Morgunblaðið - 02.02.2018, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 33. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Eiður og Ragnhildur selja sumar...
2. Hera sat berrössuð á malbikinu
3. Segir forsendubrest hafa komið ...
4. Skíðatæknin vakti athygli lögreglu
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sigtryggur Baldursson, bæjarlista-
maður Kópavogs 2017, setur upp
gjörninginn „Undir með vitund“ í inni-
laug Sundlaugar Kópavogs annað
kvöld kl. 21, á sundlauganótt. Gjörn-
inginn vinnur hann í samvinnu við
ManKan, þá Tómas Manoury og Guð-
mund Vigni Karlsson. Í verkinu nota
þeir risatrommur sem Sigtryggur
hannaði úr gömlum endurvarps-
loftnetum og kallast Parabólur en
einnig verður notaður búnaður ManK-
an sem þeir hafa hannað og gerir þeim
kleift að láta hvers kyns rafræna tón-
sköpun og trommutakta, í rauntíma-
hljóðvinnslu, stjórna myndvörpum
sem skapa umgjörð um tónlistina svo
úr verður heildarupplifun takts, tóna
og myndverka, eins og segir í tilkynn-
ingu. Þeir félagar notast við hátal-
arakerfi á sundlaugarbakkanum og
neðansjávarhátalara sem verður sett-
ur ofan í laugina þannig að njóta má
upplifunarinnar hvort heldur er af
bakka, í laug, eða í kafi. Sama kvöld
kemur fram dúettinn Between Mount-
ains sem fór með sigur af hólmi í
Músíktilraunum í fyrra.
Morgunblaðið/Kristinn
List sem njóta má á
bakka, í laug og í kafi
Rithöfundurinn og sviðslistamað-
urinn Friðgeir Einarsson flytur verk í
vinnslu, Club Romantica, í menning-
arhúsinu Mengi í kvöld kl. 21. Friðgeir
hefur undir höndum nokkur mynda-
albúm frá konu sem hann hefur aldr-
ei hitt og hefur engin tengsl við og
mun í máli og myndum
segja sögu hennar
og annarra sem
koma fyrir á mynd-
unum. Verkinu er
lýst sem listrænum
fyrirlestri um söfnun
og sköpun minninga.
Friðgeir flytur Club
Romantica í Mengi
Á laugardag
SV 8-15 m/s og él, en léttskýjað á A-verðu landinu. Frost 0-5 stig
inn til landsins en hiti um og yfir frostmarki víða við ströndina.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hvöss sunnanátt austantil og rigning sunn-
an jökla. Hiti 2 til 10 stig, mildast á annesjum norðan til. Kólnar
aftur, fyrst vestan til. Vægt frost víðast hvar í kvöld.
VEÐUR
Fyrir fram myndi ég flokk-
ast með hópi keppenda sem
ættu að vera á bilinu 15-35.
Í þessum hópi eru margir
sem geta barist um að vera
á meðal 15-20 efstu. Ef ég
næ mér á strik þá á ég
möguleika á að blanda mér í
hóp 15 efstu. En til þess
þyrfti margt að ganga upp,“
segir Snorri Einarsson sem
keppir í fjórum göngugrein-
um á Vetrarólympíuleik-
unum í Pyeongchang. »4
Stefnir hátt í
Pyeongchang
„Góður árangur á EM er langstærsta
markmiðið á þessu ári. Ég þarf þó að-
eins að sjá til hvort það verður í 800
eða 1.500 metra hlaupi. Það fer bara
eftir því hvar ég á meiri möguleika,“
segir Aníta Hinriksdóttir, sem verður
á ferðinni á Reykjavíkurleikunum á
morgun og fær þar harða samkeppni.
Árið 2018 gæti orð-
ið árið þegar
Aníta skiptir 800
metra hlaupi út
sem aðalkeppnis-
grein sinni. »1
Fer eftir því hvar ég á
meiri möguleika
Eftir fimm sigurleiki í röð urðu ÍR-
ingar að sætta sig við stórt tap í 16.
umferð Dominos-deildar karla í
körfubolta þegar þeir fengu Stjörn-
una í heimsókn í gærkvöld. Stjarnan
vann 87:64-sigur og þar með náðu
KR-ingar að jafna ÍR að stigum á
toppi deildarinnar með því að leggja
Þór Akureyri að velli norðan heiða.
Grindavík vann Hött af öryggi. »2
Stjarnan sá um að
stöðva sigurgöngu ÍR
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Vinna Karls Jeppesen við
heimildarmynd um veiðar og versl-
un Englendinga og Þjóðverja við
Ísland á öldum áður varð kveikja
hans að bókinni Fornar hafnir – út-
ver í aldanna rás, sem bókaútgáfan
Sæmundur á Selfossi sendi frá sér
á dögunum. Úrval myndanna má
sjá á sýningu á Veggnum í Þjóð-
minjasafninu þessa dagana.
Þegar Karl vann að fræðslu-
myndinni um „ensku og þýsku öld-
ina“ í Íslandssögunni, tímabilið frá
um 1400 til um 1600, segist hann
hafa rekist á staði þar sem áður
hafi verið gamlar verstöðvar Ís-
lendinga, en Englendingar hafi ver-
ið á svipuðum slóðum. Hann hafi
kannað málið betur, meðal annars
lesið Íslenska sjávarhætti eftir Lúð-
vík Kristjánsson, sem hafi rann-
sakað og safnað saman heimildum
frá stöðum um allt land og meðal
annars talið upp um 360 verstöðvar.
„Þetta kveikti enn frekar í mér og
varð til þess að ég heimsótti fleiri
staði, en margar þessara stöðva eru
nú bæjarsamfélög eins og til dæmis
Ólafsvík og Bolungarvík,“ segir
Karl. Hann minnir samt á að all-
flestar verstöðvarnar séu ekki falln-
ar inn í byggð, en stór hluti sé engu
að síður horfinn undir torf, sand
eða sjó.
Verðmæti
Karl lauk við fræðslumyndina
2010 og hefur hún síðan verið notuð
við kennslu í skólum, en hann hóf
vinnu við drög að ljósmyndabók ár-
ið eftir. Fyrir um einu og hálfu ári
óskaði hann eftir því að halda ljós-
myndasýningu um þessar fornu
hafnir í Þjóðminjasafninu og þegar
hann fékk grænt ljós á það fyrir um
ári ákvað hann að stefna að bókar-
útgáfu enda með mikið ritað efni,
sem hann hafði safnað saman, og
margar myndir í höndum. „Bjarni
Harðarson bókaútgefandi tók vel í
að gefa bókina út og nú er hún orð-
in að veruleika.“
Áhugi Karls á ljósmyndun hófst í
æsku. „Ég fékk bakteríuna frá
pabba, þegar ég var níu ára, byrjaði
að taka myndir með honum og
framkalla uppi í risi,“ rifjar hann
upp. „Ég fékk myndavél strax í
fermingargjöf, Exa, sem voru af-
skaplega góðar þýskar vélar með
góðum linsum. Fljótlega fór ég að
kaupa japanskar myndavélar, sem
urðu allsráðandi á sjöunda áratugn-
um.“
Karl var grunnskólakennari 1965
til 1980, vann hjá Námsgagnastofn-
un 1980 til 1995 og var síðan kenn-
ari við Kennaraháskólann til 2007.
Auk þess starfaði hann sem útsend-
ingarstjóri og síðan dagskrárritari
fyrstu ár Sjónvarpsins frá 1966 til
1972 og sem dagskrárgerðarmaður
um 1980. Hann gerði margar
fræðslumyndir fyrir Námsgagna-
stofnun og tók myndir í kennslu-
bækur. Sem kennari í Álftamýrar-
skóla kenndi hann lengi börnum að
ljósmynda og framkalla í kjall-
aranum.
„Það var skemmtilegt tímabil og
margir hafa orðið ljósmyndarar upp
úr því eins og til dæmis Ragnar Th.
Sigurðsson, Páll Reynisson og
Anna Fjóla Gísladóttir.“
Bókin er 320 blaðsíður í stóru
broti. Hana prýða um 550 litmyndir
frá um 160 verstöðvum vítt og
breitt um landið.
Verstöðvar í máli og myndum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Útgáfa Karl Jeppesen flettir bókinni, sem er 320 blaðsíður í stóru broti, skreytt um 550 litmyndum.
Karl Jeppesen með viðamikla bók og ljósmyndasýningu í Þjóðminjasafninu
Ljósmynd/Karl Jeppesen
Úr bókinni Frá Eystra-Horni við Lón skammt norðan Hafnar í Hornafirði.