Morgunblaðið - 02.02.2018, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 02.02.2018, Qupperneq 35
Þorgeir og fjölskylda fluttu til Sví- þjóðar 1969 þar sem kona hans stundaði sérnám en hann var sölu- stjóri þungavinnuvéla til útflutnings, bæjarfélaga og hersins, hjá ANA AB. Tveimur árum síðar flutti Þor- geir heim, var sölumaður, seldi vöru- bíla, rútur og iðnaðarvélar hjá Velti hf 1971-72, starfaði aftur hjá ANA AB í Svíþjóð 1972-77, varð þá fram- kvæmdastjóri bíla-, véla- og fóður- deildar Glóbusar til 1985. Hann varð þá einn eigenda Vélaborgar hf. sem síðar sameinaðist Vélum og Þjón- ustu. Hann varð deildarstjóri hjá véladeild Jötuns hf., á vegum SÍS, og þremur árum síðar stofnaði hann fyrirtækið Bújöfur ehf. Fyrirtækið gekk vel en vegna heilsubrests og umferðarslyss sem Þorgeir lenti í seldi hann fyrirtækið árið 2000. Þorgeir stundaði síðan ráðgjöf og innflutning á íbúðarhúsum frá Sví- þjóð og Finnlandi fram að hruni en alls voru flutt inn um 30 hús. Þorgeir er nú umboðsmaður fyrir stóra skipasmíðastöð, og sænskt verk- takafyrirtæki sem tekur að sér að byggja húsnæði á hagstæðum kjör- um. Byggt er samkvæmt íslenskum stöðlum og teikningum. Fjölskylda Eiginkona Þorgeirs er Sigurbjörg Júlíusdóttir, f. 3.3. 1941, bókavörður. Dóttir Þorgeirs og Sigurbjargar er Þórunn Ýr Þorgeirsdóttir, f. 26.9. 1979, skrifstofustjóri hjá Fossum en maður hennar er Erlendur Sigurðs- son húsgagnabólstrari og eiga þau þrjá syni. Dóttir Þorgeirs og fyrri eigin- konu, Bergdísar Kristjánsdóttur, er Elín Arna Þorgeirsdóttir, f. 13.5. 1967 en maður hennar er Borgar Þorsteinsson og þau reka gistiheim- ilið Glacier View í Hrífunesi og á hún þrjá syni og eitt barnabarn. Stjúpdætur Þorgeirs eru María Þorgeirsdóttir, f. 16.3. 1963, skrif- stofustjóri hjá Vivaldi Inovation, en maður hennar er Sæmundur Ósk- arsson arkitekt og eiga þau tvo syni og eitt barnabarn, og Hildur Þor- geirsdóttir, f. 5.11. 1964, verkefna- stjóri hjá Nova, og á hún eina dóttur. Systir Þorgeirs var Betzy Elías- dóttir, f. 11.6. 1945, d. 20.10. 1987, húsfreyja í Reykjavík. Foreldrar Þorgeirs voru Elías Kristjánsson, f. 3.12. 1905, d. 11.7. 1980, raftæknir og birgðastjóri Landsímans, og k.h., Randí Þór- arinsdóttir, f. 23.7. 1911, d. 17.11. 1986, hjúkrunarkona. Þau bjuggu í Reykjavík. Þorgeir Örn Elíasson Maric Kröyer húsfr. á Seyðisfirði Anton Berg sútari í Noregi og á Seyðisfirði Betzy Kristine Berg húsfreyja Þórarinn B. Þórarinsson athafnamaður víða og liðsforingi Randí Þórarinsdóttir hjúkrunarkona í Rvík Sigríður Guðmundsson húsfr. á Vestdalseyri Þórarinn B. Guðmundsson kaupm. og franskur konsúll á Vestdalseyri í Seyðisfirði Ragnar Arnalds rithöfundur og fyrrv. alþm. og ráðherra Agnes Sigurðardóttir biskup Íslands Sigurður Kristjánsson sóknarpr. á Ísafirði Jón Kristjánsson bíóstjóri á Akranesi Ingólfur Kristjánsson tollvörður í Rvík Finnur Kristjánsson b. á Skerðingsstöðum Ólafur Arnalds tónlistarmaður Dr. Andrés Arnalds fagmálastj. Landgræðslu ríkisins Kristín Arnalds cand.mag og fyrrv. skólameistari FB Einar Arnalds yfirborgardómari og hæstaréttardómari Ari Arnalds sýslum. í Húna- vatnssýslu, bæjar- fógeti á Seyðisfirði og alþm. Arndís Ósk Arnalds verkfræðingur hjá Orkuveitu Rvíkur Ólafur Arnalds prófessor við LHÍ á Hvanneyri Jón Laxdal Arnalds borgardómari og ráðuneytisstj. Sigurður Arnalds ritstj. og útgefandi í Rvík Eyþór Arnalds verðandi oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn Sigurður Arnalds verkfr. í Rvík Sigurður Ragnar Arnalds hæstaréttarlögmaður Einar Arnalds rithöfundur og ritstj. Ólöf Arnalds tónlistarkona. Guðrún Pálsdóttir húsfr. í Sælingsdal á Ströndum Jón Magnússon b. á Skáldastöðum Reykhólahr. Agnes Jónsdóttir húsfr. á Skerðingsstöðum Krisján Jónsson hreppstj. á Skerðingsstöðum í Reykhólahr. Sigríður Jónsdóttir húsfr. á Hjöllum Jón Finnsson hreppstj. á Hjöllum í Gufudalssveit, bróðursonur Guðrúnar, ömmu Gests Pálssonar skálds, og bróðursonur Jóns í Djúpadal, afa Björns Jónssonar ráðherra, föður Sveins forseta og Ólafs ritstj. Morgunblaðsins Úr frændgarði Þorgeirs Arnar Elíassonar Elías Kristjánsson raftæknir og birgðastj. Landsímans í Rvík ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2018 )553 1620 Lauga-ás hefur frá 1979 boðið viðskiptavinum sínum upp á úrval af réttum þar sem hráefni, þekking og íslenskar hefðir hafa verið höfð að leiðarljósi. Laugarásvegi 1, 104 Reykjavík laugaas@laugaas.is • laugaas.is Við bjóðum m.a. upp á: Súpur Grænmetisrétti Pastarétti Fiskrétti Kjötrétti Hamborgara Samlokur Barnamatseðil Eftirrétti 90 ára Ólöf Jóhannsdóttir 85 ára Erla Charlesdóttir Finnfríður Hjartardóttir Sigríður Eysteinsdóttir Stefanía G. Þorbergsdóttir 80 ára Bergsveinn J. Gíslason Gunnar Berg Ólafsson 75 ára Geir Lúðvíksson Guðný Guðjónsdóttir Jónína Jónsdóttir Magnús Sigurðsson Sigríður C. Victorsdóttir Steinunn Þorsteinsdóttir Thorvald Imsland Þórunn E. Guðnadóttir 70 ára Birgir Jóhannesson Birna Eybjörg Gunn- arsdóttir Eiríkur Steinþórsson Elsa Kristín Vilbergsdóttir Guðbjörg Sölva Gísladóttir Gunnvör Sverrisdóttir Pétur Sigurðsson Sigurbjörg Árnadóttir Sveinn Sveinsson Valgerður Stefánsdóttir Þorbjörg Júlíusdóttir Þorsteinn G. Sigurðsson Þóra Björk Jóhannesdóttir 60 ára Aðalsteinn Pálsson Elín Ásta Friðriksdóttir Elín Björg Magnúsdóttir Jóna Gunnarsdóttir Kolbeinn Magnússon Kristinn Óskar Baldursson Kristjana Aðalbjörnsdóttir Magnús Helgi Hjálmarsson Ólafur Þór Jónsson Ólöf Jósepsdóttir Rúnar Bergsson Sif Bjarnadóttir Valborg Kjartansdóttir 50 ára Ahmed Essabiani Guðbjörg Guðbjartsdóttir Guðmundur Guðmundsson Högni Gunnarsson Isa Kastrati Jakobína K. Arnljótsdóttir Ólafur Páll Jónsson Robert Lorenc Sigurberg Hauksson Stefanía Helga Björnsdóttir Tómas Örn Jónsson Þorgeir Ragnar Pálsson Þorsteinn Axelsson Þórdís Jóna Sigurðardóttir 40 ára Angela Þráinsdóttir Arnbjörn Barbato Ása Bergsdóttir Sandholt Christian Friðrik Burrell Evija Viegla Eygló Dögg Hreiðarsdóttir Fiona Mary Cribben Helga Soffía Gunnarsdóttir Ingibjörg Einarsdóttir María Á. Shanko Sigríður B. Marinósdóttir 30 ára Anna Jóna Jóhannsdóttir Arngrímur Jón Sigurðsson Grétar Örn Katrínarson Hildur Rut Ingimarsdóttir Jóhann Ólafsson Jón Brynjar Gústafsson Matthías Rúnar Sigurðsson Víðir Einarsson Þórir Árnason Til hamingju með daginn 30 ára Salóme ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk prófi frá leiklistardeild LHÍ og hefur leikið hjá Þjóð- leikhúsinu, í kvikmyndum, sjónvarpi og víðar. Maki: Eysteinn Sigurðar- son, f. 1990, leikari. Foreldrar: Gunnar Hall- dórsson, f. 1957, starfs- maður hjá Nasdaq, og Margrét Grétarsdóttir, f. 1960, dagskrárgerðar- maður hjá RÚV. Þau búa í Reykjavík. Salóme R. Gunnarsdóttir 30 ára Dóra ólst upp í Laugardælum í Flóa, býr í Reykjavík, lauk BA-prófi í grafískri hönnun frá LHÍ, BA-prófi í frönskum fræð- um og starfar á Branden- burg auglýsingastofu. Systur: Ólöf Haraldsd., f. 1982, og Svanhildur Gunnlaugsd., f. 1970. Foreldrar: Haraldur Þór- arinsson, f. 1954, bóndi í Laugardælum, og Þórey Arnbjörg Axelsdóttir, f. 1949, sjúkraliði. Dóra Haraldsdóttir 30 ára Björn ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk MSc-prófi í hagfræði frá Oxford University á Eng- landi og stundar rekstrar- ráðgjöf og hugbúnaðar- þróun. Systkini: Arnaldur, f. 1991; Brynja, f. 1982, og Birta, f. 1979. Foreldrar: Björn B. Björnsson, f. 1956, og Hrefna Haraldsdóttir, f. 1958. Þau eru búsett í Reykjavík. Björn B. Björnsson  Arngrímur Vídalín hefur varið dokt- orsritgerð sína í íslenskum bók- menntum Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Ritgerðin nefnist Skuggsjá sjálfsins: Skrímsl, jöðrun og afmennskun í lærdómshefð íslenskra sagnaritara 1100-1550. Andmælendur voru Annette Lassen, rannsóknardósent við Árnasafn í Kaupmannahöfn, og Rudolf Simek, prófessor við Háskólann í Bonn. Doktorsritgerðin var unnin undir leið- sögn Ármanns Jakobssonar, prófessors í íslenskum bókmenntum fyrri alda. Aðrir í doktorsnefnd voru Aðalheiður Guðmundsdóttir, prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda, og Daniel Säv- borg, prófessor í skandinavískum fræð- um við Háskólann í Tartu, Eistlandi. Rannsóknin rekur uppruna hugmynda mið- aldafólks um framandi þjóðir á jaðri heimsins, hvernig þeim var beitt í íslenskum alfræði- og sagnaritum til að skrímslisgera hópa sem þóttu óæski- legir. Rannsóknin er framlag til rann- sókna á jaðarsetningu og afmennskun, en einnig til íslenskra sjálfsmyndarrann- sókna og rannsókna á bókmenningu fyrri alda. Hún er hluti af rannsóknar- verkefninu Encounters with the Para- normal sem stýrt hefur verið af Ármanni Jakobssyni. Arngrímur Vídalín Arngrímur Vídalín (f. 1984) lauk B.A.-prófi í íslensku árið 2010 og Cand. Mag. í norrænum málum og bókmenntum við Árósaháskóla árið 2012. Á námstímanum hlaut hann styrki frá Árnanefnd í Kaupmannahöfn og Rannsóknasjóði Háskóla Ís- lands. Þá kenndi hann eitt misseri við Háskólann í Slesíu í Katowice, Póllandi, auk eins misseris við námsdvöl við Harvardháskóla í Bandaríkjunum. Hann vinn- ur nú að bók um Grettis sögu með styrkjum frá Starfslaunasjóði sjálfstætt starf- andi fræðimanna og Hagþenki. Arngrímur er giftur Eyju Margréti Brynjarsdóttur (f. 1969), doktor í heimspeki frá Cornell-háskóla og aðjunkt við Mennta- vísindasvið Háskóla Íslands. Stjúpdætur hans með henni eru Sólrún Halla Einarsdóttir (f. 1991), tölvunarfræðingur, Védís Mist Agnadóttir (f. 1998) og Iðunn Soffía Agnadóttir (f. 2004). Doktor Atvinna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.