Morgunblaðið - 19.02.2018, Page 1

Morgunblaðið - 19.02.2018, Page 1
M Á N U D A G U R 1 9. F E B R Ú A R 2 0 1 8 Stofnað 1913  42. tölublað  106. árgangur  LEIÐSÖGN UM GALDRA, GLÆPI OG GLÆFRAKVENDI ÍSLENSKUR GALDRA- HEIMUR LEIKSÝNINGIN HÁPUNKTUR SKÓLAÁRSINS FANTASÍUBÓKMENNTIR 26 PÉTUR PAN Í FG 12RÁÐHERRA VÍSAÐI VEGINN 29 Arnar Þór Ingólfsson athi@mbl.is Ekkert lát er á jarðhræringunum í grennd við Grímsey, á svonefndu Tjörnesbrotabelti. Í gær mældust þar sex skjálftar yfir þremur stigum á Richter-kvarða. Ármann Höskuldsson eldfjalla- fræðingur segir í samtali við Morgunblaðið að atburðarásin sé mjög óvenjuleg. Hrinan hafi staðið yfir lengi og verið mjög þétt. Hún hófst 14. febrúar síðastliðinn og hefur verið nær lát- laus síðan. „Ef ég ætti heima á Húsavík tæki ég allt brot- hætt niður úr hillum á meðan þetta gengur yfir,“ segir Ármann. „Á þessu svæði hefur verið beðið í meira en hundrað ár eftir stórum skjálfta,“ bætir hann við. Ármann útilokar ekki að spennan sem þarna fær útrás um þessar mundir færist í aðrar sprungur á svæðinu í kjölfar þessarar miklu hrinu. Í gær mældust á einum sólarhring um 1.800 skjálftar á svæðinu. Til samanburðar má nefna að í hefðbundinni viku mælast á bilinu 300 til 500 skjálftar á jarðskjálftamælum Veðurstofunnar. Í apríl 2013 urðu einnig miklar hræringar við Grímsey í kjölfar skjálfta af stærðinni 5,5 á Richter. Náttúruvársérfræðingar fylgjast grannt með gangi mála. Hrinan mjög óvenjuleg  Ekkert lát á jarðskjálftunum við Grímsey  Lengi beðið eftir stórum skjálfta  Eldfjallafræðingur hvetur Húsvíkinga til að gæta að brothættum munum Jarðskjálftahrina » Hræringarnar byrjuðu 14. febrúar. » Skjálftarnir hafa verið óvenjuöflugir. » Gæti verið fyrirboði stærri viðburða. MMikil spennulosun nyrðra »2 Könnun sem rannsóknarfyrirtækið Zenter gerði fyrir Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) leiðir í ljós að tæp- ur þriðjungur landsmanna segist bera lítið eða ekkert traust til versl- unar á Íslandi. Þá sögðu um tuttugu prósent svarenda að á heildina litið væri upplifun þeirra af verslun hér á landi neikvæð. Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ, bendir á að samkvæmt könnuninni séu þó 66-67% landsmanna jákvæð gagnvart at- vinnugreininni. Hann segir einnig rétt að skoða niðurstöður könnunar- innar í ljósi þess að hún fór fram skömmu eftir að tveir erlendir versl- unarrisar, Costco og H&M, hófu starfsemi á Íslandi og að í kringum það skapaðist töluverð neikvæð um- ræða um íslenska verslun. „Fáar ef nokkrar atvinnugreinar hafa þurft að þola jafnmikið neikvætt umtal – meira að segja á vettvangi stjórnmálanna – og hefur íslensk verslun átt á brattann að sækja í um- ræðunni undanfarin misseri,“ segir hann og minnir á að af þeim sem tóku afstöðu sögðust nær tveir þriðju bera fullkomið, mikið eða eitthvert traust til verslunar á Íslandi, og rúm 78% sögðu upplifun sína af íslenskri versl- un jákvæða eða hvorki né. »14 Verslun mætir mótbyr Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Verslun Neikvæð umræða var um ís- lenska verslun er Costco var opnað.  Þriðjungur lands- manna neikvæður Tíðin hefur verið rysjótt undanfarið og lítið lát virðist vera á umhleyp- ingum. Í dag er gert ráð fyrir sunnanátt, 13 til 18 m/s, en hvassara verður á Snæfellsnesi, vætusamt og hitastigið 2 til 8 stig. Á morgun gerir veður- spáin ráð fyrir því að vindur snúist til suðvesturs og verði 10 til 18 m/s og él. Heldur verður hægara og léttskýjaðra á Norðaustur- og Austurlandi. Víða vægt frost og hiti rétt yfir frostmarki með suður- og vesturströndinni. Kalt en fallegt vetrarveður Morgunblaðið/Eggert  Silja Dögg Gunnarsdóttir, fyrsti flutnings- maður frumvarps á Alþingi um að gera umskurð á drengj- um refsiverðan, segist hafa vonast til þess að þjóð- kirkjan tæki af- stöðu með börnum og frelsi þeirra og öryggi frekar en trúarbrögðum. Agnes M. Sigurðar- dóttir, biskup Íslands, lýsti í gær andstöðu við samþykkt frumvarps- ins. Samtökin Siðmennt styðja það aftur á móti. Málið hefur vakið mikla athygli erlendis. »4 Vonaði að kirkjan stæði með börnum Silja Dögg Gunnarsdóttir  St. Jósefsspítali mun hýsa lífs- gæðasetur, gangi hugmyndir starfshóps á vegum Hafnarfjarðar- bæjar eftir. Hafnarfjarðarbær keypti St. Jósefsspítala af ríkinu á síðasta ári og skipaði í kjölfarið starfshóp til þess að koma með tillögur að notk- un húsnæðisins. Hugmynd um lífs- gæðasetur varð ofan á. Til þess að það verði að veruleika þarf að leggja í 200 milljóna króna kostnað við lagfæringar á húsinu. Gert er ráð fyrir því að aðstaða í húsinu verði leigð út og rekstur hússins verði sjálfbær þegar það verður komið í fullan rekstur. Lífs- gæðasetrinu er ætlað að efla Hafnarfjörð sem heilsubæ. Hug- myndir eru um að samkomustaður verði í kapellunni, tilraunaeldhús í kjallaranum og myndlistarkennsla í skurðstofum. »10 Lífsgæðasetur á St. Jóefsspítala með myndlist í skurðstofum og tilraunaeldhúsi Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýtt hlutverk Líf mun færast á ný í hús- næði St. Jósefsspítala í Hafnarfirði.  Lögreglunni á höfuðborgarsvæð- inu hafa frá því í byrjun desember borist tæplega 50 tilkynningar um innbrot í heimahús. Mál þessi hafa verið mikið í umræðunni að undan- förnu og hefur verið talað um far- aldur, þótt fjöldinn sé ekki langt yf- ir meðaltali síðustu tólf mánaða. „Sum þessara mála eru þegar upplýst og við gerum okkur vonir um að upplýsa fleiri á næstunni,“ segir Ásgeir Þór Ásgeirsson yfir- lögregluþjónn í samtali við Morgunblaðið. Vegna fjölgunar verkefna lögreglu segir hann æski- legt að efla styrk almennu löggæsl- unnar svo sem með því að bæta við þriðja útkallsbílnum sem gerður er út frá lögreglustöðinni sem þjónar Kópavogi og Breiðholti. Slíkt þýði hins vegar að fjölga þurfi um tíu lögreglumenn, sem kosti um 180 milljónir króna á ári. »6 Fjölgun um einn hóp á lögregluvaktinni myndi kosta 180 milljónir króna árlega Ljósmynd/Kristinn Magnússon Lögreglan Mikið álag er meðal annars vegna fjölda innbrota á síðustu mánuðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.