varð mbl.is fyrst fjölmiðla til að skýra frá samningnum, enda var blaðamaður mbl.is á staðnum og fréttin komin á forsíðu vefsins nokkrum mínútum síðar. Það var mál manna í fjölmiðlastétt að með þessari frétt hefði mbl.is fengið fljúgandi start, enda sannaði hún að fréttavefur hafði upp á ým- islegt að bjóða sem hefðbundnari miðlar gátu ekki leikið eftir. Fréttavefurinn mbl.is „skúbb- aði“ strax á fyrsta degi MBL.IS HEFUR BIRT 980 ÞÚSUND FRÉTTIR FRÁ UPPHAFI mbl.is 20 ára

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.