Morgunblaðið - 21.02.2018, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2018
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
KOMDU OG
REYNSLUAKTU
NÝJUM NISSANMICRA
NISSANMICRA
VERÐ FRÁ: 2.190.000 KR.
HUGVITSSAMLEG
NEYÐARHEMLUN
ELDSNEYTISNOTKUN FRÁ:
DÍSIL 3,2 L/100 KM.*
BENSÍN 4,4 L/100 KM.*
AKGREINAVIÐVÖRUN
OG LEIÐRÉTTING
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
6
5
2
6
*M
ið
að
vi
ð
up
pg
ef
na
rt
öl
ur
fra
m
le
ið
an
da
um
el
ds
ne
yt
is
no
tk
un
íb
lö
nd
uð
um
ak
st
ri.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti
í gærkvöldi með 10 atkvæðum gegn 5
breytt deiliskipulag lóðarinnar
Borgartún 24. Með því hefur verið
gefið grænt ljós á uppbyggingu 65
íbúða sunnan við Höfða.
Íbúar á svæðinu hafa mótmælt
áformunum. Hluti þeirra sjónarmiða
kom fram í bréfi sem Arnar Þór Stef-
ánsson, lögmaður hjá LEX, ritaði
skipulagsfulltrúa Reykjavíkur fyrir
hönd húsfélags í Mánatúni 7-17.
Sagði þar að fyrirhugaðar skipu-
lagsbreytingar væru í „andstöðu við
lög og [brytu] gegn lögvörðum hags-
munum íbúa Mánatúns 7-17“. Með
því að einskorða breytinguna við eina
lóð innan deiliskipulagssvæðis, þ.e.
Borgartún 24, virðist hafa verið látið
„undan þrýstingi“ lóðarhafa.
Fá bílastæði á hvern fermetra
Þá var vikið að bílastæðamálum.
„Hvað varðar bílastæðamál má
benda á að fjölbreytt atvinnustarf-
semi er í Borgartúninu og koma flest-
ir sem eiga erindi þangað á bílum og
leggja í þau fáu stæði sem nú eru við
Borgartún. Með vísan til þess hve fá
bílastæði eru fyrirhuguð við Borgar-
tún 24, þ.e. einungis eitt stæði á
hverja 120 fermetra íbúðarhúsnæðis
og 1 bílastæði að hámarki á hverja 50
fermetra atvinnuhúsnæðis, og þess
bílastæðaskorts sem þegar er til stað-
ar á svæðinu, er verulega hætt við því
að íbúar í Borgartúni 24 muni leggja í
þau bílastæði sem nú eru á lóð Mána-
túns og auka enn frekar á bílastæða-
vandann þar. Ekkert sýnilegt mat
hefur verið lagt á þennan þátt máls-
ins.“ Þá eru gerðar „alvarlegar at-
hugasemdir við að Reykjavíkurborg
skuli gera samkomulag við lóðar-
hafa … um fyrirhugaða uppbyggingu
á Borgartúni 24, þar sem m.a. er
samið um deiliskipulagsgerð og
greiðslur vegna hlutdeildar í innviða-
kostnaði, áður en frestur til að gera
athugasemdir við deiliskipulags-
tillöguna er liðinn. Þá áskilji íbúar í
Mánatúni sér „rétt til skaðabóta
vegna fyrirsjáanlegrar rýrnunar á
verði fasteigna“.
Löng bílaröð myndast
Kristín Birna Bjarnadóttir, Berg-
ljót María Sigurðardóttir og Sigrún
Sigvaldadóttir, íbúar í Samtúni, hafa
líka áhyggjur af skorti á bílastæðum.
„Nú þegar hýsir bílakjallarinn á
Höfðatorgsreitnum ekki nægan
fjölda bíla til þess að hverfið fyllist
ekki af bílum milli 7 og 18 á hverjum
virkum degi. Að sama skapi myndast
á degi hverjum löng bílalest í og úr
hverfinu. Það hefur þegar þau áhrif á
undirritaða íbúa að þeir skipuleggja
daginn sinn og ferðir í kringum þessa
örtröð,“ skrifa þær.
Gunnar S. Óskarsson arkitekt rit-
aði umhverfis- og skipulagssviði bréf
fyrir hönd Smith & Norland.
Fyrirtækið er með verslun í Nóa-
túni 4 og með skemmu á baklóð Borg-
artúns 22. Skemman er sögð „ómiss-
andi þáttur“ í rekstrinum og „ekki föl
til niðurrifs“. Bygging 2. hæða bíla-
geymslu í kjallara og gerð miðlægs
göngu- og hjólastígs eftir endilöngum
reit verði ekki að veruleika „nema
með því að breyta allri starfsemi á
innlóðum og rífa þar hús sem fyrir eru
í fullri notkun“.
Mun skapa minni umferð
Fram kom í svari Þorsteins R. Her-
mannsonar, samgöngustjóra Reykja-
víkur, að „með breytingu á Aðalskipu-
lagi Reykjavíkur 2010-2030 var
heimiluð uppbygging 350 íbúða í stað
200 á Borgartúnsreitum … Á móti
var dregið úr heimildum um bygging-
armagn atvinnuhúsnæðis um 15.000
fermetra … Með sömu forsendum er
áætlað að 65 íbúða byggð skv. deili-
skipulagstillögu fyrir Borgartún 24
leiði af sér um 275 bílferðir á sólar-
hring en sambærilegt byggingar-
magn atvinnuhúsnæðis myndi leiða af
sér þrefalt meiri bílaumferð,“ skrifaði
Þorsteinn m.a.
Borghildur Sölvey Sturludóttir
arkitekt svaraði athugasemdum fyrir
hönd umhverfis- og skipulagssviðs
Reykjavíkur. Hún skrifaði að verk-
efnið væri „í góðu samræmi við mark-
mið borgarinnar um þéttari betri
borgarbyggð eins og hún kemur fram
í aðalskipulagi“. Jafnframt væri til-
lagan í samræmi við markmið skipu-
lagsins um „að skapa heilsteypta
byggð með borgarmiðuðu gatnakerfi
þar sem vistvænir ferðamátar verða í
fyrirrúmi“. Ennfremur væri tillagan í
samræmi við það markmið aðalskipu-
lagsins að „dagleg verslun og þjón-
usta séu í sem mestri nálægð við
íbúana og fólk þurfi ekki bifreið til að
sækja þjónustu innan hverfisins“.
Þá vék Borghildur meðal annars að
athugasemd arkitekts Smith & Nor-
land um að skemma í Borgartúni 22
væri ekki föl til niðurrifs.
„Deiliskipulag ákveður hvar heim-
ilt er að byggja án þess að afstaða sé
tekin til eignarheimilda á húsum og
lóðum innan deiliskipulagða svæðis-
ins. Það að einhver vilji ekki rífa/selja
byggingu sem heimilt er að rífa í deili-
skipulagi hefur ekki áhrif á að heim-
ildin til niðurrifs verði samþykkt,“
skrifaði Borghildur.
Skapi umhverfisvænni borg
Hún vék svo að mótmælum íbúa:
„Breytingar á deiliskipulagi eru al-
mennt ekki gerðar til þess að einungis
aðliggjandi lóðarhafar njóti góðs af
heldur einnig til þess að styrkja
hverfið sem heild. [Fjölgun íbúa] á
svæðinu styrkir verslun og þjónustu á
svæðinu ásamt því að skapa lifandi
umhverfisvænni borg fyrir alla,“
skrifaði Borghildur.
Varðandi hækkun húsa á reitnum
hefði „við frekari vinnu á útfærslu
skipulagsins [komið] í ljós að svæðið
gæti auðveldlega borið meira á tak-
mörkuðu svæði til að það aðlagast
betur aðliggjandi byggð“. Með því
mætti „efla sjálfbærni hverfisins og
nýta betur núverandi innviði“.
Varðandi bílastæðamál væri al-
mennt „óheimilt fyrir íbúa og við-
skiptavini sem búa eða versla við
verslanir sem eru við Borgartún 24 að
leggja á öðrum lóðum en við Borg-
artún 24“. Loks var vísað „á bug stað-
hæfingum um að samráð hafi verið
ófullnægjandi“.
Samþykkir háhýsi í Borgartúni
Borgarstjórn gefur grænt ljós á þéttingu byggðar í Borgartúni Íbúar hafa mótmælt áformunum
Fulltrúi borgar segir íbúum og gestum reitsins munu verða óheimilt að leggja bílum annars staðar
Tölvuteikning/Yrki arkitektar
Drög Götuhornið mun breytast. Austast á reitnum verður nýr íbúðaturn.