Morgunblaðið - 03.02.2018, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 03.02.2018, Blaðsíða 13
Í umfjöllun BBC segir að Ingv- ar hafi verið frumkvöðull og einn af merkustu atvinnurekendum 20. aldarinnar. Hann hafi verið harð- duglegur og byggt upp einstakt við- skiptamódel. Hann hafi alla tíð staðið við grunngildi sín, harðduglegur, þrjóskur. Það sem Ingvar hefur ver- ið gagnrýndur fyrir eru tilraunir IKEA til þess að komast undan skattgreiðslum og stuðningur hans við æskulýðshreyfingu nasista. Ingv- ar heillaðist af nasisma í gegnum þýska ömmu sína sem var mikill aðdáandi Hitlers. Ingvar sagði síðar það hefðu verið hans stærstu mistök að fylgja nasistum að máli. Hann baðst síðar afsökunar og óskaði fyr- irgefningar á gjörðum sínum. Sprittkerti mest selda varan Þórarinn Ævarsson, fram- kvæmdastjóri IKEA á Íslandi, segir að Ingvar hafi viljað gera líf við- skiptavina sinna auðveldara. Hann gerði þá kröfu að bistró yrði í öllum verslunum IKEA þar sem hægt væri að kaupa ódýran sænskan mat og mat heimamanna. Með þessu fengju viðskiptavinirnir góða og ódýra þjón- ustu, sérstaklega þeir sem hefðu lítið á milli handanna. Einnig yrði þetta til þess að laða fólk að versluninni og auka þannig sölu. Þórarinn segir IKEA á Íslandi fylgja hug- myndafræði Ingvars í versluninni og á veitingastaðnum. „Í stað þess að selja dýrari og færri lambaskanka á veitinga- staðnum viljum við selja skank- ann undir 1.000 kr. og selja þess í stað 100 skammta á dag. Slíkt skapar vellíðan og ánægju og færir IKEA góðvild.“ Þórarinn þekkti Ingvar ekki persónu- lega en sat með honum á fundum. Hann segir Ingvar hafa hundskammað versl- unarstjórana ef honum fannst þeir ekki hafa nægan kjark til þess að lækka vöruverð. „Ingvar var mjög sérstakur maður, laus við öll látalæti og talaði tæpitungulaust. Hann hafði mikinn sannfæringarkraft og fylgdi sannfæringu sinni. Það var ekki til þess að afla sér í vinsælda sem hann gerði hlutina,“ segir Þórarinn og bætir við að Ingvar hafi verið hlýr maður og verið þekktur fyrir það að taka utan um bláókunnugt fólk til þess að sýna því hlýju. „Ingvar vildi ekki setja upp IKEA-verslanir þar sem íbúar voru færri en ein og hálf milljón. En eitt- hvað sá Ingvar í Pálma í Hagkaupum og veitti honum fyrstum einkaleyfi 1981 til þess að opna IKEA-verslun sem ekki var í eigu IKEA og ein af þeim fyrstu sem voru opnaðar utan Svíþjóðar. Pálmi opnaði IKEA í einu horni Hagkaupa og nú erum við í 26.000 m2 húsnæði í Kauptúni í Garðabæ,“ segir Þórarinn. Hann segir að aðrar IKEA- verslanir sem ekki eru í eigu IKEA hafi verið opnaðar á spænsku eyj- unum Kanarí, Ibísa og Majorka. Sama má segja um vesturströnd Ástralíu. Að sögn Þórarins hef- ur IKEA aldrei farið á markað og er eingöngu í eigu fjölskyldu Ingvars. „Hann vildi hafa fulla stjórn á rekstrinum og sagði hluthafa skorta langtímasýn. Þeir hugs- uðu eingöngu um arð hlutabréfa.“ Þórarinn tekur Rússland sem dæmi um framsýni Ingv- ars. „Þegar IKEA fjárfesti í Rúss- landi var mark- aðurinn mjög erfiður en Ingvar horfði 10 til 15 ár fram í tímann og náði ótrúlegum árangri þar. Það sama gerði hann í Kína,“ segir Þór- arinn og tekur annað dæmi. „Það er langt síðan IKEA hætti að selja glóðarperur. Við hættum því áður en þær voru bannaðar með lög- um. Við urðum fyrir verulegu sölu- tapi á þeim tíma. Við tókum upp LED-perur í staðinn langt á undan öðrum og vorum búin að koma okkur vel fyrir á markaðnum þegar aðrir tóku við sér.“ IKEA á Íslandi fylgir ákveðinni formúlu sem fylgir öllum IKEA- búðum hvar sem er í heiminum. Teljós og pítsudeig söluhæst Þórarinn segir að pítsudeig sem framleitt er í bakaríi IKEA sé sölu- hæsta varan á Íslandi en teljós séu söluhæsta IKEA-varan hér á landi. Þar á eftir komi BILLY-bókaskápar og ferköntuðu LACK-borðin sem komu í sölu 1992. „LACK-borðin sem kostuðu um 4.600 íslenskar krónur að mig minnir árið 1992 kosta nú 950 kr. Það tekur verkamanninn hálftíma í dag að vinna sér fyrir borðinu en tók hann um 15 klst. 1992,“ segir Þórarinn. Hann segir að KLIPPAN- sófinn og MALM-kommóðurnar hafi mokast út í gegnum tíðina. Þórarinn segir að MALM-línan hafi yfirhöndina þegar kemur að sölu enda séu bókaskápar að hverfa. Þórarinn er bjartsýnn á fram- tíðina og segir að ekki sé búist við stórkostlegum breytingum á rekstri IKEA eftir fráfall Ingvars. „Eigendurnir vilja halda áfram á þeirri braut sem mörkuð hefur verið,“ segir Þórarinn og bætir við að starfsmenn IKEA haldi áfram að draga lærdóm af því sem hinn merki- legi maður og fyrirmynd Ingvar Kamprad hafi kennt þeim. Sílækkandi LACK-borðin vinsælu hafa verið í sölu frá 1992. Borð sem tók 15 tíma að vinna fyrir 1992 tekur nú aðeins hálftíma að vinna fyrir í dag. Vinsælt MALM-kommóðurnar frá IKEA eru vinsælar og prýða fjölmörg heimili um allan heim. Þær eru meðal söluhæstu vara IKEA á Íslandi. Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2018  Stofnað 1943 af Ingvar Kamprad  Ingvar Kamprad var 8. ríkasti maður heims.  Eignir samkvæmt Business Insider UK $48,1 milljarður  40 ár í skattalegri útlegð frá Svíþjóð  403 IKEA-verslanir í 51 landi  5 lönd bætast við árið 2018.  Starfsmenn IKEA eru 194.000.  IKEA notar 1% alls timburs í heiminum.  10% barna í Evrópu eru getin í IKEA-rúmi. Stórveldi Ingvars Kamprad STAÐREYNDIR UM IKEA LAGERHREINSUN Á VÖLDUM VÖRUM Í RAFVÖRUMARKAÐNUM við Fellsmúla | 108 Reykjavík | OPIÐ ALLA DAGA 50% MÚRVÖRUR AFSLÁTTUR 50% MÁLNINGAVÖRUR AFSLÁTTUR 50% HANDVERKFÆRI AFSLÁTTUR 50% VERKFÆRATÖSKUR AFSLÁTTUR Flestir, börn sem fullorðnir, hafa gaman af að taka í spil endrum og sinnum. Borðspil njóta þó alla jafna meiri vinsælda hjá krökkunum, þótt fullorðnir séu líka komnir á bragðið og bíði ekki síður en krakk- arnir spenntir eftir nýjum og spennandi útgáfum. Sannkallað spilastuð verður á fjölskyldustund í Bókasafni Kópavogs, Lindasafni, Núpalind 7, milli kl. 11.30 og 13.30 í dag, laugardaginn, 3. febrúar, en þá koma grallararnir í Spilavinum með spilin sín og kenna skemmtilegustu borðspilin og spila við unga sem aldna. Því ekki að kasta teningnum? Viðburðurinn er liður í Fjölskyldustundum Menn- ingarhúsanna í Kópavogi sem fara fram á hverjum laugardegi. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Endilega … … kastið teningnum í Lindasafni Lúdó Gamla góða lúdóið stendur alltaf fyrir sínu. Ljósmynd/Wikipedia

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.