Morgunblaðið - 03.02.2018, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2018
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík,
IMFR, stendur í dag fyrir árlegri ný-
sveinahátíð í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Þar fá 27 nýsvein-
ar, sem hafa náð
afburðaárangri á
sveinsprófi, viður-
kenningar en þeir
koma úr 18 iðn-
greinum. Rætt er
við þrjá þeirra hér
að neðan.
Einnig verður
heiðursiðnaðar-
maður ársins 2017
heiðraður, sem er
Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto-
Alcan í Straumsvík.
Þetta er tólfta verðlaunahátíðin
sem IMFR stendur fyrir en félagið
var stofnað 3. febrúar 1867, eða fyrir
151 ári. Iðnaðarmannafélagið er
þriðja elsta starfandi félag á landinu
en tilgangur þess er að efla menningu
og menntun iðnaðarmanna og styrkja
stofnanir sem starfa í þágu þeirra.
Elsa Haraldsdóttir, hárgreiðslu-
meistari hjá Salon VEH, er formaður
IMFR. Hún segir félagið leggja mik-
inn metnað í verðlaunahátíðina.
Mikilvægt sé að nýsveinar, sem hafa
náð frábærum árangri á sveinsprófi,
fái viðurkenningar og ekki síður
hvatningu til að gera enn betur og
halda námi sínu áfram.
„Þessir krakkar hafa skilað af-
burða góðu prófi, sem segir manni að
metnaðurinn fyrir fagi þeirra er alltaf
til staðar. Ef við getum hvatt þau til
frekari menntunar erum við að bæta
þjóðfélagið. Viðurkenningin er fyrsta
skrefið á þeirra ferli,“ segir Elsa og
bendir á að sú iðngrein sem fólk velji
sér 18 eða 19 ára þurfi ekki endilega
að vera eina fagið sem viðkomandi
lærir og starfar við. Algengt sé orðið
að nemendur bæti við sig greinum og
fari til dæmis úr húsasmíði yfir í
verkfræði.
Elsa segir áhuga á iðnnámi oft fara
eftir greinum og hvernig straumarnir
séu hverju sinni í þjóðfélaginu. Nú sé
uppgangur í ferðaþjónustu og til
dæmis mikil aðsókn í matreiðslunám.
Dregið hafi úr eftirspurn í ýmsar aðr-
ar iðngreinar, til dæmis í hárgreiðslu.
„Þetta fer dálítið eftir fyrirtækj-
unum á markaðnum og hvar þörfin
er. Íslenskur iðnaður hefur að mörgu
leytið staðið sig mjög vel og verk-
mennta- og tækniskólar landsins hafa
staðið sig frábærlega, verð ég að
segja. Auðvitað má alltaf gera betur
og nauðsynlegt fyrir fyrirtækin að að-
lagast aðstæðum hverju sinni,“ segir
Elsa og bendir á að ekki séu til
menntaðir íslenskir iðnaðarmenn í
allar þær framkvæmdir sem standi
yfir. Ísland sé lítið land „en samt
tekst okkur að halda stórkostlegu
þjóðfélagi gangandi“.
Elsa segir Rannveigu Rist vel að
heiðrinum komna. Hún sé einmitt góð
fyrirmynd þeirra sem vilji bæta við
sig fagi. Rannveig er lærður vélvirki
og fór í það nám að loknu stúdents-
prófi, áður en hún bætti við sig verk-
fræðinni.
Metnaðurinn er alltaf til staðar
Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík afhendir 27 nýsveinum viðurkenningar í dag Koma úr 18 iðn-
greinum Rannveig Rist er heiðursiðnaðarmaður ársins Nýsveinar hvattir til frekari menntunar
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Iðnaður Verðlaun verða veitt í Ráðhúsinu í dag þeim nýsveinum sem náðu
afburða árangri á sveinsprófi, alls 27 manns úr 18 iðngreinum.
Elsa
Haraldsdóttir
„Ég rak augun í auglýsingu um kvöldnámskeið í silfursmíði,
fannst mig vanta tilbreytingu frá mastersnáminu og ákvað að
slá til,“ segir Sunna Björg Reynisdóttir, sem lauk sveinsprófi í
gull- og silfursmíði frá Tækniskóla Íslands síðasta sumar.
Meistarar hennar voru Þorbergur Halldórsson, gullsmíða-
meistari í Reykjavík, og Andy Kuhlmann, gull- og silfur-
smíðameistari í Stokkhólmi.
Sunna lærði iðnaðarverkfræði áður en hún fór í gullsmíðina
og starfar sem verkefnastjóri á orkusviði verkfræðistofunnar
Eflu. Hún hóf störf hjá Eflu 2012 en fór ári síðar í starfsnám í
gull- og silfursmíði til Stokkhólms. Þar var hún eitt ár, kom aft-
ur heim í Tækniskólann og lauk starfsnáminu meðfram vinnu
sinni hjá Eflu.
„Til að byrja með stunda ég gullsmíðina með verkfræðistörf-
unum, hvað gerist síðar á eftir að koma í ljós. Ég starfa á orku-
sviði og eðli verkefnanna er að þau eru almennt lengi í ferli. Þá
er gaman að geta gripið í gullsmíðina og séð hugmyndir verða
að veruleika á nokkrum dögum í stað nokkurra ára,“ segir
Sunna Björg.
Morgunblaðið/RAX
Gullsmíði Sunna Björg Reynisdóttir er einnig verkfræðingur.
Sinnir gullsmíði með
verkfræðistörfunum
„Það var eiginlega tilviljun sem réð því að ég fór í blikksmíðina.
Ég hafði verið að spá í húsasmíði en blikksmíðin varð ofan á.
Það skipti miklu máli að ég hafði góðan yfirmann og meistara
sem hvatti mig áfram,“ segir Jón Ingi Grímsson, blikksmiður
hjá ÞH-blikk á Selfossi, sem lauk sveinsprófi í blikksmíði frá
Borgarholtsskóla síðastliðið sumar. Þröstur Hafsteinsson,
blikksmíðameistari og eigandi ÞH-blikk, bauð Jóni Inga samn-
ing skömmu eftir að hann hóf þar störf.
Jóni Ingi er Bolvíkingur að uppruna en hefur búið á Selfossi
undanfarin ár. „Það má kalla mig vestfirska Selfyssinginn,“
sagði Jón Ingi, léttur í bragði, í samtali við Morgunblaðið í gær.
Hann var þá að ljúka störfum í Vík í Mýrdal við að klæða Víkur-
skála. „Það er alveg brjálað að gera hjá okkur, maður sér bara
dagsljósið í vinnunni,“ segir Jón Ingi, en ÞH-blikk er með verk-
efni allt frá Reykjavík og austur að Skaftafelli. Níu manns
starfa hjá fyrirtækinu, sem sinnir einkum uppsetningu á loft-
ræstikerfum auk smíði á klæðningum, áfellum og fleira.
Aðspurður segist Jón Ingi ekki útiloka frekara nám í iðn-
greinum í framtíðinni, nú einbeiti hann sér að blikksmíðinni.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Blikksmíði Jón Ingi Grímsson að störfum í Vík í Mýrdal.
Brjálað að gera
í blikksmíðinni
Jóhanna Kristín Andrésdóttir, sem jafnan er kölluð Hanna, er
meðal þeirra nýsveina sem verða verðlaunaðir í Ráðhúsinu í
dag. Hún útskrifaðist í ljósmyndun frá Tækniskólanum, eftir
að hafa verið í starfsnámi á Fréttablaðinu og síðar Morgun-
blaðinu. Áður en Hanna fór í Tækniskólann hafði hún einnig
stundað ljósmyndanám í Ungverjalandi.
Meistari hennar er Einar Falur Ingólfson, blaðamaður og
ljósmyndari á Morgunblaðinu, en annars segist Hanna hafa
notið góðrar handleiðslu allra „reynsluboltanna“ á þessum
blöðum. Þetta hafi verið skemmtilegur og lærdómsríkur tími.
„Ég hef haft áhuga á ljósmyndun alveg síðan ég var krakki.
Pabbi hefur hvatt mig áfram en hann er áhugaljósmyndari og
tekur mikið af myndum, á milli þess sem hann vinnur sem
verkfræðingur,“ segir Hanna.
Hún er ljósmyndari í lausamennsku um þessar mundir og
segist hafa nóg að gera. Dramurinn er þó að komast í fast
starf á Morgunblaðinu, en þar hefur hún tekið að sér verkefni
í lausamennsku, auk þess að taka myndir fyrir hina og þessa
aðila; fyrirtæki, fjölmiðla og einstaklinga.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ljósmyndun Hanna Andrésdóttir fær verðlaun í dag.
Draumurinn að kom-
ast að á Mogganum
JÓN BERGSSON EHF
Kletthálsi 15 | 110 Reykjavík | Sími 588 8881 | www.jonbergsson.is | jon@jonbergsson.is
GARÐSKÁLAR Á HJÓLUM
Hentar þetta þínum garði, svölum,
rekstri eða sumarbústað?