Morgunblaðið - 21.02.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2018
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
SOFÐU RÓTT
SNÚNINGSLÖK FYRIR BETRI NÆTURSVEFN
Fastus býður upp á margar gerðir af lökum sem auðvelda snúning og hagræðingu í rúmi.
Hafðu samband eða komdu og fáðu ráðgjöf við val á snúningslaki hjá sérhæfðu starfsfólki okkar.
Fyrr á því kjörtímabili sem núer að líða í borgarstjórn kom
fram sú hugmynd að í upphafi
hvers borgarstjórnarfundar yrðu
óundirbúnar fyrirspurnir til borg-
arstjóra. Var vísað í
óundirbúnar fyr-
irspurnir á Alþingi í
þessu sambandi.
Dagur B. Egg-ertsson tók
þessu þannig að
segja að á þingi
væri þetta kallað „hálftími hálfvit-
anna“ og hafði bersýnilega ekki
mikla trú á að leyfa borgar-
fulltrúum að ónáða borgarstjór-
ann.
Þetta er út af fyrir sig í sam-ræmi við annað hjá núverandi
meirihluta borgarstjórnar, þar sem
borgarstjóri neitar að hitta aðra en
þá sem vilja hæla honum en sendir
jafnvel frekar þá sem sjálfir telja
sig vanhæfa til að hitta borgarbúa
sem ekki eru í klappliðinu.
En þó að borgarstjóri hafi miklaskömm á að hleypa almenn-
um þingmönnum og borgar-
fulltrúum nærri framkvæmdavaldi
ríkis og sveitar, þá er nokkuð langt
seilst af honum að kalla fyrir-
spurnartíma „hálftíma hálfvit-
anna“.
Vissulega er stundum langtgengið í vitleysisátt á þingi,
einkum undir liðnum störf þings-
ins, en þó má ekki gleyma því að á
þingi og í borgarstjórn er æskilegt
að skoðanaskipti eigi sér stað.
Þær umræður mættu oft veragagnlegri, en það þýðir ekki
að borgarstjóri eða ráðherrar ættu
að skorast undan því að svara fyr-
irspurnum. Raunar hafa ráðherrar
aldrei skorast undan því, en hvers
vegna gerir borgarstjóri það?
Dagur B.
Eggertsson
Þarf að óttast
skoðanaskipti?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 20.2., kl. 18.00
Reykjavík 0 skýjað
Bolungarvík 1 skýjað
Akureyri 2 skýjað
Nuuk -17 léttskýjað
Þórshöfn 6 léttskýjað
Ósló -5 alskýjað
Kaupmannahöfn 1 skýjað
Stokkhólmur -6 léttskýjað
Helsinki -8 heiðskírt
Lúxemborg 0 léttskýjað
Brussel 3 alskýjað
Dublin 8 heiðskírt
Glasgow 6 heiðskírt
London 6 rigning
París 5 rigning
Amsterdam 3 léttskýjað
Hamborg 2 léttskýjað
Berlín 1 heiðskírt
Vín 0 snjókoma
Moskva -8 léttskýjað
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 12 léttskýjað
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 14 skýjað
Róm 10 léttskýjað
Aþena 11 skýjað
Winnipeg -17 snjókoma
Montreal 2 rigning
New York 11 þoka
Chicago 15 rigning
Orlando 26 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
21. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:03 18:21
ÍSAFJÖRÐUR 9:16 18:18
SIGLUFJÖRÐUR 8:59 18:00
DJÚPIVOGUR 8:34 17:48
Lögreglan á Suð-
urlandi hvetur fólk
í ferðaþjónustu,
sem og ein-
staklinga í hálend-
isferðum, til þess
að kynna sér
mögulega hættu
vegna íshellis í
Blágnípujökli, suðvestur af Hofsjökli,
sem verið hefur vinsæll meðal ferða-
manna á undanförnum vikum. Vísað
er í því sambandi til brennisteins-
mengunar en mælingar á henni voru
gerðar 3. og 17. febrúar.
„Hellir þessi hefur ekki verið meðal
fjölfarinna ferðamannastaða en nú er
svo komið að nokkur fjöldi fólks fer
þangað með vel búnum fjallabílum í
viku hverri. Fréttir hafa sést í fjöl-
miðlum um alvarlegt atvik sem talið er
tengjast menguninni. Utan hellisins
var styrkur brennisteinsvetnis (H2S)
við 0 en eftir nokkurra mínútna göngu
inn eftir hellisgólfinu var styrkurinn
kominn yfir 20 ppm,“ segir í tilkynn-
ingu frá lögreglunni. Lögreglan bend-
ir á að ef bjarga þurfi fólki við þessar
aðstæður muni þurfa á sérhæfðum
búnaði að halda fyrir þá sem vinna að
björgun.
Vara við
hættuleg-
um íshelli
Brennisteins-
mengun í hellinum
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Samkvæmt upplýsingum frá Yutong
Eurobus tafðist afhending á raf-
magnstrætisvögnum frá Kína vegna
þess að aðlaga þurfti burðarvirki
þeirra íslenskum hraðahindrunum.
Morgunblaðið greindi frá því í gær
að Strætó bs. hefði gert 880 milljóna
króna samning við kínverska rafbíla-
framleiðandann Yutong Eurobus en
enginn vagn hefði verið afhentur á
grundvelli samningsins enn. Samn-
ingarnir voru gerðir í þremur örút-
boðum og áttu fyrstu fjórir vagn-
arnir að afhendast í júní í fyrra.
Benedikt G. Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Yutong Eurobus, seg-
ir hins vegar að fyrstu fjórir vagn-
arnir muni koma til Belgíu frá Kína
hinn 2. mars og ættu að vera komnir
til Íslands um miðjan mánuðinn.
Næstu fimm koma síðan til Íslands
um mánaðamótin maí júní og síðustu
fimm eru á áætlun í lok ágúst.
Að sögn Benedikts áttaði fram-
leiðandinn sig ekki á þeim mikla
fjölda hraðahindrana sem eru á höf-
uðborgarsvæðinu, sem gerðu það að
verkum að styrkja þurfti burð-
arvirki strætisvagnanna. Telur hann
að framleiðandinn hafi sýnt ábyrgð í
þessu máli og tekið á sig verulegan
kostnað við að útfæra vagnana svo
þeir henti við íslenskar aðstæður.
Verður afstaða til tafabóta tekin síð-
ar í samræmi við útboðsskilmála og
samninga við Strætó bs.
Rafmagnsvagnarnir koma í mars
Miklar tafir hafa orðið á afhendingu Burðarvirki aðlagað hraðahindrunum
Rafstrætó Væntanlegur í mars.