Morgunblaðið - 06.02.2018, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2018
Það er ekki fagnaðarefni fyrirákærða í refsimálum í Banda-
ríkjunum þegar
dómari í stuði tekur
til við að úthluta
refsingu eftir
sektarniðurstöðu
kviðdóms. Þessu
hefur Larry Nassar,
fyrrverandi læknir
fimleikalandsliðs-
ins, nú fengið smjör-
þefinn af.
Hann var dæmdur fyrir að hafakynferðislega áreitt mörg
hundruð konur.
Dómarinn í fyrsta málinu sagðiþað heiður og ánægju fyrir sig
sem konu að dæma Nassar í 175 ára
fangelsi.
Í gær féll viðbótardómur. Þá varNassar dæmdur í 40-125 ára
fangelsi. Í millitíðinni fékk hann 60
ára fangelsi fyrir að hafa barna-
klám í fórum sínum.
Þurfi Nassar að afplána þessadóma í hámarki þá verður hon-
um sleppt eftir 360 ár. Nassar er 54
ára gamall og verður því 404 ára,
laus og liðugur árið 2378.
Þeir sem voru jafngamlir Nassarþegar þeir fóru inn og eru að
sleppa núna eftir sambærilegan
dóm fæddust árið 1604.
Nassar gæti rætt um nýtingutímans og hvort fyrri hluti
vistarinnar, undir breska kóng-
inum, hafi verið betri en hinn síð-
ari.
Það væri vísbending um hversmegi vænta þegar Kínverska
heimsveldið verður alls ráðandi á
seinni parti Nassars á bak við riml-
ana.
Larry Nassar
Enga smáskammta
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 5.2., kl. 18.00
Reykjavík -3 alskýjað
Bolungarvík -3 alskýjað
Akureyri -2 skýjað
Nuuk -13 snjóél
Þórshöfn 4 rigning
Ósló -5 skýjað
Kaupmannahöfn -4 heiðskírt
Stokkhólmur -7 heiðskírt
Helsinki -9 léttskýjað
Lúxemborg 1 heiðskírt
Brussel 2 heiðskírt
Dublin 3 léttskýjað
Glasgow 2 alskýjað
London 3 rigning
París 1 alskýjað
Amsterdam 2 skýjað
Hamborg 0 skýjað
Berlín 0 léttskýjað
Vín 1 skýjað
Moskva -12 snjókoma
Algarve 14 léttskýjað
Madríd 2 rigning
Barcelona 8 rigning
Mallorca 11 léttskýjað
Róm 12 skýjað
Aþena 12 léttskýjað
Winnipeg -18 snjókoma
Montreal -11 snjókoma
New York 0 heiðskírt
Chicago -16 heiðskírt
Orlando 19 þoka
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
6. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:53 17:32
ÍSAFJÖRÐUR 10:11 17:23
SIGLUFJÖRÐUR 9:55 17:06
DJÚPIVOGUR 9:26 16:58
Með því að velja hráefnið
af kostgæfni, nota engin aukaefni
og hafa verkhefðir fyrri tíma
í hávegum, framleiðum við
heilnæmar og bragðgóðar
sjávarafurðir.
Söluaðilar:
10-11, Hagkaup, Iceland
verslanir, Kvosin, Melabúðin,
Nettó, Samkaup,
Sunnubúðin, Pure Food Hall
flugstöðinni Keflavík.
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og geoSilica.is
nari upp singar áwww.geosilica.is
Unnið úr 100% náttúrulegum íslenskum
jarðhitakísil og magnesíum í hreinu
íslensku vatni.
Varan inniheldur engin aukaefni.
Recover er sérstaklega hannað og þróað
af geoSilica til að stuðla að eðlilegri
vöðva- og taugastarfsem
Allt um sjávarútveg
Heilbrigðiseftirlit
Reykjavíkur hef-
ur fengið upplýs-
ingar frá Veitum
ohf. um að niður-
stöður rannsókna
á hluta vatnssýna
sýni of há gildi
heildargerla-
fjölda við 22 °C.
Heilbrigðiseftirlit
Reykjavíkur,
Matvælastofnun
og sóttvarnalæknir telja þó neyslu-
vatnið öruggt og ekki þurfi að grípa
til aðgerða. Þetta segir í tilkynningu
frá Reykjavíkurborg. Ekki er um að
ræða niðurstöður úr opinberu eftir-
liti heilbrigðiseftirlitsins heldur
innra eftirlits vatnsveitunnar með
vatni í borholum á vatnsverndar-
svæðinu í Heiðmörk. Þá segir að um
sérstakar veðuraðstæður sé að ræða
sem hafi leitt til þess að vatnið í
hluta af borholunum hafi ekki stað-
ist ýtrustu gæðakröfur. Heilbrigðis-
eftirlitið mun áfram fylgjast með
gæðum neysluvatns og tók í gær
sýni á nokkrum stöðum úr dreifi-
kerfinu.
Neysluvatn öruggt þrátt fyrir há gildi gerla
Vatn Neysluvatnið í
Reykjavík er öruggt,
segja sérfræðingar.
Engan sakaði þegar Ford Econo-
line með fimm manns festist í há-
deginu í gær í Fiská nærri fjallinu
Þríhyrningi inn af Fljótshlíðinni.
Björgunarsveitir og annað hjálpar-
lið fór á vettvang og náði fólkinu
sem þarna var í útsýnistúr. Hafði
það náð sjálft upp á þak bílsins og
var bjargað þaðan af björgunar-
mönnum frá Hvolsvelli, en öflugur
bíll frá Flugbjörgunarsveitinni á
Hellu var notaður til að draga
Econoline-inn upp úr ánni og á
verkstæði.
„Yfirleitt er Fiská auðveld yfir-
ferðar þar sem er ekið yfir á vaði.
Samt þarf að vara sig því þarna
hefur á síðustu árum verktaki tekið
möl úr farvegi hennar og því eru
úti í miðri á pyttir sem ökumenn
sjá ekki,“ segir Jón Hermannsson í
svæðisstjórn björgunarsveitanna á
Suðurlandi.
Aðgerðir við Fiská í gær þykja
Jóni hafa tekist vel: fólk verið fljótt
að á staðinn og leyst úr aðstæðum
sem um margt hafi verið háska-
legar, að minnsta kosti við fyrstu
sýn. Þyrla frá Landhelgisgæslunni
fór af stað austur þegar útkall
barst en var snúið við þegar mála-
vextir voru orðnir ljósir. sbs@mbl.is
Ljósm/Slysavarnafélagið Landsbjörg
Háski Björgunarliðar voru fljótir á staðinn og náðu fólki úr umflotnum bíl.
Björguðu fólki og
Ford úr Fiskánni
Ók ofan í djúpan pytt úti í miðri ánni