Morgunblaðið - 03.02.2018, Page 11

Morgunblaðið - 03.02.2018, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2018 Charles M. J. B. Ansiau, iðnrekandi, lést í Bruss- el 26. janúar , ríflega 89 ára að aldri. Charles var fæddur í Antwerpen í Belgíu 4. desember 1928. Hann var sonur hjónanna Pierre og Hortense Ansiau. Charles kvæntist eiginkonu sinni, Guð- rúnu Högnadóttur Ansiau, í maí 1953. Hún lifir mann sinn. Guðrún er dóttir Högna Hall- dórssonar og Fannýjar Jónsdóttur Egilson. Charles hóf ungur aðkomu að fyrirtæki föður síns, sem m.a. rak skipaprammaútgerð í Hollandi. Í áratugi rak Charles fyrirtækið Con- timine, sem sérhæfði sig í sölu jarð- efna og málma. Teygði rekstur þess sig víða um heim, var m.a. í miklum viðskiptum við fyrirtæki í Kína, Japan, Evrópu og Bandaríkjunum. Charles átti töluverð viðskipti við Íslendinga. Þannig seldi hann m.a. Landsvirkjun vélbúnað í Sigöldu- virkjun sem reist var á árunum 1973-77. Þá kom fyrirtæki hans einnig að endurbótum á Hótel Loft- leiðum á sínum tíma. Á grundvelli þessara viðskipta og annarra sköp- uðust vináttutengsl við fjölmarga Ís- lendinga sem staðið hafa óhögguð í áratugi. Heimili Charles og Guðrúnar hefur ætíð staðið Íslendingum opið og á árum áður reynd- ust þau hjónin mörgum íslenskum námsmönn- um í Belgíu vel. Fyrir þann stuðning og að halda málstað Íslend- inga á lofti var Guðrún sæmd riddarakrossi hinnar íslensku Fálka- orðu árið 1978. Um ára- tuga skeið hafa þau hjónin stutt dyggilega við bakið á ungum og upprennandi listamönn- um. Hafa þau fylgt þeim eftir árum saman og sótt tónleika þeirra vítt og breitt um heiminn. Í hópi þessara listamanna eru nú nokkur af þekkt- ustu nöfnum klassíska listaheimsins. Charles var sæmdur tveimur æðstu heiðursorðum Belga fyrir störf í þágu þjóðar sinnar. Þannig var hann riddari af orðu Leópolds konungs I og orðu belgísku krún- unnar. Charles og Guðrún eignuðust þrjár dætur; Christine, Catherine og Chantal. Dóttursynir þeirra eru tveir, Arthur og Charles Alexandre. Charles verður borinn til grafar í dag, laugardag. Athöfnin verður gerð frá St. Alix-kirkjunni í Brussel. Charles Ansiau Andlát Guðni Einarsson gudni@mbl.is Uppbygging vindorkugarðs á Hróðnýjarstöðum í Laxárdal í Dalabyggð var kynnt á fjölmenn- um íbúafundi í Dalabúð í Búðardal 31. janúar. Jörðin var keypt í fyrra og eigendur Storm orku ehf. áforma að virkja þar vind með allt að 40 vindmyllum. „Við erum að hefja vegferð sem getur tekið nokkur ár,“ sagði Magnús B. Jóhannesson, rekstrar- hagfræðingur og framkvæmda- stjóri Storm orku ehf., í samtali við Morgunblaðið. Hann hefur unnið í orkugeiranum í yfir 20 ár, aðallega í vatnsafli, jarðvarma og í sól- arorku hér og í Bandaríkjunum. Bróðir hans og meðeigandi, Sig- urður Eyberg umhverfisfræðingur, er að ljúka doktorsprófi frá Há- skóla Íslands í umhverfisfræðum og vann m.a. sem verkefnisstjóri hjá Umhverfisstofnun. Magnús sagði að breyta þyrfti aðalskipulagi þannig að hluti jarð- arinnar yrði skilgreindur sem iðn- aðarsvæði. „Landið sjálft breytist sáralítið. Það verður áfram nýtt til landbúnaðar fyrir utan samtals einn hektara sem verður nettó fót- spor vindmyllanna,“ sagði Magnús. Vindmyllurnar dreifast yfir stærra svæði því a.m.k. 500 metrar þurfa að vera á milli þeirra. Áform eru um að reisa 28-40 vindmyllur. Lík- anið sem unnið er eftir gerir ráð fyrir 36 vindmyllum að hámarki sem samtals geta skilað allt að 130 MW afli. Gert er ráð fyrir að áfram verði sauðfjárbú á Hróðnýj- arstöðum, en þar er nú búið með um 1.000 fjár. „Næsta skref er að rannsaka svæðið betur. Við stefnum á að gera miklar rannsóknir í sumar varðandi fuglalíf, jarðfræði, vind o.fl. Við munum fljótlega auglýsa rannsóknaráætlun og síðan fara yf- ir athugasemdir sem berast og hugsanlega endurskoða áætlunina með tilliti til þeirra,“ sagði Magnús. Við undirbúning hefur verið stuðst við vindatlas Veð- urstofu Íslands. Lítil truflun á að verða vegna hljóðs frá vindorkugarðinum. Hann verður 2-3 km frá næstu lögbýlum og 9 km frá Búðardal. Sérfræð- ingar í hljóðburði segja að komast megi hjá ónæði vegna vindmylla með því að hafa þær a.m.k. tvo kílómetra frá hí3býlum fólks. Gert er ráð fyrir lagningu allt að 25 km af vegum um svæðið. Gangi allt að óskum telur Magnús að fram- kvæmdir geti hafist eftir 18-24 mánuði og að fyrsta orkan verði af- hent í lok árs 2020. Tilbúin að skoða málið Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur undirritað viljayfirlýsingu um að taka byggingu vindorkugarðsins til skoðunar, að sögn Jóhannesar H. Haukssonar oddvita. „Það skipti máli fyrir Storm orku að vita hvort við værum fyrir fram neikvæð gagnvart verkefninu. Það er ekki rétt af sveitarfélagi að vera fyrir fram á móti verkefni sem það hefur ekki kynnt sér og veit lítið um,“ sagði Jóhannes. „Við bíðum eftir leiðbeiningum frá þar til bærum yfirvöldum. Menn eru að berjast í því núna að búa til reglu- verk í kringum þetta. Beiðnin kom til okkar frá Storm orku í septem- ber eða október í haust. Það var fyrst í desember sem fyrsta leið- beiningarblaðið kom, að mig minn- ir frá Skipulagsstofnun. Við viljum skoða þetta með opnum huga, eins og önnur tækifæri. En við höfum ekki tekið ákvörðun um eitt eða neitt.“ Jóhannes sagði margt enn óljóst varðandi verkefnið. T.d. hvað það verður stórt, hvort Byggðalínan geti flutt rafmagnið og hvort kaup- andi sé að orkunni. Ferlið sé langt og margt þurfi að ganga upp til að þetta geti orðið að veruleika. „Þetta á eftir að fara í gegnum langt ferli og menn geta gert at- hugasemdir á öllum stigum. Þetta þarf væntanlega að fara í um- hverfismat, verði þetta stórt, og sé þetta yfir 100 MW heyrir það und- ir Rammaáætlun og ráðherra. Virkjun vindsins er enn á algjöru byrjunarstigi á Íslandi,“ sagði Jó- hannes. Líklega mun Dalabyggð láta vinna fyrir sig skýrslu um vindorkuvirkjun líkt og Snæfells- bær lét gera. Vegferð til virkjunar vindorku í Dölunum  Storm orka áformar að reisa allt að 130 MW vindorkuver Tölvumynd/Byggð á Google Maps/Storm orka Hugmyndin Hér er sýnt hvernig vindorkugarður á Hróðnýjarstöðum gæti litið út í framtíðinni. Ekki er búið að ákveða endanlegan fjölda vindmylla. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Íslenskir aðalverktakar áttu lægsta tilboðið í byggingu gas- og jarð- gerðarstöðvar á Álfsnesi. Alls bár- ust fimm tilboð og voru þau öll yfir kostnaðaráætlun. Lægsta tilboðið hljóðaði upp á rúma fjóra milljarða króna. Tilboð í byggingu gas- og jarð- gerðarstöðvar, sem auglýst var á evrópska efnahagssvæðinu, voru opnuð þriðjudaginn 23. janúar. Niðurstaðan var kynnt á síðasta stjórnarfundi Sorpu bs. Alls bárust fimm tilboð frá fjór- um byggingarfyrirtækjum, þar af eitt frávikstilboð. Eftir yfirferð og smávægilegar leiðréttingar voru til- boðin sem hér segir: Ístak hf. krónur 4.755.558.373. ÍAV hf. krónur 4.546.478.909. ÍAV hf., frávikstilboð, krónur 4.095.226.313. Munck Íslandi krónur 4.857.413.614. Mannverk ehf. krónur 7.493.775.730. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á krónur 3.609.380.000. Frávikstilboð ÍAV hf. er því tæpum hálfum millj- arða hærra en kostnaðaráætlunin. Fram kemur í fundargerð stjórn- ar Sopru að tilboðin hafi ekki verið metin með tilliti til tæknilegs og fjárhagslegs hæfis bjóðenda en sú vinna sé í gangi. Borgarráð samþykkti í byrjun ársins að úthluta Sorpu bs. lóð á Álfsnesi undir nýja gas- og jarð- gerðarstöð. Lóðin sem um ræðir er 82.195 fermetrar að stærð. Heimilt verður að byggja 12.800 fermetra hús á lóðinni. Vonir standa til að framkvæmdir geti hafist um mitt þetta ár. Urðun heimilissorps hætt Með tilkomu stöðvarinnar verður hætt að urða heimilisúrgang en í staðinn verða gas- og jarðgerðar- efni unnin úr honum. Stefnt er að því að yfir 95% af heimilisúrgangi á samlagssvæði Sorpu verði endur- nýtt þegar stöðin er komin í gagnið. Sorpa er byggðasamlag í eigu sveitarfélaganna sex á höfuðborgar- svæðinu; Reykjavíkur, Hafnar- fjarðar, Kópavogs, Seltjarnarness, Mosfellsbæjar og Garðabæjar. Til- gangur byggðasamlagsins er að annast meðhöndlun úrgangs á svæðinu. Morgunblaðið/Styrmir Kári Álfsnes Hætt verður að urða heimilisúrgang með tilkomu stöðvarinnar. Öll tilboð voru yfir kostnaðaráætlun  Lægsta tilboð í nýja jarðgerðarstöð Sorpu á Álfsnesi fjórir milljarðar Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is 70% AFSLÁTTUR SÍÐUSTU DAGAR ÚTSÖLU ÚTSÖLUSPRENGJA GERRY WEBER - TAIFUN - BETTY BARCLAY JUNGE - FUCHS SCHMITT OG FL. á gæðamerkjavöru Dúnúlpur og ullarkápur Skoðið laxdal.is Skipholti 29b • S. 551 4422 60% - 70% Opið laugardag til kl. 17 Síðasta útsöluvika gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.