Morgunblaðið - 02.02.2018, Side 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2018
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
L O K A D A G U R Ú T S Ö L U N N A R
L A U G A R D A G I N N 3 . F E B
1 0% a f s l á t t u r a f n ý j u m v ö r u m o g s é r p ö n t u n u m
-20%
Recast svefnsófi, svefnbreidd 140x200 cm kr. 119.900
* skemill og stóll selt sér
Nú kr. 95.920
2 0 - 6 0 % a f s l á t t u r a f ú t s ö l u v ö r u m
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Vertu þolinmóður, að öðrum kosti
getur þú skapað meiri ringulreið en þú ræður
við. Velgengni er ekki bara fólgin í efnislegum
gæðum.
20. apríl - 20. maí
Naut Nú er tími til þess að fara úr vits-
munalega hamnum yfir í þann líkamlega;
hugsaðu minna og framkvæmdu meira.
Gerðu þér glaðan dag og bjóddu vini þínum
út að borða.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er hætt við að fréttir sem
tengjast framhaldsmenntun, útgáfu eða
ferðalögum dragi úr þér kjarkinn. Sýndu
sveigjanleika þegar allir virðast vilja breyta
öllu í kringum þig.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Viljirðu búa við áframhaldandi vel-
gengni máttu í engu slaka á. Farðu vel með
það vald sem þér er falið. Annars sérðu eftir
því.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú þarft ekki að fyllast sektarkennd þótt
þig langi til þess að draga þig í hlé og eiga
stund fyrir þig. Mundu að vinir og vandamenn
eru sú stoð sem gott er að hafa.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er öllum hollt að eyða einhverjum
tíma með sjálfum sér og þú þarft að gera upp
þínar tilfinningar eins og aðrir. Ekki reyna að
breyta þeim sem verða á vegi þínum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þótt einhver snurða hlaupi á þráðinn
milli þín og vinar þíns, máttu ekki loka á vin-
áttuna. Skilningur og hjartahlýja eru lyk-
ilorðin.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Óraunsæi svífur yfir vötnunum í
dag. Við þurfum öll á umhyggju að halda þeg-
ar við stígum okkar fyrstu skref í lífinu og aft-
ur þegar við eldumst.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ættir að endurmeta stöðu
þína í félagi eða sambandi. Eitthvað sem þú
gerir beinir sjónum fólks að þér. Gerðu eins
mikið og þú getur fyrri hluta dags.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú kemst hugsanlega á snoðir um
athyglisverð leyndarmál í dag og finnur í það
minnsta lausnir á eldgömlum vandamálum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Innsæi þitt er þér dýrmætara en
margt annað. Viðhaltu lífskraftinum með því
að vera dálítið kvikur, hvort sem þú ert í stuði
til þess eða ekki.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Samvinna þín við samstarfsfólk þitt
gengur ekki nógu vel í dag. Galdurinn er að
einbeita sér að því sem skiptir máli; hitt mæt-
ir afgangi.
Það hefur verið mikið flug á Fíu áSandi. Hér er náttúruskoðar-
inn á ferðinni:
Með sandkorn inni í sinni skel
sjaldan líður ostrum vel
en harðan sandinn húða þær
og heiminum finnst perlan skær.
Á miðvikudaginn skrifaði Sigur-
lín Hermannsdóttir í Leirinn: „Góð-
an daginn á köldum en fallegum
degi. Mér varð litið upp á vestur-
himininn sem ég var að skafa af
bílnum í morgun:“
Löngum þessu lendir í,
lífs hans fastar rullur.
Kominn er á kenndirí,
keifar himin fullur.
Fía á Sandi svaraði að norðan:
„Þeir voru sko tveir hér í gær-
morgun:“
Lítið vín hann lét í tána
ljúfur uppi á himni skín
en annar fullur féll í ána
og fráleitt ratar heim til sín.
Ingólfur Ómar bætti við:
Frost er úti, frónið allt
fannablæju vafið.
Gulur máninn glottir kalt
gegnum skýjatrafið.
Og á Boðnarmiði orti Jón Valur
Jensson:
Fullur er máni, í skýjum skín,
skrýddur töfraljóma,
ber þér svo áfram, ástin mín
í austri, kveðju með sóma.
Þessi vísa Helga Ingólfssonar
segir það sem segja þarf:
Hve ég leik við hvern minn fingur
og hvergi fer,
því ég sjálf er sérfræðingur
í sjálfri mér.
Hallmundur Kristinsson kemur að
kjarna málsins:
Gaman er að geta spáð
í góða ræðu, ágætlega flutta,
ef tekst í henni að teygja þráð
til að gera langa sögu stutta!
Evalía Erlendsdóttir, húsfreyja á
Söndum í Meðallandi, var skáldmælt
en nokkuð fjöllynd. Eftir henni er
höfð þessi vísa er hún kom eitt sinn
af fundi skipsbrotsmanna og mér
þykir alltaf gaman að rifja upp:
Af því bar ég enga sút,
er mér bættur skaðinn:
Silfurskeið og silkiklút
sit ég með í staðinn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af ostrum og fylliríi
á himnum
„HLJÓMAR EINS OG GÓÐUR DÍLL.
MÁ ÉG SOFA Á ÞESSU?“
„ÉG HELD AÐ VIÐ ÆTTUM AÐ FORÐAST
RISABORGARANN!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar það er í lagi
fyrir hann að gráta –
stundum!
ÞAÐ ER Á SVONA DÖGUM
SEM ÉG ÓSKA ÞESS AÐ ÉG
VÆRI TANNLÆKNIR!
JÆJA, ÞÚ GETUR BYRJAÐ Á ÞVÍ AÐ KÝLA
NOKKRAR TENNUR ÚT HÉRNA!
ER ÞETTA
EKKI NÓG?
SAGÐI SÁ
ÖFUNDSJÚKI
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÚTSALA
Víkverji er sæmilega virkur á sam-skiptamiðlum. Í það minnsta
nokkrum þeirra.
x x x
Bróðir Víkverja sagði eitt sinn aðFacebook væri eins og gott
partý. Þar mætti eiga samskipti við
skemmtilegt fólk, hitta einhverja
sem ekki hafa orðið á vegi manns
lengi, daðra og segja brandara svo
eitthvað sé nefnt. Sumir eru svo
skemmtilegir að eiga athyglina í
partýinu. Aðrir kunna ekki að haga
sér og þá þarf að vísa þeim á dyr.
x x x
Vinur Víkverja skrifaði eitt sinn áFacebook: „Ég hef átt í mjög
flóknu sambandi við samskipta-
miðla.“ Þótti Víkverja það verulega
fyndið en vissulega getur þessi heim-
ur verið furðulegur í takti við mann-
skepnuna sjálfa. Ekki verður því á
móti mælt að margir drepleiðinlegir
láta ljós sitt skína á Facebook.
x x x
En þó má alltaf finna gimsteina semá glóir í mannsorpinu svo vitnað
sé í Bólu-Hjálmar.
x x x
Einn slíkur gimsteinn er skáldið ogtónlistarmaðurinn Róbert Örn
Hjálmtýsson. Hefur hann lengi glatt
Víkverja með stórkostlegum at-
hugasemdum um lífið og tilveruna.
x x x
Á dögunum mátti til að myndafinna eftirfarandi færslu hjá Ró-
berti á Facebook: „Vegna fjölda
áskorana hef ég ákveðið að skrifa
orðið afturábak afturábak: kab-
árutfa.“
x x x
Einnig er hægt að mæla með Face-book-tilþrifum Konráðs Jóns-
sonar lögfræðings. Erfiðara er að
vitna í þau þar sem hann er gjarnan
að sprella með hjálp ljósmynda. En
sem dæmi um uppátæki Konráðs má
nefna að hann setti sig í samband við
fólk sem hann kallar „símanúmers-
nágranna.“ Fannst sem sagt rétt að
kasta kveðju á þá sem eru einum staf
frá hans eigin símanúmeri.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Játið að Drottinn er Guð, hann hefur
skapað oss og hans erum vér, lýður
hans og gæsluhjörð.
(Sálm: 100.3)