Morgunblaðið - 06.02.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2018
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Aðalmeðferð í máli Hreiðars Más
Sigurðssonar, fyrrv. forstjóra Kaup-
þings, gegn ríkinu vegna ólögmætra
hlerana og óréttlátrar málsmeðferð-
ar er fyrirhuguð á
morgun, 7. febr-
úar kl. 9.15, í Hér-
aðsdómi Reykja-
víkur. Málið flytur
Ólafur Eiríksson
hrl. f.h. stefnanda,
verjandi er Einar
K. Hallvarðsson
hrl. f.h. ríkisins og
dómari Kristrún
Kristinsdóttir.
Í stefnunni fer Hreiðar Már fram á
10 milljóna króna miskabætur, auk
dráttarvaxta og kröfu um málskostn-
að.
Höfðuð voru fimm sakamál á hend-
ur Hreiðari Má með ákæru á grund-
velli rannsókna sérstaks saksóknara,
en embætti hans var lagt niður í árs-
lok 2015. Tveimur þessara mála er
lokið með sakfellingu fyrir Hæsta-
rétti, eitt var ógilt og vísað aftur í hér-
að af Hæstarétti, eitt bíður meðferð-
ar fyrir Landsrétti og eitt er til
meðferðar hjá Héraðsdómi Reykja-
víkur, skv. embætti héraðssaksókn-
ara. Fjórum sinnum voru sérstökum
saksóknara veittir símhlustunar-
úrskurðir, frá mars til maí 2010, við
rannsókn málanna, uppkveðnir af
Benedikt Bogasyni hæstaréttar-
dómara, sem þá var héraðsdómari á
Vesturlandi.
Mál stefnanda, Hreiðars Más,
byggist á að allir símhlustunarúr-
skurðirnir hafi verið ólögmætir þar
sem þeir voru kveðnir upp af dómstól
í röngu varnarþingi.
Skilyrði ekki uppfyllt
Símhlustunarúrskurður frá 17. maí
2010 sé að auki ólögmætur því hann
hafi verið kveðinn upp á heimili dóm-
ara í Reykjavík, og lýsi því ranglega
aðstæðum við uppkvaðningu, en í úr-
skurðinum kemur fram að hann hafi
verið kveðinn upp í Héraðsdómi
Vesturlands. Dómurinn hafi verið
kveðinn upp án þess að skrifleg
beiðni um símhlustun frá þar til bær-
um aðilum hafi borist áður. Efnisleg
skilyrði símahlustana hafi ekki verið
uppfyllt, þar sem ekki hafi verið rök-
studdur grunur um brot sem gætu
varðað a.m.k. átta ára fangelsi og
engin rök fyrir því að ríkir almanna-
eða einkahagsmunir væru í húfi.
Úrskurðirnir ásamt símhlustunum
á grundvelli þeirra hafi brotið gegn
rétti Hreiðars Más til réttlátrar máls-
meðferðar, en rannsóknaraðilar hafi
viðurkennt að hafa hlustað á samtöl
hans við verjanda sinn, en ekki eytt
upptökunum eins og þeim ber skylda
til. Atriðin sem á undan eru talin séu
m.a. brot á mannréttindaákvæðum
stjórnarskrár Íslands og mannrétt-
indasáttmála Evrópu.
Dómtaka í
máli Hreiðars
Stefndi ríkinu vegna ólögmætra hler-
ana og fer fram á 10 milljónir í bætur
Hreiðar Már
Sigurðsson
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Fjörutíu einstaklingar voru í einangrun á Land-
spítalanum í gær sem er með því mesta sem
gerist, þar af lágu tíu þeirra inni á bráða-
móttökunni. Langflestir eru með einkenni
vegna inflúensu
„Fjörutíu manns í einangrun er í hæsta lagi
og fleiri en voru um helgina. Við erum oftast
með í kringum þrjátíu einstaklinga í einangrun,“
segir Guðlaug Rakel Guðjónsdóttur, fram-
kvæmdastjóri flæðisviðs. Um er að ræða fólk á
öllum aldri.
Álagið á spítalanum hefur verið þungt síð-
ustu vikur og verður það áfram að sögn Guð-
laugar Rakelar. „Það er þungt en ekki verra en
oft áður. Það er verið að leita leiða til að útskrifa
fólk og að koma því fyrir.“
Þá er töluvert mikið um veikindi starfsfólks
svo að erfiðara er að manna deildir og einingar.
Búast við þunga um miðjan febrúar
Jón Magnús Kristjánsson, yfirlæknir á
bráðadeild Landspítalans í Fossvogi, segir að í
febrúarmánuði hafi aðsóknin á bráðamóttökuna
verið í meðallagi, eða um 180 manns á dag.
„Þegar verst lét seinnipart janúar voru tuttugu
sjúklingar á hverjum tíma í bið á bráðadeild
eftir að komast inn á legudeildir, í dag eru þeir
tólf. Að því leyti til er staðan betri,“ segir Jón
Magnús.
Í gær var töluvert um að fólk kæmi eftir
hálkuslys en mikið álag hefur verið á spítalanum
vegna beinbrota og meðferðar þeirra. „Ástandið
er aðeins skárra núna en það er þungt og við bú-
umst við að það þyngist aftur þegar líður á febr-
úar því við teljum að inflúensufaraldurinn sé
ekki búinn að ná hámarki,“ segir Jón Magnús.
„Til viðbótar við þetta erum við farin að finna
verulega fyrir lokun sjúkrarúma á spítalanum
vegna skorts á hjúkrunarfræðingum. Á hverjum
tíma eru 20 til 25 rúm lokuð. Ef þau væru opin
myndu flestallir þeir sjúklingar sem eru í bið
eftir plássi á bráðadeildinni komast inn á sínar
sérhæfðu legudeildir. Skortur á hjúkrunarfræð-
ingum hefur gríðarleg áhrif og við sjáum ekki
annað en að það komi til með að versna.“
Áfram þungt álag á Landspítalanum
Fjörutíu sjúklingar voru í einangrun í gær, flestir vegna inflúensueinkenna Mikið um veikindi
starfsfólks Töluvert margir komu eftir hálkuslys í gær Telja inflúensuna ekki hafa náð hámarki
Morgunblaðið/Golli
Landspítalinn Mikið og þungt álag hefur verið
á spítalanum síðustu vikur, m.a. vegna flensu.
og þau undirbúa dómsmál. „Okkur
hefur verið bent á að eina lausnin sé
dómsmál enda bara eitt svona mál
sem hefur tapast fyrir dómstólum.
Það er samt mjög dýr aðgerð. Annað
sem við getum gert er að flytja til
Danmerkur t.d. og láta skrá hana
inn í kerfið þar og flytja svo til baka.
Þá má ekki segja nei við okkur en
það er svolítið drastísk aðgerð. Þar
sem hún heitir Emma að millinafni
hefur okkur verið bent á að skrá
hana sem Emmu en hún heitir það
ekki, hún heitir Alex Emma. Við ætl-
um ekki að bíða áfram. Við biðum
því við héldum að nefndin yrði lögð
niður áður en vegabréfið hennar
rynni út en núna erum við að gera
okkur klár fyrir dómsmál.“
Að áliti nefndarinnar fellur nafnið að
íslensku málkerfi og það væri ekki
til ama fyrir stúlkur að heita því en
út af hefðinni verður því ekki
breytt.“
Nanna Þórdís bendir á að í öðrum
löndum sé Alex bæði karl- og kven-
mannsnafn auk þess sem margar
konur sem bera nafnið Alexandra
hér á landi séu kallaðar Alex. „Þegar
við fengum fyrstu neitunina hug-
leiddum við að fara í mál en þá var
mikil umræða um að leggja manna-
nafnanefnd niður svo við biðum. Síð-
an héldum við að nafnið yrði sam-
þykkt vegna aukins sveigjanleika í
nefndinni síðustu ár, að því sem virð-
ist, en fengum aftur neitun.“
Þolinmæði þeirra er nú á þrotum
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Alex Emma Ómarsdóttir er fjögurra
ára stúlka sem hefur enn ekki fengið
nafnið sem henni var gefið skráð í
Þjóðskrá. Þar er hún Stúlka Ómars-
dóttir. Ástæðan er að manna-
nafnanefnd hefur ekki samþykkt
eiginnafnið Alex sem kvenmanns-
nafn.
Foreldrar Alexar Emmu eru
Nanna Þórdís Árnadóttir og Ómar
Örn Hauksson. Þau hafa tvisvar
fengið neitun frá mannanafnanefnd
vegna nafnsins og hyggjast nú leita
réttar síns fyrir dómstólum.
„Vegabréfið hennar Alexar
Emmu rennur út í ár svo við erum
orðin svolítið stressuð. Samkvæmt
lögum verða börn að vera komin
með nafn innan árs, samþykkt af
mannanafnanefnd, og án nafns í
Þjóðskrá fær hún ekki nýtt vega-
bréf,“ segir Nanna Þórdís. Því má
segja að það sé undir mannanafna-
nefnd komið hvort Alex Emma fær
að ferðast úr landinu eða ekki.
Hefðin hefur vinninginn
„Þegar við fengum neitun síðast
stóð í rökstuðningi mannanafna-
nefndar að þeir væru búnir að sam-
þykkja nokkur nöfn fyrir bæði kynin
og því væri skiljanlegt að við héldum
að við gætum fengið þessu breytt en
hefðin fyrir karlmannsnafninu Alex
væri gömul og því ekki neitt sem
segði að þeir þyrftu að breyta því.
Mæðgur Alex Emma með litlu systur sinni Lottu Aniku og móður, Nönnu Þórdísi Árnadóttur.
Hefur tvisvar fengið
neitun við nafni sínu
Mannanafnanefnd samþykkir ekki kvenmannsnafnið Alex
Skipað er í mannanafnanefnd til fjögurra ára í senn af dómsmálaráðherra
að fengnum tillögum heimspekideildar Háskóla Íslands, lagadeildar Há-
skóla Íslands og íslenskrar málnefndar. Skipun síðustu nefndar rann út
26. janúar síðastliðinn. Samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðuneyt-
inu er verið að ganga frá nýrri skipan nefndarinnar, til næstu fjögurra ára.
Í lok janúar var lagt fram frumvarp til laga um mannanöfn þar sem lagt
er til að mannanafnanefnd verði lögð niður. Flutningsmenn frumvarpsins
koma úr þremur flokkum stjórnarandstöðu. Verði frumvarpið að lögum
mun mannanafnanefnd verða lögð niður og fólki verða frjálst að gefa
börnum nöfn að vild. Einnig mætti fólk breyta nafni sínu eins oft og það
vill, í stað eins skiptis eins og nú er raunin.
Verið að skipa í nýja nefnd
MANNANAFNANEFND
Við tökum út og þjónustum
kæli- og loftræstikerfi
Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Sími 587 8890 • rafstjorn.is