Morgunblaðið - 06.02.2018, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2018
Finse. AFP. | Ljúfir tónar úr lúðri
bræddu hjörtu áheyrenda sem
hjúfruðu sig saman í 24 stiga frosti í
stóru, kúptu snjóhúsi. Tónlistar-
mönnunum var enn kaldara en
áhorfendunum því að hljóðfærin
sem þeir léku á voru úr ís.
Á Ístónlistarhátíðinni í norska
fjallaþorpinu Finse var leikið á
ásláttarhljóðfæri, m.a. sílafón, og
blásturshljóðfæri sem voru ein-
göngu gerð úr klumpum úr ísilögðu
stöðuvatni. Sá hængur var á að því
lengur sem tónlistarmennirnir léku
því meira bráðnuðu hljóðfærin.
„Það er ekki auðvelt að spila á
hljóðfæri sem bráðna þegar leikið er
á þau,“ sagði slagverksleikarinn
Terje Isungset, stofnandi hátíðar-
innar. Hann var með þykka ullar-
vettlinga þegar hann blés í eitt
hljóðfæranna, íslúður sem blánaði í
ljósinu frá vetrarsólinni. Við hliðina
á honum stóð söngkona með engil-
fagra rödd og vafði trefli um andlitið
til að orna sér á meðan bassaleikari
tók af sér vettlingana til að slá á
strengina á íshljóðfærinu sínu.
Brothætt hljóðfæri
Tónlistarhátíðin fór fram í þorp-
inu Finse sem er í 1.222 metra hæð
yfir sjávarmáli, um 195 km vestan
við Ósló. Hún var haldin í þrettánda
skipti á föstudaginn og laugar-
daginn var í kúptu snjóhúsi sem
hlaðið var úr tilsniðnum hjarn-
klumpum að hætti inúíta. Tugir
manna sóttu hátíðina og sátu á snjó-
bekkjum þegar þeir hlýddu á tón-
listina.
Þegar leið á kvöldið lék einn tón-
listarmannanna á hljóðfæri sem líkt-
ist didgeridoo, fornu blásturs-
hljóðfæri frumbyggja í Ástralíu.
„Það er fín lína á milli listar og
brjálæðis,“ sagði ljósmyndarinn
Emile Holba, sem hefur gegnt hlut-
verki fjölmiðlafulltrúa hátíðarinnar
og tekið myndir af undirbúningi
hennar og tónleikunum. „Það getur
komið babb í bátinn, hljóðfærin geta
brotnað … áhorfendunum líkar það
að allt er einfalt og hreint.“
Flutt í öruggt frost
Tónlistarhátíðin var áður haldin í
skíðabænum Geilo en skipuleggj-
endurnir segjast hafa ákveðið að
flytja hana vegna þess að vetrar-
veðrið þar sé orðið mildara, þannig
að erfiðara sé að hlaða snjóhúsið og
koma í veg fyrir að hljóðfærin
bráðni of hratt. „Snjórinn var mjög
krapakenndur og erfiður í vetur,“
sagði Isungset. „Þetta er í fyrsta
skipti sem ég sé snjóinn svona á
þessum slóðum.“
Skipuleggjendurnir völdu Finse
til að geta verið öryggir um að há-
tíðin yrði haldin í frosti. Um hálf-
tíma tekur að fara þangað með lest
frá Geilo. Þorpið er girt fjöllum ná-
lægt jökli og svæðið var notað til að
taka upp atriði í Stjörnustríðsmynd-
inni Gagnárás keisaradæmisins þeg-
ar sögusviðið var ísköld og snævi-
þakin reikistjarna sem kennd er við
Höð. Breski suðurskautsfarinn Sir
Ernest Henry (1874-1922) og norski
landkönnuðurinn Fridtjof Nansen
(1861-1930) dvöldu í Finse þegar
þeir voru við æfingar til að undirbúa
ferðir sínar.
Það tók um það bil viku að hlaða
snjóhúsið og rúmlega tuttugu
manns lögðu hönd á plóginn. Stórir
ísklumpar úr nálægu stöðuvatni
voru fluttir á svæðið og tónlistar-
mennirnir notuðu keðjusagir, hamra
og meitla til að móta hljóðfærin.
Eftir hátíðina voru sum hljóð-
færin nær alveg bráðnuð en önnur
voru svo heilleg að þau voru sett í
frysti til að hægt yrði að nota þau
aftur á Ístónlistarhátíðinni að ári.
Bræddu hljóð-
færi og hjörtu
„Fín lína milli listar og brjálæðis“
AFP
Ístónlistarhátíð Terje Isungset, stofnandi hátíðarinnar, prófar eitt af blásturshljóðfærunum sem voru gerð úr ís.
Svellköld hljómsveit Áhorfendunum hlýnaði um hjartarætur þegar þeir
hlýddu á tónlistarmennina leika á íshljóðfæri í frostköldu snjóhúsinu.
Tónlistarsnjóhús Það tók um það
bil viku að hlaða tónleikastaðinn.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Bandaríski læknirinn Larry Nassar
var dæmdur í 40 til 125 ára fangelsi í
gær þegar þriðju og síðustu réttar-
höldunum yfir honum lauk.
Nassar braut gegn hundruðum
stúlkna undir því yfirskini að hann
væri að lækna þær þegar hann var
læknir bandaríska fimleikalandsliðs-
ins og ríkisháskóla Michigan. Brotin
viðgengust í rúma tvo áratugi.
Um 265 fimleikastúlkur hafa sagt
frá ofbeldinu sem þær sættu, þeirra
á meðal nokkrar sem hafa unnið til
verðlauna á Ólympíuleikum. Banda-
rískur alríkisdómstóll dæmdi Nass-
ar í sextíu ára fangelsi í desember
fyrir að eiga barnaklám. Dómstóll í
Ingham-sýslu í Michigan dæmdi
hann í 40 til 175 ára fangelsi 24. jan-
úar fyrir kynferðisbrot gegn stúlk-
um og hann fékk síðan 40 til 125 ára
fangelsisdóm til viðbótar í gær í
réttarhöldum sem fóru fram í Eaton-
sýslu.
Nassar bað fórnarlömbin afsökun-
ar og kvaðst ekki geta lýst því með
orðum hversu „þungrar sorgar“
hann fyndi til vegna þjáninga þeirra.
Dómarinn í málinu, Janice Cunning-
ham, tók lítið mark á afsökunar-
beiðni hans, sagði að hann væri í „af-
neitun“ og skírskotaði til þess að
hann hefði áður þrætt fyrir að hann
hefði brotið gegn stúlkunum og jafn-
vel sakað þær um lygar. „Ég er ekki
sannfærð um að þú skiljir í raun og
veru að það sem þú gerðir var rangt
og hversu skelfilegar afleiðingar
gerðir þínar höfðu fyrir fórnarlömb-
in, fjölskyldur þeirra og vini.“
Engin svipbrigði sáust á Nassar
þegar fangelsisdómurinn var kveð-
inn upp.
Kvartanir og kærur hunsaðar
Nær 200 stúlkur og konur báru
vitni í réttarhöldunum og frásagnir
þeirra beindu athyglinni að „valda-
kerfinu sem verndaði Nassar svo
lengi“, að sögn fréttaskýranda
CNN-sjónvarpsins. Stjórnendur
ríkisháskóla Michigan og forystu-
menn bandaríska fimleikasam-
bandsins og ólympíunefndar lands-
ins hafa neitað því að þeir hafi reynt
að hylma yfir með lækninum.
Að sögn CNN komst læknirinn
upp með það árum saman að stinga
fingri í kynfæri stúlkna undir því
yfirskini að það væri þáttur í með-
ferð vegna meiðsla. Nokkrar stúlkn-
anna sögðust hafa kvartað yfir kyn-
ferðisbrotunum við þjálfara
fimleikasambandsins og jafnvel
kært þau til lögreglu. Ekkert var þó
aðhafst í málinu og Nassar hélt
áfram að brjóta gegn stúlkum.
Dæmdur í allt að
125 ára fangelsi
Réttarhöldum yfir lækni bandarískra fimleikastúlkna lokið
AFP
Dæmdur Bandaríski læknirinn
Larry Nassar hlýðir á dómsorðin.
Hélt brotunum áfram
» Bandaríska fimleikasam-
bandið segist fyrst hafa gert
sér grein fyrir kynferðis-
brotum Nassars sumarið 2015
þegar þrjár fimleikastúlkur
kærðu hann.
» Nassar var þá leystur frá
störfum fyrir sambandið með-
an FBI rannsakaði málið en
hélt áfram að brjóta gegn tug-
um stúlkna í ríkisháskóla
Michigan þar til í september
2016 þegar skýrt var frá fleiri
kærum. Hann var handtekinn
tveimur mánuðum síðar.
Yfirvöld í Moskvu skýrðu frá því í gær að erfiðlega hefði gengið að halda
götum opnum og sögðu skólabörnum að þau gætu verið heima hjá sér vegna
mesta fannfergis í borginni í eina öld. Um 45 sentimetra þykkur snjór hafði
fallið frá því á laugardag og þar til í gærmorgun og snjókoman var þá 20%
meiri en í öllum febrúarmánuði í venjulegu árferði, að sögn borgarstjórans
Sergejs Sobjaníns. Hann sagði þó að engin stórslys hefðu orðið og engin hús
hrunið vegna fannfergisins. Ekkert lát var á snjókomunni í gær.
AFP
Metsnjókoma í Moskvu
Umhverfisverndarsamtök sögðust í gær ætla að
áfrýja úrskurði héraðsdómstóls vegna kröfu
samtakanna um að leyfi norskra stjórnvalda til
olíuleitar í Barentshafi yrðu felld úr gildi.
Héraðsdómstóll í Ósló vísaði kröfunni frá í jan-
úar en samtökin ætla að áfrýja málinu til hæsta-
réttar. Umhverfisverndarsamtökin segja að
olíuleitarleyfin brjóti í bága við ákvæði sem
bætt var við stjórnarskrá Noregs árið 2014 til að
tryggja rétt borgaranna til heilsusamlegs um-
hverfis. Þau segja einnig að olíuleitarleyfin
brjóti gegn Parísarsáttmálanum um aðgerðir til
að stemma stigu við loftslagsbreytingum.
Stjórnin neitar því og segir samtökin túlka stjórnarskrárákvæðið of vítt.
Hún hafði heimilað fyrirtækjum að hefja boranir á hafsvæðum þar sem olíu
hefur aldrei verið leitað áður.
NOREGUR
Úrskurði um olíuleit áfrýjað
Norskur olíuborpallur.