Morgunblaðið - 03.02.2018, Side 38

Morgunblaðið - 03.02.2018, Side 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2018 ✝ Karl Hannesfæddist 25. febrúar 1930 í Ev- anston, Illinois. Hann lést á Heil- brigðisstofnun Þingeyinga 26. jan- úar 2018. Hann var sonur Hannesar Jakobs- sonar, f. 1899, og Hansínu Karls- dóttur frá Húsavík, f. 1904. Fluttist fjögurra ára með foreldrum sínum til Húsa- víkur, ólst þar upp og bjó til dánardags. Þann 23. febrúar 1952 kvænt- ist Karl Hannes eftirlifandi eiginkonu sinni, Herdísi Þuríði Arnórsdóttur frá Húsavík, f. 27. nóv. 1929. Börn þeirra eru: 1. Anna María Karlsdóttir, f. 3. okt. 1954, maki Sigurður Brynj- 1991, sambýlismaður Guð- mundur Örn Magnússon, f. 2. apríl 1992. Berglind Hannes- dóttir, f. 20. ágúst 1993. 3. Arna Elísabet Karlsdóttir, f. 4. júlí 1966, maki Þórr Tjörvi Einars- son, f. 21. nóv. 1965. Börn þeirra eru: Arnór Tjörvi Þórs- son, f. 1. júní 2002, og Þóra Rún Þórsdóttir, f. 29. mars 2004. Karl Hannes, eða Sonni eins og hann var alltaf kallaður á Húsavík, var mikill íþrótta- maður á sínum yngri árum, bæði á skíðum og í frjálsum íþróttum. Eftir að hann komst á fullorðinsár átti golfíþróttin hug hans allan. Hann lærði húsgagnasmíði og starfaði við það um tíma, var mikið til sjós bæði á eigin bátum og með öðrum. Starfaði sem síldarmats- maður og vann á síldarplönum bæði hjá föður sínum og síðar hjá Kaupfélagi Þingeyinga. Vann lengi við verslunarstörf hjá KÞ. Síðustu árin starfaði hann sjálfstætt við smíðar o.fl. Útför Karls fer fram frá Húsavíkurkirkju í dag, 3. febr- úar 2018, klukkan 14. úlfsson, f. 18. júlí 1954. Börn þeirra eru: Herdís Þur- íður Sigurðar- dóttir, f. 7. júlí 1976, maki Óli Halldórsson, f. 10. maí 1975, þau eiga fjögur börn. Brynj- úlfur Sigurðsson, f. 19. apríl 1978, maki Helga Björg Pálmadóttir, f. 16. sept. 1981, þau eiga fjögur börn. Karl Hannes Sigurðsson, f. 12. sept. 1986. 2. Hannes Karlsson, f. 17. júní 1959, maki Rósa Njálsdóttir, f. 13. október 1963. Börn þeirra eru: Lísbet Hann- esdóttir, f. 2. október 1986, maki Friðgeir Bjarnar Valde- marsson, f. 15. febrúar 1979, samtals eiga þau fjögur börn. Helen Hannesdóttir, f. 23. maí Afi Sonni fékk að kveðja okk- ur og þennan heim á friðsælan hátt og fyrir það erum við afar þakklátar. Minningarnar um afa Sonna sitja eftir og í þær munum við halda fast. Við eigum auðvitað allar okk- ar eigin minningar um þig, elsku afi. Eins og til dæmis þegar enskur strákur byrjaði í 2. bekk með Helen og mamma og pabbi sögðu henni að tala við þig því þú hefðir auðvitað fæðst í Banda- ríkjunum og hefðir margt að kenna henni. Hún á ennþá blaðið þar sem þú last upp orðin og hún skrifaði niður. Úr því varð ágætis orðabók sem nýttist vel og fyrir vikið eignaðist hún nýjan vin. Eins fékk Lísbet að nýta þekkingu þína í skólaverkefni þar sem skrifa átti um „gamla daga“, enda svo gamall elsku afi okkar og þegar Berglind fékk heimþrá og sat á pallinum á Túngötunni og blés sápukúlur þá komst þú og settist niður með henni og blést sápukúlur líka. Þú varst alltaf til í að leika með okkur, hvort sem það var að sparka bolta á milli úti í garði eða spila golf á ganginum eða inni í stofu. Þú geymdir alltaf golfkúlur og púttara í horninu í stofunni og það vissum við systur mæta vel. Í heimsóknum okkar voru því ófá skiptin sem fóru í það að slá kúlum ofan í græna diskinn eða í bolla. Það var svo síðasta sumar þegar við hittumst öll, Túngötu- ættin, og spiluðum saman golf á Túngata Open. Þú afi, sem spil- aðir ekki lengur á stóra vellinum, fórst hann samt allan með okkur á skutlunni þinni. Við vorum svo stoltar og ánægðar með þig. Við ætlum að halda hefðinni, tileinkaða þér, elsku afi, þér sem fannst fátt skemmtilegra en að spila golf og smitaðir áhuganum til barna, barnabarna og barnabarna- barna. Elsku afi, við munum minnast þín fyrir svo margt. Þegar við vorum litlar og fengum að kíkja inn í kommóðu og ná í ávaxtamolana með flór- sykrinum. Þegar við fórum í bíltúr með þér og hlógum yfir ökuhæfileik- um þínum, já eða skortinum á þeim. Þegar við komum í heimsókn og þú varst alltaf með sár á skallanum. Þegar við systur hlógum yfir að þú ætlaðir í bíó að sjá Iron Man, þú varst svo mikill áhuga- maður um kvikmyndir. Þegar við fylgdumst með þér í baksýnisspeglinum vinkandi bless frá Túngötunni alveg þar til bíllinn hvarf sjónum. Þegar við gátum varla talað saman því sjónvarpið var svo hátt stillt, hvað þá þegar óperan var í útvarpinu. Þegar við sáum blikið í aug- unum þínum þegar þú hittir barnabarnabörnin þín. Það er dýrmætt. Þú ert dýrmætur. Lísbet, Helen og Berglind Hannesdætur. Karl Hannes Hannesson, afi Sonni, er látinn tæplega 88 ára að aldri. Afi hafði um töluvert skeið glímt við heilsuleysi en var þó fær um að búa heima með góðri hjálp frá ömmu Dísu. Um miðja síðustu viku kenndi hann sér meins og fljótlega var ljóst að komið væri að leiðarlokum. Hann fékk friðsælt andlát á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík í faðmi fjölskyldunn- ar. Afi Sonni var fremur hógvær persónuleiki. Hann var einn af þeim sem gerðu meira af því að hlusta en tala. Hann lét lítið uppi um eigin tilfinningar eins og títt er um menn af hans kynslóð. Afi var þó ákaflega barngóður og vissi fátt skemmtilegra en að kjá framan í lítil börn. Það hentaði honum alveg eins vel að sýsla með börnunum og að halda uppi samræðum við hina fullorðnu. Þetta mátti oft sjá í fjölmennari fjölskyldusamkomum þar sem afi lét sig gjarnan hverfa hægt og hljótt frá borðum hinna full- orðnu og settist með börnum á öllum aldri við sjónvarpið. Og allir sammála um að stilla hátt. Afi hafði mikinn áhuga á golfi. Af okkur systkinum náði hann að smita bræðurna, og þá helst nafna sinn, af golfbakteríunni. Afi var kappsamur í golfinu. Hann átti alltaf flottar græjur og tók þátt í mörgum mótum. Skor- ið skipti hann máli eins og ber- lega mátti sjá þegar hann, aldr- aður maðurinn, svaraði aðspurður hvernig hann stæði í íþróttinni gagnvart dóttursonum sínum: „Ég hef þá nú ennþá.“ Þegar afi fór að verða lélegur til gangs fjárfesti hann í „skutl- unni“, litlu farartæki sem bar hann og golfsettið um golfvöll- inn. Skutlan var ekki ýkja stöð- ugt farartæki og kom á daginn að hún þoldi illa hliðarhalla. Þrátt fyrir einstaka byltu stund- aði hann golfið fram á síðasta aldursár. Afi var einnig mikill veiði- maður og var gaman að fara með honum til rjúpnaveiða. Hann þekkti landið ofan Húsavíkur mjög vel og vissi upp á hár hvar helst mætti finna fugl. Ekki skemmdi að hann var alltaf með svo gott nesti. Líklega kom amma eitthvað að þeim málum. Afi átti ekki jeppa í seinni tíð en komst samt ótrúlegar leiðir á fólksbílnum sínum. Fyrir kom að skipta þurfti um dekk eða hengja upp púströr í þessum ferðum. Afi hafði gaman af að gefa og átti það til að koma færandi hendi með óvæntar veglegar gjafir, ekki síst fallega smíðis- gripi sem hann hafði tekið upp á hjá sjálfum sér að dunda við. Okkur systkinum var alla tíð ljóst að hann fylgdist vel með sínu fólki og lét sig það varða. Sá eiginleiki fylgdi honum fram á síðustu stund. Afi var okkur alltaf góður og fylgdist vel með okkur og fjöl- skyldum okkar. Fyrir hlédrægan mann eins og afa Sonna hefur það án vafa komið sér vel að hafa ömmu Dísu sér við hlið, með öllu sínu hlýja fasi og félagslyndi. Saman hafa þau verið ákaflega verðmætur þáttur í lífi okkar systkina og fjölskyldna okkar. Nú verður tómlegra á Túngöt- unni. Það má sennilega lækka í sjónvarpinu. Hvíldu í friði, elsku afi, og hafðu þakkir fyrir allt og allt. Herdís (Dísa), Brynjúlfur (Billi), Karl Hannes (Sonni) og fjölskyldur. Mágur minn Karl Hannes er látinn. Andlát hans bar brátt að þó heilsan hafi verið fremur léleg undanfarin ár. Karl, eða Sonni eins og hann var alltaf kallaður, hefði orðið 88 ára 25. febrúar. Ég kynntist Sonna svipað og öðrum strákum á líku reki þegar ég var að alast upp á Húsavík en nánari kynni tókust svo við hann og fjölskyldu hans þegar hann kvæntist Her- dísi systur minni. Sonni var mjög myndarlegur á velli, frekar stór og karlmannlegur. Þegar hann hafði lokið gagnfræðaprófi á Húsavík þá voru það störf við sjóinn sem tóku við eins og hjá svo mörgum ungum drengjum. Sonni var alla tíð mikið tengdur sjónum og sjósókn eins og títt var um karlmenn í hans móð- urætt. Hann fór á vertíð, fór á síldveiðar og réri á trillu. En hann vildi í frekara nám og dreif sig í iðnskólann og í húsgagna- smíði. Það var svo hans starfs- vettvangur næstu árin að vinna við smíðar. En hann starfaði við margt fleira. Hann veitti for- stöðu síldarsöltun KÞ um tíma og nokkru seinna varð hann svo starfsmaður Kaupfélagsins í Járn- og glervörudeild, en svo nefndist sú deild er þjónaði hús- byggjendum. Þar kom þekking hans sem smiðs sér vel. Þau Herdís byggðu sér hús við Túngötu, hús númer 10 og bjuggu síðan þar allan sinn bú- skap. Þau áttu myndarlegt og hlýlegt heimili. Þau studdu mjög að því að börn þeirra öfluðu sér góðrar menntunar. Sonni var duglegur að sjá fyrir heimilinu og rasaði ekki um ráð fram í við- skiptum. Hann hafði ákveðnar skoðanir og ekki endilega tilbú- inn að gefa þær eftir ef svo bar undir. Hann var duglegur skotveiði- maður og margar rjúpurnar sendi hann okkur. Þá átti hann lengst af trillu í félagi með öðr- um og skrapp í svartfugl og fiskiróðra af og til. Það var oft gaman að því hvað hann vandaði sig þegar hann var að skipta um bíl. Þar var allt skoðað í krók og kring og miklar bollalengingar. Sonni hafði gaman af tónlist og söng í karlakór, kirkjukór og nú síðast í kór eldri borgara. Þá las hann mikið, einkum seinni ár- in og eyddi drjúgum tíma við að horfa á sjónvarpið, enda forvit- inn um það sem var að gerast bæði hér heima og erlendis. Eftir að við Ingibjörg fluttum til Reykjavíkur þótti okkur alltaf ósköp notalegt að heimsækja Dísu og Sonna. Þar var alltaf svo góður íslenskur matur og Sonni passaði upp á að ekkert skorti. Þeim fækkar nú óðum sem maður ólst upp með, en það er lífsins gangur. Gott er þegar fólk sem komið er á háan aldur fær að kveðja áður en ellin fer að hrjá það mikið þó svo snöggur viðskilnaður sé alltaf erfiður. Sonni lést af heilablóðfalli og var búinn að kveðja innan tveggja sólarhringa. Með honum er genginn sannur Húsvíkingur og góður drengur. Elsku systir. Við Ingibjörg sendum þér, börnum ykkar og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur svo og Helen mágkonu þinni. Okkur þykir leitt að geta ekki fylgt Sonna til graf- ar, en við verðum þá erlendis. Kári Arnórsson. Karl Hannes Hannesson Veist þú hvert eignir þínar renna eftir þinn dag? Kynntu þér málið á heimasíðu okkar, www.útför.is. Þar getur þú m.a. sett inn þínar forsendur í reiknivél. Við aðstoðum þig við gerð erfðaskrár, kaupmála og við dánarbússkipti. Katla Þorsteinsdóttir, lögfræðingur Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, UNNUR INGIBJÖRG HELGADÓTTIR, síðast til heimilis að Hjallabraut 33, Hafnarfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð föstudaginn 26. janúar. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 6. febrúar klukkan 13.00. Haukur Sigtryggsson Gréta Björg Hafsteinsdóttir Ómar Már Gunnarsson Ingibergur H. Hafsteinsson Albína Jóhannesdóttir Regína Kristín Hauksdóttir Harpa Hauksdóttir Heiðrún Hauksdóttir Helgi Einarsson ömmu- og langömmubörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN HJARTARDÓTTIR Köldukinn, Dalasýslu, Hraunbæ 90, Reykjavík, lést á Hjartadeild Landspítalans þriðjudaginn 30. janúar. Jarðarförin fer fram frá Árbæjarkirkju föstudaginn 16. febrúar klukkan 13. Árni Sigurðsson Selma Magnúsdóttir Hjörtur E. Sigurðsson Ingunn Sigurðardóttir Jón Axel Brynleifsson Jón Óli Sigurðsson Kristín Árnadóttir barnabörn og barnabarnabörn. ✝ DóraBergþórs- dóttir fæddist 30. júní 1925 að Öl- valdsstöðum í Borgarhreppi. Hún bjó síðustu árin í Miðleiti 7, Reykjavík, en lést á hjúkrunarheim- ilinu Sóltúni þann 8. janúar 2018. Foreldrar henn- ar voru Bergþór Bergþórsson, f. 13. maí 1893, d. 17. nóv- ember 1967, bóndi á Ölvalds- stöðum og síðar Þórustöðum í Ölfusi, og kona hans Ásgerð- ur Jósefina Þorvarðardóttir Skjaldberg, húsfreyja, f. 31. maí 1894, d. 19. janúar 1993. Dóra var þriðja í röð sex systkina. Þau voru Nói Skjaldberg, f. 7. október 1920, d. 19. september 1963, Kristinn Bergþórsson, f. 6. júlí 1922, d. 29. maí 1983, Halldís Bergþórsdóttir, f. 23. september 1926, d. 6. október 2017, Halla Berg- þórsdóttir, f. 11. nóvember 1928 og Bergþór Berg- þórsson, f. 23. júlí 1940, d. 11. ágúst 2001. Dóra giftist Konráð Axelssyni, kaupmanni, f. 1923, d. 2009, þau skildu. Börn þeirra eru Hall- fríður, f. 1944, gift Axel Gíslasyni sem lést 9. desem- ber 2017, og Bergþór, f. 1947, kvæntur Hildi Björgu Hall- dórsdóttur. Dóra giftist þann 16. april 1956 Sverri Erlendssyni, skip- stjóra, f. 1925, d. 1991. Þeirra börn eru Anna Sverrisdóttir, f. 1956, og Ásgerður, f. 1962, gift Steini Auðuni Jónssyni. Barnabörn Dóru eru sjö og barnabarnabörn níu. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Dóra móðursystir mín sofn- aði inn í eilífðina 8. janúar. Að leiðarlokum langar mig til að þakka henni fyrir samfylgdina og allt sem hún hefur gert fyrir mig og mína. Dóra frænka var stórlund- uð og örlát, eðlisgreind og fróðleiksfús. Hún hefði svo sannarlega notið þess að ganga menntaveginn. Það kann að þykja framandi að kynslóðin sem nú er óðum að kveðja, kynslóðin sem við, sem yngri erum, eigum allt að þakka, fékk ekki þau tækifæri sem þykja meira en sjálfsögð og sjálfgefin í dag. En þó Dóra frænka gengi ekki hinn hefðbundna menntaveg var hún menntuð kona, vel lesin og ekki bara á íslensku, danskan og enskan voru henni töm, hún var geysilega vel að sér í ættfræði og hafði ein- lægan áhuga á fólki, listræn var hún í höndunum, snilld- arkokkur og gæðabakari. Svo var hún golfari góður. Henni var mikið gefið og hún nýtti það vel. Líf hennar var far- sælt. Dóra frænka hefur alltaf verið hluti af lífi mínu. Hún, mamma og Halla, systurnar þrjár, voru einkar samrýndar og nánar alla tíð og spjölluðu saman daglega. Það er dálítið táknrænt að Dóra skuli kveðja aðeins þrem mánuðum á eftir mömmu. Þær geta því tekið upp þráðinn að nýju, spjallað um heima og geima, eins og oft var haft á orði. Að sama skapi er erfitt fyrir Höllu frænku að sjá á eftir systrum sínum með svo stuttu millibili. Dóra frænka sýndi mér ávallt mikinn kærleik og djúpa væntumþykju. Ég mun ætíð minnast hennar með hlýju og ég kveð hana með sorg og söknuð í hjarta. Við Skúli og Halldís sendum öllum afkom- endum hennar okkar einlæg- ustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Dóru frænku. Jórunn. Dóra Bergþórsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.