Morgunblaðið - 03.02.2018, Síða 14

Morgunblaðið - 03.02.2018, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2018 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Þorsteinn R. Hermannsson, sam- göngustjóri Reykjavíkur, segir að- spurður „algjört lágmark“ að 1. áfangi borgarlínu verði 10 km. „Það væri miklu betra að byrja á lengri kafla,“ segir hann. Tilefnið er að Þorsteinn ræddi um borgarlínuna á hverfafundi á Kjar- valsstöðum í fyrrakvöld. Upplýsti hann m.a. að rætt væri um bílastæðahús á Ártúnshöfða fyrir farþega borgarlínu. „Að þar verði mögu- lega bílastæðahús þannig að hægt sé að koma og leggja og fara með borgarlínunni niður í bæ … Það er alltaf gert ráð fyrir að borgarlínan fari um nýja brú samsíða Ártúns- brekkunni sem liggur töluvert norðar,“ sagði Þorsteinn í svari við fyrirspurn fundarmanns úr sal. Til upprifjunar hefur Eyjólfur Árni Rafnsson, ráðgjafi Sambands sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, áætlað að hver kílómetri af borgar- línu kosti 1,1 til 1,15 milljarða. Höfðaleiðin lengra komin Þorsteinn og Dagur B. Eggerts- son borgarstjóri ræddu jafnframt um að setja Miklubraut í stokk frá Kringlumýrarbraut að Snorrabraut. Þorsteinn segir aðspurður ekki búið að sundurliða þá kostnaðar- áætlun að stokkurinn muni kosta 21 milljarð. Grafa þurfi 30-35 metra skurð vegna framkvæmdarinnar og grafa 8-9 metra ofan í jörðina. „Svo eru steyptar hliðar og þak ofan á og svo er byggður vegur inn í. Þetta er stóri hlutinn af kostnaðinum.“ Áætlað sé að stokkurinn verði 1.750 metrar. Meðfram honum geti risið 1.400 íbúðir og 60 þús. fermetr- ar atvinnuhúsnæðis miðað við frum- tillögur arkitekta um uppbyggingu. Hann segir aðspurður verkefnið á hugmyndastigi. Það sé hvorki komið á skipulag né fjárhagsáætlun. Það taki minnst tvö ár að hanna stokkinn og þrjú ár að byggja hann. Við fram- kvæmdina komi sér vel að nóg rými sé til að gera hjáleiðir við Miklubraut meðan stokkurinn er grafinn. „Á löngum köflum er nóg pláss til að veita umferðinni til hliðar. Þar sem þröngt er verður það erfiðara,“ segir Þorsteinn. Hann segir ekki hafa verið skoðað hver innviðagjöld verði á húsnæði á svonefndum veg- helgunarsvæðum sem losna ef Miklabraut fer í stokk. Spurður hvort 1. áfangi borgarlínu verði tengdur fyrirhuguðum stokki sagði Þorsteinn að leiðin um Suður- landsbraut að fyrirhuguðu íbúa- hverfi á Ártúnshöfða væri lengra komin í þróun. Borgarlínan muni á þeirri leið fara fram hjá fyrirhuguð- um íbúahverfum í Vogabyggð og um Ártúnshöfða. Leið 1 sé líka í skoðun. Byggi þar sem notkun er mest „Það er mikið rætt um það í fræð- unum að hefja uppbyggingu svona kerfis þar sem strætósamgöngur eru vinsælar. Leið 1, frá Hafnarfirði í miðbæ Reykjavíkur, er vinsælasta leiðin í dag. Hún liggur í gegnum Garðabæ og Kópavog. Farþegum á þeirri leið hefur fjölgað mikið. Tíðnin hefur verið aukin í 10 mínútur en samt eru vagnar fullir á annatímum. Það er ekki ólíklegt að menn horfi til þess [varðandi borgarlínuna].“ Ferðavenjukönnun Gallup í haust bendir til að hlutfall strætó af öllum ferðum á höfuðborgarsvæðinu sé um 4%. Það er sama hlutfall og í könn- unum árin 2002, 2011 og 2014. Þorsteinn segir aðspurður ýmsar leiðir færar til að hækka hlutfallið. „Það þarf að halda áfram að byggja forgang [fyrir strætó], betri biðstöðvar og auka tíðni á öllum leið- um. Tíðnin og þjónustan skipta mjög miklu máli. Við getum aðskilið þetta í tvennt. Það eru annars vegar innvið- irnir, þ.e.a.s. biðstöðvarnar, forgang- urinn og allt það sem við erum að fjárfesta töluvert í. Hins vegar er það þjónustan. Það er verið að lengja þjónustutímann fram yfir miðnætti til að fólk í vaktavinnu geti nýtt sér strætó o.s.frv. Það er líka verið að fara með leið 1 á tíu mínútna tíðni og 6 leið líka. Þessar aðgerðir gera strætó að betri valkosti,“ segir Þor- steinn og vísar til þeirrar kenningar að hærra þjónustustig muni fjölga farþegum. „Það þarf margt að leggj- ast á eitt. Þetta er erfitt verkefni.“ Erfiðara að spá fram í tímann Haft var eftir Hreini Haraldssyni vegamálastjóra í Morgunblaðinu um daginn að aukin umferð á höfuðborg- arsvæðinu yki viðhaldsþörf vega. Þorsteinn segir aðspurður að vegna aukinnar umferðar og hraðrar íbúafjölgunar sé orðið erfiðara en ella að spá fyrir um þróun umferðar á höfuðborgarsvæðinu. Íbúum svæðisins hafi fjölgað um 7% frá 2011 en bílaumferðin aukist 30%. „Það eru tengsl milli hagvaxtar og umferðar. Ferðavenjukannanir benda ekki til að fólk sé að fara fleiri ferðir. En bílum á heimili er að fjölga og svo bætist við atvinnuumferðin. Það skapast gríðarleg atvinnu- umferð í kringum ferðaþjónustuna og aðrar greinar. Bílaleigubílar eru eitt. Svo er verið að keyra margt fólk og mikið af vörum milli staða. Þetta leggst á eitt. Það er verið að byggja gríðarlega mikið. Öll sú atvinnu- umferð bætist við einkaumferðina.“ Þorsteinn bendir á að íbúar höfuð- borgarsvæðisins fari 900 þús. ferðir á dag. „Það er mjög mikið. Ferða- venjukannanir benda til að hver íbúi fari að jafnaði 4,1 ferð á dag. Það er meira en í öðrum löndum. Við erum hreyfanlegri en aðrar þjóðir. Það má kannski segja að það sé af því að samgöngur eru svo góðar. Það er svo auðvelt að komast milli staða.“ Umrædd könnun Gallup bendir til að hlutfall hjólreiða af öllum ferðum hafi aukist úr 4% í 6% milli kannana 2014 og 2017. Þorsteinn rekur þessa aukningu til bættra innviða, hjóla- stíga og hjólastæða, og breytts hugarfars. Fólk sjái ávinninginn. Bílastæðahús fyrir borgarlínu  Samgöngustjóri Reykjavíkur segir hugmyndir um bílastæðahús á Ártúnshöfða vegna borgarlínu  Farþegar geti skilið bílinn eftir  Um 1.400 íbúðir geti risið við Miklubraut verði hún sett í stokk Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir áherslu borgarinnar á fjölgun hagkvæmra leiguíbúða ætlað að halda niðri leiguverði í borginni. Þetta kom fram í svörum Dags við fyrirspurnum íbúa á hverfafundi á Kjarvalsstöðum í fyrrakvöld. „Varðandi kaup á íbúðum er það rétt að það eru sérstaklega tvö stór leigufélög sem hafa verið að kaupa á nýjum reitum … Ráð okkar við þessu er að reyna að vinna með byggingariðnaðinum og verktökum í því að auka eftirspurnina eins mikið og við getum. Þannig að enginn verði ráðandi á þessum markaði og vinna það þétt með félögum, sem eru að koma inn með leiguíbúðir [og] eru ekki hagnaðardrifin, að það muni tempra verðið jafnvel hjá þessum hagnaðardrifnu félögum.“ Betri kostur en Sundabraut Þá var spurt um Sundabraut. „Við erum búin að rýna þessa framkvæmd eins og margar aðrar í samanburði við t.d. borgarlínuna. Sundabraut hefur jákvæð áhrif á umferð á ákveðnum hluta norðausturhluta höfuðborgarsvæðisins en alls ekki jafn mikil og dramatísk og góð áhrif á allt umferðarflæði á höfuðborgar- svæðinu og borgarlínan.“ Árbær fyrir neðan mörkin Þá svaraði Dagur því hvers vegna fyrirhuguð borgarlína myndi ekki fara í Árbæ í fyrsta áfanga. „Það er vegna þess að áfangaskipt- ingin er valin eftir því hvar er nægur farþegagrunnur til að standa undir svona afkastamiklum almennings- samgöngum. Árbær var fyrir neðan þau mörk. Þannig að við forgangsröð- uðum í þágu þéttari byggðar … Ef þú ætlar að vera áfram á bílnum átt þú að vera harðasti stuðningsmaður borgarlínu á öllu höfuðborgarsvæð- inu vegna þess að þú átt alveg gríðar- lega mikið undir því. Í fyrsta lagi að fólki detti ekki í hug að setja þessi 70 þúsund manns í útjaðar höfuðborgar- svæðisins og láta þau keppa um plássið á Miklubraut og Kringlu- mýrarbraut við þig og aðra sem vilja halda áfram að keyra um á bíl. Vegna þess að þá verður algjör sulta,“ sagði Dagur við spyrjanda og vísaði til spár um að íbúum svæðisins myndi fjölga um 70 þúsund til 2040. Leiguíbúðir haldi niðri leiguverði  Borgarstjóri ræddi húsnæðisstefnuna Dagur B. Eggertsson Kort: openstreetmap.org Myndir og heimildir: Kynningar- myndband Reykjavíkurborgar Háaleiti 3.019 íbúar Kringla/Leiti 3.208 íbúar Hlíðar 4.685 íbúar Norðurmýri/Holt 5.904 íbúarHringbraut Sn or ra br au t Bústaðavegur Kr in gl um ýr ar br au t Hugmyndir um að setja Miklu braut ina í stokk Miklabraut Stokkur milli Snorrabrautar og Kringlumýrarbrautar Áætlaður stofnkostnaður: 21 milljarður króna. Lengd: 1,75 km. Breidd skurðar við stokkagerð: 30-35 m. Dýpt stokks: 9 m. Umferð: 42.000 bílar á dag. Möguleg þéttingarsvæði Við Miklubraut: alls 200.000 fermetrar atvinnu- og íbúðarhúsnæðis. 1.400 íbúðir. Önnur þéttingarsvæði: Kringlan, Hlíðar- endi, Skeifan og RÚV-reitur: 4.500 íbúðir. Þorsteinn R. Hermannsson /////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.