Morgunblaðið - 02.02.2018, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 02.02.2018, Qupperneq 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2018 Mennta- og menningarmálaráð- herra hefur samþykkt tillögu leik- listarráðs um styrki til atvinnu- leikhópa fyrir árið 2018. Alls bárust 96 umsóknir frá 86 atvinnuleikhóp- um og sótt var um tæplega 622 millj- ónir króna, sem jafngildir 9% hækk- un á milli ára. Samkvæmt útreikn- ingum er árangurshlutfall umsækj- enda í kringum 16%. Ákveðið hefur verið að veita 96,5 milljónir króna til 17 verkefna sem skiptast þannig: sjö leikverk, sex barnaleikhúsverk, tvö dansverk og tvö brúðuleikhúsverk. Lakehouse Theatre Company undir stjórn Árna Kristjánssonar fær hæstan styrk eða ríflega 10 milljónir fyrir verkefnið Rejúníon en fast á hæla leikhópnum kemur Smartílab undir stjórn Söru Martí Guðmundsdóttur sem fær tæpar 10 milljónir fyrir Borgina. Sviðslista- hópurinn 16 elskendur sem Hlynur Páll Pálsson fer fyrir fær 8 milljónir fyrir Rannsókn ársins: Leitin að til- gangi lífsins; Instamatík undir stjórn Friðgeirs Einarssonar fær rúmar 7,6 milljónir fyrir Club Rom- antica – skapandi minningar og sömu upphæð fær Stertabenda und- ir stjórn Grétu Kristínar Ómars- dóttur fyrir Insomnia Café. Brúðu- heimar ehf. sem Hildur Jónsdóttir fer fyrir fá 7 miljónir fyrir Brúðu- meistarann frá Lodz; Bíbí & Blaka /Barnamenningarfélagið Skýjaborg sem Tinna Grétarsdóttir fer fyrir fær 6,3 milljónir fyrir Spor; Marble Crowd undir stjórn Sögu Sigurðar- dóttur fær tæpar 6,2 milljónir fyrir Sjö svanir; Opið út áhugamanna- félag undir stjórn Charlotte Bøving fær um 5,5 milljónir fyrir einleikinn Dauðinn – nú eða aldrei!; Gaflara- leikhúsið sem Lárus Vilhjálmsson fer fyrir fær um 5,1 milljón fyrir Fyrsta skiptið; Nótnaheimar undir stjórn Björgvins Franz Gíslasonar fá tæpar 4,9 milljónir fyrir samnefnt verkefni; Leikhópurinn Lotta undir stjórn Önnu Bergljótar Thoraren- sen fær 4,5 milljónir fyrir Gosa sem er næsta sumarsýning hópsins; Ég býð mig fram undir stjórn Unnar El- ísabetar Gunnarsdóttur fær um 4,1 milljón fyrir Ég býð mig fram aftur; Trigger Warning undir stjórn Köru Hergils Valdimarsdóttur fær rúmar 3,2 milljónir fyrir Velkomin heim; Reykjavík Dance Festival undir stjórn Ásgerðar Guðrúnar Gunnars- dóttur fær tæpar 2,9 milljónir fyrir Gjörningatíð; Sirkus Íslands ehf. sem Lee Robert John Nelson fer fyrir fær um 2,6 milljónir fyrir Bæj- arsirkusinn og Handbendi brúðu- leikhús ehf. undir stjórn Gretu Clough fær rúmar 847 þúsund krón- ur fyrir Form. 96,5 milljónum úthlut- að til atvinnuleikhópa Hliðarheimar Úr Í samhengi við stjörnurnar sem Lakehouse Theatre Company setti upp 2017. Hópurinn hlýtur hæstan styrk leiklistarráðs í ár. Darkest Hour Sannsöguleg mynd í leikstjórn Joes Wright sem gerist öll í maí 1940 og lýsir aðdraganda þess að Winston Churchill var skipaður forsætisráð- herra Bretlands, sem og fyrstu dög- um hans í embætti. Gary Oldman þykir fara á kostum sem Churchill og hlaut nýverið Golden Globe- verðlaunin fyrir leik sinn og er tilnefndur til Óskarsverðlauna. Rotten Tomatoes: 86% Metacritic: 75/100 Molly’s Game Sannsöguleg kvikmynd um skíða- drottninguna Molly Bloom sem sneri sér að rekstri spilavítis þegar hún neyddist til að leggja skíðin á hilluna vegna meiðsla. Leikstjóri og handritshöfundur er Óskarsverð- launahafinn Aaron Sorkin. Með hlutverk Bloom fer Jessica Chast- ain, en meðal annarra leikara eru Idris Elba og Kevin Costner. Rotten Tomatoes: 81% Metacritic: 71/100 Winchester Helen Mirren fer með hlutverk Söru Winchester í draugamynd úr smiðju Spierig-bræðra, Michaels og Peters. Eftir fráfall ungrar dóttur og eiginmanns, sem stofnaði ábata- samt fyrirtæki sem framleiddi riffla og byssukúlur, er Sarah sann- færð um að bölvun hvíli á Winchest- er-fjölskyldunni þar sem andar þeirra sem fallið hafa fyrir Win- chester-vopnum leiti hefnda. Miðill sannfærir hana um að eina leiðin til að losna undan draugunum sé að byggja fyrir þá hús. Hætti bygg- ingarframkvæmdirnar einhvern tímann séu dagar Söru á enda. Lói: Þú flýgur aldrei einn Íslensk teiknimynd um lítinn fugl með stórt hjarta. Handritið skrifaði Friðrik Erlingsson og hönnuður út- lits og aðstoðarleikstjóri er Gunnar Karlsson. Ítarlegt viðtal birtist við hann í Morgunblaðinu um helgina. Leikstjóri er Árni Ólafur Ásgeirs- son. Draugar, stríð og fugl með stórt hjarta Staðfastur Gary Oldman þykir fara á kostum í Darkest Hour. Bíófrumsýningar Groundhog Day Bíó Paradís 10.00, 12.00, 14.00, 16.00, 18.00, 20.00, 22.00 Óþekkti hermaðurinn Morgunblaðið bbbnn Bíó Paradís 22.30 In the Fade Metacritic 63/100 IMDb 7,2/10 Bíó Paradís 17.45 In Times of Fading Light Bíó Paradís 20.00 The Sound Of Music - Singalong Bíó Paradís 20.00 Beuys Bíó Paradís 17.45 Darkest Hour Metacritic 75/100 IMDb 7,4/10 Sambíóin Egilshöll 17.20, 20.00, 22.40 Sambíóin Kringlunni 17.00, 19.40, 22.20 Sambíóin Akureyri 20.00 Molly’s Game 16 Metacritic 7/100 IMDb 7,6/10 Smárabíó 12.00 Sambíóin Keflavík 19.40 Winchester 16 Sambíóin Álfabakka 17.50, 20.00, 22.10 Sambíóin Egilshöll 17.40, 20.00, 22.20 Sambíóin Akureyri 20.00, 22.35 Sambíóin Keflavík 20.00, 22.30 Three Billboards Outside Ebbing, Missouri 16 Morgunblaðið bbbmn Metacritic 88/100 IMDb 8,4/10 Smárabíó 12.00, 17.30, 22.20 Háskólabíó 19.45, 22.00 Happy End Metacritic 73/100 IMDb 7,0/10 Háskólabíó 17.30 The Commuter 12 Metacritic 68/100 IMDb 5,7/10 Laugarásbíó 20.00 12 Strong 16 Metacritic 58/100 IMDb 7,0/10 Smárabíó 19.40 Wonder Metacritic 66/100 IMDb 8,1/10 Sambíóin Álfabakka 17.40 Insidious: The Last Key 16 IMDb 5,8/10 Smárabíó 22.30 All the Money in the World 16 Metacritic 73/100 IMDb 7,2/10 Laugarásbíó 22.15 Jumanji: Welcome to the Jungle 12 Metacritic 58/100 IMDb 7,0/10 Smárabíó 17.00, 19.40, 22.30 Myrkviði Háskólabíó 19.40 The Greatest Showman 12 Metacritic 48/100 IMDb 8,0/10 Sambíóin Egilshöll 17.30 Star Wars VIII - The Last Jedi 12 Myndin byrjar þar sem sú síðasta endaði. Rey heldur áfram ferðalagi sínu með Finn, Poe og Luke Skywalker. Morgunblaðið bbbbm Metacritic 85/100 IMDb 8,4/10 Sambíóin Álfabakka 17.20, 20.30 Sambíóin Egilshöll 17.00 Lífs eða liðinn 12 Morgunblaðið bbbbn Háskólabíó 20.00 Downsizing 12 Metacritic 63/100 IMDb 5,8/10 Sambíóin Álfabakka 22.30 Call Me By Your Name Athugið að myndin er ekki með íslenskum texta. Metacritic 93/100 IMDb 8,3/10 Háskólabíó 22.25 Lói - þú flýgur aldrei einn Lói er ófleygur þegar haustið kemur og farfuglarnir fljúga suður á bóginn. Smárabíó 15.15, 17.20 Háskólabíó 17.40 Sambíóin Keflavík 17.40 Ævintýri í Undirdjúpum IMDb 4,0/10 Sambíóin Álfabakka 17.50 Sambíóin Akureyri 17.50 Paddington 2 Metacritic 89/100 IMDb 8,1/10 Laugarásbíó 15.50, 18.00 Sambíóin Keflavík 17.40 Smárabíó 15.00, 17.20 Ferdinand Metacritic 58/100 IMDb 6,8/10 Smárabíó 15.00 Pitch Perfect 3 12 Morgunblaðið bbnnn IMDb 6,3/10 Smárabíó 20.10 Father Figures 12 Metacritic 23/100 IMDb 5,0/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 Hvítu riddararnir Háskólabíó 17.30 Viktoría Háskólabíó 22.00 Svona er lífið Morgunblaðið bbbbn Háskólabíó 19.50 Svanurinn 12 Morgunblaðið bbbmn IMDb 7,0/10 Háskólabíó 17.30 Borgarbíó Akureyri 18.00 Yfirhylming sem náði yfir setu fjögurra Banda- ríkjaforseta í embætti, varð til þess að fyrsti kvenkyns dagblaðaútgefandinn og metnaðar- fullur ritstjóri, lentu í eldlínunni. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 83/100 IMDb 7,5/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 17.00, 18.30, 21.00 Sambíóin Akureyri 17.30 The Post 12 Den of Thieves 16 Harðsvíraðir bankaræn- ingjar hyggjast ræna Seðla- banka Bandaríkjanna og lenda í átökum við sérsveit lögreglunnar í Los Angeles. Metacritic 50/100 IMDb 7,3/10 Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.30, 22.30 Sambíóin Kringlunni 19.30, 22.20 Sambíóin Akureyri 22.10 Kvikmyndir bíóhúsannambl.is/bio Maze Runner: The Death Cure 12 Í lokamyndinni í The Maze Runner-þríleiknum koma fram öll lokasvör gátunnar auk þess sem örlög aðalpersónanna ráð- ast. Metacritic 52/100 IMDb 7,2/10 Laugarásbíó 21.00 Sambíóin Egilshöll 19.50, 22.40 Sambíóin Keflavík 22.10 Smárabíó 16.00, 19.00, 19.30, 22.10, 22.20 Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.40 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.