Morgunblaðið - 06.02.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 06.02.2018, Blaðsíða 10
Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Guðlaugur I. Guðlaugsson, fasteigna- sali hjá Eignamiðlun, segir að sala á íbúðum á RÚV-reitnum í Reykjavík hafi gengið vel og hafi sex íbúðir selst nú eftir áramótin. Eignamiðlun ásamt Fasteignasölunni Torg og Fasteigna- sölunni Borg sjá um sölu á íbúðunum. Alls eru um 19 íbúðir eftir af 71 íbúð sem var í þessu söluferli og gert er ráð fyrir að A-hluti fari í sölu þegar sumarið nálgast. Brandur Gunnarsson, fasteignasali hjá Fasteignasölunni Borg, segir að búast megi við því að næsti áfangi fari í kynningu eftir 1-2 mánuði en verk- efnið er í heildina um 290 íbúðir og er söluferlinu skipt í áfanga. Flestar óseldar í Jaðarleiti 2 Sigurður Gunnlaugsson, fasteigna- sali og framkvæmdastjóri hjá Fast- eignasölunni Torgi, segir að salan hafi byrjað vel og bendir á að íbúðirnar seljist í samræmi við afhendingar- tíma. Íbúðirnar eru í Jaðarleiti 2, 4, 6 og 8 og verða þær afhentar í öfugri röð, þannig að Jaðarleiti 8 klárast fyrst. „Þetta byrjaði mjög vel, í tvist- inum eru bara 11 íbúðir eftir. Í fjark- anum eru fjórar íbúðir eftir, þannig að það er búið að vera mjög góð sala,“ segir Sigurður, en Jaðarleiti 8 seldist í heilu lagi og verða þær íbúðir afhent- ar fyrst. Spurður hvernig gangi að selja dýrari eignirnar segir Sigurður að dýrasta íbúðin sé enn óseld. „Það er ein svona stór sem er í nr. 6, íbúð 50. Hún er 160 fermetrar og er eig- inlega tvær íbúðir. Ein lítil íbúð á ba kvið var opnuð, þannig að hún alveg rennur í gegn og er með tvennar sval- ir og hjónasvítur. Hún er ekki farin eins og er en það er svo sem algengt,“ segir Sigurður og bætir við að vana- lega fari dýrustu eignirnar fyrst eða síðast. Hann bætir við að salan á íbúðun- um hafi gengið jafnt og þétt yfir verð- flokka og ekki sé einhver ein tegund íbúða sem rjúki út. Góð sala á íbúðum á RÚV-reit við Jaðarleiti  Um 19 íbúðir óseldar í söluferlinu  Næsta ferli í sumar Morgunblaðið/RAX Jaðarleiti Íbúðirnar á gamla RÚV-reitnum eru nú í sölu og verður Jaðar- leiti 8 afhent fyrst. Allar íbúðir í Jaðarleitinu voru seldar í heilu lagi. Söluferli í Jaðarleiti » Allar íbúðir seldar í Jaðarleiti 8 – seldust í heilu lagi » Ellefu íbúðir óseldar í Jaðarleiti 2 » Fjórar íbúðir óseldar í Jaðarleiti 4 » Kynning á næsta söluferli eftir 1-2 mánuði 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2018 BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 Sparneytnari, hagkvæmari og hljóðlátari ISUZU D-MAX Isuzu D-Max BASIC dísil, beinskiptur. Verð: 4.850.000 kr. (3.911.290 kr. án vsk.) Isuzu D-Max PRO dísil, sjálfskiptur. Verð: 5.690.000 kr. (4.588.700 kr. án vsk.) 164 hestöfl – 3.500 kg dráttargeta. Eyðsla frá 7,0 l/100km* EN N E M M / S ÍA / N M 8 6 5 1 8 *M ið að vi ð up pg ef na rt öl ur fra m le ið an da um el ds ne yt is no tk un íb lö nd uð um ak st ri. Á síðasta fundi borgarráðs var sam- þykkt að heimila umhverfis- og skipu- lagssviði að óska eftir tilboðum í upp- setningu, rekstur og viðhald á a.m.k. 210 strætóskýlum í borginni. Fram kemur í bréfi Þorsteins Rún- ars Hermannssonar samgöngustjóra að áætlað sé að útboðið fari fram í febrúar og tilboði verði tekið í mars. Útboðið verður auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Í dag er rekstri biðstöðva strætó og auglýsingastanda í Reykjavíkurborg þannig háttað: 147 biðskýli eru í eigu og rekstri verktaka (AFA JCDecaux). 42 auglýsingastandar eru í eigu og rekstri verktaka. 231 biðskýli er í eigu og rekstri Reykjavíkurborgar. 182 staurar við biðstöðvar eru í eigu og rekstri Reykjavíkurborgar. Í útboðinu er gert ráð fyrir að verk- taki bjóði að lágmarki fram 210 skýli við biðstöðvar strætisvagna gegn rétti til auglýsinga í eða á biðskýlum. Verktaki hafi þannig tekjur gegn því að leggja Reykjavíkurborg til skýlin. Heimilt verður að bjóða fram fleiri skýli ef um semst. Gerð er krafa um að hluti skýlanna verði búinn rafræn- um upplýsingatöflum sem sýni komu- tíma næstu vagna. Þá skal vera mögulegt að koma fyrir frekari lausn- um við miðlun upplýsinga. Franska fyrirtækið AFA JC- Decaux á og rekur grænu strætóskýl- in í borginni. Samningur var gerður við fyrirtækið árið 1998. Hann rennur út í lok júní 2018. Fram hefur komið í fréttum að vilji sé hjá félaginu að halda áfram rekstri skýlanna. Það mun því væntanlega taka þátt í útboð- inu. AFA JCDecaux hefur gert ráð- stafanir til að að fjarlægja grænu skýlin hreppi það ekki hnossið. Þau verða væntanlega flutt úr landi. sisi@mbl.is Borgin býður út 210 strætóskýli  Útboð á Evrópska efnahagssvæðinu Morgunblaðið/Ernir Grænu skýlin Þau munu mögulega hverfa úr borgarmyndinni í sumar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.