Morgunblaðið - 21.02.2018, Page 4

Morgunblaðið - 21.02.2018, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2018 Sporðamælingar Jöklarannsóknafélags Íslands sýna að tuttugu jöklar hopa, þetta kemur fram í þeim 25 mæl- ingum sem borist hafa umsjónarmanni. Tvær mælingar sýna að jöklar eru að ganga fram og einn jökull stendur í stað. Ekki náðist mæling á tveimur stöðum vegna snjóa og fljótandi ísjaka á lóni. Þær mælingar sem sýna að jöklar hafa gengið fram eru ein mæling af þremur í Skeiðarárjökli og önnur af tveim- ur í Heinabergsjökli. Bergur Einarsson, jarðeðlisfræð- ingur á Veðurstofu Íslands og umsjónarmaður sporða- mælinganna, lætur þess getið að báðir þessir jöklar gangi fram í lón. Það flækir mælinguna og getur leitt til óreglu. Tvær aðrar mælingar í Skeiðarárjökli sýna að jökullinn hopar þar. Grímslandsjökull stendur í stað. Enn eiga eftir að berast niðurstöður mælinga. Ekki kemur á óvart að flestir jöklarnir skuli vera að hopa, þar á meðal flestir af mældu sporðum stóru jöklanna þriggja, þegar litið er til hlýnandi veðurfars og þróunar undanfar- inna áratuga. Jöklarannsóknafélagið hefur staðið fyrir sporðamæl- ingum frá árinu 1930. Hægt er að sjá þróunina á vef fé- lagsins, http://spordakost.jorfi.is/. Lengst af hafa sjálf- boðaliðar félagsins notast við sömu mæliaðferðina, málband til að mæla fjarlægð sporðs frá merki framan við jökul. Nýrri tækni hefur verið tekin í notkun samhliða. Farið er að nota GPS-staðsetningartæki, dróna til skoð- unar á aðstæðum og golfkíkja. Jöklamælingafólk fær stundum lánaðan fjarlægðarkíki Veðurstofu Íslands, að því er fram kemur í fréttabréfi Jöklarannsóknafélagsins. Hann er sannkallað galdratæki því með honum er unnt að mæla fjarlægð þvert yfir lón og að jökulsporði, í allt að kílómetra fjarlægð. Bergur tekur þó fram að þrátt fyrir nýja mælitækni sé grunnhugsunin sú sama og áður, að mæla færslu jökul- sporðsins á einum stað, frá mælipunkti í skriðstefnu jök- ulsins. helgi@mbl.is Morgunblaðið/RAX Skeiðarárjökull Sporðar skriðjöklanna eru mældir árlega eins og gert hefur verið í bráðum níutíu ár. Stöðugt sígur á ógæfuhliðina enda fer loftslag hlýnandi. Flestir skriðjöklarnir hopa enn  Sporðamælingar Jöklarannsóknafélagsins sýna að tuttugu jöklar hopa en tveir ganga fram Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fasteignafélagið Reitir hefur til skoðunar að innrétta hótel í Ármúla 7. Meðal hugmynda er að tengja reksturinn við Hótel Ísland í Ármúla 9. Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, segir málið á hugmyndastigi. Engar ákvarðanir hafi verið teknar. Hann staðfestir að Reitir hafi ný- verið keypt tengibyggingu milli Ár- múla 7 og 9. Þar var lengi veitinga- sala á jarðhæð og krár undir ýmsum nöfnum á efri hæð. „Við eigum Ármúla 7 og Ármúla 9. Fyrir nokkru keyptum við tengi- bygginguna á milli. Hún var keypt í þeim tilgangi að rífa hana sem fyrst og koma öðru og sómasamlegra húsi í gagnið. Þá vöknuðu hugmyndir um hvort skynsamlegt væri að tengja húsin. Þ.e.a.s. að með því að setja upp herbergi í Ármúla 7 mætti nýta hagkvæmni stærðarinnar í innviðum hótelsins í Ármúla 9. Málið er enn á þeim stað,“ segir Guðjón. Myndi liggja beinast við Guðjón ítrekar að engir samning- ar hafi verið gerðir. Þá hafi ekki fengist leyfi frá borgaryfirvöldum fyrir þessari breytingu. Ef hún verði að veruleika liggi beinast við að leita fyrst til rekstraraðila hótelsins í Ármúla 9. Samkvæmt fasteignaskrá var Ármúli 7 byggður 1965 og 1985 en Ármúli 9 árið 1988. Síðarnefnda húsið var allt tekið í gegn áður en Klíníkin var þar opnuð. Guðjón segir aðspurður að Reitir hafi kynnt borginni hugmyndir um breytingar á Ármúla 7. Meðal ann- ars séu hugmyndir um að hækka bygginguna um eina hæð. Beðið sé endanlegra svara frá borginni. Skammt frá, eða í Ármúla 5, var hótelið City Park Hotel nýverið opnað. Þá áforma fjárfestar að byggja hótel í Hallarmúla 2. Þar er nú verslunin Tölvutek. Einnig má nefna að hótel er áformað á Suður- landsbraut 18, auk þess sem til skoð- unar er að stækka Reykjavík Lights Hotel á Suðurlandsbraut 12. Morgunblaðið/Hari Ármúli 7 og 9 Reitir keyptu tengibyggingu milli húsanna. Hugmyndir eru um að breyta Ármúla 7 (húsið til vinstri). Reitir skoða að stækka Hótel Ísland til suðurs  Hafa hugmyndir um að byggja eina hæð ofan á Ármúla 7 Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Marta Guðjónsdóttir verður eini sitj- andi borgarfulltrúinn á lista Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í vor, verði listi uppstillingarnefndar samþykktur. Áslaug Friðriksdóttir og Kjartan Magnússon eru ekki á fyr- irliggjandi tillögu og þá gaf Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík, ekki kost á sér. Uppstillingarnefnd Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík mun kynna til- lögu sína að listanum á morgun og bera hann upp til samþykktar á fundi fulltrúaráðs. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins verður Hildur Björnsdóttir, lögfræðingur og fyrrverandi formað- ur Stúdentaráðs Háskóla Íslands, í öðru sæti á eftir Eyþóri Arnalds sem vann stórsigur í leiðtogaprófkjöri flokksins um fyrsta sætið. Á eftir þeim kemur Valgerður Sigurðardótt- ir í þriðja sæti, Egill Þór Jónsson í fjórða sæti og Marta Guðjónsdóttir, sitjandi borgarfulltrúi, í því fimmta. Katrín Atladóttir verður í sjötta sæti, Örn Þórðarson í því sjöunda og Björn Gíslason í áttunda sæti. Þegar mbl.is hafði samband við Mörtu vildi hún ekki staðfesta í hvaða sæti hún yrði fyrr en listinn yrði kynntur á fimmtudaginn. „Ég hlakka til að hefja kosningabaráttuna enda er mikill meðbyr með stefnunni okk- ar,“ segir Marta. Hún segir listann sterkan og sigurstranglegan en að öðru leyti vill hún ekki tjá sig um upp- stillinguna. Sjálfstæðismenn stokka upp í borginni  D-listi í borginni kynntur á morgun Hildur Björnsdóttir (f. 1986) lögmaður og fyrrverandi formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands, skipar annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hildur hefur starfað sem lögmaður hjá lögmannstofunni Rétti ásamt því að hafa skrifað reglulega bakþanka fyrir Fréttablaðið en tengdamóðir hennar, Kristín Þor- steinsdóttir, er ritstjóri blaðsins. Hildur er einnig með BA-próf í stjórnmálafræði og kom m.a. fram í sjón- varpsþáttum Sindra Sindrasonar, Á uppleið, sem fjallaði um efnilega Íslendinga á uppleið. Hildur er gift Jóni Skaftasyni sem hefur um árabil starfað fyrir Ingibjörgu Pálmadóttur og Jón Ásgeir Jóhannesson. Hildur á þrjú börn, tvær dætur og einn son. Hildur Björnsdóttir í 2. sæti LÖGMAÐUR OG FYRRVERANDI FORMAÐUR SHÍ Hildur Björnsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.