Morgunblaðið - 19.02.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.02.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2018 Dvergshöfða 2, 110 Reykjavík bilanaust@bilanaust.is Sími: 535 9000 | bilanaust.is Gæði, reynsla og gott verð Vottaðir hágæða VARAHLUTIR í flestar gerðir bifreiða Siðan 1962 Bílanaust er einnig í Kópavogi – Hafnarfirði – Keflavík – Selfossi – Akureyri – Egilsstöðum með öllum póstum, sem eru býsna margir þegar ráðist er í sýningu af þessari stærðargráðu. Flottir, listrænir stjórnendur „Leikfélagið hefur í vetur staðið fyrir alls konar viðburðum innan skólans til að afla fjár fyrir leiksýn- inguna, sem er mjög dýr, aðallega vegna þess að við réðum til okkar flotta listræna stjórnendur,“ segir Emilíana og telur upp þá helstu: „Andrea Ösp Karlsdóttir skrifaði handritið og leikstýrir, Sævar Sigur- geirsson og Baldur Ragnarsson sömdu tónlist og texta, Berglind Rafnsdóttir og Berlind Ýr Karls- dóttir dansana og Hákon Hákonar- son er ljósameistari. Einnig fengum við smiði til að byggja mjög glæsi- lega sviðsmynd, sem einn nemand- inn, Steinunn Anna Svavarsdóttir, málaði og útfærði í smáatriðum. Sjö nemendur á hönnunarbraut hönnuðu og saumuðu alla búningana, sem engir tveir eru eins, og förðunin var alfarið í höndum nemenda.“ Leikfélagið Verðandi í FG hefur frá árinu 1999 sett upp leikrit og söngleiki, sem jafnan hafa verið há- punktur skólaársins. Í skólanum eru leiklist, hönnun, myndlist og fata- og textílhönnun sérsvið á mismunandi listnámsbrautum. „Leikritið er áfangi, sem gefur fimm einingar, og allir mega sækja um þátttöku. Þótt allir geti tekið þátt í uppfærslunni með einum eða öðrum hætti ræður Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Nokkuð langt er um liðiðsíðan Pétur Pan steig áleikhúsfjalirnar hér álandi. Tuttugu ár eftir því sem næst verður komist og þá í Borgarleikhúsinu. Þótt leikhúsgestir hafi elst um jafnmörg ár gegnir öðru máli um Pétur Pan, sem er síungur og heldur sínum eilífa æskublóma hvað sem á dynur og tímanum líður. Því er engin hætta á að hann vaxi upp úr hlutverki sínu. Og nú er hann kominn aftur á kreik, ásamt Vöndu vinkonu sinni, álfinum Skellibjöllu og fleiri karakterum í söngleiknum Pét- ur Pan í uppfærslu Leikfélagsins Verðandi í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, þar sem hersingin hefur æft af kappi frá því í október. Frumsýningin, sem er partur af árshátíð skólans, stendur fyrir dyr- um og síðan á annan tug sýninga fyr- ir almenning frá 25. febrúar til 22. mars. „Hátt í eitt hundrað nemendur af öllum brautum skólans koma að sýningunni og öllu verður tjaldað til,“ segir Emilíana Wing, formaður leik- félagsins. „Um þrjátíu leikarar og dansarar, tæknimenn, sviðsmenn, búningahönnuðir, förðunarfólk og leikhúsliðar, sem afgreiða í sjopp- unni, raða stólum og þess háttar, bera sýninguna uppi,“ heldur hún áfram. Hennar hlutverk sem fram- leiðandi er að hafa yfirsýn og umsjón Strákurinn sem vex aldrei upp úr hlutverkinu Hápunktur hvers skólaárs í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ er leiksýning sem Leikfélagið Verðandi set- ur upp í tengslum við árshátíðina. Í ár taka um eitt hundrað nemendur þátt í söngleiknum Pétur Pan, þar af þrjátíu sem leika, syngja og dansa. Aðrir hafa unnið bak við tjöldin að búningum, förðun, sviðs- mynd, uppröðun stóla og ýmsu tilfallandi. Hlutverk Andrea Ösp Karlsdóttir leikstjóri, Emilíana Wing, formaður Leik- félagsins Verðandi, og Berglind Ýr Karlsdóttir, annar tveggja danshöfunda. Frumbyggjar Í einum hópnum eru frumbyggjar sem búa í stórum ísjaka. Nonnabækurnar og nostalgían nefnist erindi sem Helga Birgisdóttir ís- lenskufræðingur heldur kl. 17 á morg- un, þriðjudaginn 20. febrúar, í Bóka- safni Kópavogs, 1. hæð í aðalsafni. Helga fjallar um Nonnabækurnar og ferðalög höfundarins, Jóns Sveins- sonar (1857-1944), bæði um Ísland og meginland Evrópu. Hún staldrar sér- staklega við aðdráttarafl Nonnabók- anna, veltir fyrir sér vinsældum þeirra og hugtakinu „nostalgía“, sem er for- tíðarþrá á okkar ylhýra máli. Viðburð- urinn er liður í erindaröðinni Barna- bókin í 100 ár á aðalsafni Bókasafns Kópavogs í febrúar. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Barnabókin í 100 ár Nonni og Manni Ágúst Guðmunds- son leikstýrir Garðari Thór Cortes í sjónvarpsþáttum frá 1988 sem byggðust á Nonnabókunum. Nonnabækur og nostalgía Morgunblaðið/Eggert Skellibjalla Heiða Rún Jónsdóttir leikur litla álfinn, Skellibjöllu. Öfugt við suma full- orðna eru margir krakkar alveg í skýj- unum yfir snjónum sem liggur yfir öllu þessa dagana. Snjór- inn getur verið þeim uppspretta mikillar gleði og alls konar skemmtilegra leikja. Til dæmis má byggja sér snjóhús og jafnvel fá fjölskylduna til að taka þátt í bygging- arstarfinu. Í Útilífsbók fjölskyldunnar eftir þær Pálínu Ósk Hraundal og Vilborgu Örnu Gissurardóttur eru nokkur góð ráð og jafnframt bent á að snjórinn sé bestur ef hægt er að skera hann í kubba og kubbarnir haldast saman þegar þeim er staflað. „Snjóhús eru byggð þannig að snjó- kubbunum er raðað upp hring eftir hring, sífellt smærri og smærri kubb- um sem ná að lokum saman. […] Gott er að grafa niður við innganginn til þess að tryggja það að kalda loftið komist ekki auðveldlega inn í húsið og hlýja loftið komist ekki út.“ Einnig er hægt að byggja einfaldari snjóhús, en þegar upp er staðið skipt- ir leikgleðin meira máli en notagildið. Úti er alltaf að snjóa … Sussum og sussum og róa … Morgunblaðið/Kristinn Mikið að gera Ungur byggingarmeistari. Snjóhús til fyrirmyndar Á Fjölskyldustund í Borgarbókasafn- inu Spönginni verður krílafimi kl. 14-15 á morgun, þriðjudaginn 20. febrúar. Boðið er upp á fræðslu og leikfimi fyrir ungbörn þar sem aðal- áherslan er á að undirbúa þau fyrir næstu skrefin í lífinu með leik, tónlist og söng. Með því að örva og styrkja ungbörn er hægt að hafa áhrif á hvernig taugakerfi þeirra þróast og bæta at- hygli þeirra og minni, auk þess sem hreyfigetan virðist verða meiri. Valný Óttarsdóttir, iðjuþjálfi, ungbarna- sundskennari og stofnandi Krílafimi, annast námskeiðið, sem er ætlað þriggja til 18 mánaða börnum. Borgarbókasafnið Spönginni Krílafimi með fræðslu og leik

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.