Morgunblaðið - 06.02.2018, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 06.02.2018, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2018 6. febrúar 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 99.87 100.35 100.11 Sterlingspund 141.99 142.69 142.34 Kanadadalur 81.13 81.61 81.37 Dönsk króna 16.746 16.844 16.795 Norsk króna 13.01 13.086 13.048 Sænsk króna 12.69 12.764 12.727 Svissn. franki 107.28 107.88 107.58 Japanskt jen 0.9085 0.9139 0.9112 SDR 145.51 146.37 145.94 Evra 124.65 125.35 125.0 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 151.4373 Hrávöruverð Gull 1337.1 ($/únsa) Ál 2227.0 ($/tonn) LME Hráolía 70.0 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Icelandic Trade- mark Holding, eig- andi vörumerkjanna Icelandic og Ice- landic Seafood, og Margildi hafa ritað undir leyfissamning um markaðssetn- ingu og sölu á fisk- olíum undir vöru- merkinu Icelandic Fish Oil í Bandaríkj- unum. Áætlað er að sala og dreifing hefjist síðar á árinu. ITH annast markaðssetningu vörumerkjanna í Bandaríkjunum, Suður- Evrópu og á Íslandi. Herdís Fjeldsted, stjórnarformaður ITH, segir að markaðurinn með lýsi og Omega-3 velti um 1,2 milljörðum dollara á ári í Bandaríkjunum. „Rannsóknir gefa auk þess til kynna að minni vörumerki vaxa hraðar á markaðnum sem geta nýtt sér tengingu við „natural“ eða „organic“.“ Auk þess séu tækifæri í netverslun sam- hliða hefðbundinni sölu. Icelandic Fish Oil verður selt í Bandaríkjunum Herdís Fjeldsted STUTT BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Hugbúnaðarfyrirtækið Hugbúnaður hf., sem þróar og selur verslunar- kerfið Centara, hefur gengið frá hlutafjáraukningu upp á eina milljón bandaríkjadala, eða rúmar 100 millj- ónir íslenskra króna. Gunnar Björn Gunnarsson, framkvæmdastjóri fé- lagsins og einn af stærri hluthöfum, segir í samtali við Morgunblaðið að hlutafjáraukningin marki ákveðin tímamót í starfseminni. Mikilli grunnvinnu sé nú lokið en búið er að fjárfesta umtalsvert í þróun kerfisins á undanförnum árum. Félagið sé tilbúið til frekari vaxtar og hlutafjár- aukningin hugsuð sem fyrsta skrefið af fleirum til að svara auknum um- svifum erlendis. Nýju hluthafarnir eru fjárfestingarfélagið Varða Capital ehf., sem leggur til 75 millj- ónir króna, og hugbúnaðarfyrirtækið Wise lausnir ehf., með 25 milljónir króna. Ríkuleg virkni í miðlara „Við erum núna að fjölga starfs- mönnum félagsins, stækka þróunar- teymið og hefja söluferli Centara af krafti. Síðustu 4-5 ár höfum við í raun haldið okkur til hlés í sölu og mark- aðsmálum og höfum nýtt tímann til þess að þróa kerfið,“ segir Gunnar. Hann segir að það sem skilji Cent- ara að frá hefðbundnum kassakerf- um í verslunum sé ríkuleg virkni í miðlara kerfisins. „Á hverjum einasta verslunarkassa er framendinn, kass- inn sjálfur. En svo er miðlari sem getur til dæmis keyrt í skýinu eða verið inni á skrifstofu hjá verslunar- stjóra og stýrir miðlægt öllum af- sláttartilboðum, og býður upp á öflugt vildarkerfi. Þar með ertu kom- inn með heildstætt verslunarkerfi sem gerir dreifða verslunarstarf- semi, stjórnun og upplýsingagjöf öfl- uga og þægilega.“ Hann segir að kostir kerfisins séu einnig að Centara sé óháð fjárhags- kerfum og geti tengst hvaða við- skiptakerfi sem er, hvort sem það er TOK, Opus Allt, AX, Navision, SAP eða annað. Enn fremur segir Gunnar að kerfið sé nú orðið fullkomnlega sam- keppnishæft á alþjóðlegum markaði. „Við erum með viðskiptavini úti um allan heim. Þar má nefna Jysk í Kan- ada og Christiania Glasmagasin í Noregi sem eru 300 ára gamlar versl- anir, þær elstu í Noregi. Svo erum við með Burger King-hamborgarastaði í Vestur-Evrópu í samstarfi við Toshiba Tec.“ Nýir eigendur fyrir fimm árum Nýir eigendur komu að Hugbúnaði hf. fyrir fimm árum. Auk þess að upp- færa kerfið sjálft á þeim tíma sem lið- inn er frá því voru skrifstofurnar fluttar úr Engihjalla í Borgartún 26. „Svo eru starfsmennirnir allir nýir, fyrir utan Tryggva M. Þórðarson, sem er einn af stofnendum félagsins. Ég bý sjálfur að reynslu minni síðan ég var forstjóri LS Retail, en reynsla allra lykilstarfsmanna er mjög mikil í fyrirtækinu. Til að ná árangri er mikilvægt að hafa blöndu af reynslu, áræði og þolinmæði.“ Hlutafé Hugbúnaðar hf. aukið og vöxtur framundan Morgunblaðið/Eggert Centara Nespresso er nýr viðskiptavinur. Tólf starfsmenn eru á Íslandi og fjögurra manna þróunardeild í Úkraínu. Hugbúnaður » Fyrirtæki eins og Exxon, Citi- bank og General Motors hafa verið í viðskiptavinahópi Hug- búnaðar hf. » Gunnar Björn var áður for- stjóri LS Retail. » Félagið var stofnað árið 1981 og er eitt elsta hugbúnaðarhús landsins. » Meðal íslenskra viðskiptavina eru Reykjavíkurborg, Kópa- vogur, Reykjanesbær, Fjarðar- kaup og Nespresso.  Tímamót í starfseminni  Varða Capital og Wise koma inn sem nýir hluthafar SMÁRALIND www.skornirthinir.is Skórnir þínir Mjúkir og þægilegir ítalskir leðurskór .995 -ir 35 41Stærð Heiða Kristín Helgadóttir, fram- kvæmdastjóri viðskiptahraðalsins Efni, fyrirtækis sem hefur það að markmiði að að- stoða íslenska frumkvöðla við sölu- og markaðs- starf og uppbygg- ingu, segir að nær útilokað sé fyrir smærri aðila að halda uppi fram- leiðslu á vönduð- um vörum og selja úr landi vegna himinhás sendingarkostnaðar frá Íslandi. Efni einbeitir sér einkum að heilsutengdum snyrtivörum, vörum tengdum sjávarútvegi og tísku, og er í eigu Heiðu, Oliver Luckett og Eyris Invest. „Það er í raun útilokað að framleiða og selja vörur héðan út af háum sendingarkostnaði. Við settum upp netverslunina ArcticBeauty.com í nóvember sl. þar sem við seljum ólíkar tegundir af heilsu- og snyrti- vörum sem allar eru framleiddar hér á Íslandi. Vörurnar eru á verðbilinu 30-80 bandaríkjadalir, en ofan á það bætist sendingarkostnaður að lág- marki 5.000 krónur ef vörurnar eiga að vera komnar til kúnna innan þriggja daga, eins og þekkist nánast alls staðar annars staðar. Þannig að þú getur eiginlega gleymt því að taka þátt í alþjóðlegri samkeppni héðan,“ segir Heiða og bendir á að samsvarandi vörur kosti helmingi minna í Amazon-netversluninni og þar sé sendingarkostnaður margfalt minni, og stundum enginn. „Sendingu að verðmæti 30 dalir sem vegur 120 grömm kostar um 55 dali að senda úr landi með hraði, og þetta verð er með afslætti.“ Framleiða verður erlendis Hún segir að eina leiðin til að vera samkeppnisfær alþjóðlega sé að horfa til þess að framleiða erlendis, eða halda úti lager utan landstein- anna. „Annaðhvort verðum við að sætta okkur við að vera hrávöru- framleiðandi, eða fara í gagngera endurskoðun á því hvernig við ætl- um að vera þátttakendur í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi sem er að breyt- ast mjög hratt og þá sérstaklega flutningsleiðir og væntingar neyt- enda um að fá vörur afhentar með hraði nánast ókeypis.“ tobj@mbl.is Himinhár send- ingarkostnaður Heiða Helgadóttir  Nær útilokað að framleiða hér á landi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.