Morgunblaðið - 19.02.2018, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 19.02.2018, Qupperneq 23
árin. Ég veit bara að það hefur verið mikið að gera hjá mér í langan tíma og annríkið verður stöðugt meira, ef eitthvað er, þegar maður ætti ein- mitt að vera farinn að draga saman seglin og taka lífinu með svolítið meiri ró. Nú er nýlokið stórri sýningu sem haldin var í Berlín frá því í nóvember og fram í janúar, og síðan verður önnur sýning opnuð hér í Amst- erdam hinn 3. mars næstkomandi. Á næsta ári er svo fyrirhuguð stór yfir- litssýning sem mun ferðast eitthvað um. Það er alltaf heilmikið stúss í kringum þetta og í mörg horn að líta eins og þú skilur.“ Mikið hefur verið ritað um verk Hreins, m.a. gaf Mál og menning og Listasafn Íslands út bók um hann og nú er í vinnslu stór bók um hann. Verkum Hreins er oft lýst svo að þau séu björt og létt, ljóðræn, ein- læg, heimspekileg og fjalli gjarnan um óáþreifanleg og hugræn fyrir- brigði: „Ég hef auðvitað heyrt ýmiss konar skilgreiningar á því sem ég hef verið að fást við í gegnum árin og um það hef ég í rauninni ekkert að segja. Ég vil alls ekki skilgreina þessi verk mín sjálfur. Það er ekki í mínum verkahring. Þó að ýmsir sjái ástæðu til að ræða um heimspekilega skír- skotun í verkum mínum, þá er ég alls ekki heimspekingur í hefðbundnum skilningi þess orðs. Ég vinn bara mín verk og læt svo aðra um að fjalla um þau. Það er ekki mín deild.“ En eru einhverjar sýningar fyrir- hugaðar á Íslandi á næstunni? „Það eru alltaf einhverjar hug- myndir í gangi en ekkert sem hefur verið endanlega ákveðið eins og stendur. Ég var með sýningu, ásamt öðrum, í Ásmundarsal fyrir einu og hálfi ári. En þá kom ég síðast til Ís- lands. Ég vonast til að komast aftur til Íslands áður en langt um líður en ég er ekki eins duglegur að ferðast og ég var áður.“ Meðan blaðamaður er að ræða við listamanninn í síma er ljóst að eitt- hvað mikið er á seyði í kringum hann. Glaðværð og skvaldur heyrist stöðugt meira í gegnum símann: „Ég veit nú eiginlega ekki mitt rjúkandi ráð. Hér er kominn hópur fólks til að samfagna afmæli mínu sem er nú reynar ekki fyrr en á morgun. Ég átti ekki von á þessum mannfögnuði enda var víst ætlunin að koma mér á óvart. En þó þetta sé auðvitað skemmti- leg uppákoma þá er þetta líka í aðra röndina svolítill terrorismi. Ég held við verðum því að fara ljúka þessu spjalli því ég verð auðvitað að reyna að sinna þessu góða fólki sem hér er allt í einu mætt til að gera mér glað- an dag.“ Fjölskylda Hreinn var kvæntur Hlíf Svavars- dóttur, f. 24.12. 1949, ballettdansara, en þau skildu. Bræður Hreins eru Baldur, f. 5.12. 1930, fyrrv. bóndi á Bæ í Miðdölum í Dalasýslu, og Bragi, f. 30.7. 1934, raf- virkjameistari í Reykjavík. Foreldrar Hreins voru Friðfinnur Sigurðsson, f. 6.4. 1900, d. 1970, bóndi í Bæ í Miðdölum, og kona hans, Elín, f. 13.8. 1899, d. 1991, hús- freyja í Bæ. Hreinn Friðfinnsson Herdís Ólafsdóttir húsfr. í Stóra-Skógi í Miðdölum Magnús Bjarnason b. í Stóra-Skógi Hugborg Magnúsdóttir húsfr. á Skörðum Guðmundur Íkaboðsson b. á Skörðum í Miðdölum Elín Guðmundsdóttir húsfr. í Bæ Halldóra Benediktsdóttir húsfr. á Saurstöðum í Haukadal Íkaboð Þorgrímsson b. á Saurstöðum Bergur Bjarnason sjóm. og smiður í Grindavík Guðbergur Bergsson rithöfundur Vilhjálmur Bergsson listmálari Bjarni Bjarnason b. að Hellnafelli í Grundarfirði Baldur Friðfinnsson b. í Bæ í Miðfirði Bragi Friðfinnsson rafvirkjam. í Hafnarfirði Friðsemd Íkaboðs- dóttir húsfr. í Heyholti í Borgarfirði Sólveig Jóhanns- dóttir húsfr. í Rvík Guðmundur J. Guðmundsson alþm. og form. Dagsbrúnar Gunnar Örn Guð- munds son héraðs- dýra- læknir á Hvann eyri Loftur Magnússon b. í Gröf í Miðdölum Yngvi Loftsson múrarameistari í Kópavogi Sólrún Yngvadóttir leikkona Óskar Loftsson byggingameistari í Kópavogi Skarphéðinn Pálmason fv. menntaskólakennari í Rvík Guðmundur Pálmason jarðeðlisfr. og forstöðum. jarðhitadeildar Orkustofnunar og skákmeistari Ólafur Pálmason Mag.art. Í Reykjavík Guðrún Guðmundsdóttir húsfr. í Rvík Guðmundur Hjartarson seðlabankastjóri Emil Hjartarson í TM-húsgögnum Pálína Guðmundsdóttir húsfr. í Rvík Ragnheiður Jósúadóttir húsfr. á Gilsbakka Bjarni Jónsson b. og hagyrðingur á Gilsbakka í Miðdölum Ingibjörg Bjarnadóttir húsfr. í Bæ Sigurður Jósúason b. í Bæ Sigríður Samúelsdóttir húsfr. í Bæ Jósúa Jósúason b. í Bæ Úr frændgarði Hreins Friðfinnssonar Friðfinnur Sigurðsson b. í Bæ í Miðdölum í Dölum ÍSLENDINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2018 90 ára Sigurður Ólafsson Trausti Eyjólfsson 85 ára Auður Birna Egilson Baldur Ingvarsson Guðmundur Vilhjálmsson Hrefna Lárusdóttir Ólafía Lárusdóttir Solveig M. Þorbjarnardóttir 80 ára Birgir Sigurjónsson Elsa Svandís Valentínusdóttir Stefán Gylfi Valdimarsson 75 ára Birgir Sigurðsson Guðrún Ólafsdóttir Kristmar J. J Arnkelsson Sigríður Magnúsdóttir Sigurður Benjamínsson 70 ára Ingibjörg S. M. Gunnlaugsdóttir Jensína S. Guðmundsdóttir Magnús Jónsson Sigrún Jónatansdóttir Þórunn Þórhallsdóttir 60 ára Björn Grétarsson Dóra Vilhelmsdóttir Erling Ruben Gígja Guðbirna K. Þórðardóttir Guðrún Halla Jónsdóttir Hörður Hjartarson Jónína Gíslína Daníelsdóttir Kristján Guðmundur Jóakimsson Kristján Þór Sigfússon Ómar Stefán Guðmundsson Sigurpáll Bergsson Stanislavas Stundze 50 ára Anna Sigríður Árnadóttir Anzela Tsistjakova Níelsson Gunnlaugur Þór Ævarsson Helga Björg Jónasardóttir Margrét Auður Þórólfsdóttir Marija Stela Rudzioniene Svandís Hallbjörnsdóttir Þorgeir Guðfinnsson 40 ára Agata Iwona Platek Anna Steinunn Jónasdóttir Birgir Björn Sævarsson Guðrún Magnúsdóttir Jón Heiðar Andrésson Krzysztof Józef Krajewski Krzysztof Uscio Miroslav Sapina Viðar Pálsson Virna Liza Baric Chavez Xuewen Zhong 30 ára Arna Ingimundardóttir Einar Einarsson Elvar Geirsson Elvar Þór Þorleifsson Hjörtur Ólafsson Hugrún Árnadóttir Ilona Malgorzata Bachorz Ivan Martinez Gutierrez Karol Czartoryjski Lára Guðmundsdóttir Óttar Örn Jónsson Piotr Pawel Wodzinski Rafal Kozlowski Rafn Helgason Siggeir Örn Steinþórsson Sólrún Tinna Grétarsdóttir Viktoría Lýðsdóttir Hirst Vladislavs Nikitins Til hamingju með daginn 40 ára Jón er Reykvík- ingur og er fjallaleið- sögumaður og rekur fyrirtækið Asgard Beyond ásamt öðrum. Maki: Ásdís Dögg Ómars- dóttir, f. 1981, fram- kvæmdastjóri Asgard. Sonur: Askur Emil, f. 2010. Foreldrar: Andrés B. Sig- urðsson, f. 1947, fram- kvæmdastjóri Bræðranna Ormsson, og Erla Hafliða- dótir, f. 1947, bús. í Rvík. Jón Heiðar Andrésson 30 ára Einar er frá Heiðarbrún í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og býr þar. Hann er pípulagn- ingamaður og vinnur hjá Veitanda í Birtingaholti. Maki: Aðalheiður Einars- dóttir, f. 1991, leiðbein- andi í leikskóla og tamn- ingamaður. Foreldrar: Einar Guðna- son, f. 1961, rekur bif- reiðaverkstæði, og Sigrún Símonardóttir, f. 1962, sér um heimaþjónustu. Einar Einarsson 30 ára Elvar fæddist í Danmörku og ólst upp í Lemvig til tólf ára aldurs og býr núna í Garðinum. Hann er þjónustustjóri hjá IGS í flugafgreiðslu. Maki: Elísabet Guðjóns- dóttir, f. 1990, vinnur í apóteki. Dóttir: Íris Erla, f. 2016. Foreldrar: Þorleifur Guð- jónsson, f. 1951, sjómað- ur, búsettur í Keflavík og Jóhanna Hilmarsdóttir, f. 1956, búsett í Garði. Elvar Þór Þorleifsson  Rachel Megan Thorman hefur varið doktorsritgerð sína í efnafræði við Há- skóla Íslands. Heiti ritgerðarinnar er Víxlverkan lágorkurafeinda við tvo ólíf- ræna málmkomplexa sem notaðir eru við rafeindadrifna útfellingu með skörpum rafeindageislum: (3-C3H5) Ru(CO)3Br og (5-Cp)Fe(CO)2Mn (CO)5. Leiðbeinandi var Oddur Ingólfs- son, prófessor í efnafræði við raunvís- indadeild Háskóla Íslands. Örprentun með skörpum rafeinda- geisla (e. Focused Electron Beam In- duced Deposition, FEBID) er aðferð þar sem rafeindahvötuð efnahvörf eru not- uð til að fella út hreina málma úr málm- lífrænum sameindum, svokölluðum for- verasameindum. Með þessari tækni má með beinum hætti mynda þrívíða strúktúra á nanóskala á ójöfn yfirborð, sem býður upp á gríðarmikla möguleika í örtækni. FEBID er þó enn sem komið er haldið annmörkum: hreinleikinn er takmarkaður vegna ófullkomins niður- brots forverasameindanna og upp- lausnin er takmörkuð vegna útfellinga utan rafeindageislans. Fjöldi lágorku- rafeinda losnar fyrir hverja rafeind úr rafeindageislanum sem rekst á yfir- borðið og sýnt hefur verið fram á að slíkar lágorkurafeindir valda niðurbroti á forverasameindum í FEBID. Þvergeislatilraunir, þar sem sam- einda- og rafeinda- geislar mætast undir réttu horni, geta sýnt fram á hvaða lágorku-raf- eindadrifin efna- hvörf skipta máli í FEBID. Eitt ferlið kallast rjúfandi raf- eindarálagning (e. Dissociative Electron Attachment, DEA). Annað kallast rjúf- andi jónun (e. Dissociative Ionization, DI). Í DI rofna vanalega fleiri en eitt efnatengi. Þessi tvö ferli, DEA og DI, eru tvö af nokkrum lágorkuferlum sem hafa líklega mest áhrif á FEBID. Í þessu doktorsverkefni voru árekstr- ar lágorkurafeinda við málm-lífrænar FEBID-forverasameindir rannsakaðir m.t.t. bæði DEA og DI. Þessar mælingar voru notaðar til að meta líkurnar á að þessar sameindir séu hentugar sem for- verar í FEBID. Auk þess var skammta- fræðilegum útreikningum beitt til að fá betri innsýn í hvarfganga niðurbrot- anna. Tvær sameindir voru skoðaðar, þ.e. (3-C3H5)Ru(CO)3Br og (5-Cp)Fe (CO)2Mn(CO)5. Sú fyrrnefnda var valin því hún inniheldur þrjár tegundir tengla, þ.e. -tengda, carbonyl-hópa og halíð- hóp. Niðurbrot þessara tengla voru met- in innbyrðis og því var hægt að áætla hvernig hver og einn hentar í FEBID. Rachel Megan Thorman Rachel Megan Thorman er frá bænum Mahwah í New Jersey. Hún útskrifaðist frá Princeton-háskóla árið 2011 með BS-gráðu í efnafræði og viðbótardiplóma í efnisfræðum. Hún er núna nýdoktor við John Hopkins-háskóla. Doktor Ég sleit krossbönd og fór í fimm liðþófaaðgerðir. Samt hljóp ég hálft maraþon í sumar verkjalaust.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.