Morgunblaðið - 02.02.2018, Síða 29

Morgunblaðið - 02.02.2018, Síða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2018 syni sem ég kveð í dag. Þegar ég horfi til baka sýnist mér ég hafa verið eins og grár köttur á heimili Björns og Steinunnar en aldrei fann ég fyrir öðru en ég væri meira en velkomin. Ég kom heim til þeirra í hádeginu og fékk að borða, lá í sófanum og horfði á sjónvarpið og fór með til Akur- eyrar að heimsækja fjölskylduna. Björn var einn af þessum mönnum sem víla ekkert fyrir sér og eru alltaf að gera eitthvað. Þannig á ég margar myndir í hug- anum af Birni að dytta að hinu og þessu, innanhúss og utan, bæði stóru og smáu. Og það gerði hann fram á síðasta dag og taldi það ekki eftir sér. En Björn var ekki bara pabbi vinkonu minnar. Fyrir nokkrum árum hringdi hann í mig og bað mig um að vinna svolítið fyrir sig. Með því móti fékk ég tækifæri til að endurnýja gamlan vinskap við góðan mann og fyrir það er ég þakklát. Það var mitt lán að Björn skyldi flytja með fjölskyldunni til Reykjavíkur árið 1986 og að leið- arlokum vil ég þakki fyrir að hafa kynnst Birni og votta aðstandend- um samúð mína. Halldóra Björt Ewen. Lífið tekur vinkilbeygjur þegar minnst varir og kallar burtu menn í blóma lífsins þegar á að fara að njóta efri áranna og amstur dag- anna tekur á sig nýja mynd Kynni okkar Björns Eiríksson- ar hófust þegar við vorum litlir saklausir drengir og lærðum að synda hjá Þórhöllu í gömlu Hrafnagilslauginni. Þar var að- staða bágborin en dugði samt. Svo liðu nokkur ár og næst er minningin um dvölina á Lauga- landi þegar við gengum til spurn- inga hjá séra Bjartmari. Þá var farið að færast fjör í leikinn, ólm- ast í hlöðunni fram á nótt og farið með kveðskap. Engum varð meint af en oft minnst á. Kynni okkar urðu meiri og nán- ari á seinni árum eftir að báðir gengum í Oddfellow-stúkuna Baldur. Stúkustarfið féll vel í kramið hjá okkur og samskipti urðu meiri og nánari. Ferð sem stúkubræður og eig- inkonur fóru um sveitir Eyjafjarð- ar á haustdögum uppúr síðustu aldamótum er í minnum höfð, en þá fór Björn á kostum við lýsingu á sveitinni og bændum og búaliði. Þessa ferð og reyndar margar aðrar ber oft á góma en þarna var okkar maður í essinu sínu í frá- sögnum, söng og að fara með vís- ur. Hrókur alls fagnaðar og allra manna hugljúfi. Með hlýhug hugsa ég til utan- landsferða sem við hjónin forum með Birni og Nínu. Fyrst til Þýskalands og Austurríkis og síðastliðin ár á slóðir Vestur-Ís- lendinga og síðar á árinu til Kaup- mannahafnar. Þegar sú ferð var farin var farið að draga verulega af mínum manni en hann lét sig hafa það. Enda búinn að ákveða með góðum fyrirvara að fara ferð- ina og því þá að hætta við? Með Birni Eiríkssyni er fallinn frá góður vinur og félagi. Hann prýddu þeir kostir sem mestir eru hverjum manni. Mér eru alltaf í minni þau orð sem Nína lét falla um hann skömmu eftir að þau kynntust: „Það sem þú gerir fyrir Bjössa færðu margfalt til baka.“ Þetta voru orð að sönnu og lýsa honum vel. Að leiðarlokum þökkum við Júlla þessum góða vini samfylgd- ina og vottum Nínu og fjölskyld- um þeirra samúð okkar á þessari erfiðu stundu. Bergur Hjaltason. Þegar ég var aðeins 17 ára bankaði ég upp á hjá Birni, sem þá stýrði bókaforlaginu Skjaldborg. Ég hafði fengið þá flugu í höfuðið að kanna hvort forlagið hefði áhuga á að fá mig til að þýða bók eftir Agöthu Christie yfir á ís- lensku, en Skjaldborg var þá út- gefandi Agöthu hér á landi. Björn var ég þá að hitta í fyrsta sinn. Hann tók mér afar vel og lofaði að hugsa málið. Nokkrum dögum síðar hafði hann samband og vildi gefa mér tækifæri. Þar með hófst samstarf okkar, og á næstu tólf ár- um þýddi ég tólf bækur fyrir hann. Aldrei bar skugga á þetta sam- starf. Oft hef ég leitt hugann að því hversu ómetanleg þessi fyrstu viðbrögð hans voru ungum manni sem vildi stíga sín fyrstu skref í heimi bókmenntanna. Minning um góðan mann lifir. Ragnar Jónasson. Það var um aldamótin 2000 sem ég fór að vinna við bókaútgáfuna hjá Birni Eiríkssyni í Skjaldborg. Ég þekkti auðvitað vel til hans áð- ur, hafði starfað hjá Örlygi Hálf- danarsyni í Bókaútgáfunni Erni og Örlygi um sinn. Og það var stutt á milli vinanna og keppinaut- anna. Annað fyrirtækið hafði að- setur í Síðumúla en hitt í Ármúla, rétt fyrir neðan. Fleiri útgáfufyr- irtæki voru nærri, Vaka-Helgafell með myndarlega útgáfu í Síðu- múlanum og fleiri minni útgáfur voru þarna. Svo var auðvitað Blaðaprent með ritstjórnarskrif- stofur blaðanna sem þar voru prentuð og öflug bókaverslun Máls og menningar. Það má því segja að í Múlunum hafi staðið öfl- ugt virki íslenskrar menningar á þessum tíma. Á þessum tíma var Bókaútgáf- an Skjaldborg meðal umsvifa- mestu útgáfufyrirtækja landsins og á hennar vegum komu út tugir bóka árlega. Um tíu árum fyrr hafði Björn flutt útgáfuna frá Akureyri, þar sem hún hafði verið stofnuð, til Reykjavíkur, hafði séð nauðsyn þess að færa sig nær meginmark- aði bóka á Íslandi. Engu að síður var Skjaldborg enn „norðlenskt forlag“ að yfirbragði og í norð- lenska menningu voru viðfangs- efnin sótt að drjúgu leyti þótt víð- ar væri leitað fanga, innanlands og um veröld víða. Þá skal líka talið með hið stórmerka tímarit Heima er bezt, sem enn kemur út undir traustri ritstjórn Guðjóns Bald- vinssonar, og er, eins og það hefur verið alla tíð, traustur spegill ís- lenskrar þjóðmenningar. Björn Eiríksson reyndist hlýr og notalegur húsbóndi og góður félagi, harðduglegur og kappsam- ur og vildi láta hlutina ganga. Hann hafði mörg spjót úti í rekstri sínum og ekki dugði að gefa sjálf- ur út fjölda bóka á eigin vegum, hann keypti upp lagera frá bóka- útgáfum sem hættar voru í rekstri og rak öflugan bókamarkað í eigin fyrirtæki en var einnig umsvifa- mikill á hinum viðamikla markaði Félags íslenskra bókaútgefenda. Hann sá um bókamarkað félags- ins á Akureyri í mörg ár og þar var gaman að vera með honum. Þar nutu sín vel glaðlyndi hans og ljúflyndi, hjálpsemi og þjónustu- vilji, þar sem hann var kominn í þann jarðveg sem hann var sprottinn úr, með félögum sínum og vinum frá fyrri tíð. Alkunnugt er að hefðbundin bókaútgáfa hefur víða átt undir högg að sækja síðustu ár, vegna mikilla breytinga á þeim menning- arheimi sem við lifum í og ásóknar nýrra miðla. Þessar breytingar hafa ekki síst tekið í, í hinu örsmáa íslenska samfélagi og þær hafa skipt sköpum á sviði bókaútgáfu. Þar lítur flest öðruvísi út en það gerði fyrir aldarfjórðungi og margt er horfið sem var eftirsjá að. Björn Eiríksson fór ekki var- hluta af sviptingunum en honum tókst með hyggindum að sigla út úr þeim ólgusjó þannig að Skjald- borg lifir enn en síðustu árin hefur hann einbeitt sér að rekstri Bif- rastar, annarrar bókaútgáfu í eigu hans. Björn Eiríksson var vinsæll maður og vinmargur og það kom til af mörgu. Hann var glaðsinna og hlýr, traustur og prýðilegum gáfum gæddur. Hann var allra manna glaðastur á góðri stund, af- burða söngmaður og einstakur frásagnarmaður. Blessuð sé minning hans. Helgi Magnússon. ✝ KristínIngvarsdóttir fæddist í Reykjavík 21. september 1922. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Sóltúni í Reykjavík 26. jan- úar 2018. Foreldrar henn- ar voru Ingvar Sig- urðsson, f. 20. júlí 1885, d. 12. janúar 1952, og Marta Einarsdóttir, f. 2. maí 1896, d. 2. október 1953. Systkini Kristínar voru Einar Ingvarsson, f. 23. maí 1924, d. 1. október 2009, Anna Ragnheiður Ingvarsdóttir, f. 28. nóvember 1926, Ingunn Ingvarsdóttir, f. 5. febrúar 1929, d. 29. september 2014, og Bergljót Ingvarsdóttir, f. 5. september 1930. Kristín giftist hinn 19. apríl 1955 Jónasi Jónssyni, fram- kvæmdastjóra Síldar- og fiski- mjölsverksmiðjunnar í Reykja- vík, f. 30. ágúst 1912, d. 8. febrúar 2001. Foreldrar hans voru Jón Gunnlaugur Jónasson, f. 5. febrúar 1883, d. 7. janúar nóvember 1978, sambýliskona Tinna Ösp Bergmann. Börn Jónasar Inga: Jónas Aron og Elísabet Marta. b) Kristín, f. 7. apríl 1983, sambýlismaður Guðni Páll Sigurðsson. Barn þeirra: Sigurður Sær. Önnur börn Kristínar: Aþena Ísold og Hjálmar. c) Birgitta, f. 9. janúar 1995, sambýlismaður Sigurður Bjarki Hlynsson. Kristín ólst upp í miðbæ Reykjavíkur og gekk í Mið- bæjarbarnaskólann og síðar í Gagnfræðaskóla Ingimars Ágústssonar. Eftir nám, eða ár- ið 1938, hóf Kristín verslunar- störf í Verslun Kristínar Sig- urðardóttur, sem var til húsa að Laugavegi 20, en móðir Krist- ínar, Marta Einarsdóttir, rak verslunina ásamt prjónastofu og síðar matvöruverslun í þessu húsnæði. Árin 1947-49 var Kristín við nám í ensku og vél- ritun í Englandi. Eftir Englandsdvölina vann hún í heildverslun Garðars Gísla- sonar. Eftir að hún og Jónas giftu sig helgaði hún sig hús- móðurstörfum og barnauppeldi. Jónas og Kristín bjuggu í Reykjavík allan sinn búskap, lengst af á Laugarásvegi 38. Útför Kristínar fer fram frá Áskirkju í Reykjavík í dag, 2. febrúar 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. 1964, og Anna Sig- mundsdóttir, f. 24. janúar 1888, d. 2. september 1965. Börn Kristínar og Jónasar: 1) Jón Gunnlaugur, f. 19. janúar 1956, yfir- læknir meinafræði- deildar Landspít- alans og prófessor við læknadeild Há- skóla Íslands, maki Birna Sigurbjörnsdóttir, f. 28. maí 1956, lögfræðingur. Börn: a) Marta, f. 9. nóvember 1978, maki Helgi Már Björgvinsson. Börn: Hinrik og Kristján. b) Hjalti, f. 25. ágúst 1982, í sam- búð með Heiðdísi Sóllilju Bragadóttur. c) Ragnheiður, f. 27. janúar 1989, í sambúð með Benedikt Skúlasyni. Barn: Ein- ar. d) Davíð, f. 24. október 1991. 2) Inga Marta, f. 2. nóvember 1957, hjúkrunarfræðingur á hjúkrunarheimilinu Sóltúni, maki Jónas Teitsson, f. 31. des- ember 1954, d. 6. ágúst 2009, framkvæmdastjóri. Börn þeirra: a) Jónas Ingi, f. 27. Elsku amman mín er látin, 96 ára að aldri. Eftir langa og góða ævi liggur leið hennar á ný til Jónasar afa, séntilmannsins sem tekur á móti henni opnum örmum eftir margra ára aðskilnað. Amma var sú lífsglaðasta kona sem ég veit um og hef ég trú á því að lífsgleðin hafi verið leynivopn- ið sem skilaði henni öllum þess- um góðu árum. Hún var kvik í hreyfingum og létt á fæti og þreyttist ekki á því að minna okk- ur á að hún hefði alltaf fengið 9,5 í leikfimi á sínum yngri árum. Ég var ekki svo lánsöm að vera svona afrekskona í íþróttum eins og amma, en ég fékk nafnið mitt frá henni og hæðina líka. Amma var mjög lágvaxin og þótti barna- börnum og barnabarnabörnum langskemmtilegast að mæla sig við hana í hvert skipti sem komið var í heimsókn. Það var ákveðinn sigur að verða hærri en Kristín amma og allir náðu henni fljótt og örugglega og urðu jafnvel aðeins hærri en hún, en hún bara hló og skemmti sér yfir þessu athæfi krakkanna. Hún myndi hlæja enn hærra ef hún frétti að mínir krakkar eru farnir að mæla sig við mig, það virðist sem lágvaxnar Kristínar séu hentugar til þess. Amma og afi kynntust seint á lífsleiðinni og eignuðust því börn- in sín tvö þegar farið var að síga á miðaldurinn. Mamma hefur sagt mér nokkrum sinnum frá því að hún hefði skammast sín fyrir að eiga svona gamla móður á ung- lingsárunum en þegar þau liðu hjá var hún svo sannarlega stolt af henni. Ekki var erfitt að vera stoltur af þessari dugmiklu húsfrú sem hélt höllinni sinni skínandi hreinni og kokkaði ofan í afa bragðgóðan íslenskan mat og bakaði jólaköku með rúsínum á hverjum morgni. Maður gat alltaf gengið að jólakökunni vísri hvenær sem litið var inn í kaffi til ömmu. Krakkarnir voru alltaf viljugir með, enda lumaði langamma alltaf á góðu súkkulaðikexi, gosi og köku fyrir þau og gladdist eins og forsetinn væri að koma í heimsókn í hvert sinn sem hún opnaði útidyrnar fyrir okkur. Hún var hvers manns hugljúfi og kom mér sífellt á óvart eftir því sem árin liðu, hversu ótrúlega minnug hún gat verið. Hún mundi hluti sem ég sjálf var búin að gleyma og innti frétta um alla mína sem sína, enda minntust all- ir hennar sem yndislegrar og ljúfrar konu þegar þeir fregnuðu andlát hennar. Í boðum var hún gjarnan miðdepill skemmtunar og var sérstaklega gaman að sjá hana lyftast upp af gleði í kring- um systur sínar og nánustu vin- konur. Með þeim leið henni best og hún skemmti sér hvergi betur. Hlátrasköllin ómuðu um húsið og man ég sérstaklega eftir því þeg- ar hún og Inga frænka flissuðu og glöddust eins og táningar uppi í bústað við Álftavatn fyrir ör- fáum árum. Elsku amma mín, ég sakna þín nú þegar og finn fyrir óstjórnleg- um missi yfir því að geta ekki gengið að þér vísri á Laugarás- veginum lengur. Ég veit að þú ert komin á betri stað og gleðst yfir því, en á sama tíma vildi ég að þú værir hjá okkur ennþá. Takk fyr- ir mig, Guðna og börnin, takk fyr- ir alla þá gæsku sem þú sýndir okkur og allan tímann sem þú gafst okkur. Ég hlakka til að sjá þig aftur, hvíldu í friði. Kveðja, Kristín. Kristín Ingvarsdóttir, amma mín, var sönn Reykjavíkurmær, fædd á heimili foreldra sinna á Laugavegi 20 árið 1922. Þar bjó hún öll sín bernskuár og rak mamma hennar, nafna mín Marta Einarsdóttir, kvenfata- verslun á neðstu hæðinni sem seldi m.a. kjóla, töskur, silki- slæður og sokka. Ég man fyrst eftir ömmu minni sem þéttri og glaðlegri konu. Eftir að hún sigraðist á krabbameini, fyrir um tveimur áratugum, var hún hins vegar af- skaplega grönn og gat lítið borð- að, þrátt fyrir að vera mikill sæl- keri og áhugakona um mat. Af gömlum myndum má sjá að amma hefur verið glæsileg ung kona, dökk yfirlitum og með „franskan vöxt“ eins og hún sagði mér sjálf að haft hefði verið á orði. Það hefur eflaust verið eitt- hvert erlent blóð í henni, enda talaði hún og hló meira en Íslend- inga er almennt siður. Amma lagði metnað sinn í að búa fjölskyldu sinni fallegt heim- ili sem þau hjónin byggðu af mik- illi smekkvísi á Laugarásvegin- um. Þar bjó hún til 94 ára aldurs. Þau voru sérlega góðir gestgjaf- ar, eins og einn af heiðursræð- ismönnum okkar í Þýskalandi rifjaði upp með mér nýlega. Með- al skýrustu minninga hans frá Ís- landi var að vera boðið á glæsi- legt heimili Jónasar við- skiptafélaga síns og skemmtilegu konunnar hans, fyrir um hálfri öld síðan, og þótti honum einstök tilviljun að ég væri barnabarn þessara heiðurshjóna. Skemmtileg er reyndar það orð sem flestir nefna þegar minnst er á Kristínu og höfum við vinkonurnar lengi sagt að svona hressar ætluðum við að verða eft- ir fimmtíu ár. Það hlýtur einnig að vera nokkuð óvanalegt að skemmtileg var fyrsta lýsingar- orðið sem kom strákunum mín- um, 7 og 9 ára, í huga þegar ég bað þá að minnast langömmu sinnar. Reyndar ekki bara skemmtileg heldur „mjög skemmtileg“. Ég held að þetta tengist einlægni hennar og þeim mikla áhuga sem hún hafði á mönnum og málefnum. Báðar ömmur mínar voru mér afar kærar og mér þótti alltaf svo gott að heimsækja þær. Það mikilvægasta sem Kristín amma gerði fyrir mig var að lofa mér að búa hjá sér þegar ég var í stúd- entsprófum í MR og síðar á hverju prófatímabili í Háskóla Ís- lands. Þá flutti ég inn með allar bæk- urnar nokkrum dögum fyrir fyrsta prófið, hún sá til þess að ég hélt mér við efnið frá morgni til kvölds, vakti mig stundvíslega klukkan átta á hverjum morgni, eldaði fyrir mig og hrækti á eftir mér þegar ég lagði af stað í hvert próf, það boðaði víst lukku. Að- stoð og hvatning ömmu átti stór- an þátt í námsárangri mínum og prófatímabilin tengi ég góðum minningum af Laugarásveginum. Ég heimsótti Kristínu ömmu, með fjölskyldu minni, í síðasta skipti á aðfangadag, rétt fyrir klukkan sex. Þá hafði hún klætt sig upp á og ég plataði hana til þess að fá sér eitt sjérrístaup með mér, eins og henni hafði áður þótt svo gott. Henni svelgdist á staupinu en við eigum fallega mynd af okkur saman, glaðar á hátíðlegri stund. Nokkrum vikum síðar fékk ég fréttirnar til Kaupmannahafnar að elsku amma mín væri látin. Efst í huga mér nú er þakklæti fyrir að hafa átt næstum 40 ár með þessari einstöku konu. Marta Jónsdóttir. Kristín amma varð 95 ára og var nánast alla ævi hin hressasta. Ég held að leið hennar að langlífi og lífshamingju hafi falist í því að hafa áhuga og skoðanir á öllu. Hún fylgdist svo grannt með þjóð- og heimsmálum að það var eiginlega nóg fyrir okkur fjöl- skylduna að hitta hana reglulega til að vita hvað var í fréttum. Þrátt fyrir að undanfarin ár hafi hún búið ein og verið heimavinn- andi sagðist hún stundum ekki hafa neinn tíma til að gera nokk- urn skapaðan hlut fyrir öllum þessum fréttum! Hún las alltaf Morgunblaðið og ekki bætti úr skák þegar öll þessi frí- og fylgi- blöð fóru að berast inn um lúg- una. En mestan áhuga hafði amma þó á fólkinu sínu. Afkomendurnir eru nú orðnir fjölmargir og hún vissi alltaf hvað hver þeirra var að fást við. Ég gleymi því ekki þegar hún hitti Benedikt, unn- usta minn, í fyrsta skipti fyrir nokkrum árum og hann sagðist vera að framleiða demparagaffla fyrir fjallahjól. Hún vildi vita nákvæmlega hvernig gafflarnir virkuðu og þótti þetta alveg stórmerkileg og sniðug uppfinning. Hjólreiða- menn fannst henni samt óttalegir trúðar. Að sama skapi dugði henni ekki að vita bara nöfnin á vinkonum mínum heldur vildi hún heyra hvað þær væru að læra, hvort þær væru í sambúð o.s.frv. Gott minni hafði hún líka og ég var oft hissa á því hvað hún mundi. Ég sé hana í anda lýsa hinum ýmsu réttum sem hún fékk í boð- um og á veitingastöðum í gegnum tíðina. Amma kunni að njóta lífsins og við fjölskyldan vitnum gjarnan í hana þegar við segjum að við lif- um í lúxus. Eftir að hún sigraðist á alvarlegu krabbameini fyrir um tveimur áratugum grenntist hún mikið og var því bæði lág í lofti og létt það sem eftir var, en hún var samt alltaf jafn sterkur og stór karakter. Hún var ein skemmtilegasta kona sem ég hef kynnst, með húmor fyrir sjálfri sér og öðrum en líka svo hlý og yndisleg. Ég ætla sannarlega að taka ömmu mér til fyrirmyndar og temja mér þann hugsunarhátt að lifa í lúxus, hvað sem á gengur. Ragnheiður Jónsdóttir. Kristín Ingvarsdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.