Morgunblaðið - 02.02.2018, Síða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2018
KRINGLU OG SMÁRALIND
SKECHERS ON THE GO DÖMUSKÓR MEÐ
LOÐFÓÐRI OG GOGAMAX INNLEGGI.
STÆRÐIR 36-41. KOMA EINNIG SVARTIR.
DÖMUSKÓR
VERÐ ÁÐUR 13.995
NÚ 6.997
50%
Ásta Eygló Páls-dóttir myndlistar-maður á 80 ára af-
mæli í dag. Hún fæddist á
Sauðárkróki og er dóttir
hjónanna Sigrúnar Fann-
land og Páls Sveinbjörns-
sonar.
„Ég flutti suður til
Keflavíkur 1954 í atvinnu-
leit eins og margir ung-
lingar urðu að gera á
þessum tíma vegna at-
vinnuleysis. Ég fór fyrst
að vinna í fiski og svo hjá
Kaupfélagi Suðurnesja,
síðan vann ég hjá Frí-
höfninni í sex ár.
Fljótlega eftir þetta fór
ég að sinna myndlistinni
sem hefur átt hug minn
allan frá því að ég var lít-
il stúlka.“ Ásta sótti nám-
skeið hjá Námsflokkum
Keflavíkur undir hand-
leiðslu Þorsteins Eggerts-
sonar og árið 1970 hóf
hún nám við myndlista-
deild Baðstofunnar í
Keflavík.
„Aðalkennari minn var Eiríkur Smith og þar var ég í ellefu ár,
þar af forstöðumaður í mörg ár. Einnig sótti ég námskeið hjá Einari
Hákonarsyni í Myndlista- og handíðaskólanum.“
Ásta hélt sína fyrstu einkasýningu á Sauðárkróki árið 1982,
einkasýningarnar eru orðnar 20 og einnig tók hún þátt í mörgum
samsýningum heima og erlendis. Ásta fékk menningarverðlaun
Reykjanesbæjar, Súluna, 2002 fyrir framleg til menningarmála.
Eitt af áhugamálum Ástu er að ferðast. „Ég hef farið víða eins og
til Evrópu, Asíu og Bandaríkjanna og ófáar ferðir hafa verið farnar
til Gran Canaria.“
Með eiginmanni sínum, Gunnari Árnasyni, eignaðist Ásta tvo syni,
Árna og Pál, barnabörnin eru sjö og barnabarnabörnin þrjú. „Ég er
svo rík að eiga þessa yndislegu fjölskyldu sem er það dýrmætasta
sem maður á. Sambýlismaður Ástu síðustu fimmtán árin er Sveinn
Guðnason.
„Við spókum okkur á Tenerife þessa dagana í tilefni afmælisins.“
Myndlistarmaðurinn Ásta Pálsdóttir.
Hefur haldið fjölda
einkasýninga
Ásta Eygló Pálsdóttir er áttræð í dag
Þ
orgeir Örn Elíasson
fæddist í Reykjavík 2.2.
1938 og ólst upp í
Skerjafirði: „Bernskuár-
in mótuðust af stríðinu.
Við bjuggum í Garði, steinsteyptu
húsi og opinberu neyðarskýli með
sandpokum á allar hliðar, með aðal-
fallbyssustæðið í 50 m fjarlægð og
flugbraut hinum megin.
Með lagningu vesturflugbrautar
flugvallarins klofnaði Skerjafjarð-
arbyggðin í tvennt. Tvær götur fóru
að mestu undir brautina, fjöldi stein-
húsa var rifinn, en timburhús flutt,
t.d. inn í Laugarnes. Þetta var mikil
röskun fyrir byggðina og íbúana.
Ég varð undir 10 hjóla hertrukk
þegar ég var polli, var fluttur á her-
spítala og ekkert fréttist af mér fyrr
en seint um kvöld þegar leit var haf-
in. Einn dag hafði fjöldi fólks leitað
skjóls í ibúð okkar. Herflugvél hafði
lent á húsi þeirra og fest í þaki ann-
ars húss, hinum megin götunnar.
Bæði húsin brunnu og flugmaðurinn
lést.“
Þorgeir var í sveit á sumrin vegna
stríðsátakahættu, auk þess í sveit hjá
afa sínum og ömmu í Reykhólasveit
og í sveit á Götu í Hvolhreppi þegar
Hekla gaus, 1947. Hann var í síma-
vinnu á sumrin á Vesturlandi á ár-
unum 1952-57: „Þar var unnið 10
tíma á dag, sex daga vikunnar og sof-
ið í tjöldum.“
Þorgeir lauk landsprófi og stund-
aði nám við lýðháskóla í Magleås í
Danmörku 1955-56: „Þar hélt eðlis-
fræðingurinn frægi, Niels Bohr,
fyrirlestur þennan vetur. Þaðan hélt
ég svo í tveggja mánaða ferð um
meginland Evrópu, en stúdentsprófi
lauk ég 1959.“
Þorgeir stundaði nám við Bænda-
skólann á Hvanneyri, lauk þaðan
BSc-prófi sem búfræðikandidat vor-
ið 1962 og stundaði síðan nám við
Búnaðarháskólann í Ási í Noregi.
Þorgeir var tilraunastjóri á Til-
raunastöðinni Reykhólum 1962, var
síðar sölumaður hjá Glóbus hf og
nokkrum öðrum fyrirtækjum í véla-
innflutningi.
Þorgeir Örn Elíasson verslunarmaður – 80 ára
Slappað af í sólinni ́Þorgeir Örn og eiginkona hans, Sigurbjörg, í sumarfríi á Tenerife fyrir nokkrum árum.
Bú- og vinnuvélar
voru hans ær og kýr
Með dóttursyni Þorgeir og Mikael
Erlendsson á ferðalagi innanlands.
Reykjavík Hrói Austmann
Gunnarsson fæddist 24.
febrúar 2017 kl. 15.21.
Hann vó 4.216 g og var 51
cm langur. Foreldrar hans
eru Edda H. Austmann
Harðardóttir og Gunnar
Ingi Jóhannsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is