Morgunblaðið - 19.02.2018, Blaðsíða 11
Eddufell 8 Tveimur hæðum var ný-
lega bætt við húsið sem þar stendur.
Háhýsi Áform GP-arkitekta gera ráð fyrir að græni turninn fyrir miðju rísi.
Þar er nú verslunarhúsnæði á einni hæð auk bílastæðis.
Áhugi á háhýsi
í Breiðholti
GP-arkitektar vilja reisa 15 hæða
háhýsi 50 íbúðir yrðu í húsinu
Áhugi er á byggingu 15 hæða há-
hýsis við Eddufell 2-6 í Breiðholti.
Þetta kemur fram í nýjasta tölu-
blaði Breiðholtsblaðsins, sem kom
út á dögunum. Arkitektastofan GP-
arkitektar sendi skipulagsfulltrúa
erindi í apríl í fyrra og var það tek-
ið fyrir á fundi skipulagsstjóra 12.
janúar síðastliðinn. Var erindinu
vísað til verkefnisstjóra ásamt um-
sögn skipulagsfulltrúa, en ekki ligg-
ur fyrir hvers eðlis umsögn hans
var.
Ef af byggingu hússins verður
bætast 50 íbúðir við á svæði sem nú
geymir að mestu bíla. Tillagan ger-
ir ráð fyrir verslun og þjónustu á
neðstu hæð hússins, en að íbúðir
verði á hinum fjórtán hæðunum.
Stutt er síðan niðurníddum versl-
unar- og þjónustukjarna í Eddufelli
8 var breytt í 24 íbúða fjölbýlishús.
Hönnun þess var einmitt í höndum
GP-arkitekta og þykir hafa tekist
vel til.
Marta Guðjónsdóttir, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, furðar
sig á að málið hafi ekki verið kynnt
borgarfulltrúum. Þess ber þó að
geta að mál sem vísað er til verk-
efnisstjóra fara þaðan til umhverfis-
og skipulagsráðs og loks til borg-
arráðs áður en þau eru samþykkt.
alexander@mbl.is
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2018
Í samvinnu við Reykjavíkurborg
hefur VSÓ Ráðgjöf unnið frum-
matsskýrslu vegna fyrirhugaðra
jarðvegsflutninga og landmótunar
fyrir nýjan kirkjugarð í hlíðum
Úlfarsfells. Frummatsskýrslan er
nú til kynningar og er frestur til að
senda inn ábendingar til 3. apríl
2018.
Í frummatsskýrslu er gerð grein
fyrir framkvæmdinni, helstu áhrifa-
þáttum hennar og líklegum áhrif-
um á umhverfisþætti. Í samantekt
kemur fram að fyrirsjáanlegt sé að
rými til greftrunar í núverandi
kirkjugörðum innan borgarinnar
verði uppurið innan fárra ára sam-
kvæmt mati Kirkjugarðaráðs.
Framkvæmdin felur í sér flutn-
ing á 570 þúsund rúmmetrum af
góðum ómenguðum jarðvegi og
landið verði mótað þannig að það
verði grafartækt. Heildarstærð
hins nýja kirkjugarðs verður 22,5
hektarar. Gert er ráð fyrir því að
fyllingin verði mest fimm metra
djúp, en á stærstum hluta svæðis-
ins verður fyllingin um þrír metrar.
Meginhluti þess jarðvegs, sem
fluttur verður kemur frá uppbygg-
ingarsvæðum á höfuðborgarsvæð-
inu, m.a. í Vatnsmýri, Mjódd og
Valssvæðinu.
Framkvæmdartími er áætlaður
fimm ár. Eftir að jarðvegsflutn-
ingum og landmótun lýkur hefst
frágangur lóðar í samræmi við
fyrirliggjandi deiliskipulag kirkju-
garðs í Úlfarsfelli sem byggist á
vinningstillögu Landmótunar.
Búast má við foki fínefna
Fram kemur í samantektinni að
búast megi við foki fínefna frá jarð-
vegi yfir byggð, sér í lagi norður
fyrir Korputorg í áttina að Staðar-
hverfi, þegar ákveðin veðurskilyrði
séu fyrir hendi. Dregið verði úr
áhrifum með því að sá í jarðveginn
jafnóðum og hverjum áfanga verð-
ur lokið til að hefta sandfokið.
Eftir að framkvæmd lýkur verð-
ur svæðið grætt upp í samræmi við
deiliskipulag fyrirhugaðs kirkju-
garðs. aij@mbl.is
Fyrirhugaður kirkjugarður
í hlíðum Úlfarsf ells
Heimild: Skipulagsstofnun
Land mótað í Úlfars-
felli á fimm árum
Frummatsskýrsla vegna nýs kirkjugarðs til kynningar
Rými í kirkjugörðum höfuðborgarinnar senn uppurið
Morgunblaðið/Golli
Grafreitir Rými í núverandi kirkju-
görðum er senn að verða uppurið.
Samtökin ’78 og Reykjavíkurborg
hafa gert með sér nýja fræðslu-
og þjónustusamninga. Frá þessu
segir í tilkynningu frá Samtök-
unum ’78.
Í fræðslusamningnum er kveðið
á um að Samtökin ’78 sinni hin-
segin fræðslu í öllum grunnskólum
Reykjavíkurborgar eins og samið
var um árið 2014. Til viðbótar var
samið um sérstaka hinsegin
fræðslu til starfsfólks leikskóla
höfuðborgarinnar. Aukinheldur
var samið um jafningjafræðslu til
nemenda grunnskóla borgarinnar
líkt og áður.
Jafnframt er búið að tryggja
hinsegin félagsmiðstöð, samstarfs-
verkefni Samtakanna ’78 og frí-
stundamiðstöðvarinnar Tjarnar-
innar, rekstrarfé út árið 2020.
Meðfram fræðslusamningnum
var undirritaður þjónustusamn-
ingur um ráðgjöf til borgarbúa
hjá Samtökunum sér að kostn-
aðarlausu, starfrækslu ráðgjafar
fyrir unglinga og börn og að lok-
um að Samtökin ’78 geti sinnt
daglegum rekstri sínum.
Reykjavíkurborg leggur nú
meira til reksturs Samtakanna ’78
en nokkur annar og er því um-
svifamesti þjónustukaupi Samtak-
anna ’78.
Hinsegin fræðsla í leikskóla