Morgunblaðið - 21.02.2018, Side 6

Morgunblaðið - 21.02.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2018 PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is skotbómulyftara AG línan frá Manitou býður meðal annars upp á nýtt ökumannshús með góðu aðgengi og útsýni. HANNAÐUR TIL AÐ VINNA VERKIN NÝ KYNSLÓÐ • DSB stjórntakkar • JSM stýripinni í fjaðrandi armi • Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum • Virk dempun á bómu skurnar sé langt umfram kosti hennar, segja þvert á móti að kost- irnir varðandi heilbrigði geri það að verkum að það sé í alla staði eðli- legt að umskera.“ umskurn ekki bara um gagnrýnis- lausa undirgefni gagnvart boðun guðs heldur líta þeir sömuleiðis á að þetta hafi hagnýtt gildi. Þeir eru ósammála því að skaðsemi um- Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Á árinu 2017 bárust úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála (UUA) 158 kærur en lokið var 144 málum. Bættust því 14 mál við málahala nefndarinnar sem var 135 mál 1. jan- úar 2017. Þetta kemur fram í til- kynningu á vef UUA. „Við viljum ekki draga fjöður yfir að málsmeðferðartíminn er of lang- ur. Það er að sjálfsögðu óásættan- legt en það er mjög mikill kærufjöldi hjá okkur og sum ár standa þar upp úr. Við stöndum nú bæði frammi fyr- ir uppsöfnuðum fortíðarvanda og svo fjölgar málum og umfang þeirra vex þegar vel árar og mikið er um framkvæmdir, eðli málsins sam- kvæmt,“ segir Nanna Magnadóttir, formaður og forstöðumaður nefnd- arinnar. Fólk meðvitaðra um rétt sinn Spurð hver sé ástæðan fyrir mikl- um fjölda mála segist Nanna telja að þjóðfélagið sé orðið opnara og gagn- særra og fólk sé meðvitaðra um rétt sinn. Úrskurðir nefndarinnar séu fullnaðarúrskurðir á stjórnsýslustigi sem séu bindandi fyrir stjórnvöld og aðra sem leita til UUA en það má reyna að fá þeim hnekkt fyrir dóm- stólum. Mál séu afgreidd í þeirri röð sem þau berast en hægt sé að sækja um flýtimeðferð ef tekst að rök- styðja að málið sé brýnna en önnur. UUA var stofnuð 1. janúar 2012 og úrskurðar í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana og í ágrein- ingsmálum á sviði umhverfis- og auðlindamála eftir því sem mælt er fyrir um í lögum á því sviði. Gert er ráð fyrir því í stjórnarsáttmála ríkis- stjórnarinnar að fjölga starfs- mönnum í nefndinni. Málahalinn var 149 mál í upphafi ársins og skiptust þau þannig: Eitt mál frá árinu 2015 beið afgreiðslu. Þá biðu afgreiðslu 51 mál, sem bár- ust 2016. Loks var ólokið 97 af þeim 158 málum sem bárust í fyrra. Vilja ekki draga fjöður yfir of langa meðferð mála  Málahalinn hjá úrskurðarnefnd um- hverfis- og auðlindamála lengist enn Morgunblaðið/Hari Byggingarkranar Framkvæmdum hefur fjölgað og umfang aukist. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Lítið hefur miðað í samkomulagsátt að undanförnu í kjaraviðræðum samninganefndar ríkisins (SNR) og þeirra þriggja aðildarfélaga BHM sem eru með kjaradeilur sínar við ríkið til sáttameðferðar hjá ríkis- sáttasemjara. 14 aðildarfélög BHM hafa samþykkt kjarasamninga við ríkið sem gilda fram í mars á næsta ári. Eru þeir samningar allir efn- islega hinir sömu í öllum meginat- riðum. „Ástæða þess að við gátum ekki fallist á þennan samning er sú að launaþróun okkar er sú langslak- asta bæði innan BHM og þótt víðar væri leitað,“ segir Áslaug Íris Vals- dóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands. „Nú er svo komið að við það að bæta tveggja ára háskóla- námi við hjúkrunarnám eru allar líkur á því að [viðkomandi] fái lægri laun en hjúkrunarfræðingur,“ bætir hún við. Deilu ljósmæðra og ríkisins var vísað til sáttasemjara 5. febrúar. Hefur einn fundur verið haldinn hjá sáttasemjara og annar er boðaður hinn 28. febrúar að sögn Áslaugar. Ósamið við náttúrufræðinga Félag íslenskra náttúrufræðinga sem einnig á ósamið við ríkið hefur boðað til félagsfundar 1. mars vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem upp er komin í kjaraviðræðum fé- lagsins við ríkið. Hefur jafnframt verið óskað eftir fundi með for- sætisráðherra og fjármálaráðherra til að fara yfir stöðu viðræðna FÍN og SNR. Maríanna H. Helgadóttir, formaður félagsins, segir í samtalið við Morgunblaðið að ekki sé farið að ræða aðgerðir til að þrýsta á lausn. FÍN vísaði kjaradeilunni til rík- issáttasemjara í október og er fundað á tveggja vikna fresti en eig- inlegar samningaviðræður eru þó ekki í gangi að sögn hennar þar sem SNR hefur hafnað kröfum fé- lagsins. ,,Það er fjármálaráðherra sem ber ábyrgð á þessum viðræðum en ekki samninganefnd ríkisins,“ segir hún. Maríanna segir að félagið sé ekki tilbúið að fallast á þá af- arkosti sem hin aðildarfélögin 14 hafi samþykkt. Segjast ekki fallast á afarkosti SNR  Ljósmæður segjast búa við lökustu launaþróunina  Félag íslenskra náttúrufræðinga vill hitta ráðherra 3 deilur í sáttameðferð » Félagsmenn 14 aðildarfélaga BHM hafa samþykkt nýgerða kjarasamninga. » Félag íslenskra hljómlistar- manna, Félag íslenskra nátt- úrufræðinga og Ljósmæðra- félag Íslands eiga enn í deilu við ríkið um endurnýjun samn- inga. Umboðsmaður barna í Noregi vonast til þess að Noregur fylgi í fótspor Íslendinga og leggi fram frumvarp sem banni umskurð ungra drengja. Norska ríkisútvarpið NRK sagði frá því í gær. Anne Lindboe, umboðsmaður barna í Noregi, segist styðja slíkt bann af nokkrum ástæðum; norskt heilbrigðisstarfsfólk hafi tekið allan vafa af um að umskurður ungra drengja sé sársaukafull aðgerð sem þjóni engum læknisfræðilegum tilgangi, auk þess sem ákveðin hætta sé alltaf fyrir hendi á aukaverkunum. „Síðan erum við með barnasáttmála sem kveður á um að barnið hafi val og að á það sé hlustað,“ segir Lindboe. Þá fjallaði Politiken í Danmörku um íslenska frumvarpið um bann við umskurði á drengjum í gær. Þar kemur fram að hafin er undirskriftasöfn- un í Danmörku, á vefsíðunni www.borgerforslag.dk sem er fyrir tillögur frá borgurum, gegn umskurði á drengjum fyrir 18 ára aldur sem ekki er nauðsynlegur af heilsufarsástæðum. Ef tekst að safna 50.000 undir- skriftum verður að taka tillöguna til umræðu í danska þinginu. Undir- skriftasöfnunin hófst 1. febrúar og stendur til 31. júlí. Nú þegar eru komnar um 20.000 undirskriftir. Vilja fylgja í fótspor Íslendinga TIL UMRÆÐU Á NORÐURLÖNDUNUM Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Umskurn drengja er algjört grund- vallaratriði í gyðingdómi og í raun- inni getur enginn karlmaður talist gyðingur með hefðbundnum hætti nema vera umskorinn, segir Bjarni Randver Sigurvinsson, guðfræð- ingur og trúarbragðafræðingur. „Þetta byggist á sáttmála á milli guðs og þess lýðs sem hann hefur útvalið og er talað um í 17. kafla fyrstu Mósesbókar. Það má segja að þeir sem snúa baki við umskurn- inni segi skilið við gyðingdóm, að skilningi flestra gyðinga. Páll post- uli var umskorinn gyðingur en þeg- ar hann boðaði fagnaðarerindi Jesú Krists sannfærðist hann um að um- skurn væri algjört aukaatriði, það væri inntak boðskaparins, kærleik- urinn, sem skipti öllu máli. Þannig að hann snýst gegn umskurninni og því hefur hún ekkert trúarlegt vægi í kristni,“ segir Bjarni Randver. Ef frumvarp um að gera um- skurn drengja refsiverða verður að lögum er verið að loka á það að gyðingar geti komið sér upp fjöl- skyldu hér á landi og eignast syni nema því aðeins að þeir snúi baki við gyðingdómi að sögn Bjarna Randvers. „Ef við bönnum umskurn þýðir það að Ísland er fyrsta landið í langan tíma sem lokar á gyðinga, á að þeir geti búið með góðu móti í landinu. Það vakir ekki fyrir þeim sem eru að leggja frumvarpið fram en það er hliðarverkunin.“ Verulegt vægi hjá múslimum Drengir eru líka umskornir í ísl- am og segir Bjarni Randver um- skurn hafa verulegt vægi þar líka. „Strangt til tekið getur karlmaður alveg verið múslimi þó að hann sé ekki umskorinn. Langflestir karl- menn meðal múslima eru um- skornir, það helgast af því að það eru til hadíður sem eru taldar mik- ilvægar og leggja áherslu á um- skurnina. Múslimar líta svo á að all- ir spámennirnir hafi verið umskornir og því beri karlkyns múslimum að umskerast sömuleiðis. Ég hef rætt við forystumenn allra múslimasamfélaganna fimm í landinu og í langflestum tilfellum hafa þeir gríðarlegar áhyggjur af þessu og telja frumvarpið árás á sig. Þeir óttast að þetta geta haft keðjuverkandi áhrif langt út fyrir Ísland innan Evrópu og á Vestur- löndum og að þessu verði beint gegn þeim. Sumir tala um að þessi lagasetning geri þeim illkleift að búa í landinu,“ segir Bjarni Rand- ver og telur að þessir trúarhópar myndu margir hverjar fara utan með börnin og fá umskurn þar. „Hjá múslimum og gyðingum snýst AFP Umskurður Í gyðingdómi á að umskera alla heilbrigða drengi átta daga gamla eins og Jóhannes skírara og Jesús. Umskurn grundvall- aratriði gyðingdóms  Ísland lokar á gyðinga ef bann við umskurn fer í gegn Skipting trúarbragða* *Heildarprósenta er hærri en 100% þar sem hærri mörk áætlaðs hlutfalls er notað fyrir hver trúarbrögð Heimild: www.adherents.com Kristni, 33% Annað Trúlausir, 16% Íslam, 21% Hindúismi, 14% Frumbyggjatrú, 6% Kínversk þjóðtrú, 6% Búddismi, 6% Gyðingatrú, 0,22% Síkismi, 0,36%

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.