Morgunblaðið - 06.02.2018, Side 26
E
inar Ólafsson fæddist í
Vesturbænum í
Reykjavík 6.2. 1948 og
átti þar heima við Ný-
lendugötuna til átta
ára aldurs: „Vesturbærinn var þá
mikið ævintýraland fyrir krakka,
með höfnina, Slippinn og Örfirisey í
næsta nágrenni. Ég var sendur sex
ára í tímakennslu inn á Hofteig. Það
var heilmikið ferðalag fyrir krakka,
með strætisvagni, nánast út í sveit.
Næsta vetur fór ég í Miðbæjarskól-
ann og ári síðar í Laugarnesskólann
þar sem foreldrar mínir höfðu keypt
íbúð við Rauðalækinn.
Ég var átta sumur í sveit á Mæli-
fellsá í Skagafirði hjá Birni Hjálm-
arssyni og Þorbjörgu Sveinsdóttur
og naut þar vinsælda prestshjónanna
á Mælifelli, afa míns og ömmu, sem
höfðu látist fyrir aldur fram. Þarna
kynntist maður sveitastörfum og
Þorbjörg var gullnáma þegar vísur
voru annars vegar og þá ekki síður
vísur eftir séra Tryggva, afa minn.“
Eftir landspróf fór Einar í Sam-
vinnuskólann og útskrifaðist þaðan
1968. Hann starfaði síðan hjá Sam-
vinnutryggingum til 1971. Þá ákváðu
þau hjónin að reyna fyrir sér í
kennslu og fengu kennarastarf á
Vopnafirði: „Þar kynntumst við
mörgu dásamlegu fólki og þar kvikn-
aði áhuginn á lax- og silungsveiði
sem hefur fylgt mér allar götur
síðan. Hofsá hefur verið áfanga-
staður nánast á hverju ári og er í
miklu uppáhaldi. Margar veiðisögur
hafa orðið til í þeim ferðum og
kannski sú eftirminnilegasta þegar
Atli Dagur, sonarsonur minn, fékk
maríulaxinn.“
Eftir dvölina á Vopnafirði varð
ekki aftur snúið – skólastarf varð að
ævistarfi. Þau hjónin kenndu síðan
einn vetur á Eyrarbakka og síðan í
Ásgarði í Kjós þar sem Einar varð
skólastjóri en Solveig, kona hans
kennari.
Eftir sjö ára veru í Kjósinni
kenndu þau m.a. á Blönduósi þar
sem Solveig hafði umsjón með sér-
kennsludeild skólans. Frá Blönduósi
lá leiðin yfir flóann á Drangsnes á
Ströndum. Þar var Einar var skóla-
stjóri í tíu ár. Árið 2003 fluttu þau í
Fellabæ, fæðingarbæ Solveigar, þar
sem Einar varð aðstoðarskólastjóri
og Sólveig kennari. Þau fluttu síðan í
Kópavoginn sumarið 2014.
Einar Ólafsson, fyrrverandi skólastjóri – 70 ára
Fjölskyldan Einar, Solveig, börn, tengdabörn og barnabörn á leið ı́ hamborgaraveislu í Kringlunni.
Skólastarf víða um
land varð að ævistarfi
Veiði Atli Dagur með maríulaxinn
sinn ásamt afa sínum.
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2018
Signý Sæmundsdóttir óperusöngkona lenti á klakanum í morgun,á sjálfan afmælisdaginn, eftir helgarferð vestanhafs. „Ég var ídásamlegri systraferð í tilefni afmælisins. Við vorum með fjöl-
breytt prógramm upp á hvern dag eins og borgin býður upp á. Við
vorum aðallega á Manhattan, skoðuðum arkitektúrinn, fórum á
myndlistarsöfn og nutum matar og drykkjar. Við fórum líka á söng-
leikinn Óperudrauginn á Broadway, sem var glæsileg sýning.
Ég vonast til að afmælisdagurinn verði ljúfur og yndislegur og um
næstu helgi ætla ég að hitta stórfjölskylduna og vini til að fagna þess-
um áfanga.“
Signý kennir söng í Söngskólanum í Reykjavík og Nýja tónlistar-
skólanum og sér um raddþjálfun hjá Selkórnum á Seltjarnarnesi. „Sá
kór er að verða 50 ára á næstunni og því stendur mikið til. Ég hef ver-
ið svo heppin að hafa getað starfað við mitt áhugamál alla tíð og verið
í söngtengdu starfi. Núna er það mest kennslan en auðvitað er ég allt-
af eitthvað að syngja og held röddinni við. Ég hef verið að æfa með
sönghóp sem heitir Þrjár klassískar og við komum fram á ýmsum
stöðum. Svo tek ég þátt í verkefni sem heitir Brautryðjendur þar sem
fjallað er í tali og tónum um óperusöngvara sem ruddu brautina.“
Signý hefur áhuga á öllum listgreinum og stundar útiveru og hreyf-
ingu. „Myndlistin heillar mest og ég hef sjálf aðeins verið að koma við
hana. Nei, ég ætla ekki að halda sýningu,“ segir Signý aðspurð.
„Þetta er bara hobbí ennþá, en maður veit aldrei hvað gerist síðar.“
Systurnar Frá vinstri: Þóra Fríða, afmælisbarnið Signý og Soffía
staddar við Columbia-háskóla í New York.
Nýlent eftir systra-
ferð til New York
Signý Sæmundsdóttir er sextug í dag
Hugrún Birna Hjaltadóttir og Thelma Sif Halldórsdóttir seldu dót á tombólu og
sungu fyrir gesti og gangandi. Þær söfnuðu 3.572 kr. sem þær gáfu Rauða kross-
inum á Selfossi.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
//////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is