Morgunblaðið - 19.02.2018, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 19.02.2018, Qupperneq 13
Morgunblaðið/Eggert Fríður leikhópur Andri Páll Guðmundsson sem töfradrengurinn Pétur Pan (í grænum bol) og Agnes Emma Sigurðardóttir sem Vanda ( í rauðum bol) ásamt nokkrum sem leika, syngja og dansa í leiksýningunni. leikstjórinn algjörlega hverjir kom- ast að sem leikarar og dansarar,“ segir Emilíana, sem sjálf lék í sýn- ingunni Kalli og súkkulaðiverk- smiðjan, sem leikfélagið setti upp í skólanum í fyrra og var líka í leik- stjórn Andreu Aspar. Allir jafnir Þótt Emilíana leiki stórt hlut- verk í leiksýningunni sem framleið- andi saknar hún þess pínulítið að fara ekki með hlutverk á sviðinu í ár. Hún er á síðasta ári á leiklistarbraut, stefnir á leiklistarnám í Bandaríkj- unum og finnst fyrrnefndur leikritsá- fangi að vonum með þeim skemmti- legri, sem völ er á í skólanum. „Maður kynnist ótrúlega mörgum krökkum og það er ótrúlegt hvað þetta ferli kemur öllum saman, hvort sem þeir hafa hlutverk á sviðinu eða að raða stólum úti í sal. Allir eru jafn- ir og bera virðingu hver fyrir öðr- um.“ Fremst meðal jafningja eru þó óneitanlega Andri Páll Guðmunds- son, sem leikur Pétur Pan og Agnes Emma Sigurðardóttir sem Vanda, bæði á leiklistarbraut. Að sögn Emil- íönu sóttu óvenjulega margir um hlutverk í ár og því fór Andrea Ösp þá leið að skrifa fleiri hlutverk í leik- sýninguna en til stóð í upphafi. En ekki aðeins sóttu margir nemendur um hlutverk leikara heldur líka lærð- ir leikarar og leikstjórar um leik- stjórastólinn. „Við tókum marga í viðtöl og viðruðum nokkrar hugmyndir. Þegar við nefndum Pétur Pan við Andreu Ösp lifnaði yfir henni, enda kom í ljós að hún var með sjúklega mikið af hugmyndum um uppfærslu. Hún lýsti þeim á þann hátt að við urðum einfaldlega öll ástfangin af verkinu og ákváðum að setja það upp undir hennar stjórn.“ Fyrir alla fjölskylduna Emilíana segir ekki hafa komið annað til greina en að setja upp fjöl- skylduvæna sýningu. Þótt Pétur Pan þeirra í FG sé ekki nákvæmlega eins og hann birtist í sögunni, sem flestir þekkja, né heldur hinar söguhetjurn- ar og söguþráðurinn, fullyrðir hún að áhorfendur á öllum aldri muni hafa gaman af. „Okkar uppfærsla er fal- leg saga um vináttu. Nýir karakterar eru kynntir til sögunnar, til dæmis frumbyggjar, sem búa í stórum ís- jaka. Þótt Krókur, erkióvinur Péturs Pan, týndu krakkarnir, sjóræningj- arnir og fleiri séu á sínum stað mun ýmislegt koma á óvart,“ lofar Emil- íana. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2018 Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Gott við exemi • Betri og sterkari fætur Pétur Pan birtist fyrst 1902 í bókinni The Little White Bird eftir James Matthew Barrie. Seinna var sá hluti sem Pétur Pan kemur við sögu gerður að leikriti sem sett var upp í Lond- on 1904. Eftir að höfundurinn endurskrifaði verkið og gaf út sem barnabók hefur Pétur Pan komið í mörgum útgáfum, leik- gerðum, söngleikjum, teikni- myndum og bíómyndum. Pétur Pan býr í Hvergilandi þar sem tíminn líður ekki og því heldur hann eilífri æsku. Hann fer fyrir hópi stráka sem kalla sig Týndu drengina og getur heimsótt mannheima að vild. Venjulega fer hann með álfinum Skellibjöllu. Hann kynnist Vöndu og bræðrum hennar í einni ferðinni þegar hann lendir vandræðum með skuggann sinn og laumar sér inn um gluggann til þeirra. Vanda og bræðurnir fara síðan með honum til Hvergilands þar sem þau lenda í ýmsum ævintýrum, þau hitta t.d. indíána, hafmeyjar og sjóræningja. Í sögulok snúa Vanda, bræður hennar og Týndu strákarnir aftur heim til sín, því þau þurfa að halda áfram lífi sínu og fullorðnast. Pétur Pan verður eftir í Hvergilandi. Margar út- gáfur SAGAN AF PÉTRI PAN Eftir frumsýningu 21. febrúar, fer söngleikurinn Pétur Pan í al- mennar sýningar í sal FG, Urðar- brunni. Fyrsta sýning er kl. 18, sunnudaginn 25. febrúar. Nánari upplýsingar og miðasala: www.en- ter.is „ …enda kom í ljós að hún [Andrea Ösp, hand- ritshöfundur og leik- stjóri] var með sjúklega mikið af hugmyndum um uppfærslu.“ Hlutverk Hönnunarsafns Íslands er að safna og varðveita þann þátt ís- lenskrar menningar sem lýtur að hönnun, einkum frá aldamótunum 1900 til samtímans. Safnið á og geymir um 900 íslenska og erlenda muni, sem margir hafa mikla menningarsögulega þýðingu. Safnkost- urinn fer sístækkandi og samanstendur að mestu leyti af nytjamunum og/eða skrautmunum. S kál úr steinleir eftir Guð-nýju Magnúsdóttur leir-listakonu er einn þeirrahluta sem flokkast geta hvort tveggja sem nytjahlutur og skraut. Í Hönnunarsafninu er skálin skráð með eftirfarandi hætti: Skál Guðný Magnúsdóttir (1953) Djass, 2000 Skál Steinleir Gjöf frá hönnuðinum 2002 Skálin er úr seríu sem listakonan gerði um árabil og kallaði djass, nánar tiltekið Módern djass því listamaðurinn vísar til lita og lína mód- ernismans í verkunum. Tuttugu árum áður hafði Guðný gert aðra seríu með sama nafni en í öðrum litaskala, í jarðarlitum og formum sem hún tengdi uppruna djasstónlistarinnar í Afríku. Djass er heildarheiti leir- munanna. Íslensk hönnun Hönnunarsafn Íslands 2000 Skál úr djass- seríu eftir Guðnýju Magnúsdóttur Ljósmynd: Andrew Murray Tyrkneski fatahönnuðurinn Bora Aksu, sem býr og starfar í London, vakti athygli árið 2002 með fyrstu fatalínunni sem hann kynnti á tísku- sýningu eftir útskrift frá Central Saint Martins-lista- og hönnunar- skólanum í London. The Guardian, The Daily Telegraph og fleiri blöð hylltu hann sem stjörnu sýningar- innar og tískutvíeykið Dolce og Gabb- ana mun hafa keypt af honum nokkr- ar flíkur sér til innblásturs. Rómantískur fatnaður, þó á stund- um með örlítið drungalegu ívafi, hef- ur allar götur síðan verið aðalsmerki Aksu. Og er ennþá eins og sjá má á þessum dúllulegu pífukjólum, sem hann sýndi á fyrsta degi Tískuvik- unnar í London sl. föstudag, haust- vetur 2018. Tískuvikan í London, haust-vetur 2018 Dúllulegir pífukjólar AFP

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.