Morgunblaðið - 19.02.2018, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 19.02.2018, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2018 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bátar      Flatahrauni 25 - Hafnarfirði Sími 564 0400 www.bilaraf.is Mikið úrval í bæði 12V og 24V. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042, Húsviðhald Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl 9, Kraftur í KR kl 10:30 (leikfimi al- lir velkomnir og frítt inn). Útskurður og myndlist kl 13 og félagsvist er spiluð í matsalnum kl 13. Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-16. Ganga um nágrennið kl. 11. Handavinna með leiðb. kl. 12:30-16. Félagsvist með vinningum kl. 13. Myndlist með Elsu kl. 16-20. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. s: 535-2700. Boðinn Mánudagur: Leikfimi kl. 10.30. Félagsvist kl. 13.00. Myndlist kl. 13.00. Spjallhópur Boðans kl. 15.00 Dalbraut 18-20 Brids kl. 13 Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl.10.20. Opin handverk- stofa kl.13.00. Boccia kl.13.30. Kaffiveitingar kl.14.30. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Leirmótun 8:30-12:30, Bókabíllinn á svæðinu 10-10:30, Handaband- opin vinnustofa með leiðbeinendum ókeypis og öllum opið 10:00-12:00, frjáls spilamennska 13: 00, Bókband 13:00-17:00, Söngstund við píanóið 13:30- 14:15, Kaffivei- tingar 14:30, Handavinnuhópur 15:00-19:00. Verið velkomin á Vitatorg, síminn er 411-9450 Garðabæ Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá 09:30-16:00. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá 14:00-15:40. Vatnsleikfimi Sjál. Kl. 7:40/8:20/15:15. Kvennaleikfimi Sjál. kl. 9:05. Stólaleikfimi Sjál. kl. 9:50. Kvennaleikfimi Ásg. kl. 10:40. Bridge í Jónshúsi kl. 13:00. Tiffany námskeið í Kirkjuhvoli kl.13:00. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16:15. Gerðuberg Mánudagur Opin Handavinnustofan kl 08:30-16:00. Útskurður m/leiðb. kl. 09:00-16:00. Línudans kl. 13:00-14:00. Kóræfing kl. 14:30-16:30. Gjábakki kl. 9.00 Handavinna, kl. 9.10 Boccia, kl. 9.30 Post- ulínsmálun, kl. 10.50 Jóga, kl. 13.15 Canasta. Gullsmári Mánudagur. Postulínshópur, kl 9.00 Jóga kl 9:30 Ganga kl 10:00 Handavinna , Bridge kl 13:00 Jóga kl 18:00 Félagsvist kl 20:00 Hvassaleiti 56 - 58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8 - 16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, leikfimi kl. 9 hjá Carynu, morgunleikfimi kl. 9.45, jóga kl. 10 hjá Carynu, hádegismatur kl. 11.30. Tálgun kl. 13, spilað bridge kl. 13, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30, jóga hjá Ragnheiði kl. 16. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl.8.50, listasmiðjan opin fyrir alla kl.9-12, línudansnámskeið kl.10, ganga kl.10, myndlistanámskeið hjá Margréti Zophoníasdóttir kl.12.30, handavinnuhornið kl.13, félagsvist kl.13.15, síðdegiskaffi kl. 14:30 allir velkomnir óháð aldri nánari upplýsingar í síma 411-2790 Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga kl. 9 í Borgum, Postulínsmálun kl. 9 í Borgum, gönguhópar kl. 10 frá Borgum, Grafarvogskirkju og inni í Egilshöll. Félagsvist kl. 12:30 í Borgum. Skartgripagerð með Sesselju kl. 13:00 í Borgum, allir velkomnir, tréútskurður kl. 13 á Korpúlfsstöðum og kóræfing Korpusystkina kl. 16:30 í Borgum, fleiri velkomnir í kórinn. Norðubrún 1 Morgunkaffi kl.8.30,morgunleikfimi kl.9.45,upplestur kl.11,trésmiðja kl.13-16, ganga m.starfsmanni kl.14, bíó á 2.hæð kl.15.30.Uppl í s.4112760. Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr 10 er boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin. Hádegisverður er kl. 11.30-12.30 og spiluð er félagsvist kl. 13.00. Kaffi og meðlæti er selt á vægu verði kl. 14.30-15.30. Allir eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu Helenu í síma 568- 2586. Seltjarnarnes Gler á neðri hæð Félagsheimilisins við Suðurströnd kl. 9. og 13. Leir Skólabraut kl. 9. Billjard í Selinu kl. 10. Krossgátur og kaffi í króknum kl. 10.30. Jóga salnum kl. 11. Handavinna Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Munið að skrá ykkur vegna nk. fimmtudags 22. feb. en þá verður gaman saman í salnum á Skólabraut. Söngur, dans og léttar veitingar. Vörður – fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna Aðalfundur SES Aðalfundur Samtaka eldri sjálfstæðismanna, SES, verður haldinn í Valhöll í hádeginu miðvikudaginn 28. febrúar klukkan 12. Venjuleg aðalfundarstörf. Með kveðju, stjórnin. Fundir/Mannfagnaðir Smá- og raðauglýsingar Þú finnur allt á FINNA.IS Vantar þig dekk undir bílinn? pabba snitta og setja saman fyrstu rörin og endaði það svo að sjö ára strákurinn snittaði megnið af rör- unum og fannst Inga þetta skemmtilegar aðfarir að horfa á. Árin færðust yfir hann eins og aðra og seinustu árin var þrótt- urinn mikið farinn að minnka og heilsan farin að bila. Þótti honum illt að geta ekki farið akandi allra sinna ferða lengur til að heilsa upp á vinafólkið og síðustu árin voru erfið á margan hátt og sjónin tak- mörkuð. Fór það svo að stiginn sem þú hafðir farið alla daga í tæp fimmtíu ár varð síðasta ferðin, er það svo órafjarri manninum sem hljóp eftir steyptum þakrennum við vinnu sína 35 árum áður. Takk fyrir allt, Ingi, og hvíldu í friði. Magnús Orri Einarsson. Ingi byggði ásamt systkinum sínum og móður hús á Akureyri og bjuggu þau þar öll uns Ingi flutti til Reykjavíkur um 1965. Ein- hvern veginn grunar mig að Ingi hafi verið aðalmaðurinn við þá byggingu. Systkinin Sigurlaug og Jóhann ásamt móður sinni bjuggu alla sína tíð á Akureyri. Meðan Ingi var á Akureyri stundaði hann nokkuð jöfnum höndum bílamálun og netagerð enda hafði hann rétt- indi í hvoru tveggja. Auk þess tók hann meirapróf bifreiðarstjóra. Eftir að hann kom suður gerðist hann járnamaður við fram- kvæmdirnar við Búrfell. Kynni okkar Inga hófust 1972 þegar við keyptum hvor sína íbúðina í sama húsinu 1972, Ingi bjó þar til ævi- loka en ég í fimm ár. Þegar þeim lauk réði hann sig sem bílamálara hjá Agli Vilhjálmssyni og vann þar í nokkur ár. Næst gerðist hann sjálfstæður verktaki og stundaði smærri húsaviðgerðir, á þökum, gluggum og við málningarvinnu. Þetta stundaði hann fram yfir 1980. Hann var jafnframt í neta- gerð og málaði bíla. Rigningasum- arið 1983 gafst hann upp á þessu og gerðist sundlaugarvörður í Sundlaug Vesturbæjar og starfaði þar til starfsloka. Bílamálunin eftir 1980 fór fram í húsnæði sem ég átti og fylgdi nýju aðsetri mínu. Þá kom hann oft í kaffi og varð heimagangur til æviloka. Á þessum árum var stundum farið í jeppaferðir. Ég með fjölskyldu mína á öðrum bíln- um en Helgi heitinn Frímann skólabróðir minn og vinur Inga á hinum. Þessar ferðir kunni Ingi vel að meta. Ég get staðfest að það er leitun á geðbetri og hjálpsamir manni en Ingi var. Hann var alltaf reiðubúinn að rétta hjálparhönd. Þegar árin færðust yfir fór Ingi að sækja ýmis námskeið á vegum eldri borgara, dansnámskeið og ekki síður kennslu í að mála mál- verk. Náði hann tökum á því og eftir hann liggja þó nokkur falleg málverk. Einar Kristinsson. Þá er saga Inga öll, hann hef ég þekkt allt mitt líf og sem krakki fannst mér alltaf gaman að snúast í kringum hann. Fyrstu eiginlegu minningar mínar um Inga voru af manninum sem var uppi á þaki að laga og viðhalda steyptum þakrenn- um í Hlíðahverfinu. Ingi var gamall nágranni og vinur pabba og alltaf þegar pabbi fór að framkvæma eitt- hvað verklegt var Ingi mættur hvort sem það var að steypa gólf- plötur, bera spónaplötur yfir snjó- skafla uppi í kofa um miðjan vetur, rétta bíla, laga baðherbergi eða byggja bílskúr. Einnig voru farnar ófáar ferðir inn á hálendið með Inga hvort sem það var um Fjallabak eða á Arnarvatnsheiði. Þetta þótti stráknum mér hin mesta skemmt- un. Eitt af því sem stendur þó upp úr var þegar Ingi keypti bílskúr sem ekki var í hitaveita, þá var ekki annað hægt en að fara að leysa úr því. Horfði ég hugfanginn á Inga og ✝ Ingi Guð-mundur Ein- arsson fæddist 30. maí 1925. Hann lést á Borgarspítalanum 10. febrúar 2018. Foreldrar hans voru Einar Þór- arinsson verkamað- ur, f. 11. júní 1889, d. 1. júní 1934, og Að- alheiður Guðmunds- dóttir, f. 8. apríl 1888 (1889), d. 17. apríl 1987. Systkini Inga voru: 1) Ljótunn Sigurlaug, f. 14. júlí 1922, d. 3. júní 2000, ógift og barnlaus. 2) Jóhann Reynir, f. 17. júlí 1927, d. 13. nóvember 2015, ógiftur og barnlaus. Ingi eignaðist dóttur sem lést óskírð í frum- bernsku. Ingi starf- aði framan af við netagerð og bíla- málun jöfnum höndum ásamt akstri bifreiða. Eft- ir að hann flutti suður starfaði hann við járnabindingar, netagerð og bíla- málun. Um miðjan áttunda áratuginn fór Ingi að vinna við húsavið- gerðir. Hætti hann slíkri starf- semi 1983 og gerðist sundlaug- arvörður í Sundlaug Vesturbæjar og starfaði þar til starfsloka. Útför Inga fer fram frá kapell- unni í Fossvogi í dag, 19. febrúar 2018, klukkan 15. Ingi Guðmundur Einarsson ✝ GuðmundaAnna Eyjólfs- dóttir fæddist í Ólafsvík 1. maí 1945. Hún lést 11. febrúar 2018 á Hrafnistu í Kópa- vogi. Foreldrar henn- ar voru Anna Guð- finna Þórðardóttir, f. 16. maí 1904 í Borgarholti í Eyja- og Miklaholtshreppi, d. 11. sept- ember 1982, og Eyjólfur Jóhann Snæbjörnsson, f. 16. október 1906 í Ólafsvík, d. 4. október 1983. Systkini Guðmundu voru Ey- steinn Þórður, f. 16. september eiginmaður hennar er Sigurður Nordal, f. 19. febrúar 1956. Börn þeirra eru Dóra, f. 1993, Anna, f. 1996, og Guðjón Ólafur, f. 1997. 2) Gróa Hlín Rósinkransa, f. 10. mars 1971, eiginmaður hennar er Ragnar Kristinn Ingason, f. 7. janúar 1969. Börn þeirra eru Ríkarður Jón, f. 1992, Bjarki Steinn, f. 1994, og Sæunn Elín, f. 1996. 3) Erlingur, f. 10. október 1975, eiginkona hans er Íris Ósk Blöndal, f. 1. október 1977. Sonur þeirra er Guðmundur, f. 2014. Fyrir átti Jón soninn Ævar Þór, f. 13 september 1964. Guðmunda fluttist ung til Reykjavíkur og vann við versl- unarstörf þar til þau hjón stofn- uðu heimili. Eftir að börnin uxu úr grasi starfaði hún lengst af í Ölduselsskóla, m.a. sem stuðn- ingsfulltrúi. Útför Guðmundu fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi í dag, 19. febrúar 2018, og hefst at- höfnin klukkan 13. 1939, d. 2. janúar 1940, og Halla, f. 5. mars 1941, d. 5. maí 2004. Guðmunda gift- ist 26. mars 1967 eftirlifandi eigin- manni sínum, Jóni Kristni Ríkarðs- syni, f. í Reykjavík 7. janúar 1943. For- eldrar hans voru Jóna Davíðey Krist- insdóttir, f. 12. október 1924 í Reykjavík, og Ríkarður Jóhann- es Jónsson, f. 21. desember 1920 í Reykjavík, d. 8. ágúst 1991. Þau skildu. Börn Guðmundu og Jóns eru: 1) Snæbjörg, f. 22. janúar 1968, Fallin er frá elskuleg vinkona okkar Guðmunda Anna Eyjólfs- dóttir eða Dumma eins og við köll- uðum hana. Við vorum vinkonur frá því við vorum litlar stelpur, fæddar og uppaldar við hafið í Ólafsvík, hafið sem gat verið svo spegilslétt og fallegt, einnig hrikalegt og grimmt eins og lífið stundum er. Við héldum alltaf sambandi eftir að við urðum fullorðnar, aldrei ósáttar. Vináttan var okkar gæfa. Það fyrsta sem kemur í hugann þegar við minnumst Dummu er hversu mikil gæðamanneskja hún var. Heiðarleg, skapgóð, barnavin- ur, glettin og traust. Hún sá alltaf það góða í öllum og alltaf tilbúin að hjálpa þar sem þess var þörf. Vinkona okkar var fáguð, alltaf fallega klædd og vel tilhöfð. Hún var listræn, hafði sérstakt fegurð- arskyn, hafði unun af myndlist, lestri góðra bóka og tónlist og hún spilaði á gítar og píanó. Dumma var alin upp við góðar aðstæður hjá yndislegum foreldr- um sem báru mikla umhyggju fyr- ir dætrum sínum. Hún átti sterkan bakgrunn í samheldinni fjölskyldu og var mikil fjölskyldukona sjálf. Börnin hennar og barnabörn voru alin upp í miklum kærleika. Við vinkonurnar þökkum fyrir allar góðu stundirnar okkar. Sér- staklega viljum við nefna skemmtilegu mánuðina sem við bjuggum saman í Sörlaskjólinu í Reykjavík þegar við vorum ungar og lífið var bara gleði og leikur. Við þökkum samveru með fjöl- skyldum okkar, fyrir öll árin í gamla góða saumaklúbbnum, meðan hann var og hét. Yndis- legar stundir á skemmtilegu þorrablótunum og þá sérstaklega heima hjá Veigu og Dalla þar sem sögurnar, brandararnir og allur samsöngurinn hljómaði árlega. Síðast en ekki síst allar hvers- dagslegu stundirnar í kaffispjalli og góðu yfirlæti hjá vinkonu okk- ar sem bauð upp á dúkað borð og skemmtilegheit. Það erfiðasta í hennar miklu veikindum var það að allt sem hún elskaði að gera var tekið frá henni – að lesa, spjalla, vinna handa- vinnu, hugsa um fallega heimilið sitt, ferðast, fara í heimsóknir, vera með heimboðin og miklu samvistirnar við börnin og barna- börnin eins og hún hafði gert áður en hún veiktist. Veistu ef þú vin átt þann er þú vel trúir og vilt þú af honum gott geta. Geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. (Úr Hávamálum) Við þökkum elsku vinkonu okk- ar fyrir allar stundirnar okkar saman í gleði og sorg. Við vottum Jóni, Snæbjörgu, Gróu, Erlingi og fjölskyldunni allri innilega samúð. Guð blessi minningu vinkonu okkar Guðmundu Önnu Eyjólfs- dóttur. Ragnheiður S. Helgadóttir (Heiða) og Sigrún Vilhjálmsdóttir. Guðmunda Anna Eyjólfsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.