Morgunblaðið - 02.02.2018, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 02.02.2018, Blaðsíða 17
þetta líka, eins og menn þekkja úr sólarhringsstöðvum. Þær eru hins vegar ekki til hér og það þarf stór- atburði til eigi hefðbundnar útvarps- og sjónvarpsstöðvar að rjúfa dag- skrá til að flytja af þeim fréttir. Þröskuldurinn er að þessu leyti mun lægri á netmiðlum. Netmiðlar eru í meira návígi við sína lesendur, ef svo má að orði komast. Það sést á augabragði hvort áhugi er á tiltek- inni frétt eða ekki. Flestir ef ekki allir netmiðlar fylgjast náið með um- ferðinni hjá sér og það hefur auðvit- að áhrif. Efni sem menn sjá að vek- ur athygli, dregur að sér lesendur og auglýsingar er gert hærra undir höfði og fjallað meira um það. Margar rannsóknir hafa sýnt fram á að efni af léttara taginu, afþreying, íþróttir, umfjöllun um þekkt fólk o.s.frv. er stærri hluti efnis á net- fréttamiðlum en í prentmiðlum. Könnun sem ég gerði á fréttum í Morgunblaðinu, mbl, Fréttablaðinu og Vísi, sýndi t.d. að dagblöðin juku umfjöllun um stjórnmál og efna- hagsmál eftir hrun (2009), en á net- miðlunum hins vegar fjölgaði hlut- fallslega þessum svokölluðu mjúku fréttum.“ Valgerður segir að skiptar skoð- anir séu um ágæti þessarar þróunar. „Sumir halda því fram að frétta- miðlar séu að bregðast meginhlut- verki sínu, sem sé að miðla upplýs- ingum til borgara í lýðræðissam- félagi og veita valdhöfum aðhald. Aðrir benda á að fréttaneysla hafi aukist og fréttir nái til hópa sem þær ekki náðu vel til áður.“ Stöðug uppfærsla frétta Valgerður segir að netmiðlar hafi líka mjög víða – en alls ekki alstaðar – þróast þannig að áhersla sé lögð á að uppfæra stöðugt, vera alltaf með nýjar fréttir. „Það þýðir auðvitað að þröskuldurinn – það hvað telst eiga erindi í fréttir – er mun lægri í net- miðlum en t.d. prentmiðlum eða ljósvaka. Allskyns efni sem alls ekki kæmist í dagblað eða sjónvarps- fréttir kemst að í netmiðlum af því að framleiðnikrafan er svo rík. Facebook-statusar, allskonar til- kynningar eða efni héðan og þaðan af netinu er birt á netmiðlum. Það þarf ekki endilega að vera svo að margir lesi þetta efni, en oft kostar mjög lítið að búa þessar fréttir til og þar af leiðandi er það gert af því það þarf að „fæða skrímslið“. Svo má ekki gleyma því að netmiðlar geta gert svo margt sem hefðbundnir miðlar geta ekki, eins og gera les- endum kleift að nálgast upplýsing- arnar sem fréttin byggist á, eða ít- arefni, hlusta á viðtöl í heild sinni o.s.frv. Þeir eiga líka möguleika á að setja efni fram á fleiri vegu en hefð- bundnu miðlarnir; geta m.a. gert það gagnvirkt, sem getur gert frétt- irnar aðgengilegri og auðskiljan- legri fyrir lesendur,“ segir Val- gerður. GettyImages/Thinkstock 17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2018 Sími 555 2992 og 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“ ERTU STELPA SEM VILL KOMAST Í FORM? TT-3 námskeiðin eru sérsniðin fyrir þig! Velkomin í okkar hóp! Innritun og nánari upplýsingar í síma 581 3730 og á jsb.is STELPUR KONUR STAÐURINN RÆKTIN Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt fyrir konur og stelpur sem tekur mið af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti, hreysti og vellíðan. TT-3 eru lífstílsnámskeið fyrir stelpur á aldursbilinu 16-23 ára sem vilja taka mataræðið í gegn og líkamsræktina föstum tökum Núna er rétti tíminn! E F L IR / H N O T S K Ó G U R Í dag eru 20 ár frá því að fréttavefnum mbl.is var hleypt af stokkunum. Frá upphafi hefur hann átt þeirri velgengni að fagna að vera mest sótti fréttavefur landsins. Fyrstu árin ólst mbl.is upp í skjóli systurmið- ilsins Morgunblaðsins. Vefurinn var þá kallaður Frétta- vefur Morgunblaðsins og naut þess trausts og sterku innviða sem byggðir höfðu verið um Morgunblaðið. Frá upphafi starfaði þó sérstök fréttadeild á mbl.is og þessi nýi miðill ruddi nýjar brautir í hinu rótgróna útgáfu- félagi. Nú eru blaðið og vefurinn tvær aðskildar ein- ingar þótt vissulega sé áfram gott og náið samstarf með miðlunum. Tuttugu ár frá því að mbl.is hóf göngu sína Fréttaskrif á mbl.is Samanlagður fjöldi tákna í meginmáli frétta á mbl.is frá upphafi (2. febrúar 1998) er Sé miðað við að meðalskáldsaga sé um 500.000 tákn fylltu fréttaskrifin 1,3 milljarðar 2.600 bækur Vikuleg notkun á mbl.is landsmanna nota mbl.is í hverri viku 84% Hver notandi kemur á vefinn ...og flettir 54 sinnum 12 sinnum í viku... Stærsti fréttavefur landsins frá upphafi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.