Morgunblaðið - 03.02.2018, Side 26

Morgunblaðið - 03.02.2018, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Umræðan umskipandómara við Landsrétt er með miklum ólíkindum. Þar er öllu snúið á haus og sanngirni látin lönd og leið, en tækifæris- mennskan leidd í öndvegi. Sigríður Andersen dóms- málaráðherra hefur verið dæmd fyrir að fara ekki eftir hæfis- mati sérstakrar nefndar um um- sækjendur um störf dómara í Landsrétti. Nefndin taldi 15 hæfa til starfans, jafn marga og átti að skipa. Ráðherrann fékk því ekkert svigrúm frá nefnd- inni. Samstarfsflokkur í stjórninni sem þá sat gerði ráðherranum grein fyrir því að listi nefndar- innar yrði aldrei samþykktur vegna þess að þar væri mælt með 10 körlum og fimm konum. „Það vorum við sem rákum hana til baka vegna þess að við hefð- um aldrei hleypt listanum í gegn,“ sagði Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Við- reisnar, á opnum fundi þing- flokksins í fyrrasumar. Eins og Sigríður sagði á opn- um fundi stjórnskipunar- og eft- irlitsnefndar Alþingis í fyrradag var hún tilneydd til að breyta listanum. Samtöl hennar við for- menn flokkanna á þingi hefðu leitt í ljós að listinn myndi ekki fara óbreyttur í gegnum þingið. Sigríður gerði breytingar á listanum. Þótt ekki væru þær studdar rökum um kynja- hlutföll breyttust þau þannig að á list- anum voru sjö kon- ur og átta karlar. Nú er gerð hörð hríð að ráð- herranum fyrir að hafa ekki kyngt lista nefndarinnar. Þátt í þeirri atlögu taka þingmenn, sem á sínum tíma sögðu ráð- herranum að listinn færi aldrei óbreyttur í gegn. Þessir þing- menn hafa ekki fyrir því að leyfa ráðherranum að njóta sann- mælis og nefna sinn þátt í að knýja fram breytingar á listan- um. Staðreynd málsins er sú að aðferðafræðin við að skipa í embætti dómara er meingölluð. Notuð var reikniformúla til að bera umsækjendur saman með nákvæmni upp á allt að þrjá aukastafi og þurfti ekki að skeika nema broti milli þess sem telst hæfur og óhæfur. Spyrja má hvort þessi vinnu- brögð gefi tilefni til skaðabóta- kröfu af hálfu þeirra sem eftir sátu. Ráðherrann var hins vegar settur í svipaða stöðu og rak- arinn, sem rakar alla nema þá, sem raka sig sjálfir, þegar spurt var: Hver rakar rakarann? Hún mátti greinilega hvorki breyta listanum, né leggja hann fram óbreyttan. Hvað mátti hún þá gera? Hvorki mátti breyta listanum, né leggja hann óbreyttan fram} Óbilgjörn umræða Dómsdagsspárhafa ýmsar fallið á umliðnum árum og oftar en ekki reynst ýkjur og óramál. Ísland átti að verða að Kúbu norðursins ef þeir, sem binda vildu landið á skuldaklafa, fengju ekki sínu framgengt. Bretar áttu að sogast ofan í niðurfall eymdar og örbirgðar samþykktu þeir útgöngu úr Evrópusambandinu. Grikkir voru varaðir við því á svipuðum dómsdagsnótum að hafna kröfum lánardrottna. Þegar þeir virtu hótanirnar að vettugi var niðurstaða þjóðar- atkvæðis virt að vettugi. Og hver var niðurstaðan? Gríska hagkerfið hefur skroppið saman um fjórðung frá 2008. Hlutfall skulda af landsframleiðslu er 179% og atvinnuleysi er 25%. Zoe Konstantopoulou var for- seti gríska þingsins 2015 til 2016. Hún sat á þingi fyrir flokk- inn Syriza, en sagði sig úr flokknum þegar hann samþykkti að gangast undir kröfur lánar- drottna Grikklands. Hún er stödd hér á landi og segir í við- tali, sem birtist í Morgunblaðinu í gær, að hún hafi viljað koma til Íslands vegna for- dæmisins héðan. „Ís- land er mjög mikil- vægt land fyrir Grikki, og mjög mikilvægt fyrir það fólk sem þjáist undir ólöglegri skuldabyrði. Ísland er þekkt fyrir að hafa hafnað ólöglegum og andstyggilegum skuldakröf- um og fyrir að hafa varðveitt lýðræði sitt og þjóð,“ segir hún. „Þetta gerðist ekki í Grikklandi, en þetta þarf að gerast þar ef það á að koma aftur á lýðræði og mannréttindum þjóðar minnar.“ Konstantopoulou segir að Evrópusambandið sé ekki leng- ur alþjóðasamtök jafnrétthárra ríkja: „Nei, það hefur breytt sér í alræðisríki sem þröngvar sér upp á grísku þjóðina.“ Málflutningurinn í aðdrag- anda þjóðaratkvæðisins hafi verið til að hræða Grikki frá því að nota lýðræðislegan rétt sinn og Grikkir verði að varpa „þess- um yfirboðurum“ af höndum sér, því „menn semja ekki við kúgara af þessu tagi“. Þetta eru sterk orð, en þau eru ekki úr lausu lofti gripin eins og staðan í Grikklandi sýnir. Fyrrverandi forseti gríska þingsins seg- ir ESB hafa breytt sér í alræðisríki} Grikkir í skrúfstykki Þ egar rætt var um fyrirhugaða skipun dómara við Landsrétt á Alþingi sl. vor var meðal annars fjallað um mikilvægi þess að hugað yrði að jafnrétti kynjanna við þá skipun. Við það tilefni tókst ég á við tvo þingmenn þá- verandi stjórnarandstöðu. Við vorum sammála um að eftir að ljóst var hverjir uppfylltu kröfur laga um almennt hæfi væri það skylda ráðherra að tryggja jafnt hlutfall kynjanna – óháð þeim lista sem hæfisnefnd legði fram. Mikill áhugi á hlutföllum kynjanna í mörgum æðstu embættum og störfum hefur markað um- ræðu liðinna áratuga. Hefur jafnvel verið uppi krafa um að leiða jöfn hlutföll kynjanna í lög og það verið gert að vissu marki með lögum um jafna stöðu kynjanna. Í vor gerði Sigríður Á. Andersen dómsmála- ráðherra tillögu til Alþingis um að Landsréttur yrði skipaður sjö konum og átta körlum. Jafnari verða hlut- föllin ekki í 15 manna dómi. Alþingi staðfesti tillögu ráð- herrans með góðum meirihluta greiddra atkvæða. Þing- menn höfðu allar forsendur til að staðfesta eða hafna tillögu ráðherrans og gera á þeim breytingar en kusu að gera það ekki. Í greinargerð ráðherrans með tillögunni var þó hvergi vikið að kynjahlutföllum heldur voru aðrar ástæður nefndar sem röksemd fyrir henni, meðal annars reynsla af dómara- störfum, sem hlýtur að vega þungt þegar um slíkan áfrýj- unardómstól er að ræða. Það er vonandi tímanna tákn að ekki hafi þurft að grípa til kynjakvóta til að út kæmi jafn hlutur kynjanna í svo mikilvægum störfum. Þegar landsréttardómararnir 15 komu saman í sumar kusu þeir svo konu úr sínum hópi sem forseta réttarins. Sem kunnugt er kröfðust tveir karlar sem fengu ekki dómaraembætti við Landsrétt þess að skipan landsréttardómaranna yrði ógilt með dómi. Bæði héraðsdómur og Hæstiréttur höfn- uðu þeirri kröfu. Þá gerðu þeir kröfu um að fá bætur frá almenningi fyrir að hafa ekki fengið embætti. Héraðsdómur hafnaði kröfu þeirra um skaðabætur en Hæstiréttur dæmdi þeim miska- bætur á þeim grunni að ákvörðun ráðherrans hefði getað bitnað á orðspori mannanna og orðið þeim þannig að meini. Nú hefur annar mann- anna reyndar verið skipaður héraðsdómari svo það má ljóst vera að orðspor hans hefur ekki skaðast. Það vekur athygli að þeir sem mestar hafa haft uppi kröfurnar um jöfn kynjahlutföll í hví- vetna virðast ekki hafa fagnað því að Lands- réttur verði skipaður með þessum jafna hætti og taki til starfa undir forsæti konu. Þingmenn Viðreisnar hreyktu sér af því í fjölmiðlum að hafa gert dómsmálaráðherra afturreka með tillögur hæfnisnefndar- innar. Það var ljóst að á þingi var ekki meirihluti fyrir óbreyttum 10 karla og fimm kvenna lista hæfisnefndar- innar. Það var því mjög undarlegt að fylgjast með þing- mönnum Viðreisnar leggjast niður á sama plan og Samfylk- ingin og Píratar þegar málið var rætt nú í vikunni. Landsréttur verður lokastöð í málarekstri flestra sem leita þurfa til dómstólanna í landinu. Hann verður ein af grunnstoðum réttarríkisins og þar með þjóðfélagsins. Lík- lega hefur aldrei áður verið sett á stofn svo mikilvæg stofn- un á Íslandi með jöfnum hlut kynjanna frá fyrsta degi. Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Landsréttur ein grunnstoða réttarríkisins Höfundur er formaður utanríkismálanefndar og ritari Sjálfstæðisflokksins. aslaugs@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is Minnkandi hafís á norður-slóðum virðist valda þvíað hvítabirnir þurfi aðhafa meira fyrir því að afla sér ætis en áður. Umhverfis- breytingarnar valda því að dýrin þurfa að hafa mun meiri yfirferð en áður til að fá í svanginn. Þetta veldur því að þeir ná ekki að mæta orku- þörfinni og horast sem aftur leiðir til hærri dánartíðni. Fréttavefur BBC birti í fyrra- dag frétt um að hvítabirnirnir ættu erfitt með að afla sér ætis. Í fréttinni er vitnað í nýja grein í vísindatíma- ritinu Science eftir A.M. Pagano o.fl. Þar er sagt frá rannsókn banda- rískra vísindamanna við Kaliforníu- háskóla í Santa Cruz undir forystu Anthony Pagano. Þeir settu há- tæknihálskraga á níu hvítabirnur sem héldu sig á hafísnum á Beau- fort-hafi. Hafsvæðið er norðan við Alaska og norðvesturhéruð Kanada og vestur af heimskautaeyjum Kan- ada. Tækjabúnaðurinn skráði stað- setningu dýranna með GPS-tækni, tók hreyfimyndir og fylgdist með því hvað dýrin voru mikið á ferðinni. Birnurnar báru búnaðinn í 8-12 daga í senn á tveggja ára tímabili. Einnig var fylgst með hraða efnaskipta í birnunum og tekin úr þeim blóð- og þvagsýni í því skyni. Í ljós kom að efnaskipti hvítabjarna eru 1,6 sinn- um hraðari en áður var talið og orku- þörfin sem því nemur meiri. Niður- staðan varð sú að fæstar birnanna náðu að éta nógu mikið til að mæta orkuþörfinni. Meira en helmingurinn léttist Meira en helmingur birnanna í rannsókninni léttist á meðan fylgst var með þeim. Það var því ljóst að þær náðu ekki að veiða nóg til að mæta orkuþörf sinni á þeim tíma. Fjórar birnanna misstu um eða yfir 10% af líkamsmassanum á 8-11 daga tímabili. Meðaltapið var um 1% á dag. Þetta var fjórfalt meira þyngdartap á dag og 2,2 sinnum meira í kílóum talið en hjá fastandi hvítabjörnum á landi. Venjulega hafa þeir mun hægar um sig en birnurnar sem rannsakaðar voru á ísnum. Fyrri rannsóknir höfðu sýnt að 42% fullorðinna birna á ísnum í Beaufort-hafi vorin 2000 til 2016 höfðu ekki étið í sjö daga eða lengur áður en þær voru handsamaðar vegna rannsókna. Þetta hlutfall fast- andi birna var 12% hærra en mæl- ingar frá 1983 til 1999 sýndu. Það bendir til þess að breytt ástand haf- íssins á vorin hafi haft þessi áhrif. Selir eru aðalfæða hvítabjarna og feitir selirnir svara vel þörf þeirra fyrir orkuríka fæðu. Selina veiða birnirnir á hafísnum, við ís- röndina og vakir eða öndunarholur. Minnstur hafís er á norðurslóðum í september ár hvert. Hann hefur minnkað um u.þ.b. 14% á hverjum áratug. Minni hafís þýðir að veiði- svæði hvítabjarnanna á ísnum minnkar og þar með möguleikar þeirra á að afla þar ætis. Þegar ísinn hverfur eiga birnirnir bágt með að afla nægrar fæðu. Minnkandi hafís og minni veiðimöguleikar valda því að birnirnir hafa meiri yfirferð í leit að æti. Þetta er talið valda vaxandi streitu hjá hvítabjörnunum sem aft- ur leiðir til hærri dánartíðni. Ungir selkópar eru uppistaðan í fæðu bjarnanna á vorin. Svo taka við magrir sumarmánuðir. Þegar aftur fer að frysta eru kóparnir orðnir eldri og vitrari og kunna betur að varast hættur, m.a. frá hvíta- björnum. Það er því snúnara að veiða þá á haustin en á vorin. Hungrið sverfur að hvítabjörnunum Morgunblaðið/RAX 2008 Horuð birna kom á land við Hraun á Skaga í júní. Öll fita var upp- urin. Hún var talin vera á 15. ári og hafa eignast afkvæmi fjórum sinnum. Hvítabjörninn trónir efst í fæðukeðju villtra dýra á norðurslóðum. Á danskri heimasíðu WWF kemur fram að talið sé að hvítabirnir séu mestu kjötætur allra tegunda bjarna. Selspikið er þeim mikilvægt vegna þess hve orkuríkt það er. Birnirnir safna fitu þegar nóg er að éta til að eiga varaforða þeg- ar minna er um æti. Hungur- tímabilin geta verið 3-5 mán- uðir og jafnvel lengri. Hvítabirnir éta mikið af sel, ekki síst hringanóra og kampsel, en þeir fúlsa ekki við öðrum selategundum. Hvítabirnir þefa líka uppi hvalhræ í allt að 30 km fjar- lægð og éta. Ef hungrið sverfur að eiga hvítabirnir til að ganga á land og veiða sér moskuxa, hreindýr eða nag- dýr til matar. Þeir éta líka skeldýr, egg, þang, ber og sorp frá mönnum ef því er til að dreifa. Selur er í uppáhaldi HVÍTABIRNIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.