Morgunblaðið - 19.02.2018, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 19.02.2018, Qupperneq 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2018 hrædd við að tjá sig. Hún hvatti okkur til að rökstyðja mál okkar og kappræddi við okkur um stjórnmál og dægurmál. Ef eitt- hvert systkinanna endar í stjórnmálum í framtíðinni höfum við því nú þegar hlotið afar góða rökræðuþjálfun. Hún hefði reyndar sjálf líklega átt heima í stjórnmálum. Amma var enda alltaf tilbúin í að gerast tals- maður þeirra sem minna mega sín sem kristallaðist í fallegu sambandi hennar við dýr. Amma elskaði dýr og dýr elskuðu ömmu. Minnst tveir nágranna- kettir gerðu sig heimakomna í Ystabænum sem var vel skilj- anlegt enda ógleymanlega hlý- legur staður. Þegar amma síðan flutti í Mjóddina bar hún ábyrgð á því að hrafnar hverfisins hefðu alltaf nóg að éta. Amma var stórkostlegur gestgjafi. Bjór, vín og sælgæti var oft dregið fram til þess að fullkomna hina notalegu stemn- ingu og hún eyddi miklum tíma í eldhúsinu án þess að léleg sjón og göngugrind trufluðu ferlið. Engu máli skipti hversu miklum mat við torguðum, alltaf endaði máltíðin með spurningu hennar: „Ætlið þið ekki að borða neitt?“ Einn af mörgum kostum ömmu var hinn oft á tíðum sót- svarti húmor hennar; nægilega svartur til að hægt var að fara hæfilega yfir strikið með henni. Bæði fékk maður leyfi til að gera grín að henni og hún gerði sömuleiðis grín að okkur. Hlyn- ur fékk til að mynda eitt sinn það hlutverk að keyra hana út á flugvöll einn morguninn, en svaf yfir sig og jólagjöfin það árið var að sjálfsögðu stærðarinnar vekjaraklukka. Ein okkar allra sterkasta æskuminning tengist heimili ömmu og afa í Ystabænum. Húsið og garðurinn var ævin- týraveröld sem var alltaf opin fyrir leik okkar frændsystkin- anna. Í Ystabæ mátti allt. Við horfðum á bíómyndir á morgn- ana og borðuðum cheerios og kókópöffs í öll mál. Við minnumst álfasteinsins, rabarbarans, rifsberjarunnans, Snotru, torfbæjanna, eltinga- leikjanna, Svarta Skugga, gróð- urhússins með reykingalyktinni og sólpallsins. Amma var með sérstaklega gott minni og við drukkum í okkur sögur hennar úr sveit- inni; af áhugaverðu fólki hún hafði rekist á á lífsleiðinni og stöðum sem voru henni mik- ilvægir; af lífsháttum og fram- andi siðum. Hún mundi allt; ör- nefni, nöfn og atburðarás. Amma var vinur okkar og fé- lagi sem hafði góða nærveru og var full af hlýju. Söknuðurinn er gífurlegur en óteljandi minning- ar okkar um hana koma til með að fylgja okkur út allt lífið. Daníel Jakobsson, Hlynur Örn Jakobsson, Sólveig Jakobs- dóttir. Hún amma talaði mikið um dauðann og nefndi ósjaldan að hennar tími kæmi fljótlega. Slík ummæli hlutu þó ekki mikinn hljómgrunn hjá fólkinu í kring- um hana. Sú gamla var þó alltaf fljót af þeirri skoðun sinni enda var alltaf nóg fram undan hjá henni. Hún ætlaði sér sko að vera viðstödd fyrir næstu utan- landsferð, útskriftarveislu, brúðkaup, fermingu og þar fram eftir götunum. Hún hafði nefnilega alltaf eitthvað til að lifa fyrir og hlakka til og þar var sennilega hápunkturinn fjöl- margar skemmtilegar veislur þar sem hún gat skálað fyrir gleðistundum við sitt fólk. Var hún alla tíð vel inni í hlutunum, var mikill samfélagsrýnir og naut þess til hins ýtrasta að rökræða málefni líðandi stund- ar. Af okkar hálfu var það ómetanlegt að frumburðurinn okkar, Einar Örn, sem fæddist í desember, skyldi fá að hitta langömmu sína og að hún hafi fengið að njóta þess með okkur þegar við fögnuðum brúðkaupi okkar sumarið 2016. Elsku amma, takk fyrir dásamlegar minningar úr Ysta- bæ, takk fyrir fjölmargar skemmtilegar samræður í gegn- um tíðina og hláturinn sem við deildum. Takk fyrir að leyfa okkur að skutla þér heim eftir matarboð sem þú hélst alltaf að væri rosaleg kvöð og vesen fyr- ir okkur. Takk fyrir að vera frá- bær fyrirmynd og síðast en ekki síst takk fyrir að vera svona góð amma. Skál fyrir þér! Sunna Dögg, Gísli og Einar Örn. Elsku fallega amma okkar er farin, en þær yndislegu minn- ingar sitja nú eftir og fer maður ósjálfrátt að rifja upp hversu mikil forréttindi það voru að fá að kynnast henni. Við kynntumst „ömmu í Ystabæ“ þegar við vor- um einungis 8 og 4 ára og þvílíkt sem tekið var vel á móti okkur, enda fljótlega óskað eftir því að fá að kalla hana ömmu. Hún var alltaf glöð að sjá okkur enda hef- ur hún upp frá því verið sönn amma. Það var svo gaman að heimsækja ömmu og afa í Ysta- bænum enda bæði svo skemmti- leg og alltaf mesta fjörið þar. Afi lumaði alltaf á góðgæti úr utan- landsferðum þeirra og amma alltaf tilbúin að spjalla. Veisl- urnar hjá þeim svo skemmti- legar og höfum við saknað þeirra mikið eftir að afi lést og amma flutti úr Ystabænum. Eftir það var hún amma í Mjóddinni. Amma var eldklár kona og með einstakt minni sem breytt- ist ekkert með aldrinum. Hún hafði mjög mikla réttlætis- kennd, var mikil fyrirmynd og mismunaði engum. Það fengu allir að finna það. Hún naut þess mest að gleðja aðra og eyddi litlu í sjálfa sig. Hún var mikill húmoristi og gerði óspart góðlátlegt grín að sér og öðrum og hlógum við mikið með henni, hún hlustaði á útvarp Sögu alla daga og var inni í öllu tengdu pólitík og þjóðfélaginu í heild. Það var endalaust hægt að spjalla við hana um allt og ekkert. Það var mjög margt í hennar fari sem við getum tileinkað okkur inn í framtíðina, svona amma vill maður vera. Hún var svo mikil fyrirmynd. Það verður erfitt að sjá á eftir henni en á sama tíma gott að vita að nú líð- ur henni vel og er komin til afa Hreins. Svona sjáum við ömmu og við munum ávallt elska ömmu í Ystabæ/Mjóddinni. Berglind og Þóra. Elsku amma mín, ég trúi ekki að þú sért búin að kveðja þennan heim. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að eiga þig sem ömmu. Betri ömmu er ekki hægt að hugsa sér. Þú varst ekki bara amma mín, heldur einnig besta vinkona mín. Ég gat alltaf leitað til þín með allt, þú kenndir mér svo mikið um lífið sem ég hefði annars farið á mis við. Takk fyrir allar góðu stundirnar, amma mín, ég man hvað það var gaman þegar við elduðum saman og spjölluðum um alla heima og geima. Það var svo gaman þegar við fórum öll til Spánar sumarið 2015, enda elskaðir þú sólina, birtuna og hitann. Þú varst svo hjartahlý og góð manneskja og barst alltaf hag allra í fjölskyldunni fyrir brjósti. Dætur mínar Elsa og Emilía elskuðu þig svo mikið og hlökkuðu alltaf svo til að fara til langömmu, enda var það lýsandi fyrir þig, amma, að finnast mað- ur vera svo velkominn til þín, þú tókst alltaf svo vel á móti öll- um og varst svo gestrisin. Ekki vantaði veitingarnar hjá þér, amma, þú vildir alltaf að allir væru saddir og sælir. Sævari manninum mínum fannst svo gaman að ræða við þig um stjórnmál, enda vissir þú allt sem hægt var að vita um stjórn- mál og lást ekki á skoðunum þínum. Við höfði lútum í sorg og harmi og hrygg við strjúkum burt tárin af hvarmi. Nú stórt er skarð í líf okkar sorfið því fegursta blómið er frá okkur horfið. Með ástúð og kærleik þú allt að þér vafðir og ætíð tíma fyrir okkur þú hafðir þótt móðuna miklu þú farin sért yfir þá alltaf í huga okkar myndin þín lifir. Við kveðjum þig, amma, með söknuð í hjarta, en minning um faðmlag og brosið þitt bjarta. Allar liðnar stundir um þig okkur dreymi og algóður Guð á himnum þig geymi. (Sigfríður Sigurjónsdóttir) Elsku amma, ég sakna þín svo sárt, ég mun sakna þín hvern einasta dag, allt til enda veraldar. Þakklæti er mér efst í huga fyrir alla góðu stundirnar með þér. Takk fyrir allt, ég elska þig, amma, hvíl í friði. Þín Dagný. væru nú reyndar 16 ár síðan við fluttum varstu svo hissa að þú misstir pítsusneiðina þína á diskinn og hlóst. Það var alltaf gaman hjá þér. Mér finnst sorglegt að hugsa til þess að ég eigi ekki eftir að tala við þig aftur og hlæja með þér aftur og knúsa og kyssa þig aftur. En ég vona að þú hafir það gott þar sem þú ert núna. Eins og þú sagðir alltaf: „Þú ert fullgóð.“ Ég elska þig enda- laust. Þín Erna. Elsku amma, nú er komið að kveðjustund. Ég kveð þig með minninguna um ömmu sem öll börn ættu að fá að njóta. Minn- ingarnar eru margar og tengjast ófáar fyrstu kynnum mínum af ólíkum upplifunum. Fjöruferðir, sundlaugaferðir í Laugardalinn eða Vesturbæinn, með ís eða pylsu á eftir, „náttfatamið- nætur“-göngutúrar í móanum nálægt Melási í Garðabæ og svo mætti lengi telja. Þú kynntir mér Elvis Presley þegar ég, sennilega ekki nema 8-9 ára gamall, spurði hvort þú ættir eitthvert rokk til að setja á plötuspilarann. Þú varst mikil tilfinningavera og sýndir hvernig þér leið. Lífið var ekki alltaf sældin ein og ótímabært fráfall afa Magnúsar var erfiður kafli í þínu lífi. En þú komst yfir það og einnig það þegar þú misstir Þórhildi dóttur þína, sem hafði verið þér svo ná- in í meira en fjörutíu ár. Við áttum margar góðar stundir saman og það var ánægjulegt að hafa tök á að hjálpa þér með minni viðvik eft- ir að ég var sjálfur kominn með bílpróf og bíl. Það var ekki alltaf auðvelt að stoppa þig í að brölta upp á loft og koma sumar- og vetrardekkjum upp og niður, en sem betur fer lærðirðu að þiggja hjálp við það með tímanum, þótt þú vildir síst af öllu vera til óþæginda. Þú varst boðin og búin að keyra mig í sveitina í fyrsta skiptið sem ég fór þangað að vinna og áttir stóran þátt í að kenna mér svo ólíka hluti sem að lesa og synda skriðsund. Ég var heppinn að eiga þig að og get vel unnt þér að vera komin á næsta áfangastað, eftir að halla fór undan fæti í heilsu- fari þínu.Ég vona að þú hafir með árunum náð að fyrirgefa mér vegna athugasemdar sem ég lét falla um eldhúsgólfið hjá þér, sennilega þegar ég var sex eða sjö ára gamall – það fylgdi okkur einhvern veginn alla tíð síðan, auðvitað á jákvæðu nót- unum. Hvíl í friði, elsku amma Nóra. Ari Sverrisson. Það var alltaf gott að koma í heimsókn til ömmu Nóru. Dyrnar voru opnar, það borgaði sig að koma fyrir eða eftir að Guiding Light var sýnt í ríkis- sjónvarpinu. Alls ekki á meðan, þá var amma að fylgjast með nýjustu ævintýrum Spaulding- fjölskyldunnar í Ameríku. Heima hjá ömmu var margt að skoða, herbergin mörg og myndaalbúmin virtust óteljandi. Uppáhaldsmyndin mín var göm- ul mynd af ömmu með Hollywoodstjörnu. Var það Clark Gable, Tyrone Power eða einhver annar? Aðalatriðið við myndina var þó að á henni leit amma út eins og Hollywood- stjarna sjálf. Það var eins og hún ætti ævintýralega fortíð og þessi mynd væri það eina sem eftir lifði. Það var þó allt ævintýri heima hjá ömmu Nóru. Háa- loftið var auðvitað mest spenn- andi, líklega vegna þess að mað- ur mátti helst ekki fara þangað. Þar var alltaf hægt að finna eitt- hvað nýtt og líklega leyndust einhvers staðar frekari vísbend- ingar um Hollywood-árin henn- ar ömmu. Helsti fjársjóðurinn var raunverulegur sjóræningja- fjársjóður, gamla myntsafnið hans afa Magnúsar, fjölmargar krukkur fullar af gömlum smá- peningum og vindlakassi fullur af seðlum. Við amma töluðum oft um það hvers konar fjár- sjóðskistu við ættum að smíða fyrir fjársjóðinn og hvar við gætum síðan grafið hann. Amma talaði oft um afa Magnús, hún var sannkallaður „hopeless romantic“ eins og þeir segja í Ameríku. Ástin var eins og í Gone with the Wind sam- kvæmt ömmu; eilíf og ósigrandi. Það mátti enn finna fyrir nær- veru afa í húsinu, pípan hans var enn á sínum stað og myndir af honum víðsvegar um húsið. Í hvert sinn sem hún horfði á mynd af afa urðu augun dreym- in og hún gleymdi sér eitt augnablik. „Bjútíið mitt,“ sagði hún þá og horfði út í tómið. Eft- ir að hann dó var hún alltaf á leiðinni til hans. Það liðu næst- um þrjátíu ár en nú verður amma aftur hjá afa. Enda dugir ekkert annað fyrir svona „hope- less romantic“ eins og hana. Sturla Óskarsson. Elskulegur eiginmaður minn, VILHJÁLMUR GUÐBJÖRNSSON, lést 13. febrúar. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 22. febrúar klukkan 15. Þorgerður Baldursdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ÓLÖF SIGRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, lést fimmtudaginn 8. febrúar. Útförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 22. febrúar klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlega afþakkað en þeim sem vilja minnast hennar er bent á dvalarheimilið Höfða. Ingibjörg J. Ingólfsdóttir Hreinn Björnsson Magnús F. Ingólfsson Hlíf Björnsdóttir Kristrún Halla Ingólfsdóttir Daníel R. Elíasson og fjölskyldur Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma, langamma og langalangamma, RANNVEIG JÓNSDÓTTIR, Sólheimum 23, lést miðvikudaginn 14. febrúar á Landspítalanum Fossvogi. Útförin fer fram frá Langholtskirkju þriðjudaginn 27. febrúar klukkan 13. Jón Gunnar Ottósson Margrét Frímannsdóttir Gunnhildur Ottósdóttir Bryndís Ottósdóttir Kristján Árni Baldvinsson Guðbjörg Ottósdóttir Björg Guðrún Gísladóttir Ari Viðar Jónsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, LAUFEY JÚLÍUSDÓTTIR, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund mánudaginn 12. febrúar. Nanna Aðalheiður Þórðardóttir Gerður Þórðardóttir Bergvin Magnús Þórðarson tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNA SIGURLÁSDÓTTIR, Fossvegi 10, Selfossi, lést á heimili sínu 10. febrúar sl. og verður jarðsungin fimmtudaginn 22. febrúar klukkan 14 frá Selfosskirkju. Gestur Haraldsson Kristbjörg Óladóttir Erla Haraldsdóttir Kristinn Bjarnason Sigþór Haraldsson Birgir Haraldsson Margrét Auðunsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTHILDUR ÓLAFSDÓTTIR, Hafnarfirði, andaðist á Sólvangi 11. febrúar. Ólafur Þ. Harðarson Hjördís Smith Sigrún Á. Harðardóttir Tryggvi Harðarson Edda S. Árnadóttir Ragnhildur G. Harðardóttir Sigurður G. Þorláksson Elín Soffía Harðardóttir Sigurjón Gunnarsson Kristín Bessa Harðardóttir Bjarni Sigurðsson Guðrún Harðardóttir Tryggvi Jóhannsson barnabörn og barnabarnabörn Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.